Morgunblaðið - 10.09.1992, Qupperneq 5

Morgunblaðið - 10.09.1992, Qupperneq 5
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992 5 Hörmuleg taflmennska Fischers SKÁK Margeir Pétursson BOBBY Fischer var óþekkjan- legur í gær þegar hann tefldi fimmtu einvígisskákina við Boris Spasskí í Sveti Stefan í Svartfjallalandi. Fischer breytti út af þriðju skák þeirra í 18. leik, en aðeins tíu leikjum síðar var hann kominn með algerlega vonlausa stöðu. Spasskí vann þar með annan sigur sinn í röð og leiðir nú einvígið með tveimur vinning- um gegn einum. Sá sem fyrr vinnur tíu skákir telst sigur- vegari og fær bróðurpartinn af 260 milljóna króna verð- launasjóðnum. Jafntefli eru ekki talin með. Fischer var alltof seinn að átta sig á herfræðilegri hugmynd í spánska leiknum sem sást t.d. í svipaðri stöðu í síðasta einvígi Kasparovs og Karpovs. Hún felst í því að svartur veikir kóngsstöðu sína til að bijóta niður miðborðs- stöðu hvíts. Eftir frábær tilþrif í tveimur fyrstu skákunum hefur tafl- mennska Fischers orðið mátt- laus. í heimsmeistaraeinvíginu við Spasskí í Reykjavík 1972 tefldi hann aðeins eina skák jafn- illa og síðustu tvær, en það var sú ellefta þegar hann tók „eitraða peðið“ og var kominn með gjörtapað tafl eftir 22 leiki. Næstu skák á eftir tefldi hann einnig illa, en hún endaði með jafntefli. íslenskir skákáhugamenn fylgdust með 5. einvígisskákinni í Faxafeni 12. Áttu margir erfitt með að trúa því að Fischer tefldi svona illa. Eftir 30 leiki beindist áhugi margra fyrst og fremst að því hvort leikirnir sem þá lágu fyrir gætu verið réttir. Héldu menn helst að prentvillupúkinn væri kominn i spilið, en svo reyndist ekki vera, Fischer var alveg heillum horfinn. Það er þó fullsnemmt að af- skrifa möguleika hans. Þrátt fyr- ir góða byijun er tveggja áratuga fjarvist frá keppni nú að segja til sín. í dag hefur Spasskí hvítt og reynir vafalaust að auka for- ystu sína. Fylgst verður með skákinni í húsnæði Skáksam- bandsins og er húsið opnað kl. 16. Hvítt: Bobby Fischer Svart: Boris Spasskí Spánski leikurinn 1. e4 - e5 2. Rf3 - Rc6 3. Bb5 - a6 4. Ba4 - Rf6 5. 0-0 - Be7 6. Hel - b5 7. Bb3 - d6 8. c3 - 0-0 9. h3 - Rb8 10. d4 - Rbd7 11. Rbd2 - Bb7 12. Bc2 - He8 13. Rfl - Bf8 14. Rg3 - g6 15. Bg5 - h6 16. Bd2 Meiri þráhyggja ræður ferð- inni hjá Fischer nú en 1972 er hann skipti stöðugt um byijanir. Þessi staða hefur komið upp í öllum skákunum þremur sem hann hefur teflt með hvítu. í fyrstu skákinni lék Spasskí 16. - Bg7. 16. — exd4 17. cxd4 — c5 18. d5!? Bregður á það ráð að loka miðborðinu. I þriðju skákinni lék Fischer 18. Bf4 en varð ekkert ágengt. 18. - Rb6 19. Ba5?! Þessi leppun virðist síður en svo trufla Spasskí í að þróa stöð- una. 19. - Rfd7 20. b3 - Bg7 21. Hcl - Df6 22. Hbl Taflmennska Fischers er ótrúlega ráðleysisleg. Þetta leiktap kemur þó ekki að sök, Spasskí verður einnig að eyða tíma í að lagfæra stöðu drottn- ingar sinnar. 