Morgunblaðið - 30.10.1992, Side 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992
Ljósmæður
segja upp
LJÓSMÆÐUR á Landspítala hafa
ákveðið að fara að dæmi hjúkrun-
arfræðinga á sama spítala og
segja upp störfum 1. nóvember til
að knýja á um bætt launakjör.
Guðrún Guðbjörnsdóttir, talsmað-
ur ijósmæðranna, sagði að ekki
kæmi í ljós hversu margar ljós-
mæður segðu upp fyrr en upp-
sögnunum yrði skilað inn í dag.
Guðrún sagði að í gegnum árin
hefðu Ijósmæður dregist aftur úr
sambærilegum stéttum hvað varðaði
launakjör og samningar við þær
hefðu nú verið lausir jafn lengi og
samningar hjúkrunarfræðinga á spít-
alanum, eða í rúmt ár. Hún sagði að
í framhaldi af árangurslausum samn-
ingaviðræðum um launakjör hefði
verið ákveðið að segja upp á fjöl-
mennum fundi á spítalanum í gær.
Ljósmæðurnar kynna afstöðu sína
fyrir Davíð Á. Gunnarssyni, fram-
kvæmdastjóra ríkisspítalana, í dag.
Sjá Innlendan vettvang bls 20.
♦ ♦ ♦------------
Fjárfesting’arfé-
lagið Skandia
Fyrirspurnir
um kaup á
skírteinum
TALSVERT var um fyrirspurnir
til Fjárfestingarfélagsins Skandia
í gær vegna tilkynningar um þriðj-
ungslækkun á gengi hlutdeildar-
skírteina í þremur af fjórum verð-
bréfasjóðum félagsins og að inn-
lausn þeirra hæfist í næstu viku,
en ekki var mikið um að fólk
kæmi á afgreiðslu félagsins, að
sögn Brynhildar Sverrisdóttur,
umsjónarmanns sjóðanna.
Brynhildur sagði að fólk virtist
hafa tekið þessum tíðindum án upp-
náms. Hún sagði ennfremur að nokk-
uð væri um fyrirspumir og óskir um
kaup á hlutdeildarskírteinum á þessu
nýja gengi, en sala skírteina verður
ekki heimiluð fyrr en jafnvægi hefur
komist á. Lokað hefur verið fyrir
innlausn úr sjóðum Fjárfestingarfé-
lagsins Skandia um rúmlega þriggja
vikna skeið.
-----♦ ♦ ♦
Útafakstur
og árekstur
í Hvalfirði
ÁREKSTUR fjögnrra bíla varð í
brekkunni ofan við Olíustöðina í
Hvalfirði um kvöldmatarleytið í
gær, og á svipuðum tíma óku tveir
bílar út af á sama stað. Engin slas-
aðist í þessum umferðaróhöppum.
Að sögn lögreglunnar í Borgamesi
var gífurleg hálka á veginum í Hval-
firði í gærkvöldi, og gátu ökumenn
ekki stöðvað bfla sína þegar þeir
komu á brekkubrúnina, en þeir sem
í óhöppunum lentu voru allir á suður-
leið.
í dag
Frá sér numinn_______________
Georgíumanninum Grigol Matsjav-
ariani boðið til íslands 4
Kirkjuþingi slitiö___________
Hvatt til hækkunar skattleysis-
marka 18
Kvennalistinn________________
Samkomulag um að vera ósam-
mála um EES 20
Leiðari______________________
Vamarframkvæmdir og atvinnu-
leysi 26
Morgunblaðið/Þorkell
Hörkustemmning• í Hinu húsinu
íslensk ungmenni létu ekki sitt eftir liggja á tónleikum í Hinu húsinu í tilefni af unglingadegi í gær eins
og sjá má á þessari mynd. Meðal hljómsveita sem tróðu upp voru Kolrassa krókríðandi, Lipstick Lovers,
Jet Black Joe, Bleeding Volcano, Cirkus babalu, Jöklasveitin, Synir Rasputins og nokkrar upprennandi
ungar hljómsveitir.
