Morgunblaðið - 10.09.1992, Síða 30

Morgunblaðið - 10.09.1992, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 10. SEPTEMBER 1992 RADAOGÍ YSINGAR : A TVINNUAUGl ÝSINGAR Læknafulltrúi 50% staða læknafulltrúa við Heilsugæslu- 'stöð Suðurnesja, Sandgerði, er laus til um- sóknar nú þegar. Upplýsingar um starfið veitir framkvæmda- stjóri í síma 14000. Umsóknum sé skilað til undirritaðs eigi síðar en 21. september 1992. Framkvæmdastjóri. Staða hjúkrunarforstjóra Staða hjúkrunarforstjóra við Sjúkrahús Akra- ness er laus til umsóknar. Staðan veitist frá 1. janúar 1993. Umsóknarfrestur um stöðu þessa er til 1. október nk. Æskilegt er að viðkomandi hafi stjórnunarnám. Allar nánari upplýsingar veitir hjúkrunarfor- stjóri í síma 93-12311. Sjúkrahús Akraness. Matreiðslumaður Hótel úti á landi, með mikla og fjölbreytta veitingasölu, óskar eftir að ráða matreiðslu- mann til starfa sem fyrst. Leitað er að starfsmanni sem hefur frum- kvæði og reynslu og er tilbúinn til að takast á við nýjungar og einnig kröfuharðan markað. Umsóknir sendist auglýsingadeild Mbl. merktar: „Matreiðslumaður - 934“ fyrir 20. september. Ráðgjafi fyrir heyrnarskerta Heyrnleysingjaskólinn óskar eftir að ráða kennara til starfa sem ráðgjafa fyrir heyrnar- skert börn í leik- og grunnskólum landsins. Sérþekking á málefnum barna með skerta heyrn nauðsynleg. Daglegur vinnutími á skólaárinu frá kl. 8.00 til 17.00. Laun skv. launakerfi opinberra starfsmanna. Umsóknarfrestur til 1. október. Leitið nánari upplýsinga í Heyrnleysingja- skólanum í síma 16750 eða 16755. Skólastjóri. BÁTAR — SKIP Fjord 815SSE, „Vaskur“ M/200 hp. Volvo Penta diesel vél. Ganghraði 30 sml., 2 talstöðvar, loran - dýptarmælir - ísskápur - „toilet" - heitt og kalt vatn - svefnpláss fyrir allt að 10 manns. Hentugur til skemmtisiglinga, sjóstangaveiði og sjóskíðaiðkana. Báturinn er í Snarfarahöfn, Reykjavík, við A-bryggju nr. 27. Verð kr. 5,0 milljónir. Upplýsingar í síma 34600 á daginn og 77322 á kvöldin. Farsími 985-23515. Magnús. A TVINNUA UGL ÝSINGAR Stöðvarstjóri Staða stöðvarstjóra tilraunaeldisstöðvar Haf- rannsóknastofnunarinnar á Stað við Grinda- vík, þar sem fram fara tilraunir með eldi sjáv- ardýra, er laus til umsóknar. Æskilegt er að umsækjendur hafi menntun og reynslu á sviði fiskeldis. Gert er ráð fyrir búsetu stöðvarstjórans í Grindavík. Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf sendist stofnuninni fyrir 25. september. Ráðið verður í stöðuna frá og með 1. nóvember. Hafrannsóknastofnunin, Skúlagötu 4, 101 Reykjavík. Sími 91-20240. Styrkir til söngnáms Veittir verða styrkir úr Söngvarasjóði óperu- deildar F.Í.L. til söngnema og söngvara, sem huga að framhaldsnámi. Miðað er við að styrkþegar hafi lokið 8. stigi söngnáms eða sambærilegu námi. Styrki skal nota til söng- náms erlendis. Umsækjendur eru hvattir til þess að láta upptökur á hljóðsnældum fylgja með um- sóknum sínum. Öllum gögnum verður skilað að lokinni úthlutun. Umsóknum, ásamt gögnum, skal skila á skrif- stofu Félags íslenskra leikara á Lindargötu 6, 101 Reykjavík, fyrir kl. 16.00 21. september. Atvinnuhúsnæði óskast Heildsölufyrirtæki vantar nú þegar eða fljót- lega húsnæði til leigu á Reykjavíkursvæðinu. Um er að ræða 200-250 m2 þar sem hægt væri að koma fyrir skrifstofu og lager. Um lengri tíma samning yrði að ræða. Traustir leigjendur og öruggar greiðslur. Tilboð sendist auglýsingadeild Mbl., merkt: „M - 1992, fyrir 16. september. Sumarbústaðalönd Til eru nokkur sumarbústaðalönd í Hvalfirði, aðeins 40 mín akstur frá Reykjavík á mal- biki. Um er að ræða land sem liggur að sjó, landið verður afgirt og vegur lagður um svæðið. Einnig er til staðar á landinu heitt og kalt vatn. Á svæðinu er