22. - b4 23. Re2 - De7 24. a3? Fischer viðurkenndi eftir skák- ina að honum hefði láðst að taka 25. leik Spasskís með í reikning- inn og talið sig hafa tíma til að hirða a-peðið til baka í rólegheit- um. Reyndin verður öll önnur, það lifir og dafnar eins og púkinn á fjósbitanum og verður að lokum banabiti Fischers. Betra var 24. Dcl. 24. - bxa3 25. Bc3 - f5! Leikið í anda Karpovs. Þótt svartur veiki kóngsstöðuna skipt- ir meira máli að hvítur getur ekki haldið miðborðspeðum sín- um. Það er eins og Fischer hafi ekki tekið þetta með í reikning- inn. Spasskí gefur honum engan frið til að endurheimta peðið á a3, en hrifsar til sín frumkvæðið. 26. Bxg7 - Dxg7 27. Rf4 - fxe4 Hvítur er lentur í mjög erfiðri aðstöðu, en hann varð þó að reyna að þreyja þorrann og leika 28. Bxe4. Þá getur svartur valið um að leika 28. — Rf6 29. Bxg6 — Hxel+ 30. Dxel — Rbxd5 eða fórnað skiptamun með 28. — Hxe4! 29. Hxe4 - Rf6 í báðum tilvikum með góðri stöðu. { staðinn leikur Fischer gróf- lega af sér og fær vonlausa stöðu. Afleiðingar afleiksins eru reynd- ar næsta augljósar og þetta er einn ljótasti fingurbijótur sem sést hefur til hans. 28. Rh4? - g5 29. Re6 - Df6 30. Dg4 - Rxd5 31. Rxg5 - hxg5 32. Dxd7 - Rb4! Spasskí átti margar aðrar vinningsleiðir, en nú verður Fisc- her strax að láta mikið lið af hendi. 33. Dxb7 - Rxc2 34. Hxe4 - a2 35. Hfl - Rb4 36. Hg4 - al=DD 37. Hxal — Dxal+ 38. Kh2 - Dg7 39. Df3 - De5+ 40. g3 - Hf8 41. Dg2 - Df6 42. f4 - Ha7 43. Hxg5+ - Hg7 44. Hh5 — De6 45. g4 — Hxf4 og Fischer gafst upp. Jafnt méð Kasparov og Spasskí í Morgunblaðinu í gær birtust ummæli Gary Kasparovs heims- meistara um einvígið í Sveti Stef- an. Þótti heimsmeistaranum ekki mikið til taflmennskunnar koma. Fyrir einvígið sagði Fischer að Kasparov væri svindlari og glæpamaður sem hefði dregið skáklistina niður í svaðið, án þess þó að tilfæra nein rök eða sann- anir þeim ásökunum til stuðn- ings. Kasparov hefur aldrei mætt Bobby Fischer við skákborðið enda var hann aðeins níu ára gamall þegar Fischer lagðist í dvala. Hins vegar hefur hann teflt oftsinnis við Boris Spasskí og staðán í skákum þeirra er jöfn, hvor um sig hefur unnið tvær skákir. Það var ekki fyrr en á heimsbikarmótinu í Barcelona 1989 að Kasparov tókst fyrst að yfirbuga Spasskí, í skák sem hann þurfti nauðsynlega að vinna í síðustu umferð til að ná efsta sæti. Heimsmeistarinn jafnaði síðan metin við Spasskí árið eftir þegar hann sigraði hann í aðeins 29 leikjum í Linares á Spáni. Spasskí er nú aðeins í 96.