Morgunblaðið - 22.10.1992, Blaðsíða 4
VEÐUR
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1992
íDAG kl. 12.00
Heimlld: Veðuretola (slands
(Byggt & veðurspá Id. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR I DAG, 22. OKTOBER
YFIRLIT: Yfir suðvestanverðu Grænlandshafi er vaxandi lægð, sem hryf-
ist austnorðaustur, en yfir norðaustur Grænlandi er 1018 mb hæð. Hlýna
mun í veðri.
SPÁ: Sunnan og suðvestan kaldi eða stinningskaldi og súld eða skúrir
um sunnanvert landið, en allhvass austan og suðaustan og rigning norð-
an og austanlands. Hiti 2-9 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á FÖSTUDAG: Austan- og norðaustanátt, nokkuð hvöss með
snjókomu eða slyddu á Vestfjörðum, en vlðast fremur hægur vindur og
slydduél i öörum landshlutum. Hiti 0-5 stig.
HORFUR Á LAUGARDAG OG SUNNUDAG: Norðaustanátt, víða Strekk-
ingsvindur. Éljagangur um landið norðanvert, en þurrt og sæmilega bjart
veður sunnanlands og vestan. Hiti um eða rétt yfir frostmarki.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30. 4.30, 7.30, 10.45, 12.46, 16.30, 19.30,
22.30. Svarsfmi Veðurstofu fslands — Veðurfregnir: 990600.
0^4
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað
A
Skýjað
/ r r * r *
/ / * /
r r r r * /
Rigning Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Alskýjað
V ^ V
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindörin sýnir vindstefnu
og fjaðrimar vindstyrk,
heil fjöður er 2 vindstig.
10° Hitastig
V Súld
= Þoka
FÆRÐ A VEGUM: oo. 17.30 rgæo
Þjóðvegir landsins eru yfirleitt ágætlega greiðfærir, en þó er sumstaðar
hálka á vegum svo sem á Fróðárheiði og Holtavörðuheiði. Sömuleiðis
er hálka á fjallvegum á Vestjörðum, Norðurlandi, Norð-Austurlandi og
Austfjörðum.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í síma 91-631500 og á
grænni iínu 99-6315. Vegagerðin.
VEÐUR VIÐA UM HEIM
kl. 12.00 í gær að ísl, tíma
Akureyri 1 skýjaö
Reykjsvnc 4 þokumóða
Bergen 6 léttókýjaö
Helsinki 3 skýjaö
Kaupmannaböfn 7 rigning
Narssaresaaq B rígning
Nuuk +1 snjókoma
Osló vantar
Stokkhólmur 6 skýjað
Þóreböfn 5 alskýjaö
Algarve vantar
Amsterdam 7 rigning
Barcelona 17 léttskýjað
Berlfn 12 skýjað
Chicago S þokumóöa
Feneyjar vantar
Frankfurt 10 skýjað
Glasgow 9 rigning
Hamborg 7 rigning
London 10 skýjað
LosAngeles 18 alskýjaö
Lúxemborg 4 rigning
Madríd 12 láttekýjað
Malaga 19 skýjað
Mallorca 19 láttskýjað
Montreal 3 rigning
NewYork 11 alskýjað
Orlando 18 skýjað
París 9 rignlng
Madeira vantar
Róm 22 rigning
Vín 7 alskýjað
Waahington 9 skýjað
Wlnnipeg 1 léttskýjað
Morgunblaðið/Þorkell
Orgel Hallgrímskirkju afhjúpað í gær
„Hljómurinn eins og
ég hafði vonast til“
- segir Hans-Gerd Klais orgelsmiður
STÆRSTA og fegursta hljóðfæri sem íslendingar hafa eignast
var afhjúpað í gær í Hallgrímskirkju. Vinnupallar sem fram að
þessu hafa hulið orgelið eru horfnir og blasir það nú við í allri
sinni dýrð. Það var Klais Orgelbau í Bonn sem sá um hönnun
og smíði orgelsins, en það fyrirtæki er meðal þeirra virtustu á
þessu sviði í heiminum og er einkum þekkt fyrir smíði stærri
orgela. Útlit orgelsins tekur mið af byggingarstíl Hallgríms-
kirlgu og eru stærstu sjáanlegar pípur um 10 metrar á hæð.
í tilefni þess að vinnupallar fyrirtæki hans smíðaði orgel þar
höfðu verið teknir niður kom for-
stjóri Klais Orgelbau, Hans-Gerd
Klais, til landsins til að sjá orgel-
ið fullsamsett í fyrsta sinn. Við
stutta athöfn í Hallgrímskirkju lék
Hörður Áskelsson organisti á hið
mikla hljóðfæri og lýsti Klais
ánægju sinni við það tækifæri og
sagði að hljómurinn væri einmitt
eins og hann hafði vonast til að
hann yrði.
