Morgunblaðið - 22.10.1992, Síða 39

Morgunblaðið - 22.10.1992, Síða 39
 er hærri en svo að ég reyni að nefna hana. Verðmæti þeirrar vöru sem hann átti þar þátt í að framleiða, eihs og í fiskinum, telst í þeim stóru upphæðum, sem notaðar eru í þjóð- hagsreikningum en ekki ævisögum. Haust eftir haust dró Þórður fé Austur-Skaftfellinga inn í skotklef- ann og alltaf voru handtök hans söm. Hvað hrærðist í bijósti hans, gamals bónda, þessar stundir veit enginn, en ætla má að þar hafí að minnsta kosti fundist eftirsjá eftir margri fallegri gimbur og efnileg- um hrúti, Unglingar á Höfn fengu snemma verk að vinna með sér reyndari mönnum og ekki síður í sláturtíðinni en í annan tíma. Það mun hafa verið á seytjánda árinu mínu, annað haustið sem ég stóð við fláningsbekkinn, að einn morg- uninn komu engir skrokkar fram í húsið á tilætluðum tíma. Menn stóðu og röbbuðu og veltu vöngum og að lokum spurðist það út að skotmaðurinn væri lagstur í rúmið. Áður en skilningarvit mín höfðu að fullu meðtekið hvað var að gerast var sláturhússtjórinn kominn með mig upp í skotklefann til Þórðar og í aðra hönd mína var komin byssa og í hina rétti Þórður horn á lamb- hrúti. Nú fóru í hönd erfiðir daga og aldrei hefur mér í annan tíma fundist eins gott að næst mér stóð góður og traustur maður. Lágt sér- kennilegt kumrið, sem alltaf ein- kenndi Þórð, og hvemig hann not- aði það þessa daga var mér betra en nokkur önnu stoð sem ég fékk og þarf ég þó ekki né aðrir félagar mínir að kvarta undan því að hafa ekki fengið uppörvun og hvatningu þeirra Hornfirðinga sem reyndu að kenna okkur til verka á unglingsár- um. Þriðja minningin um Þórð er öllu gleðilegri, enda snýst hún um annað helsta gaman hans, hestamennsk- una. Þórður átti gjaman góða hesta og suma miklu meira en góða, verð- launaða. Samt var besti hestur hans óverðlaunaður. Það stafar líklega einungis af því að hann var uppi fyrir tíma ótæpilegra verðlaunaveit- inga og látlausra hrossasýninga, á meðan Mýrar vom enn einangraðar á milli óbrúaðra stórfljóta og nær- sveitamenn hittust ekki nema endr- um og eins. Þessi hestur hét Hitler, enda fæddur árið 1939 og var óum- deildur skörungur til bæði líkama og sálar. Þennan afburða hest átti og tamdi Þórður og af þeim lifir skær og skemmtileg minning í hug- um gamalla Mýramanna. Sögur af Þórði og Hitler verða ekki rifjaðar upp að sinni, þó til þess væri reynd- ar nokkur ástæða, því báðir voru þeir einstæðir og samleikur þeirra sérstakur. Annan hest átti Þórður miklu síðar, óðinn, sem var mikill kjörgripur og hlaut marga viður- kenningu og verðlaunapeninga á sýningum og keppnum. Við þessa hesta og aðra átti Þórður margar brösur og með þeim marga ánægju- stund. Einbeitnin skein úr andliti Þórðar þegar hann rann um grund á góðfáki og gleðin ljómaði þegar góðir félagar áðu í grænum hvammi og sopi af bijóstbirtu rann niður kverkar og yljaði því litla sem eftir var af maga Þórðar. Sælan, sem slíkar stundir veittu, var sýnileg hveijum manni sem sá. Þó Þórður væri einhleypur og alvörugefinn verkmaður þá var hann mikill gleðimaður í góðvina- hópi, hafði gaman af söng og bralli. Uppáhaldssöngur Þórðar var ljóðið um nafna hans Malakoff og tók hann undir af kröftum þegar það var sungið. Þórður tók virkan þátt í tómstundalífi sveitunga sinna á Mýrunum, bæði skipulagðri starf- semi ungmennafélagsins og uppá- komum augnabliksins. Hann var t.d. einn af stofnfundarfélögum Ungmennasambandsins Úlfljóts fyrir sextíu árum. Eftir að hann fluttist á Höfn var hann gjarnan að spilum með fólki, þar sem stokk- urinn beið. Sama átti við eftir að aldurinn færðist yfir hann og hann hætti störfum. Hann kom þá gjarn- an í matsal gamla vinnustaðarins á hafnarbakkanum í kaffitímum og tók í spil með fyrrverandi vinnufé- lögum. Nú eru menn kallaðir hetjur og afreksmenn ef þeir vinna til verð- launa á keppnismóti eða drýgja eina SC9I HH3ÖTHO .SS H JDA(IUTMMt,,I . MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGÚR 22. OKTóáÍR 1992*' 88 dáð á löngum