Morgunblaðið - 22.10.1992, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1992
»» IB«
** AL0983B
Þér er boðið í glæsilega veislu
í dag kl. 14 opnar Jón Sigurðsson, iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, Bretlandsveisluna með
því að vígja nýuppgerðan, breskan símaklefa,
sem staðsettur verður framvegis í Borgarkringlunni.
Hljómskálakvintettinn leikur létt bresk lög
og boðið verður upp á glæsilegar veitingar.
Að því loknu bregða bresku skemmtikraftarnir
okkar á leik.
Klukkan 16 verður haldin tískusýning á
heimsmælikvarða, þar sem sýndur veróur
fatnaður margra þekktustu hönnuða Bretlands.
Klukkan 18 verður síðan haldin
mikiifengleg fiugeldasýning.
Tveggja hæða Lundúnastrætisvagn með
áætlunarferðir í Borgarkringluna
- Ókeypis fyriralla
Vagninn ekur um götur Reykjavíkur og verður á
hálftíma fresti í Borgarkringlunni.
Einstakt tækifæri til að gera góð kaup
Verslanir í Borgarkringlunni veróa með
sérstök vildarkjör á breskri vöru næstu daga
og veitingastaðirnir verða með sérstaka
matseðla í tilefni Bretlandsveislunnar.
Notaðu tækifærið og gerðu góð kaup!
Big Ben í Borgarkringlunni
Eitt þekktasta tákn Lundúna veróur til sýnis í Borgarkringlunni
næstu daga, 2,5 metra líkan af Big Ben!
Sigrún Ástrós í kvöld á Ömmu Lú
í kvöld og n.k. miövikudagskvöld verður boðið upp á
leiksýningu á vgitingastaðnum Ömmu Lú, á hinu vinsæla
leikriti Sigrún Ástrós eftir Willy Russel, í flutningi
Margrétar Helgu Jóhannsdóttur. Tveggja rétta máltíð er
innifalin í miðaverði, kr. 2.600.
Getraunir með fjölda spennandi vinninga
Efnt verður til getrauna við allra hæfi. Meðal annars
verður teiknimyndasamkeppni fyrir börnin og Sherlock Holmes-
leikur fyrir hina eldri, í samvinnu við Bylgjuna. Fjölmargir
vinningar eru í boði, m.a. glæsilegar utanlandsferðir.
Opið mánudaga - fimmtudaga kl. 10.00 -18.30 Föstudaga kl. 10.00 -19.00
Laugardaga kl. 10.00 -16.00 og sunnudaga kl. 13.00 -17.00, meðan á Bretlandsveislunni stendur.
( BORCARKRINfiljllXM
r
I dag hefst viðamikil Bretlandsveisla í Borgarkringlunni.
Mikill fjöldi breskra og íslenskra listamanna mun skemmta gestum dag hvern
og fjölmargar nýjar og spennandi vörur frá Bretlandi verða á sérstöku tilboðsverði
Gestir okkar frá Bretlandi verða m.a.:
• Skoski sekkjapípuleikarinn Robert MacKintosh
• Gordon Rimes sýnir stórfengleg flóttaatriði,
auk þess að skemmta börnunum í trúðagerfi sínu
• Listakonan Helen Cooper málar á silki
• Lafði Christobel og einkaþjónn hennar,
vafasamir fulltrúar breska aðalsins!
• Grínleikarinn Adrian Kay sem meðal annars leikur
Charlie Chaplin fyrirgesti Borgarkringlunnar
I
I