veiðiaðstaða, golfvöllur, bátabryggja, veitingarekstur, hestaleiga og ýmislegt fleira, t.d. er væntan- leg sundlaug. Upplýsingar gefur Fjárfesting fasteignasala, sími 624250. TILKYNNINGAR Greiðsluáskorun Tollstjórinn í Reykjavík skorar hér með á gjaldendur er ekki hafa staðið skil á gjöldum, sem voru álögð 1990, 1991 og 1992 og féllu í gjalddaga fyrir 15. ágúst 1992 og eru til innheimtu hjá ofangreindum innheimtu- manni, að greiða þau nú þegar og ekki síðar en innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar. Gjöldin eru þessi: Tryggingagjald, launa- skattur, þifreiðaskattur, vátrygging öku- manns, fastur þungaskattur, þungaskattur samkvæmt ökumæli, viðbótar- og aukaá- lagning söluskatts vegna fyrri tímabila, skemmtanaskattur, vörugjald af innlendri framleiðslu, aðflutningsgjöld, vitagjald, skila- gjald umbúða, lestagjald, lögskráningargjöld og iðgjöld til atvinnuleysistryggingasjóðs. Jafnframt er skorað á gjaldendur að gera skil á virðisaukaskatti fyrir 24. tímabil 1992, með eindaga 5. ágúst 1992, ásamt gjaldfölln- um og ógreiddum virðisaukaskattshækkun- um, svo og ógreiddum og gjaldföllnum virðis- aukaskatti í tolli. Fjárnáms verður krafist án frekari fyirvara fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna ásamt dráttarvöxtum og öllum kostnaði sem af innheimtu skuldarinnar kann að leiða 15 dögum frá birtingu áskorunar þessarar. Reykjavík, 8. september 1992. Tollstjórinn í Reykjavík. Greiðsluáskorun Sýslumaðurinn á Seyðisfirði skorar hér með á gjaldendur, sem ekki hafa staðið skil á gjöldum sem voru álögð 1990, 1991 og 1992 og féllu í gjalddaga fyrir 5. september 1992 og eru til innheimtu hjá ofangreindum inn- heimtumanni, að greiða þau nú þegar og ekki síðar en innan 15 daga frá dagsetningu áskorunar þessarar. Áskorun þessi nærtil neðangreindra gjalda: Tekjuskatts- og eignarskatts, sérstaks eigna- skatts, sérstaks skatts á verslunar- og skrif- stofuhúsnæði, útsvars, gjalds í fram- kvæmdasjóð aldraðra, kirkjugarðsgjalds, staðgreiðslu launagreiðanda, reiknaðs end- urgjalds, iðnaðarmálagjald, iðnlánasjóðs- gjalds, skipulagsgjalds, útlutningsráðsgjalds, virðisaukaskatts, tryggingagjalds, launa- skatts, vörugjalds, lífeyristryggingagjafds, aðstöðugjalds, slysatryggingagjalds, vinnu- eftirlitsgjalds, atvinnuleysistryggingagjalds, bifreiðagjalds, þungaskatts, aðflutnings- og útflutningsgjalds, skipagjalds, vitagjalds, skemmtanaskatts, miðagjalds og aukaálagn- ingu söluskatts vegna fyrri tímabila. Fjárnáms verður krafist án frekari fyrirvara fyrir vangoldnum eftirstöðvum gjaldanna auk vaxta og viðurlaga að liðnum 15 dögum frá birtingu áskorunar þessarar. Seyðisfirði, 7. september 1992. Sýslumaðurinn á Seyðisfirði. Aðalfundur Sjóefnavinnslunnar hf., Höfnum, Reykjanesi, verður haldinn fimmtudaginn 24. september 1992 kl. 17 í fundarsal Hitaveitu Suðurnesja á Brekkustíg 34-36, Njarðvík. Fundarefni: Aðalfundarstörf samkvæmt samþykkt- um félagsins. Stjórnin. Félag sjálfstæðismanna í Laugarneshverfi Ferskir vindar ískólamálum Opinn fundur um skólamál verður hald- inn í Holiday Inn, efstu hæð, í dag, fimmtu- daginn 10. september, kl. 20.30. 1. Möguleikar á heilsdagsskóla fyrir börn í Laugarnes- og Laugarlækjaskóla. 2. Tölvunotkun á grunnskólastigi, nýjung hjá skólunum. 4S Ræðumenn: Árni Sigfússon, borgarfulltrúi og formaður skólamála- ráðs Reykjavíkur, og Unnur Halldórsdóttir, formaður SAMFOKS, tala um breytingar frá sjónarhóli foreldra. Þráinn Guðmundsson og Jón Freyr Þórarinsson, skólastjórar Laugar- nes- og Laugalækjarskóla, munu einnig ræða málin og svara spurn- ingum. Allir félagsmenn, foreldrar og áhugafólk er hvatt til að koma og kynna sér málið. Kaffiveitingar. Gestir velkomnir.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.