Morgunblaðið - 22.10.1992, Side 52
Göngudagurinn
IÞROTTIR FVRIR RLLR ohtöber.
MORGUNBLAÐIV, AÐALSTRÆTl 6, 101 REYKJAVtK
SÍMBRÉF------------------
StMl 691100, St»
691161, PÓSTHÖLF 1555 / AKUREYRI: HAFNARSTRÆTI 65
FEMMTUDAGUR 22. OKTÓBER 1992
VERÐ I LAUSASOLU 110 KR.
Ungur mað-
ur fórst með
bát sínum út
af Sandgerði
UNGUR maður fórst þegar
bátur hans sökk við innsigling-
una til Sandgerðishafnar í
gærmorgun. Maðurinn hét
Halldór Sigurjónsson til heim-
ilis að Ásabraut 25 í Sand-
gerði. Hann var 25 ára, fæddur
24. janúar 1967. Halldór lætur
eftir sig eiginkonu og þijú
börn.
Halldór hélt úr Sandgerðishöfn
í róðUr um klukkan 9.30 í gær-
morgun á bát sínum Sæfara RE
391 sem er rúmlega tveggja tonna
opinn fískibátur. Veður var ágætt
en þungur sjór. Þegar báturinn
var í Hamarssundi að nálgast
skerið Þorvald fékk hann á sig tvö
brot og sökk við seinna brotið.
Menn á bryggjunni í Sandgerð-
ishöfn sáu atvikið. Skipveijar á
Freyju GK sem voru að ganga frá
bátnum eftir löndun héldu þegar
á slysstað ásamt þremur mönnum
á smábát.
Félagar úr björgunarsveitinni
Sigurvon fóru einnig af stað á
björgunarbát sínum. Halldór náð-
ist um borð í Freyju en var látinn.
Björgunarbátur Sæfara var upp-
blásinn þegar að var komið en
Halldór, sem var í vinnuflotgalla,
hafði af einhveijum ástæðum ekki
komist í hann.
Vísindamenn sóttu jarðskjálftamæla á Mýrdalsjökul í gærmorgim
Myndin var tekin í gærdag og sést upp Kötlujökul, en hann var farvegur meginstraumsins í Kötlugosinu 1918.
Morgunblaðið/RAX
Óbreytt ástand við Kötlu
ENGIN breyting hefur orðið á skjálftavirkn-
inni við Kötlu þessa vikuna. Enn koma fram
nokkrir skjálftar á dag, þeir stærstu um 3
stig á Richter. Vísindamenn fóru upp á
Mýrdalsjökul í gærmorgun til að ná í
skjálftamæla sem komið hafði verið fyrir
víða á jöklinum.
Páll Einarsson jarðeðlisfræðingur á Raunvís-
indastofnun segir að skjálftamælunum hafi ver-
ið komið fyrir á Goðabungu og sunnan til á
jöklinum, yfir þeim svæðum sem skjálftavirknin
er mest. Nú verður tekið til við að vinna úr
þeim gögnum sem safnast hafa saman í þessum
mælingum og segir Páll að niðurstöður ættu
að liggja fyrir eftir um tvær vikur.
Landsbankinn hefur kannað stöðu sjóða Fjárfestingarfélagsins Skandia hf
Landsbréf hf. munu ekki
yfirtaka sjóði félagsins
LANDSBANKI Islands hefur af-
ráðið, samkvæmt upplýsingum
Morgunblaðsins, að verðbréfafyr-
irtæki hans, Landsbréf hf., muni
ekki yfirtaka rekstur sjóða Fjár-
festingarfélagsins Skandia hf.
Slík könnun hefur samkvæmt upp-
lýsingum Morgunblaðsins farið
fram á vegum bankans að undan-
förnu að frumkvæði Fjárfesting-
arfélagsins Skandia hf.
Samkvæmt upplýsingum Morg-
unblaðsins var það hald manna allt
þar til í fyrradag að hér kynni að
vera um hagkvæman kost að ræða
Verðlagsstofnun óskar eftir greinargerð vegna hækkunar á farmgjöldum skipafélaganna
Athugað hvort hækkunin er
vegna minnkandi samkeppni
VERÐLAGSSTOFNUN hefur óskað eftir skriflegri t.ilkynningu Eim-
skipafélags íslands um fyrirhugaða farmgjaldahækkun á stykkjavöru
ásamt greinargerð. Að sögn Guðmundar Sigurðssonar yfirviðskipta-
fræðings Verðlagsstofnunar er athugun þessi liður í samkeppniseftir-
liti stofnunarinnar. Lagt verður mat á það hvort hækkunin sé vegna
minnkandi samkeppni í skipaflutningum. Samskip tilkynnti í gær 6%
hækkun á farmgjöldum milli landa en farmgjöld í strandsiglingum
verða óbreytt.