—102. sæti á alheimsstigalist- anum með 2.565 stig og í fyrra náði hann botninum á ferli sínum er hann varð aðeins í fjórða sæti á franska meistaramótinu. Það ber þó að hafa í huga að hann hefur löngum verið latur við æf- ingar, þar til í sumar að hann hefur unnið af kappi með aðstoð- armönnum fyrir einvígið við Fisc- her. Þá hefur stigatala Spasskís einkum lækkað vegna þess að liann hefur undanfarin ár verið sáttur við jafntefli í flestum skáka sinna, einnig gegn alþjóð- legum meisturum og titillausum skákmönnum. Spasskí nýtur einnig talsverðrar virðingar með- al kollega sinna að því leyti að flestir eru sáttir við jafntefli við hann. Þegar reynt er að vinna hann reynist hann oft harður í horn að taka. Á því fékk Fischer að kenna í fjórðu og fimmtu skákunum. Margt bendir til þess að raun- verulegur styrkleiki Spasskís nú sé a.m.k. 2.600 stig. Fischer gef- ur honum ekkert tækifæri til að semja jafntefli, heldur þvingar hann til að tefla af hörku. Þá koma bestu eiginleikar Spasskís fram. Það er því afar hæpið að afgreiða einvígi þeirra Fischers í Sveti Stefan sem keppni tveggja gamalla aflóga jálka Samstarf Reykjavík- ur og Hollendinga Utlending- um óheimilt að fjárfesta í íslenskum virkjunum JÓN Sigurðsson iðnaðarráð- herra segir að erlendum aðilum sé óheimilt að fjárfesta í íslensk- um virkjunum samkvæmt gild- andi lögum og ekki standi til að breyta þeim. I frétt um sam- komulag Reykjavíkurborgar og hollenskra aðila um að kanna möguleika á samstarfi við hag- kvæmnisathugun á orkuútflutn- ingi til Hollands í blaðinu í gær kemur fram að Hollendingarnir hafi fært í tal við yfirvöld orku- mála hérlendis að ef heimildir fáist hafi þeir áhuga á að fjár- festa í virkjunum á Islandi. „Samkvæmt gildandi lögum er það ekki hægt og ekki hafa komið fram tillögur um að breyta þeim,“ sagði Jón Sigurðsson iðnaðarráð- herra aðspurður um hvort mögulegt væri að Hollendingarnir fengju heimild til að fjárfesta í virkjunum hér. Jón var spurður að því hvernig honum litist á samning borgarinnar við Hollendingana. „Eg ætla ekki að segja neitt um það annað en að athyglisvert er að tekist hafi um það samtök að kanna þetta svona varidlega. Ég fagna því,“ sagði ráð- herra en í máli hans kom fram að yfirleitt hefði verið talinn hag- kvæmasti kosturinn að leggja sæ- streng frá austurströnd Islands. Samkvæmt hugmynd Reykjavíkur- borgar og hinna hollensku aðila er gert ráð fyrir sæstrengsverksmiðju í Reykjavík. Wterkurog k-/ hagkvæmur auglýsingamiöill! JHgfgmiftlnftift TIL KRNRRIEVJH! FYRSTA FERÐIN 17. DESEMBER Við erum byrjuð að kynna og selja ferðir til Kanaríeyja i vetur og verður fyrsta ferðin farin 17. desember. Kynnið ykkur verð og fróbæra gististaði í tveggja og þriggja vikna ferðum. Tökum nú þegar við bókunum. 'Aiig.isurii Sam vinnuferðir-L andsi/n Reykjavík: Austurstrætl 12 • S. 91 - 69 10 10 • Innanlandsferðir S. 91 - 69 10 70 • Símbréf 91 - 2 77 96 / 69 10 95 • Telex 2241 Hótel Sögu við Hagatorg • S. 91 - 62 22 77 • Símbréf 91 - 62 24 60 Keflavík: Hafnargötu 35 • S. 92 -13 400 • Simbréf 92 -1 34 90 Akureyri: Skipagötu 14 • S. 96 - 27 200 • Símbréf 96 - 2 40 87

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.