Morgunblaðið - 10.09.1992, Page 17
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992
17
Aflvaki Reykjavíkur hf.
Byggðastofnun í borg
eftir Hauk Þór
Hauksson
Á undanförnum árum hefur mörg-
um þótt nóg um mikil og sívaxandi
umsvif Reykjavíkurborgar. Þrátt
fyrir mikla umræðu um yfirfærslu
verkefna frá opinberum aðilum til
einkaaðila hefur þróun í þá átt verið
afar hæg hjá Reykjavíkurborg.
Þó er auðvelt að sjá ýmsa þjón-
ustuþætti og önnur verkefni sem nú
eru í höndum Reykjavíkurborgar er
auðveldlega mætti einkavæða.
Fyrir skömmu var kynnt í Borg-
arráði tillaga um nýtt borgarfyrir-
tæki Aflvaka Reykjavíkur hf. Sam-
kvæmt tillögunni á félagið að styðja
uppbyggingu atvinnurekstrar í borg-
inni.
Áætlað er að rekstur félagsins
kosti borgina 50 milljónir árlega þar
af um 17 milljónir í laun og yfir-
stjórn auk 100 milljóna króna árlegs
framlags, samtals 750 milljónir.
Eftir að hafa lesið tillögur undir-
búningsnefndar get ég ekki betur
séð en að í bígerð sé ný byggðastofn-
un. Markmiðin verða eflaust háleit
en við þekkjum alltof vel árangurinn
af fjáraustri stjórnmálamanna til
atvinnurekstrar. Þurfum við eina
stofnunina í viðbót. Eg tel ekki.
Aflvaki atvinnulífs í Reykjavík
sem og annars staðar felst ekki í
stofnun sjóða sem stjórnmálamenn
ausa síðan úr til gæluverkefna. Afl-
vaki atvinnulífs felst í fólki sem hef-
ur hugmyndir og áræði til að fram-
kvæma þær og fjármálamönnum
sem eru tilbúnir að hætta fé fyrir
vonina um hagnað.
Ef borgarráð Reykjavíkur hefur
Húnavatnssýsla
Maður skadd-
ast á auga
Hvammstanga.
ÞAÐ ÓHAPP varð í Svínadal í
Húnavatnssýslu á mánudag að
gaddavír slóst í auga manns.
Ekki er ljóst, hve mikinn skaða
hann bíður af óhappi þessu.
Maðurinn hefur í sumar unnið,
ásamt félögum sínum, við vega-
lagningu í Svínadal í Austur-Hún-
vatnssýslu. Við lokafrágang
verksins þann 7. september var
hann að rífa upp gamla girðingu
og slóst þá endi af ryðguðum vír
í auga hans með ofangreindum
afleiðingum. Var hann fluttur til
Blönduóss og þáðan til Reykjavík-
ur, þar sem hann var settur á gjör-
gæslu. Nokkur tími mun líða, þar
til ljóst verður hve alvarlegt óhapp
þetta er.
- Karl
------♦ ♦ ♦
■ BUBBI Morthens heldur tón-
leika á Tveimur vinum í kvöld,
fimmtudag. Hljómplata með Bubba
er væntanleg bráðlega, tekin upp á
Kúbu af þarlendum listamönnum.
Væntanlega mun Bubbi flytja lög
af þeirri plötu ásamt öðrum gull-
kornum úr smiðju sinni. Hljómsveit-
in Todmobile skemmtir á Tveimur
vinum á laugardagskvöld.
(Fréttatilkynning)
A HOTEL BLANDI DAGANA
11., 12. OG 18., 19, SEPT. 1992
BORÐAPANTANIR I S: 687111
HÓTEl M
áhuga á að efla atvinnulíf í borginni
eru næg verkefni sem betur duga
sem aflvaki nýsköpunar í atvinnu-
lífi. Slík verkefni ættu að felast í
að Reykjavíkurborg felldi niður álög-
ur á atvinnurekstur í borginni s.s.
aðstöðugjald, að borgin seldi og byði
út ýmsa þætti í rekstri sínum, drægi
saman umsvif sín og lækkaði þar
með útgjöld. Ekki síst ættu borgar-
yfirvöld að hvetja ríkisvaldið til að
lækka skatta og gjöld á atvinnu-
rekstur til samræmis við önnur lönd
í Evrópu.
