Morgunblaðið - 10.09.1992, Qupperneq 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992
13
í#'*AMF/tRSLU
SVARAR
NAMSMANNA
í TENGSIUM VIÐ IIN
1/tGRI VEXTIR
ALLT AÐ 100%
LÁNSHLUTFALL
SVEIGJANLEGAR
ENDURGREIÐSLUR
Heilsurækt í
Hveragerði
Esbjörn Rosenblad
eftir
Esbjörn Rosenblad
í blöðunum að undanförnu sé ég
að Hótel Örk er að fara aftur af
stað með Heilsudaga. í tilefni af því
datt mér í hug að drepa niður penna
og minnast á dvöl mína á Hótel Örk
á síðastliðnu vori. Segja má að þetta
sé nýmæli, sem skipulagt hefur ver-
ið þarna á Hótel Örk. Við hjónir^
vorum á Heilsudögum í fjóra daga
og nutum þess í fyllsta mæli. Aðbún-
aður var mjög góður, herbergin
þægileg og hugguleg, sundlaugin,
pottarnir og gufan eins og best
gerist.
Kokkurinn sem sá um heilsufæð-
ið var alveg frábær og tilreiddi jurta-
fæðið þannig að enginn saknaði
kjöts né fisks. Á Heilsudögum hófst
dagurinn með jógaleikfimi hjá Krsta
Stanojev, sem kom dvalargestum til
að teygja sig og beygja með bros á
vör. Ingibjörg Björnsdóttir, núver-
andi skólastjóri Heilsuskóla NLFÍ,
sem stjórnaði og skipulagði dag-
skrána, gerði það með sóma og við
urðum ekki vör við annað en að
allir sem dvöldu þarna með okkur
væru ánægðir og töluðu um að koma
aftur og það ætlum við hjónin alveg
örugglega að gera.
Fræðslan, sem boðið var upp á,
var verulega athyglisverð. Þama
flutti Helgi Valdimarsson prófessor
erindi um ónæmiskerfið og sýndi
okkur t.d. litskyggnur af vamar-
fmmum að störfum inni í æðum lík-
amans. Ævar Jóhannesson fræddi
okkur um fæðubótarefni, Roy Firus
ræddi um aukaefni í matvælum og
sjúkdóma, sem þau geta valdið. Ein-
ar Aðalsteinsson forseti Guðspekifé-
lagsins kynnti fyrir okkur hugrækt
og kenndi okkur æfingar. Boðið var
upp á gönguferðir daglega og á
hlaðinu stóðu hjól, sem gestir höfðu
frjáls afnot af. Allt var gert til þess
að gera dvölina sem skemmtilegasta
og eftirminnilegasta.
Eg sem útlendingur lít á Hvera-
gerði sem algjöra paradís til heilsu-
ræktar. Þama er hreint vatn og
heitt, hreint loft og einstakur leir,
sem Islendingar ættu að sýna í verki
að þeir kunni að meta. í Hveragerði
hafa Náttúrulækningamenn rekið
heilsuhæli í áratugi og ég þekki af
eigin raun þeirra frábæm starfsemi
og tel að Heilsudagar á Hótel Örk
séu merkileg viðbót við það heilsu-
vemdarstarf, sem þróast hefur í
Hveragerði innan um hveri og gróð-
urhús. Hvar ætti heilsuvemdarstarf
líka betur að þrífast en í eilífum
gróanda Hveragerðis?
Höfundur er rithöfundur og
fyrrverandi sendiráðunautur Svía
á íslandi.
„Ég sem útlendingur lít
á Hveragerði sem al-
gjöra paradís til heilsu-
ræktar. Þarna er hreint
vatn og heitt, hreint
loft og einstakur leir,
sem Islendingar ættu
að sýna í verki að þeir
kunni að meta.“
iMANNALINA BUNAÐARBANKANS
i WÁFASWiVNHAKJORUW
LAGERUTSALA
FLÍSABÚÐARINNAR Á DVERGHÖFÐA 27
tOEADAGAll
MEIRI
VERÐLÆKKUN
ALLIR AFGANGAR EIGA
AÐ SELJAST
psna««ri n ui luj
Hlll^UhMI
Stórhöfða 17, við Guliinbrú
sími 67 48 44
• A HOTEL ISLANDI DAGANA
• 11., 12. OG 18., 19, SEPT. 1992
• BORÐAPANTANIR I S: 687111
VZterkurog
kJ hagkvæmur
auglýsingamiðill!
VJS / OIS0H ViJAH