Stærstu sjáanlegar pípur eru
10 metrar á hæð og mynda tóna
við lægstu mörk mannlegrar
heymar. Láréttir lúðrar sem
ganga inn í kirkjuna eru hluti af
röddum sem kallast spænskir
trompettar og eru með kraftmestu
pípum orgelsins. Pípurnar sem
sjást eru allar úr tin- og blýblöndu.
Orgelhúsið sjálft er ekki síður
tilkomumikið. Er það á fjórum
hæðum, smíðað úr gegnheilli eik
og að baki þess er sérstakur tvö-
faldur glerveggur í stað timbur-
veggs, sem varpar öllum hljóm inn
í kirkjuna. Hönnun og smíði
veggjarins er íslensk. Sagði Klais
að þetta væri í fyrsta sinn sem
sem menn gætu virt fyrir sér innri
byggingu þess utan frá.
Klais Orgelbau í Bonn var
stofnað fyrir 110 árum og er
Hans-Gerd Klais af fjórðu kynslóð
Klais orgelsmiða. Orgelið í Hall-
grímskirkju er þriðja stærsta org-
elið sem Klais Orgelbau hefur
smíðað og eru aðeins stærri orgel
að finna í Ástralíu og Japan. Sem
dæmi um stór og þekkt Klaisorg-
el má nefna orgelin í dómkirkjun-
um í Altenberg, Ingolstadt, Limb-
urg, Trier og Wiirzburg í Þýska-
landi, í tónleikahúsunum í
Munchen, Köln, Delaware í Ohio
í Bandaríkjunum og Brisbane í
Ástralíu. Starfsmenn Klais Orgel-
bau leggja nú síðustu hönd á frá-
gang pípna orgelsins og stillingar,
og verður orgelið vígt 13. desem-
ber næstkomandi.
í tengslum við uppsetningu
nýja orgelsins hafa verið gerðar
breytingar á kirkjunni sem stór-
bæta hljómburðinn. Nýir bekkir
hafa verið settir í kirkjuskipið og
panell og hjóðskermar settir fyrir
ofna og upp í hliðarloft og kórdyr.
Brú yfir Elliðaár
SH-verktakar lægstir
OPNUÐ hafa verið tilboð í eitt stærsta verkið í vegagerð á næste
ári, byggingu brúar á Elliðaár á Arnamesvegi. Lægsta tilboðið var
frá SH-verktökum í Hafnarfirði, 69,8 milþ'ónir kr., sem er 69% af
kostnaðaráætlun.
Níu verktakar buðu í brúarsmíð- milljónir en kostnaðaráætlun Vega-
ina sem á að ljúka fyrir 1. júní gerðarinnar hljóðaði upp á 101,6
1993. Öll boðin voru innan við 80 milljónir kr.
Átta banaslys í Reykjavík það sem af er árinu
Lögreg’lan stórherð-
ír eftírlit á næstunni
- segir Magnús Einarsson yfirlögregluþjónn
BANASLYS í umferðinni í Reykjavík eru 8 það sem af er árinu eða
jafn mörg og á öllu síðasta ári. Af þessum 8 slysum hafa 5 orðið á
síðustu tveimur mánuðum. Magnús Einarsson yfirlögregluþjónn
bendir á að enn séu tveir dimmir mánuðir eftir af árinu og slysunum
verði að linna. „Bílstjórar verða að gera sér grein fyrir ábyrgð sinni
á lífi samborgaranna, sem er sama ábyrgð og hvílir á skipstjórum
og flugs1jómm,“ segir hann.
Þrjú banaslys höfðu orðið í um-
ferðinni í Reykjavík þegar komið
var fram í lok ágúst, en þá tók
við slysaalda. Öldruð hjón biðu
bana þegar bifreið þeirra lenti í
árekstri við sjúkrabíl, ekið var á
gangandi mann á Hverfísgötu,
kona varð fyrir strætisvagni í
Lækjargötu og kona varð fyrir bif-
reið á Bústaðavegi. „Þessu verður
að linna. Menn verða að fara að
gæta virðingar sinnar gangvart
sjálfum sér og öðrum vegfarendum
í umferðinni. Lögreglan mun herða
mjög eftirlit á næstunni og leggja
allt kapp á fyrirbyggjandi aðgerð-
ir, bæði á merktum og ómerktum
bifreiðum," sagði Magnús Einars-
son. „Við íhugum líka alvarlega
að setja upp illa farin bílflök við
miklar umferðargötur, ef það má
verða víti til varnaðar."
Magnús kvaðst harma að sjá
ekki meira af varnaðarorðum frá
þeim aðilum, sem ynnu að bættri
umferðarmenningu. „Trygg-
ingafélögin, læknar, hjúkrunar-
fólk, sjúkráflutningafólk og ekki
síst fjölmiðlar verða að leggja sitt
af mörkum. Við vinnum ekki bug
á vandanum í umferðinni nema
með því að fara að settum reglum
og það þarf að brýna fyrir öllum.
Ef reglur eru virtar gengur um-
ferðin eðlilega. Ég skora því á allt
gott og velþenkjandi fólk að reyna
að bægja hættunni frá.“