Morgunblaðið - 10.09.1992, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992
15
veiðiheimildir við EB. Rætt hefur
verið um að EB-þjóðirnar fái að
veiða 3.000 tonn af karfa innan
okkar fiskveiðilögsögu gegn 30 þús-
und tonnum af loðnu. Mér gengur
illa að skilja þörfina á þessum skipt-
um. Ef þjóðir EB geta veitt og selt
þetta magn af karfa hvers vegna
getum við það ekki sjálf? Geta þeir
ekki sjálfir veitt og selt sína loðnu?
Hvers vegna þessar samningavið-
ræður? Hvað á þessi skollaleikur að
þýða? Er hugsanlegt að úlfshár leyn-
ist undir sauðargærunni?
Samkvæmt 1. gr. EES samnings-
ins skal „samstarfið í samræmi við
ákvæði samnings þessa fela í sér:
a) frjálsa vömflutninga; b) fijálsa
fólksflutninga; c) frjálsa þjónustu-
starfsemi; d) fijálsa fjármagnsflutn-
inga“. Ef í odda skerst um túlkun
þessara greina skal dómstóll skera
úr ágreiningi sem verður skipaður
erlendum dómurum. I Gamla sátt-
mála voru sett ákvæði um að honum
mætti rifta „að bestu manna yfir-
sýn“. Allir vita hvaða öryggi fólst í
því er til kom. M.a. hét Noregskon-
ungur að íslendingar skyldu halda
lögum sínum. Tuttugu árum síðar
voru þeir neyddir til að samþykkja
Jónsbók. Og hvað kom á eftir? Er
tryggt að hnútarnir séu betur bundn-
ir nú?
Bera alþingismenn engan ugg í
bijósti vegna þessa?
IV
Ég held að það væri hollt fyrir
alþingismenn að velta eftirfarandi
spurningum fyrir sér og íhuga svör-
in við þeim.
Hvers vegna var ofurkapp lagt á
það forðum, að ná allri verslun inn
í landið? Gátu útlendingamir ekki
leyst það verk sómasamlega?
Hvers vegna var stofnað ráð-
herraembætti á íslandi? Var ekki
ágætt að hafa ráðherrann í Kaup-
mannahöfn?
Hvers vegna var Hæstiréttur
fluttur til íslands? Var ekki ágætt
að hafa hann úti í Danmörku?
Hvers vegna tókum við upp okkar
eigin mynt? Var ekki nóg að hafa
dönsku krónuna?
Hvers vegna var landhelgin
stækkuð og hvaða þjóðir sneru þá
harðast gegn okkur? Eiga þær sömu
þjóðir ekki einhvern hlut að EES og
EB?
Þannig mætti spyija ótal spurn-
inga. Svar við þeim öllum er eitt og
hið sama. Allt þetta var gert til að
efla og treysta sjálfstæði þjóðarinnar
og tryggja afkomu hennar í bráð
og lengd.
Við ráðum yfir miklum auðlindum
bæði til lands og sjávar. Þær munu
sjá okkur farborða með ríkulegum
hætti, ef við kunnum okkur hóf í
kröfum. Gæfa þjóðarinnar er sú að
hún framleiðir matvæli, söluvöru,
sem ávallt er unnt að koma í verð
hvernig sem um skipast í heiminum.
Því er okkur hvorki þörf á að ganga
í þetta efnahagsbandalag né önnur
álíka. Hvað bíður þeirrar músar, sem
lent hefur í klóm kattarins?
Margar Evrópuþjóðir ganga nú
ört á auðlindir sínar. Þær munu því
í vaxandi mæli líta girndaraugum
til okkar. Nái þær á okkur tökum
sleppum við ekki úr greipum þeirra
með auðveldum hætti. Því hafa þær
nú borið fram „girnilegan bauna-
disk“. Margir virðast heillaðir af
krásunum sem þar eru fram reiddar
og tilbúnir að fórna fyrir þær „frum-
burðarréttinum". En ef við berum
gæfu til að bíta ekki á þetta agn
eða önnur álíka, mun okkur vel farn-
ast framvegis sem hingað til.
Á Alþingi sitja nú 63 þjóðkjörnir
fulltrúar. Þeir eiga að taka ákvörðun
um þetta stóra mál, ákvörðun sem
mun skipta sköpum fyrir þjóðina um
ókomna framtíð. Þeir verða að gera
sér Ijóst að þessi samningur mun
varða hag hennar, frelsi og lífskjör,
ekki um nokkur ár eða áratugi, held-
ur um aldir. Hvort líta þeir á málið
með augum Einars Þveræings og
Jóns Sigurðssonar eða Guðmundar
hins ríka og Trampe greifa? Treysta
þeir því að dómur sögunnar falli
þeim í vil? Þeirra er ábyrgðin.
Höfundur er kennari.
STÓRÚTSÖLUNNI
IÝMK Á MOKCIN
15-60%
AFSLÁTTUR
Komið og látið drauminn
rætast og gerið reyfarakaup
á rúmum og fataskápum
Fyrstir koma...fyrstir fá!
Vatnsrum hf
Skeifunni 11 a, sími 688466
DRAUMALÍNATI, EIÐISTORGI 11, SÍMI 628211
Van Gogh og list hans
- eftir Hans Bronkhorst
Litprentuð glæsibók í stóru broti, gefin út
fyrir tveimur árum er hundrað ár voru liðin
frá láti Van Goghs. Hér er farið í fótspor þessa
áhrifamikla brautryðjanda í nútíma myndlist.
Venjuiegt TilboðsverO:
verð: AA ^
3.760,- 995,-
Opið alla virka daga frá kl 9-18,
laugardaga frá ki 10-16,
sunnudaga ffá kl 12-16.
VAKA-HELGAFELL
Síðumúla 6, sími 688300
Mörg hundruð bókatitlar á einstöku
verði bjóðast nú á bókamarkaði
Vöku-Helgafells í forlagsversluninni
að Síðumúla 6 í Reykjavík.
Hér gefst einstakt tækifæri til þess
að bæta eigulegum verkum í bókasafn
heimilisins - bókum af öllum tegundum
við allra hæfi.