Atskákmót Reykjavíkur
Engin óvænt
úrslit urðu í
fyrstu umferð
ENGIN óvænt úrslit urðu í gær-
kvöldi í 1. umferð úrslita á atskák-
móti Reykjavíkur, Búnaðarbanka-
mótinu. Undanúrslit verða á
morgun og úrslitaeinvígið á laug-
ardag, en á sunnudag teflir sigur-
vegarinn við Timman, sem er óop-
inber heimsmeistari í atskák.
Í 1. umferð úrslitanna vann Karl
Þorsteins Ingvar Ásmundsson með
U/2 vinningi gegn V2, Helgi Áss Grét-
arsson vann Sigurð Daða Sigfússon
með U/2 gegn V2, Friðrik Ölafsson
vann Ágúst Sindra Karlsson með IV2
gegn V2, Jóhann Hjartarson vann
Hauk Angantýsson með 3 vinningum
gegn 1, Margeir Pétursson vann Jón
Garðar Viðarsson með 3 gegn 1,
Tómas Bjömsson vann Svein Krist-
insson með 2V2 gegn U/2, Róbert
Harðarson vann Askel Öm Kárason
með IV2 gegn V2 og Helgi Ólafsson
vann Þröst Ámason með 2V2 gegn
IV2. Annarri umferð úrslitanna var
ólokið um miðnætti í nótt, en þá
tefldu saman Jóhann Hjartarson og
Karl Þorsteins, Helgi Áss Grétarsson
og Margeir Pétursson, Tómas
Bjömsson og Helgi Ólafsson og Rób-
ert Harðarson og Friðrik Ólafsson.
Stálverksmiðjan slegin Bún-
aðarbankanum á 50 milljónir
Innlendir aðilar sýna áhuga á að kaupa og hefja rekstur verksmiðjunnar
EIGNIR þrotabús íslenska stálfélagsins voru slegnar Búnaðarbankan-
um og Iðnþróunarsjóði fyrir 50 milljónir króna á uppboði sem fram
fór á vegum sýslumanns Hafnarfjarðar í verksmiðju Stálfélagsins á
Markhellu 4 í Hafnarfirði í gær. Aðeins kom fram eitt boð í eignirn-
ar frá Brynjólfi Kjartanssyni hæstaréttarlögmanni sameiginlega fyr-
ir hönd Búnaðarbankans og Iðnþróunarsjóðs. Sýslumaðurinn í Hafnar-
firði mun taka sér allt að þriggja vikna frest til athugunar á fram-
komnu boði. Brynjólfur sagði í samtaii við Morgunblaðið að Búnaðar-
bankinn og Iðnþróunarsjóður hefðu ekki í hyggju að hefja starfsemi
verksmiðjunnar en reynt yrði að finna kaupanda að henni sem fyrst.
„Það eru ákveðnir aðilar sem hafa áhuga á verksmiðjunni með rekst-
ur í huga,“ sagði hann.
Snorri Pétursson hjá Iðnþróunar-
sjóði staðfesti að innlendir aðilar
hefðu sýnt áhuga á að kaupa verk-
smiðjuna en tilboð hefði þó ekki
borist og engar formlegar viðræður
væru hafnar. Hann vildi ekki greina
frá hvaða aðilar þetta væru eða
hvert yrði söluverð eignanna en
sagðist vonast til að salan tæki ekki
meira en fjórar vikur.
Höfuðstóll kröfu Búnaðarbank-
ans í þrotabúið nam rúmlega 100
millj. kr. og krafa Iðnþróunarsjóðs
67 millj. en báðir aðilar áttu kröfu
tryggða á 1. veðrétti. Heildarkröfur
í þrotabúið námu rúmlega 1,8 millj-
örðum króna og þar af námu veð-
kröfur rúmlega einum milljarði kr.
og áttu sænsku bankamir, SE-
Banken og Nordbanken, ásamt hol-
lenska bankanum Mess & Hope,
stærstu kröfumar. Gestur Jónsson
hæstaréttarlögumaður mætti við
uppboðið í gær fyrir hönd erlendu
bankanna. Bókfærðar eignir Stálfé-
lagsins námu 1,7 milljörðum kr.
þegar félagið var tekið til gjald-
þrotaskipta fyrir um einu ári siðan
en heildarskuldir námu þá rúmlega
2 milljörðum kr.