lífsferli. Hvaða ein- kunn á þá maður eins og Þórður skilda, maður sem unnið hefur að kalla má stanslaus afrek alla ævi sína, afrek sem aldrei voru þó sett á afrekaskrár eða hampað í fjöl- miðlum. Mér vefst tunga um tönn er ég leita þess orðs sem hér hæf- ir. Með Þórði er fallinn maður sem er utan við alla þá mælikvarða sem nú tíðkast að leggja á menn og afrek þeirra. Hans afrek eru stærri og meiri en svo að þau rúmist inn- an þeirra viðmiðunarmarka. Ef til vill gerir það ekkert til, því Þórður sóttist aldrei eftir slíkum viðurkenn- ingum og öll hans afrek voru unnin af öðrum hvötum en þeim að kom- ast á afrekaskár eða í heims- metabækur. En mikið hefur mat manna á afrekum riðlast þegar manna eins og Þórðar er ekki leng- ur getið á slíkum skrám. Mér er mikil eftisjá og þökk í huga er ég kveð Þórð, svaramann minn, vin og sveitunga. Hann var ólíkur flestum öðrum mönnum en í því fólst styrkur hans, enginn vanmáttur. Vanmátt átti Þórður ekki til. Páll Imsland. Þeim fækkar óðum mönnunum sem settu svip á öldina, einn þeirra var Þórður Bjömsson, er lést á Skjólgarði fímmtudaginn 15. októ- ber, að verða 84 ára gamall. For- eldrar Þórðar voru Sigríður Jóns- dóttir frá Efrivík í Landbroti og Bjöm Þórðarson frá Kálfafelli í Suðursveit. Foreldrar Sigríðar voru Jón Þorkelsson og Guðríður Guð- mundsdóttir, bæði ættuð úr Vestur- Skaftafellssýslu. Foreldrar Bjöms vom Þórður Þorsteinsson frá Kálfa- felli og Ingibjörg Bjömsdóttir frá Borgarhöfn, bæði úr Suðursveit. Móðir Ingibjargar var Sigríður, dóttir Þorsteins Tóls Gissurarsonar, smiðs og skálds á Hofi í Öræfum, og Sigríðar Snjólfsdóttur frá Keld- unúpi á Síðu. Sigríður móðir Þórðar mun hafa flutt úr heimahögum um 1892 að Kálfafelli í Suðursveit þar sem hún kynntist Birni, giftust þau 1896. Fyrstu búskaparárin vom þau á Kálfafelli en 1902 fluttu þau að Sléttaleiti í sömu sveit, þar vom þau í tvö ár. Árið 1903 fluttu þau að Hömmm á Mýmm, þar bjuggu þau síðan allan sinn búskap. Björn var hygginn bóndi og með samheldni tókst þeim hjónum að komast vel af miðað við þeirra tíma kröfur. Börn þeirra Bjöms og Sig- ríðar voru Guðríður Ingibjörg, Sig- urbjörg og Þórður. Þau Ingibjörg og Þórður bjuggu með foreldrunj, sínum á Hömrum en Sigurbjörg flutti til Seyðisfjarðar með manni sínum Haraldi Aðalsteinssyni, synir þeirra em Leifur og Aðalbjöm, báð- ir búsettir á Seyðisfirði. Sigurbjörg og Haraldur em bæði látin. Björn í Hömmm lést árið 1944 og bjuggu þau Ingibjörg og Þórður áfram með móður sinni þar til Ingi- björg andaðist í júní 1950, þá flutti Þórður með móður sinni að Ein- holti á Mýmm, þar andaðist hún 1951. Til Hafnar .fluttist Þórður 1954, þar stundaði hann almenna verkmannavinnu meðan heilsa hans entist. Þórður var einn af stofnendur USU fyrir 60 árum. Hann var mað- ur félagslyndur, hafði mikið yndi af hestum og átti jafnan afburða- góða hesta. I Hestamannafélaginu Hornfirðingi var hann traustur fé- lági og lagði jafnan góðum málum lið, var þar heiðursfélagi síðustu árin. í gegnum hestana kynntist hann mörgu ágætu fólki og var jafnan velkominn í þeirra hóp. Við sem þessar fátæklegu línur ritum vorum svo lánsöm að njóta samveru Þórðar um árabil. Við minnumst með þakklæti allra góðu útreiðartúranna um bjartar vomæt- ur út í Skógey og einnig á tungl- skinsbjörtum vetrarkvöldum á ísum á Hornafjarðarfljótum, ferða í Flat- ey um páska og fleira sem of langt er upp að telja. í febrúar 1982 flutti Þórður á Skjólgarð, þar naut hann góðrar aðhlynningar og öryggis. Þar sem heilsa hans var farin að bila leit hann á Skjólgarð sem heimili sitt og talaði oft um hve lánsamur hann hefði verið að vera þar. Far þú í friði, friður guðs þig blessi, hafðu þökk fyrir allt og allt. Sigrún og Guðmundur. + Þökkum innilega auðsýnda samúð og hlýhug við andlát og útför sambýlismanns míns, föður, tengdaföður, afa og langafa, MAGNÚSAR SNÆBJÖRNSSONAR, Neðstaleiti 5, Reykjavfk. Sérstakar kveðjur og þakklæti til lækna og hjúkrunarfólks á krabbameinsdeild Landspítalans. Laufey Árnadóttir, Kristinn Magnússon, Auður Böðvarsdóttir, María Magnúsdóttir, Tryggvi Tryggvason, barnabörn og barnabarnabörn. Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, HÓLMFRÍÐUR BENEDIKTSDÓTTIR frá Braut, Húsavík, verður jarðsungin frá Húsavíkurkirkju laugardaginn 24. október kl. 14.00. Benedikt Helgason, Anna Sigfúsdóttir, Þorbjörg Helgadóttir, Friðjón Pálsson, Þórhildur Helgadóttir, Þórir Hilmarsson, Árni Þórhallur Helgason, Sólveig Kristmannsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda vináttu og samúð við andlát og útför eigin- manns míns, föður okkar, tengdaföður og afa, HELGA NIKULÁSAR VESTMANN EINARSSONAR. Guðlaug Stefánsdóttir, börn, tengdabörn og barnabörn. HJÓNAMINNING Þau mistök urðu við vinnslu greinar í blaðinu í gær um Svavar Sigfinns- son og Sigurbjörgu Magnúsdóttur að rangar myndir birtust. — Rétta myndin birtist hér með og eru hlutaðeigandi beðnir velvirðingar. Ólafur Guðni Frið- riksson — Minning Þegar að við fréttum af láti gamals bekkjarfélaga okkar, Ólafs Guðna Friðrikssonar, var okkur mjög brugðið. Við sorgarfréttir sem þessar áttar maður sig á því hversu lífið er hverfult. Óli hafði verið með okkur í bekk frá átta ára aldri til loka níunda bekkjar. Þá skildu leiðir. Óli fór í MK og var þar í tvo vetur. Þá tók hann sér frí frá frekara námi. Við það misstum við fregna af honum þar til við fréttum af fráfalli hans. Óli var hlédrægur og hafði sig lítt í frammi, en þó var hann ávallt hluti af bekknum. Hann var mikið fyrir bókina og hafði dálæti á Sherlock Holmes sögunum. En í skólanum voru það raungreinarnar sem áttu hug hans allan. Ef bekkurinn lagði út í einhver fagleg uppátæki var Óli ávallt tilbúinn til þess að leggja fram sína kunnáttu. Sérstaklega er okkur minnisstætt þegar við komum fyr- ir ljósaperu á skjólabjöllunni inni í kennslustofunni. Perunni var komið upp einn morguninn. Svo í fyrstu frímínútunum var stofan myrkvuð og allir biðu í ofvæni eft- ir að bjallan hringdi. Og mikið rétt, það kviknaði á perunni okkar þeg- ar bjallan hringdi og fagnaðarlæti brutust út. Þessa og margar aðrar minning- ar eigum við frá barnaskólaárum okkar og kemur Óli þar ávallt við sögu. Við viljum votta fjölskyldu hans og aðstandendum samúð og biðjum Guð um að veita þeim styrk í sorg- inni. Óli mun ávallt lifa í minning- um okkar. Biðjið og yður mun gefast, leitið og þér munið finna, knýið á og fyrir yður mun upp lokið verða. Þvi að sérhver sá öðlast er biður og sá finnur er leitar og fyrir þeim mun upp lokið er á knýr. (Matt. 7, 7-8.) K-bekkurinn, 1981-1989, Digranesskóla. + Hugheilar þakkir til allra þeirra, sem sýnt hafa okkur samúð og htýhug vegna andláts hjartkærs eiginmanns, sonar, bróður og tengdasonar, KRISTJÁNS MATTHÍASAR GUÐJÓNSSONAR, Barðaströnd 8, Seltjarnarnesi, sem lést þann 27. september sl. Sérstakar þakkir fær allt starfsfólk á deild 11-E á Landspítala fyrir einstaklega góða umönnun og hlýju í veikindum hans, ekki hvað síst á brúðkaupsdaginn þann 19. september sl. Guð blessi ykkur öll. Hrafnhildur V. Garðarsdóttir, Hólmfriður Benediktsdóttir, Guðjón M. Jónsson, Magnús Benedikt Guðjónsson, Svanhvít Árnadóttir, Garðar Jóhannsson. Birting afmælis- og minningargreina Morgunblaðið tekur afmælis- og minningargreinar til birting- ar endurgjaldslaust. Tekið er við greinum á ritstjórn blaðsins á 2. hæð í Aðalstræti 6, Reykjavík og á skrifstofu blaðsins í Hafn- arstræti 85, Akureyri. Athygli skal á því vakin, að greinar verða að berast með góðum fyrirvara. Þannig verður grein, sem birtast á í miðvikudagsblaði að berast síðdegis á mánudegi og hliðstætt er með greinar aðra daga. í minningargreinum skal hinn látni ekki ávarpaður. Ekki eru tek- in til birtingar frumort ljóð um hinn látna. Leyfilegt er að birta til- vitnanir í ljóð, tvö erindi, eftir þekkt skáld, og skal þá höfundar getið. Sama gildir ef sálmur er birtur. Meginregla er sú, að minning- argreinar birtist undir fullu nafni höfundar. -

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.