Morgunblaðið - 22.10.1992, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1992
15
ronr craaoTVO nc. utt^ a rrTT^rT./v^qr <t»Fta rar/
EES og verkmenntun
eftir Ingólf Sverrisson
Á síðustu árum hefur komið æ
betur í ljós að þær þjóðir, sem leggja
mesta rækt við að þróa og framleiða
vörur og þjónustu sem byggja á
hugviti og tækni, hafa náð bestum
árangri í verðmætasköpun. Þessi
aukna verðmætasköpun hefur síðan
leitt til bættra lífskjara og meiri
velmegunar.
Til þess að ná árangri með hug-
viti og tækni verða fyrirtæki að
treysta á vel menntað og þjálfað
starfsfólk. Hér er ekki verið að tala
um hámenntaða vísindamenn, held-
ur miklu fremur iðnaðar- og tækni-
menn sem hlotið hafa góða undir-
stöðumenntun þar sem hugur og
hönd vinna saman.
Framfaraskref
Að sönnu kostar hvert framfara-
skref á sviði verk- og tæknimennt-
unar mikla fjármuni enda þótt þeir
skili margfaldlega til baka í fyllingu
tímans. Margt hefur verið vel gert
á sviði bóklegrar kennslu hér á landi
undanfarin ár, en á sama tíma ekki
verið tilefni til að fagna miklum
framförum að því er tekur til verk-
og tæknináms. í þeim efnum höfum
við dregist aftur úr samkeppnisþjóð-
um okkar.
Það er því full ástæða til að fagna
hveiju skrefi sem stigið er til þess
að auðvelda ungu fólki að afla sér
bestu verk- og tæknimenntunar eða
þá að opna kennurum þeirra og leið-
beinendum leið til að heyja sér þekk-
ingar í nýjustu tækni og kennslu-
háttum. A þann hátt er verið að
koma til móts við raunverulegar
þarfír fyrirtækja sem vilja bæta sam-
Ingólfur Sverrisson
„Með aðild íslands að
Evrópsku efnahags-
svæði er tvímælalaust
stigið merkt skref til
þess að efla verk- og
tæknimenntun hér á
landi.“
keppnisstöðuna og um leið lífskjörin
í landinu.
Með aðild íslands að Evrópsku
efnahagssvæði er tvímælalaust stig-
ið merkt skref til þess að efla verk-
og tæknimenntun hér á landi. Til
þess liggja einkum tvær ástæður:
1. Með EES veitast bæði iðn- og
tækninemum og kennurum þeirra
betri aðgangur að ýmsum skólum,
fræðslu- og tæknistofnunum í öðrum
Evrópulöndum. Auk þess opnast
aðgengi íslendinga að ýmsum verk-
efnum á vegum CEDEFOB, sem er
miðstöð verk- og tæknimenntunar í
Evrópu. Þetta er þeim mun mikil-
vægara þegar þess er gætt, að við
erum því miður í flestum tilvikum á
eftir öðrum Evrópuþjóðum í verk-
menntun, einkum í tæknivæddari
iðngreinum.
2. Með EES geta allir íslendingar
sem kjósa að starfa í Evrópu ráðið
sig án sérstakra atvinnuleyfa. Þetta
opnar mikla möguleika fyrir þá sem
vilja afla sér reynslu eða sérþekking-
ar á tilteknum sviðum verklegra
mennta og nýta hana síðan þegar
heim er komið. Slíkur innflutningur
þekkingar og þjálfunar getur orðið
undirstaða mikils og arðvænlegs
útflutnings.
Afrakstur hugvits
Samkeppnisþjóðir okkar í Evrópu
kosta nú kapps um að bæta verk-
og tæknimenntun og draga enga dul
á að á þann hátt ætla þær að skapa
ný og arðvænleg störf. Þau leggia
ekki allt sitt traust á nýtingu hefð-
bundinna auðlinda, heldur vita sem
er að afrakstur hugvits og verk-
tækni getur ekki síður gefið mikið
af sér. Af þessu ættum við að geta
dregið nokkurn lærdóm og fagnað
öllum áföngum sem færa okkur nær
rás athyglisverðra viðburða í verk-
og tæknimenntun. Síðan er það okk-
ar að nýtaþau tækifæri sem bjóðast.
Höfundur er framkvæmdasijóri
Málms, samtaka fyrirtækja í
málm- og skipaiðnaði.
RÚSSLAND
Ruric Ltd. er íslensk viðskiptaskrifstofa í Moskvu,
þar sem þú getur fengið aðstoð rússneskumæl-
andi íslendings við ýmis verkefni.
Upplýsingar í síma 91-43933, fax 641733 eða
Moskva sími/fax 095-2417409.
HÚSEIGENDUR - HÚSBYGGJENDUR
Smíðum hefðbundin tímburhús á byggingarstað.
Endurbyggjum gömul timburhús. Smíðum ný
timburhús í gömlum stíl. Smíðum sumarbústaði.
Skiptum um glugga og endurnýjum þök og báru-
járnsklæðningu. Getum séð um hönnun.
TIMBURHÚS HF.,
byggingaverktaki, s. 42814 e. kl. 18.00.
HEIMILISIÐNAÐARSKÓLINN
Laufásvegi 2 - sími 17800
Námskeié i október
Prjóntækni 22. okt. - 19. nóv.
Kennari: Sunneva Hafsteinsdóttir.
Bútasaumur 27. okt. - 1. des.
Kennari: Bára Guðmundsdóttir.
Knipl 28. okt. - 16. des.
Kennari: Anna Sigurðardóttir.
Tauþrykk 28. okt. - 2. des.
Kennari: Guðrún Marinósdóttir.
Skráning fer fram á skrifstofu
skólans f síma 17800.
Skrifstofan er opin mánud. - fimmtud. frá kl. 14-16.
Vinsamlegast hringið til að fá frekari upplýsingar.
V
t