Morgunblaðið - 22.10.1992, Side 11
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1992
11
Helga Bryndis Magnúsdóttir
Tónlist
Jón Asgeirsson '
Evrópusamband píanókennara,
EPTA, stóð fyrir tónleikum í ís-
lensku óperunni sl. mánudag, þar
sem ungur píanóleikari, Helga
bryndís Magnúsdóttir, kom fram í
fyrsta sinn sem einleikari. Helga
Bryndís hefur nýlokið námi erlend-
is og hefur tekið við stöðu sem
píanókennari við Tónlistarskólann
á Akureyri. Á efnisskrá tónleik-
anna voru verk eftir J.S. Bach,
Ravel, Debussy og Schumann.
Fyrsta verk á tónleikunum var
fjórða partítan (d-dúr9 eftir Bach
og var þetta meistaraverk mjög
vel flutt, með skýrri mótun hend-
inga, góðri aðgreiningu raddanna
og í heild af öryggi, sem vitnar
um vönduð vinnubrögð og góða
tækni.
Tæknileikur og tónhugmyndir
er samvinnað í verkum Ravels og
Debussys en eftir þann fyrrnefnda
lék Helga Bryndís, Alborada del
grazioso, sem er fjórða verkið í
Skuggsjá, safni píanóverka sem
Ravel gaf út 1905. Þar er leikið
með spánskan hryn og endurtekn-
ar nótur, sem reynir mjög á skerpu
og nákvæmni. Helga Bryndís lék
verkið mjög vel og líklega var þetta
best leikna verkið á þessum tón-
leikum. í þremur Prelúdíum eftir
Debussy lék Helga Bryndís mjög
fallega með ýmis þau fínlegu blæ-
brigði sem Debussy er m.a. frægur
fyrir, eins t.d. í Des pas sur le
neige. í Fau d’artifce var leikur
hennar glæsilegur.
Sýning í
Gallerí 11
Laugardaginn 24. október kl.
15.00 opnar Hannes Lárusson
sýningu í Gallerí 11, Skólavörðu-
stíg 4a.
Sýningin ber yfirskriftina AFT-
UR AFTUR. Öll verkin sem þar
verða sýnd eru gerð á þessu eða
síðasta ári. Sýningunni lýkur 5.
nóvember.
RAFORKAN
þarf ekki
aðvera
staðbundin
EB4500X
Rafstöðin frá HONDA er
hentug fyrir verktaka, við
byggingar sumarbústaða
og við almennar húsbygg-
ingar. Hún gefur frá sér
220V straum.
Lokaverk tónleikanna var
Carnaval op. 9, eftir Schumann. í
þessu stórkostlega verki má finna
merki um sterka tilhneigingu
Schumanns að fela sjálfan sig og
leika sér með alls konar dular-
merki, eins og t.d., að flest öll lög-
in hefjast á tónunum A-es-C-H og
hafa menn glímt við að ráða þessa
stafaformúlu, með tilvísun til nafns
tónskáldsins eða bæjarnafns, þar
sem vinkona hans á að hafa búið.
Þá hafa sálfræðingar leitt hugann
að merkingu nafna eins og Eusebi-
us og Florestan, sem munu vera
eins konar dulnefni höfundarins. Á
milli 8. og 9. lagsins eru ritaðar
þijár tónmyndir með yfírskriftinni
Sphinxs og eru þær ekki ætlaðar
til leiks en Helga Bryndís lék þess-
ar tónmyndir með „hand-dempuð-
um“ tónum.
Helga Bryndís lék verkið af
glæsibrag og víða með sérstæðum
„briljans", eins t.d. forspilið, Flor-
estan, Coquette, Papillons og Pan-
talo et Colombine. Hún hefur
sterka tilfínningu fyrir andstæðum
Helga Bryndís Magnúsdóttir.
og skerpu og þrótt til að útfæra
þær með glæsibrag, eins og í Vale
noble, Estrella og Valse Allemande
og Paganini þættinum, sem til
saman mynda ABA form.
Helga Bryndís Magnúsdóttir er
góður píanóleikari, leikur af öryggi
og „músiserar“ fallega með við-
kvæmar tónlínur, hefur til að bera
kraft, sem gerir henni kleyft að
gæða leik sinn skapfestu og á köfl-
um ofsa. Það eru ekki margir sem
hafa á valdi sínum flókið og víðf-
emt litróf tilfinninganna og tækni
til útfæra þær í spili sínu. Það
hefur Helga Bryndís sýnt í leik
sínum að þessu sinni, svo að ekki
verður um villst, að hér á ferðinni
stórefnilegur og litríkur píanisti.
1
BS§;
Göngudagurinn
Dagskrá um allt land. Yertu með!
Reykjavlk: Ganga frá
Ráöhúsinu kl. 12.15 undir forystu
borgarstjóra Markúsar Arnar
Antonssonar. Einnig verða ýmis
félög, skólar og fyrirtæki með
skipulagðar göngur.
