Morgunblaðið - 10.09.1992, Síða 23
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992
23
„Snuðrarinn Cyril“ sem hleraði
meint símtal Díönu
Iðrast að hafa
látið græðgina
ná tökum á sér
Lundúnum. The Daily Telegraph.
ALDRAÐI bankamaðurinn á ellilaunum, sem seldi sorablaðinu
Sun upptöku á meintu símtali milli Diönu prinsessu og vinar henn-
ar James Gilbey, segir að hann hafi látið stjórnast. af græðgi er
hann hafði fyrst samband við blaðið fyrir tveimur árum og bauð
þeim segulbandsspóluna til sölu. Hann vonaðist til að fá um fimm-
tíu þúsund pund fyrir hana en fékk að lokum einungis um þús-
und pund eða sem svarar um 100 þúsund ÍSK.
Upptakan olli verulegu fjaðra-
foki á Bretlandi og vakti á ný upp
umræðu um hjónaband Díönu og
Karls Bretaprins. Mjög vel fer á
með þeim tveimur persónum sem
ræðast við en ekki hefur enn ver-
ið sannað fullkomlega að prinsess-
an eigi þarna í hlut. Bankamaður-
inn sjötugi, Cyril Reenan, segir
nú að þetta hafi verið mistök lífs
hans og að hann iðrist þeirra inni-
lega. Hann er nú vart kallaður
annað en „Snuðrarinn Cyril“ þó
að hann hafi pakkað niður loftnet-
inu sem hann náði símtalinu með.
I viðtali við héraðsblað í heima-
byggð hans segir Reenan að ef
hann vissi það sem hann vissi í
dag hefði hann aldrei látið Sun
vita af upptökunni. í staðinn hefði
hann varað prinsessuna við og
sagt henni að hlera mætti símtöl
hennar úr bílasíma.
Reenan keypti sér öflugt loftnet
árið 1990 til að hafa eitthvað fyr-
ir stafni í ellinni og til að reyna
að hlera símtöl er vörðuðu veðreið-
ar. Hann segir fulltrúa Sun hafa
Reuter.
Karl Bretaprins og Díana prinsessa heimsóttu í gær spítala í borginni Nottingham. Var þetta í fyrsta
skipti sem þau komu fram opinberlega eftir að vangaveltur hófust á ný um ástand hjónabands þeirra.
heitið sér að þeir myndu einungis
nýta upptökuna ef hún hefði verið
gerð opinber annars staðar og að
nafn hans myndi hvergi koma
fram. Þetta loforð var svikið og í
forsíðufrétt var greint frá því hver
hefði hlerað samtalið. Cyril Reen-
an segist hafa þurft að fela sig
innandyra í fimm daga á meðan
hús hans var umsetið blaðamönn-
um. Hótunarbréf hafa streymt til
hans og hann hefur mætt al-
mennri fordæmingu í samfélag-
inu. „Ég vil segja öllum þeim sem
reiddust vegna bjánalegrar hegð-
unar minnar að ég sé eftir henni,“
sagði Reenan.
Frá fenjasvæðunum í suðurhluta íraks sem shítar byggja.
Neita ásökunum um
herferð gegn shítum
Bagdad. Reuter. Daily Telegraph.
STJÓRNIN í Bagdad hefur vísað
á bug ásökunum Bandaríkja-
manna um að íraski stjórnarher-
inn hafi brennt þorp og bæi í
suðurhluta landsins þar sem
shítar eru fjölmennastir. Sagði
talsmaður hennar, að um væri
að ræða lygar, runnar undan
rifjum írana.
Talsmenn Bandaríkjastjórnar
sögðu á þriðjudag, að íraskir her-
menn hefðu brennt þorp í suður-
hluta landsins í sókn sinni gegn
uppreisnarmönnum og andstæð-
ingum Saddams Husseins og íran-
ir héldu því sama fram í síðustu
viku. Bandaríkjamenn halda því
einnig fram, að um 60.000 íraskir
hermenn séu í suðurhlutanum og
einnig nokkurt lið við írönsku
landamærin. Bann vestrænna ríkja
við flugi íraskra herflugvéla fyrir
sunnan 32. breiddarbaug hefur
ekki verið brotið en bandarískir
flugmenn segja, að íraskar her-
flugvélar séu oft á ferð rétt fyrir
norðan mörkin.
Eftirlitsmenn Sameinuðu þjóð-
anna, sem hafa farið í meira en
40 ferðir til íraks, virðast eiga í
nokkrum erfiðleikum með að finna
þar ný verkefni. Greinir þá nokkuð
á um hvort stjórnin í Bagdad hafi
staðið í aðalatriðum við vopnahlés-
skilmálana eða hvort enn sé ófund-
ið mikið af vopnum og búnaði til
kjarnorkuvopnaframleiðslu. Um
það er þó ekki deilt, að Sovétmenn
seldu írökum meira en 800 Scud-
flaugar en engin grein hefur verið
gerð fyrir meira en 200 þeirra.
Vilja keisara-
lega útför
NIÐJAR rússnesku keisarafjöl-
skyldunnar og aðrir ættingjar
vilja, að Nikulás II og fjölskylda
hans verði lögð til hvíldar í
grafhvelfingu keisaranna í
Petropavlovsk-virkinu í Péturs-
borg. Segir María Vladímírovna
stórhertogaynja, sem gerir
kröfu til krúnunnar, að stofnuð
hafi verið samtök, Rússneska
endurreisnarstofnunin, sem
muni vinna að því að koma á
keisaradæmi í landinu að nýju
og er stefnt að því að hrinda
því starfi úr vör með útför keis-
arafjölskyldunnar. María, sem
er 39 ára gömul, kom til Rúss-
lands í síðustu viku en hún er
afkomandi Vladímírs, föður-
bróður Nikulásar II. Bolsevikar
tóku keisarafjölskylduna af lífi
í Jekaterínbúrg í Úralfjöllum
árið 1918.
FLUGLEIÐIR,
Traustur tslenskurferðafélagi
StjömuborgirFlugleiða Glasgow 3 nætur u 26.100 kr.Ú
-fltigoggistmg London 3 nætur 31.200 kr.t,
Skelltu þér í helgarferð. Ósló 30.000 kr.*
Hagstœtt verð, heint flug, 2 nætur
úrvalsþjónusta og Stokkhólmur 2 nætur 33.900 kr.*
gisting viðallra hcefi. Gautaborg 4 nætur ^ 38.400 kr.*
Verðgildir í september og október.
Verð miðað við2 í herhergi. Kaupmannahöfn 1 nótt 29.300 kr.*
Tilboð fyrir hópa 15 manna og stcerri. Frankfurt 3 nætur 31.500 kr.*
Amsterdam 3 nætur 32.700 kr.t,
Lúxemborg 2 nætur ^ 28.000 kr.*
París 3 nætur 33.100 kr.*
New York 2 nætur 35.300 kr.t,
• Baltimore 3 nætur 36.800 kr.,*,
** íslenskur fararstjóri í október og nóvember.
*Gildir aðeins í beinu flugi Fiugleiða.
Flugvallarskattar eru ekki innifaldir í verði. ísland 1.250 kr., Þýskaland 230 kr.,
Danmörk 630 kr., Holland 230 kr., Frakkland 170 kr., USA 990 kr.'
UMAREISAN
FERÐASKRIFSTOBVISLANDS
Skógarhlíð 18 Sími: 62 33 00
Sfb