Nokkrir fyrrverandi starfsmenn
Stálfélagsins fylgdust með uppboð-
inu í gær en alls störfuðu um 100
manns hjá fyrirtækinu. Sveinn
Magnússon sagði starfsmenn vera
ánægða yfir að að eignirnar yrðu
ekki fluttar úr landi og vonandi
tækist að skapa atvinnu á ný fyrir
sem flesta fyrrum starfsmenn ís-
lenska stálfélagsins. „Veðhafamir
sem buðu í þetta hafa haldið mót-
töku brotajáms opinni í tæplega
eitt ár og því sé ég ekki skynsemi
í öðm en að reynt verði að gang-
setja verksmiðjuna sem fyrst,“ sagði
hann.
Fosteignir
► Fasteignir á Spáni - Bygg-
ingastarfsemi á Suðumesjum-
Rósótt, alls staðar - Verzlunin
Bryrýa - Lagnafréttir - Innan
veggja heimilisins
Daglegt líf
► Konur í atvinnurekstri,
Herra Skandinavía, Á húsbíl
um Evrópu, Níkaragúa, jepp-
ar frá Opel, atvinnubílstjórar
í ökupróf
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Uppboð á eignum þrotabús Islenska stálfélagsins fór fram í verk-
smiðjuhúsnæði félagsins í Hafnarfirði. Auk lögmanna og fréttamanna
voru nokknr fyrrverandi starfsmenn verksmiðjunnar viðstaddir upp-
boðið.
Verðlagsstjórí um fullyrðingar Eimskips
Varhugavert að slá
tölum þannig fram
VERÐLAGSSTJÓRI, Georg Ólafsson, segir varhugavert að slá fram
tölum með þeim hætti sem Eimskip gerir í tengslum við hækkun fé-
lagsins a flutningsgjöldum. Forsvarsmenn félagsins hafa margend-
urtekið fullyrðingar um að flutningsgjöldin hafi lækkað um 35% á
undanfömum sjö ámm. Georg segist ekki véfengja þessa tölu en bend-
ir á að á næstu sjö ámm þar á undan hafi raunhækkun gjaldskrár
flutningsgjalda hjá félaginu verið á annað hundrað prósent.
I frétt Morgunblaðsins í fyrradag lækkunar um allnn haim n
kom fram hjá Herði Sigurgestssyni
forstjóra Eimskips að flutningsgjöld
félagsins hafi lækkað um 35% á síð-
astliðnum sjö árum, sem samsvari
um 5% raunlækkun á ári. Segir
Hörður jafnframt að fyrir þann tíma
hafi flutningsgjöldin einnig lækkað.
í heilsíðuauglýsingum Eimskips um
þetta segir að 35% lækkun flutnings-
gjalda á sjö árum sé staðreynd.
Verðlagsstofnun hefur verið að
fara yfir forsendur hækkunar Eim-
skips og Samskipa á flutningsgjöld-
um og verður málið rætt á verðlags-
ráðsfundi í dag. Aðspurður sagði
Georg Ólafsson verðlagsstjóri að
ekki þurfi að koma á óvart að 35%
lækkun hafí orðið á flutningsgjöld-
unum undanfarin sjö ár því á þeim
tíma hafi orðið miklar breytingar í
flutningatækni sem leitt hafí til verð-
lækkunar um allan heim. Hann sagði
hins vegar að svona samanburður
væri erfíður og þyrftu menn að
gæta vel að sér þegar þeir settu
hann fram.
Sagðist Georg telja varhugavert
að slá tölum fram með þeim hætti
sem Eimskip gerði í þessu máli og
benti á að útreikningar Verðlags-
stofnunar sýndu að flutningsgjalda-
taxtar Eimskips hafí hækkað mikið
umfram verðlag á árunum fram til
1985, eða fyrir þann tíma sem Eim-
skip tekur í viðmiðun sinni. Hann
nefndi sem dæmi að frá því undir
lok áttunda áratugarins, þegar
breytingar voru að hefjast á flutn-
ingatækni hérlendis, og til ársins
1985, hafí gjaldskrá farmgjalda
Eimskips hækkað um á annað
hundrað prósent umfram almennt
verðlag í landinu.