Morgunblaðið - 22.10.1992, Page 38

Morgunblaðið - 22.10.1992, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1992 t Konan mín, SIGURBJÖRG Gl'SLADÓTTIR, Vogatungu 31, lést 19. október í Hátúni 10. Fyrir hönd aðstandenda, Sólon Lárusson. t Faðir okkar, INGI GUÐMONSSON, Hlfðargerði 2, Reykjavík, andaðist í Landspítalanum miðvikudaginn 21. október. Jarðarförin auglýst síðar. Börnin. t Okkar kæra SIGRÍÐUR ÓLAFSDÓTTIR, Droplaugarstöðum, áður til heimilis i Ingólfsstræti 21D, lést 20. október á Droplaugarstöðum. Guðný Ólafsdóttir, Sigrfður Ólöf Árnadóttir, Anna Margrét Árnadóttir. t Faðir okkar, BJARNIANTON JÓNSSON frá Norðfirði, sem andaðist 15. október sl., verður jarðsunginn frá Kópavogs- kirkju föstudaginn 23. október kl. 10.30. Ingimundur Bjarnason, Margrét Karitas Bjarnadóttir. t Elskuiegur eiginmaður minn, faðir og afi, GUNNAR VILMUNDARSON, Reykási 33, sem lést 17. október, verður jarðsunginn frá Árbæjarkirkju, Rofa- bæ, föstudaginn 23. október kl. 13.30. Gurf Liv Stefánsdóttir, Jóhanna Jóhannsdótttir, Abdel Aiyub, Sofia Aiyub. t Faðir minn, SIGURÐUR H. SIGURBJÖRNSSON, Björgum, Ljósavatnshreppi, lést þann 13. október. Jarðarförin hefur farið fram í kyrrþey að ósk hins látna. Fyrir hönd annarra vandamanna, Sigurður Freyr Sigurðsson. t Ástkær eiginmaður minn, faðir, tengdafaðir og afi, HAUKUR MORTHENS, Garðhúsum 51, sem lést á heimili sínu 13. október, verður jarðsunginn frá Bústaðakirkju föstudaginn 23. október kl. 15.00. Blóm og kransar eru vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Minningarsjóð Heimastoðar, krabba- meinslækningadeild Landspítalans, sími 601300. Ragnheiður Magnúsdóttir, synir, tengdadætur og barnabörn. t Maðurinn minn og faðir okkar, BERGUR SIGURÐSSON, Ánahlfð 16, Borgarnesi, verður jarðsungin frá Borg á Mýrum laugardaginn 24. október kl. 13:30. Jarðsett verður í Borgarnesi. Blóm og kransar vinsamlega afþakkaðir, en þeim, sem vilja mirtn- ast hans, er bent á björgunarsveitina Brák. Jónfna Eggertsdóttir og börn. Minning Þórður jBjörns- son frá Hömrum Fæddur 13. nóvember 1908 Dáinn 15. október 1992 Far þú í friði friður Guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Gekkst þú með Guði Guð þér nú fylgi, hans dýrðarhnoss þú hljóta skalt. (V. Briem). Mig langar í örfáum orðum að minnast Þórðar. Hann bjó í mörg ár hjá foreldrum mínum. Þar man ég fyrst eftir hon- um. Ég minnist hans sem hægláts, góðs, gamals manns. Afaímynd okkar krakkana. Síðustu æviár sín bjó Þórður á Elli- og hjúkrunar- heimilinu Skjólgarði í Höfn. Aðal áhugamál Þórðar var hestar og átti hann nokkra mjög góða. Þökkum samfylgdina, Ingibjörg, Ingólfur Þór og Eyrún. Látinn er austur á Hornafirði Þórður í Hömrum, ein af hinum sönnu og yfírlætislausu hversdags- hetjum þjóðarinnar. Þórður Bjöms- son fæddist að Hömrum á Mýrum hinn 13. nóvember 1908 og lést á Skjólgarði á Höfn hinn 15. nóvem- ber 1992. Foreldrar Þórðar voru Bjöm Þórðarson frá Kálfafelli í Suðursveit og Sigríður Jónsdóttir ættuð úr Vestur-Skaftafellssýslu. Þau komu að Hömmm á Mýmm árið 1903 frá sléttaleiti í Suður- sveit og bjuggu sinn búskap í Hömr- um síðan. Þau eignuðust þijú böm, Þórð og systur hans tvær, Guðríði Ingibjörgu, sem kölluð var Björg, og var ógift og barnlaus, og Sigur- björgu, sem giftist austur á Seyðis- fjörð og eignaðist þar tvo syni. Eft- ir lát föður síns 1945, bjó Þórður nokkur ár með móður sinni og Björgu í Hömmm. Björg lést árið 1950 og brá Þórður þá búi og flutt- ist með móður sinni að Einholti á Mýmm. þar lést Sigríður 1953 og eftir það seldi Þórður Hamra og flutti á Höfn árið 1954. Þórður var ókvæntur og barnlaus. Hamrar em lítil jörð og alls ekki vel fallnir til nútímabúskapar. Þar hefði Þórður því líklega verið dæmdur til einyrkjalífs og jafnvel hokurs. Slíkt hefur alls ekki verið hinum kappsfulla verkmanni að skapi og því valdi hann þann kost- inn að leita á aðrar slóðir þar sem hann fann nógan starfa og þar sem honum leið vel. í rétt tæp fyömtíu ár var Þórður verkamaður á Höfn og gekk að allri almennri vinnu, mest við höfnina og fiskinn eins og flestir verkamenn í sjávarplássi. Dugnaður Þórðar var með eindæm- um og úthald hans og þol við vinnu meira en flestra annarra manna. Meirihlutinn