Morgunblaðið - 10.09.1992, Page 4

Morgunblaðið - 10.09.1992, Page 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992 Kjúklingamir seljast vel Birgðir hiá bændum á þrotum KJÚKLINGAR hafa selst vel undanfarna daga vegna verðlækkun- ar á kjúklingakjöti í nokkrum stórmörkuðum á höfuðborgarsvæð- inu. Kjúklingabændur segja birgðir á þrotum og að til skorts á kjúklingakjöti geti komið á næstunni. I sumum verslunum hefur aukin sala á kjúklingum leitt til minni sölu á öðru kjöti. Ekki er búist við að kjúklingaútsalan standi nema fram yfir helgi. Bjami Ásgeir Jónsson formaður Félags kjúklingabænda sagði í samtali við Morgunblaðið að við verðlækkunina hafi aukist þrýst- ingur á kjúklingaframleiðendur að lækka verð á kjúklingum til versl- ana. Hann sagði að ógerningur væri að mæta þessum kröfum_ vegna þess hvað framboðið væri lítið. Bjami taldi að með þessu áframhaldi yrði fljótlega kjúklinga- skortur í landinu og kvaðst því reikna með að verð á kjúklingum myndi hækka aftur innan skamms. Hann sagði ástæðuna fyrir þessum skorti vera að í nóvember á síðsta ári og fram í apríl á þessu ári hefðu útsölur verið á kjúklingum vegna mikilla birgða hjá framleið- endum og þeir dregið saman fram- VEÐUR leiðslu. Af þeim sökum sagði hann að framleiðendur hefðu í sumar verið í vandræðum með að anna eftirspum á markaðnum eftir kjúklingakjöti. Til marks um það sagði hann að kjúklingaframleið- endur hefðu þurft að bjarga skyndibitastöðum frá kjötskorti dag frá degi. Olafur Guðjónsson fram- kvæmdastjóri fuglabúsins Móa sagði kjötbirgðir hjá sér eðlilegar en tók í sama streng og Bjami Ásgeir að með áframhaldandi verð- lækkun í verslunum yrði fljótlega kjúklingaskortur. Hann sagði söl- una hafa tvöfaldast við verðlækk- unina. Ólafur sagði jafnframt að hann teldi að kaupmenn væra bún- 'ir að gefa það góðan afslátt af sinni álagningu að þeir hefðu tæp- ast áhuga á að halda því áfram. Ólafur sagðist jafnframt ekki hafa ,trú á að lækkunin héldist nema fram yfir næstu helgi. Guðjón Sveinsson í Fjarðarkaupi sagði að kjúklingaútsalan hefði ekki dregið úr sölu annarra kjöt- vara í versluninni. Hann sagði fólk gjarnan hamstra þegar svona verð- lækkanir ættu sér stað en að þeir keyptu jafnan aðrar kjötvörur. Guðjón bjóst ekki við að kjúklingar yrðu boðnir á núverandi verði nema fram yfir helgina. Verð á kjúkling- um var í gær komið niður í 429 kr. kílóið í Fjarðarkaupi. Jón Ásgeir Jóhannesson í Bónus sagði að söluaukning á kjúklingum hefði komið fram í samdrætti í sölu annarra kjöttegunda, sérstak- lega nautgripakjöti þó verð á því hefði lækkað. Hagkaup er nú búið að lækka kjúklingaverðið hjá sér en Jón Ásbergsson framkvæmdastjóri Hagkaups sagði í samtali við VEÐURHORFURIDAG, 10. SEPTEMBER YFIRLIT: Um 300 km norönorðaustur af Langanesi er 980 mb nærri kyrrstæö lægð sem grynnist og frá henni lægðardrag með suðaustur- strönd landsins. Yfir Norðvestur-Grænlandi er 1.019 mb hæð. SPÁ: Norðan- og norðvestanátt, víða stinningskaldi um vestanvert land- ið en hægari vestiæg átt um landið austanvert. Norðanlands og nyrst á Vestfjörðum verður dálítil rigning eða slydda. Sunnanlands og austan verður þurrt að mestu en