Ásmundur Stefánsson forseti ASÍ
sagði Ijóst að farmgjaldahækkunin
væri alvarlegt fordæmi, jafnvel þótt
hún ein og sér hefði ekki afgerandi
áhrif á verðlag og framfærsluvisi-
tölu. Talið er að verðlag innfluttrar
vöru geti hækkað um Vi til 1% og
að framfærsluvísitala hækki um allt
að 0,3%.
Guðmundur Sigurðsson sagðist
búast við greinargerð Eimskips í
dag. Sagði hann að athugunin væri
til komin vegna aðstæðna í atvinnu-
greininni. Þar væri fákeppni og Eim-
skip leiðandi á markaðnum. Verð-
lagsráð gaf verðlagningu flutnings-
gjalda fijálsa 1. apríl síðastliðinn.
Asmundur Stefánsson, sem situr í
ráðinu, sagði þegar hann var spurður
hvort hann myndi leggja til að flutn-
ingarnir yrðu aftur teknir undir verð-
lagsákvæði, að hann vildi sjá hvað
út úr athugun Verðlagsstofnunar
kæmi áður en hann tæki afstöðú til
þess.
Davíð Oddsson forsætisráðherra
sagði að fargjaldahækkun skipafé-
laganna hefði komið á óvart. „En
mér dettur ekki í hug að það sé
hægt að stjórna verðlagi hjá einka-
fyrirtækjum með tilskipunum frá rík-
isvaldinu. Menn verða að treysta því
að hér sé virk samkeppni og ef um
óeðlilega hækkun sé að ræða leiði
það til lækkunar á nýjan leik.“
Magnús Gunnarsson formaður
VSÍ sagði augljóst að hækkunin
kæmi mjög illa við þær viðræður sem
ættu sér stað milli aðila vinnumark-
aðarins og stjórnvalda um að létta
gjöldum af atvinnurekstrinum til að
styrkja rekstrarstöðu fyrirtækjanna.
Hörður Sigurgestsson forstjóri
Eimskips sagðist ekki gera ráð fýrir
að 6% meðaltalshækkun á farmgjöld-
um félagsins verði endurskoðuð þó
það yrði niðurstaða af viðræðum
aðila vinnumarkaðarins og stjórn-
valda að gjöldum verði aflétt af at-
vinnurekstrinum. Hann sagði að
þrátt fyrir þessa 6% hækkun yrðu
farmgjöldin lægri en þau voru í upp-
hafí ársins.
Sjá einnig frétt á bls. 23.
fyrir Landsbankann og hann gæti
án mikils tilkostnaðar aukið veltu
sína um tæpa þijá milljarða króna.
Að vandlega könnuðu máli mun
neikvæð ákvörðun bankans samt sem
áðu- byggjast á því að of mikil
áhætta sé fólgin í yfírtöku sjóða sem
þessara. Álag vegna innlausna, sem
myndi fylgja í kjölfar opnunar sjóð-
anna, yrði líklega of mikið, að mati
bankans, og gengisfall bréfa fyrir-
tækisins einfaldlega meira en menn
gerðu ráð fyrir.
í viðskiptablaðinu í dag segir Leif
Victorin, forstjóri Skandia Norden,
um þær aðstæður sem nú hafa skap-
ast: „Vissulega er það slæmt ef nú-
verandi ástand ríkir lengi, en við
stöndum frammi fyrir þeim mögu-
leika að opnuðum við sjóðina of
snemma gæti það væntanlega rýrt
gildi sjóðanna fyrir eigendum
þeirra.“
Hann segir hins vegar að verði
opnað með viðskipti í sjóðunum hljóti
gengi þeirra að falla þótt ekki sé ljóst
hversu mikið þurfi að fella gengið.
„Erfítt er að meta verðmæti hlut-
deildarskírteinanna þar sem nú eiga
engin viðskipti sér stað með þau. Það
sem vekúr athygli mína þegar ég ber
saman markaðinn á íslandi við aðra
markaði er smæð hans. Það er í raun
grunnvandamál sjóða líkt og þessa."
Sjá ennfremur Af innlendum
vettvangi á miðopnu og Við-
skiptablað C4.