af maga Þórðar var numinn á brott vegna veikinda. Þórður safnaði því aldrei holdum og neytti fremur lítiliar fæðu miðað við það sem almennt gerist. Því var það með ólíkindum hve mikið hann gat unnið og hve mikla orku hann hafði til að leggja í verk sín. Ég kynntist Þórði fyrst strákur rétt að leggja af stað inn í annan áratuginn, kominn í sveit vestur á Mýrar, á næsta bæ við Einholt. Þá var Þórður kominn þangað og hætt- ur búskap í Hömmm. Ég minnist hans fyrst við réttimar austan und- ir Einholtinu þegar verið var að smala fénu til rúnings fyrri hluta sumars; sé reyndar enn fyrir mér baksvip hans, hendumar flagsandi að og frá síðunum til skiptis, hnén lítillega bogin og bolinn hallandi fram á við og heyri hóið hans, þeg- ar þrengt var að fénu og það rekið t Útför móður okkar, tengdamóður og ömmu, GUÐMUNDÍNU S. STEFÁNSDÓTTUR, Blönduhlíð 6, fer fram frá Fríkirkjunni í Reykjavík föstudaginn 23. október kl. 15.00. Sigurður Sigurðsson, Sæunn Andrésdóttir, Unnur S. Vilbergsdóttir, Gunnar M. Hansen, Hafdís Steingrímsdóttir, Hafliði Kristbjörnsson, barnabörn og barnabarnabörn. t Eiginmaður minn, sonur, faðir, tengdafaðir og afi, GUÐBJARTUR STEINAR KNARAN KARLSSON, Holtsbúð 63, Garðabæ, verður jarðsunginn frá Búðakirkju laugardaginn 24. október kl. 14:00. Sætaferðir frá BSÍ kl. 10:00. Sigurborg Jenný Kristbjörnsdóttir, Karl Magnússon, Guðrún Jónsdóttir, Birna Guðbjartsdóttir, Skúli Skúlason, Karl Guðbjartsson, Sólrún Guðbjartsdóttir, Friðrik T ryggvason, Unnur Guðbjartsdóttir, Ólaf ur T ryggvason, Magnús Guðbjartsson og barnabörn. t Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför eiginkonu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu, SIGRÍÐAR SIGURÐARDÓTTUR. Ragnar Þorsteinsson, Baldur Ragnarsson, Þórey Kolbeins, Gyða Ragnarsdóttir, Árni Steinsson, Aldfs Ragnarsdóttir, Nanna Ragnarsdóttir, Ragnar Aðalsteinn Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. inn um réttaropið. í huga mér er það æ síðan eins konar ímynd hins íslenska fjármanns í gegnum aldirn- ar. Mér fannst skarð fyrir skildi næsta sumar þegar ég kom í sveit- ina og Þórð vantaði í Einholt. Á Höfn hittumst við Þórður oft, bæði í vinnu og þess utan og á ég af honum margar minningar, bæði hlýjar og góðar og eins sérstæðar og kátlegar. Hann var mikill félagi móðurbróður míns og gekk því oft um dyr heima. Mér þykir trúlegt að það séu fyrst og fremst þijú hlutverk sem Þórður sinnti og Homfírðingar al- mennt minnast hans mest og best fyrir. Það er þó af mörgum að taka því Þórður sinnti ýmsum verkum og stóð jafn vel að þeim öllum. Það var hans aðferð að takast á við hlutina af festu og alvöru. í mínum huga er Þórður að minnsta kosti mjög oft í einhveijum þessara þriggja hlutverka þegar hann kem- ur í huga minn, m.a. vegna þess að þau voru fastur punktur í tilveru þessara ára, en ekki tilviljana- kenndar uppákomur. Fyrst þegar Þórður settist að á Höfn voru starfshættir í fískvinnslu enn þannig að gert var að físki utandyra á bryggjunni. í aðgerðinni fékk Þórður strax fast verk. Það þurfti ekki að prófa hann í mörgum verkum til þess að gá að því hvað honum léki best. Hann tók öll verk af slíkri festu og öryggi að ekki var ástæða til neinna breytinga. Úr aðgerðinni muna margir Þórð þar sem hann stóð daglangt og jafnvel náttlangt og hausaði fisk án afláts svo innanúrslítumenn og flatnings- menn höfðu ekki undan. Hveijum golþorskinum eftir annan sveiflaði hann yfír búlkann og renndi flug- beittri sveðjunni milli bols og höf- uðs. Bolurinn hneig niður í vaxandi kösina og hausinn flaug í stórum boga út á bryggju. Þar þurftu gellu- strákar að gæta sín að verða ekki fyrir hausafluginu en ekki þurftu þeir að bíða eftir hausum. Ekki skipti máli hve mikill aflinn var, hvernig viðraði eða hve langir dag- arnir urðu, alltaf stóð Þórður og hausaði. Hann þurfti ekki pásur. Annað hlutverk Þórðar var um árabil að leiða fé til slátrunar í slát- urtíðinni. Tala þess fyár sem hann teymdi úr réttinni inn í skotklefann ERFIDRYKKJUR frá kr. 850- ími620200 i--------—----------------- P E R L A N dtziecftitiyci'i, Opiö alla dagn frá kl': 9- 22. >aCía FÁKAFEN111 SÍMI: 68 91 20

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.