þó líklega smáskúrir á stöku stað. Hiti 3 til 9 stig, hlýjast suðaustanlands. VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR Á FÖSTUDAG OG LAUGARDAG: Norðlæg átt eða norðvest- læg átt, líklega fremur hæg víðast hvar. Skúrir eða slydduél um norðan- vert landið en þurrt sunnanlands. Hiti 2 til 9 stig að deginum, hæstur á Suðausturlandi, en víða hætt við næturfrosti. Svarsími Veðurstofu íslands - Veðurfregnir: 990600. o Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað Alskýjað f / / * / * / r * f f f f f * / Rigning Slydda * * * * * * * * Snjókoma V Skúrir Slydduél $ V Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig., 10° Hitastig v súld = Þoka riig.. FÆRÐA VEGUM: oai7.3oi9ær, Allir aðal þjóðvegir landsins eru nú greiðfærir. Á Vestfjörðum er hálka á fjallvegum. Nokkrir hálendisfjallvegir eru orðnir ófærir vegna snjóa eins og Sprengisandsleið, Kverkfjallaleið, Snæfellsleið, Dyngjufjallaleið og frá Landmannalaugum í Eldgjá. Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og á grænni línu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VÍÐA kl. 12.00 í gær UM HEIM að ísl. tíma hitl vefiur Akureyri 3 rigning Reykjavfk 5 rígning Bergen 12 rigning Helsinki vantar 1 1 1 17 hálfskýjað Narssarssuaq vantar Nuuk 3 léttskýjað Ósló 14 rigning Stokkhólmur 17 hátfskýjað Þórshöfn 10 skýjað Algarve 22 heiðskfrt Amsterdam 17 skýjað Barcelona 18 rigning Beriín 16 skýjað Chicago 16 alskýjað Feneyjar 22 þokumóða Frankfurt 18 léttskýjað Glasgow 13 rigning Hamborg 17 skýjað London 18 skýjað Los Angeles 18 þokumóða Lúxemborg 16 skýjað Madrid 24 skýjað Malaga 25 helðskírt Mallorca vantar Montreal vantar NewYork 24 skýjað Oriando 23 alskýjað Parts 19 hálfskýjað Madeira 23 léttskýjað Róm 26 léttskýjað Vín 18 skýjað Washington 22 hálfskýjað Winnipeg varrtar Morgunblaðið að litlar birgðir væru til og að hann hefði ekki trú á að þetta verð héldist í verslunum. Aftur á móti taldi Jón nokkuð ljóst að verð á nautakjöti myndi lækka því miklar birgðir væru til af því. Hann sagðist halda að verð á svínakjöti myndi lækka á næsta ári því framleiðsla væri að aukast. Jón taldi að engin veruleg vérð- lækkun yrði á kjötmarkaðinum fyrr en framleiðslukostnaður lækk- aðí. Hann sagði jafnframt að eng- in hagræðing yrði í framleiðslunni fyrr en raunveruleg samkeppni og ftjáls viðskipti yrðu ríkjandi á því stigi. Kristinn Gylfi Jónsson stjórnar- formaður fuglabúsins Móa hafði samband við Morgunblaðið og vildi taka fram, vegna ummæla Jóns Ásgeirs Jóhannessonar í Morgun- blaðinu í gær að fuglabúið Móar gæfi þeim það hagstæðan stað- greiðsluafslátt að þeir þyrftu ekki að greiða með kjúklingunum, að sú staðhæfing væri röng. Hann sagði að þegar verslanir væru komnar með kjúklingaverð niður í 450 kr. og lægra þá væri það alfar- ið á þeirra ábyrgð. ♦ ♦ ♦ 15 ára ölvaður á stolnum bíl FIMMTÁN ára ölvaður ungling- ur ók á stolnum bíl á umferðar- ljósin á mótum Klappastígar og Hverfisgötu í fyrrinótt. Bílnum hafði hann stolið fyrir utan hús við Ægissíðuna. Við áreksturinn brotnuðu ljósinn og bíllinn er nær gjörónýtur á eftir. íbúar í grennd við gatnamótin heyrðu mikinn hvell um nóttina er áreksturinn