Seltjarnarnes: Ganga frá
Mýrarhúsaskóla kl. 10.30,
frá nýja íþróttahúsinu kl. 17.15
og frá sundlauginni kl. 19.00.
Kópavogur: Ganga kl. 18.00 frá
sandgrasvelli Breíðabliks í Kópa-
vogsdal. Veitingar á eftir.
Garöabær: Ganga frá íþrótta-
miöstöðinni Ásgarði kl. 18.00.
(þróttakennarar leiða gönguna og
sjá um upphitun. Veitingar á eftir.
Hafnarfjöröur: í tilefni dagsins
verður frítt í sund fyrir göngufólk frá
kl. 12.00 - 14.00. Kort meö góöum
gönguleiðum eru í öllum íþrótta-
mannvirkjum bæjarins.
Mosfellsbær: Upphitun og
ganga frá Nóatúnsplani kl. 12.00 og
13.00. Einnig veröur ganga frá
Reykjalundi kl. 12.00.
Akranes: Ganga/ratleikur frá
íþróttahúsinu við Vesturgötu
kl. 12.30. Ganga frá Jaðars-
bakkalaug kl. 19.30.
Borgarnes: Gangafrá íþrótta-
miðstöðinni kl. 16.00.
Hellissandur: Ganga frá
íþróttamiðstöðinni kl. 17.00
Ólafsvfk: Ganga frá Iþrótta-
húsinukl. 17.30.
Stykkishólmur: Ganga frá
bensínstöð kl. 17.30.
Búöardalur: Ganga frá dvalar-
heimili aldraðra Silfurtúni kl. 17.30.
Patreksfjöröur: Ganga frá leik-
skólanum kl. 16.00.
Tálknafjöröur: Ganga frá
pósthúsinu kl. 17.00 undir stjórn
Ingibjargar Ingu Guðmundsdóttur.
Flateyri: Ganga frá grunn-
skólanumkl. 17.15
Suöureyri: Ganga frá sundlaug-
inni kl. 17.30. Frítt í sund á eftir.
Bolungarvík: Ganga frá
Einarsbúð að Brú kl. 18.00.
ísafjöröur: Ganga frá Silfurtorgi
kl. 18.00.
Hólmavfk: Ganga frá Söluskála
KS.H.kl. 17.30.
Hvammstangi: Gangafrá
grunnskólanum kl. 17.30.
Akureyri: Ganga frá Verk-
menntaskólanum undir forystu
Halldórs Jónssonar bæjarstjóra
kl. 17.00. Ganga í Kjarnaskógi
undir forystu Gunnars Ragnars-
sonar formanns Í.B.A. kl. 20.00.
Grenivfk: Gangafrá íþróttahúsi
kl. 20.00. Kaffiáeftir.
Húsavík: Ganga frá íþróttahöll
kl. 17.00.
Raufarhöfn: Ganga frá
Félagsheimilinu kl. 17.30 undir
stjórn kvenfélagsins.
Vopnafjöröur: Ganga frá
grunnskólanum kl. 15.00.
Seyöisfjöröur: Ganga hefst við
Félagsheimiliö Herðubreið kl.17.30.
Neskaupstaður: Ganga frá
Söluskála OLÍS að Laufskálum.
Lagt af stað kl. 18.00.
Fáskrúösfjöröur: Ganga frá
Félagsheimilinu Skrúð kl. 18.00.
Stöövarfjöröur: Ganga frá
samkomuhúsinu kl. 17.30 að
Bæjarstöðum.
Höfn, Hornafirði: Gangafrá
líkamsræktarstöðinni Orkuveri
kl. 17.00 undir stjórn Guðrúnar
Ingólfsdóttur.
Kirkjubæjarkiaustur: Ganga
fráTunguhæðum kl. 17.00.
Vestmannaeyjar: Ganga frá
íþróttahúsinu kl. 17.30.
Hvolsvöllur: Ganga frá
Hvolsskóla kl. 20.00.
Þykkvibær: Mæting viö
grunnskólann kl. 10.30.
Flúöir: Ganga frá sundlaug
kl, 17.00.
Laugarvatn: Gangafrá íþrótta-
húsinukl. 15.00
Selfoss: Mæting við Sundhöllina
kl. 17.00. Upphitun og teygjur undir
stjórn Sigríðar Sæland. Gengið
undir stjórn Sigríðar M 1/2 - 2 klst.
Hverageröi: Gangafrá grunn-
skólanum kl. 10.00,13.00 og 17.00.
Gríndavfk: Ganga frá grunn-
skólanumkl. 14.00.
Keflavfk: Ganga frá íþrótta-
vallarhúsi kl. 12.15 og kl. 18.00.
Vogar, Vatnsleysuströnd:
Ganga frá Stóru-Vogaskóla
kl. 17.00.
IÞROTTIR FVRIR RLLfl
sjúvA-almennar
Landsbanki
íslands
Banki allra landsmanna
<,
£
Skeljungur hf.
Einkaumboö fyrir Shell-vörur á íslandi
VATNAGÖRÐUM 24, RVÍK., SÍMI 689900