Kaupmenn hafa bent á möguleika
Reykjavíkur sem umskipunarhöfn
og miðstöð vörudreifingar og við-
skipta á Norður-Atlantshafi. Stað-
setning Reykjavíkur gefur mikla
möguleika á slíkri starfsemi. Nú
þegar hefur verið stofnað frísvæði í
Reykjavík og bendir margt til að
draga megi aukin viðskipti til borg-
arinnar. Gjaldeyrisskapandi viðskipti
sem veitt gætu fjöida fólks atvinnu
og skapað grundvöll fyrir fjölda lí-
tilla og meðalstórra fyrirtækja.
Benda má á að víða um lönd er lögð
mikit áhersla á mikilvægi smárra og
meðalstórra fyrirtækja, þau veita
mörgum atvinnu, greiða góð laun,
auka samkeppni og eru uppspretta
nýrra hugmynda og framfara. Auk
skattalegra aðgerða gæti borgin
Haukur Þór Hauksson
stuðlað að þróun í þessa átt með
kynningu á borginni, með því að
skapa samkeppni og aðstöðu fyrir
nýja flutningsaðila við höfnina og
með ýmsum öðrum aðgerðum sem
bættu stöðu borgarinnar í sam-
keppni við sambærileg svæði í ná-
grannalöndunum.
Við búum í borg þar sem þúsund-.
ir íbúa fara árlega til erlendra borga
til að versla venjulegar nauðsynjar,
við búum í borg þar sem störfum
við verslun, þjónustu og iðnað fara
fækkandi. Við erum að verða undir
í samkeppni við aðrar þjóðir.
Einungis með bættri samkeppn-
isaðstöðu og virkari fijálsri sam-
keppni fáum við breytt þessari þró-
un. Stofnun byggðastofnunar í borg
breytir þar engu um.
Höfundur er kaupmaður í
Reykjavík ogsitur ístjórn
fulltrúaráós sjálfstæðisfélaganna
í Reykjavík.
Q
o
CQ
<
o
v:
co
Lattu þér ekki
duga minna!
HYUNDAI Super 386DL
Intel 80386DX 33MHz
4MB vinnsluminni (stækkanl. í 32MB)
SuperVGA 14" lóggeisla litaskjár
52MB harður diskur
3,5" disklingadrif, 1,44MB
Eitt hliðtengi, eitt raðtengi og
músatengi
Windows 3.1 og mús
MHz
129.900.-
MHz
98.900.
HYUNDAI Super 386SL
Intel 80386SX 20MHz
2MB vinnsluminni (stækkanl. í 8MB)
SuperVGA 14" lággeisla litaskjár
52MB harður diskur
3,5" disklingadrif, 1,44MB
Eitt hliðtengi, eitt raðtengi og
músatengi
Windows 3.1 og mús
Skólapakki 1
HYUNDAI Super 386SL.........Kr.
JustWrite ritvinnsla fyrir Windows..Kr.
Hyundai HDP-930,
9 nála prentari með kapli ..Kr.
Tölvuborð...................Kr.
Skólapakki 2
HYUNDAI Super 386DL......
JustWrite ritvinnsla fyrir Windows..Kr
Hyundai HDP-930,
9 nála prentari með kapli...Kr
Tölvuborð...................Kr.
Verð miðað við staðgreiðslu.
Greiðslukjör:
VISA- og EURORAÐGREIÐSLUR
GREIÐSLUSAMNINGUR GLITNIS
98.900, -
14.000,-
15.900, -
8.200,-
r. 137.000.-
Kr. 129.900,-
Kr. 14.000,-
Kr. 15.900.-
Kr. 8.200,-
r. 168.000.-
Tæknival
SKEIFAN 17-V (91) 681665, FAX: (91) 680664
MEÐ FORSKOT