varð og létu lögregl- una vita. Unglingurinn lagði hins- vegar á flótta frá slysstaðnum. Síðar um nóttina kom gaf ungling- urinn sig síðan fram við lögregluna og játaði að vera valdur að árekstr- inum. Morgunblaðið/Bjöm Blöndal Dýrmætt djásn Búningurinn á myndinni, sem nýlega var gefinn til Byggða- safnsins í Vestmannaeyjum, er ákaflega dýrmætt djásn. Bún- ingurinn, sem er kyrtilbúningur með skrautfaldi, var í eigu Ás- dísar Önnu Johnsen, eiginkonu Gísla J. Johnsens, konsúls og útgerðarmanns til margra ára í Eyjum. Mynstrið í búningnum er teiknað af Ríkharði Jonssyni, myndhöggvara og listamanni, og er mynstrið á kyrtlinum með pilsinu balderað með gullþræði. Á búningnum er svokallað stokkabelti með sprota og er það úr skíra gulli. Beltið unnu feðg- arnir Erlendur Magnússon og Magnús Erlendsson, fyrstu ís- lensku gullsmiðirnir og er það metið á um 700 þúsund krónur. En alls er verðmæti búningsins talið nema nokkuð á aðra milljón króna. Soffía Johnsen, dóttir Gísla og Ásdísar Önnu, eignað- ist búninginn að móður sinni látinni og það var hún sem gaf safninu hann til minningar um foreldra sína. Hægt er að fá búninginn lánaðan við hátíðleg tækifæri og ber þá að hafa sam- band við Jóhann Friðfinnsson safnvörð. - BB Kaupin á Hótel Borg Raunverð samkvæmt kaupsamningi er 152 milljónir króna KAUP Tómasar Á. Tómassonar á Hótel Borg hafa verið til umræðu innan borgarráðs og þar hefur m.a. komið fram að hótelið hafi verið selt á 10% lægra raunverði en borgin keypti það á fyrir rúmlega tveim- ur árum. Samkvæmt upplýsingum frá Hjörleifi Kvaran er raunverð hótelsins nú samkvæmt kaupsamningi um 152 milljónir króna en nafn- verð er 172 milljónir. Fyrir tveimur árum keypti borgin hótelið á 147 milljónir króna. Hjörleifur Kvaran, framkvæmda- stjóri lögfræði-og stjórnsýslusviðs borgarinnar, segir að þegar borgin keypti hótelið fyrir rúmlega tveimur árum voru 14 milljónir greiddar við undirskrift en eftirstöðvarnar settar á sjö ára skuldabréf. Ef þessi kaup- samningur er framreiknaður til dagsins í dag og hækkaður í sam- ræmi við byggingar- eða lánskjara- vísitölu kemur verðið 165 milljónir króna úr því dæmi í dag sem raun- virði. Kaupsamningur sá sem Tómas gerði felur m.a. í sér að eftirstöðvar til 15 ára, samtals 130 milljónir króna, eru vaxtalausar fyrstu þtjú árin og ekki eru borgaðir vextir af 20 milljóna króna greiðslu sem dreif- ist á 20 mánuði. Að teknu tilliti til þessa er raunverð samkvæmt samn- ingnum 152 milljónir króna. Hjörleifur segir að hér verði svo að taka tillit til þróunar fasteigna- verðs í miðbænum en það hefur ekki fylgt þróun byggingarvísi- tölunnar heldur farið lækkandi. Borgaryfirvöld meta því dæmið svo að með tilliti til þess standi þau á sléttu í þessum kaupum. ♦ ♦ ♦ Kringlan Opið verður á sunnudögum fram að jólum ÁKVEÐIÐ hefur verið að hafa verslanir í Kringlunni opnar á sunnudögum, frá 20. september til jóla, milli kl. 13 og 17. Einar Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Kringlunnar, segir að verslunareigendur geti sótt um und- anþágu frá því að hafa opið þar sem einungis sé um tilraun að ræða.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.