Morgunblaðið - 30.10.1992, Page 14

Morgunblaðið - 30.10.1992, Page 14
14 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992 Þjóðfélag'svaldið er frá fólkinu komið eftir Ingibjörgii Sólrúnu Gísladóttur Á næstunni ræðst hvort íslending- ar gerast aðilar að evrópsku efna- hagssvæði eða ekki. Ákvörðunin varðar framtíðarþróun íslensks sam- félags og mun snerta daglegt líf okkar allra með einum eða öðrum hætti. Við Islendingar stöndum tví- mælalaust á tímamótum og bæði meðal þings og þjóðar eru skoðanir mjög skiptar um það hvert skuli halda. Skoðanakannanir sýna að í öllum stjómmálaflokkum á aðild að evr- ópsku efnahagssvæði sér bæði for- mælendurog andmælendur, þó að hópur hinna óákveðnu sé hlutfalls- lega stærstur. Stuðningur og and- staða við samninginn vega vissulega misþungt eftir flokkum en flokkslín- ur hafa greinilega ekki afgerandi áhrif á afstöðu manna. Þá liggur fyrir að það verður ekkert ráðið af síðustu Álþingiskosningum um af- stöðu þjóðarinnar til aðildarinnar að EES. Það er ekki með nokkrum rétti hægt að halda því fram að kosið hafí verið um þau mál sérstaklega enda lá endanleg afstaða stjómmála- flokkanna til samningsins ekki fyrir á þeim tíma, né heldur samningurinn sjálfur. Ríkisstjómarflokkamir vita því ekki hvort þeir hafa stuðning þjóð- arinnar fyrir inngöngunni inn á hið evrópska efnahagssvæði eða hvort þeir eru að teyma hana þangað nauð- uga. Alyktanir almannasamtaka Með samningnum um EES eru íslendingar að tengjast með afger- andi hætti samrunaþróuninni í Evr- ópu. Það er bæði óeðlilegt og ólýð- ræðislegt að taka slíka ákvörðun með einföldum meirihluta á Alþingi — jafnvel mjög tæpum — án þess að nokkuð sé vitað um vilja þjóðarinn- ar. Það hlýtur að vera pólitískur og siðferðilegur styrkur fyrir þingmenn að vita hver -afstaða umbjóðenda þeirra er í þessu máli og það styrkir íslenskt stjórnarfar ef ákvarðanir eru teknar í samræmi við þjóðarvilja. Einmitt þess vegna ákváðu stjórn- arandstöðuflokkamir á Alþingi að flytja tillögu um að bera EES-samn- inginn undir kjósendur í almennri atkvæðagreiðslu. Þessi tillaga endur- speglar mjög ákveðnar kröfur sem uppi eru í samfélaginu því ef marka má skoðanakannanir vilja um 70% þjóðarinnar fá þjóðaratkvæða- greiðslu um málið. Fjölmennustu heildarsamtök launafólks í landinu hafa ályktað í þessa veru. ASÍ samþykkti á sam- bandsstjómarfundi í nóvember á síð- asta ári að beina þeim eindregnu til- mælum til Alþingis að afgreiða ekki samninginn án undangenginnar þjóðaratkvæðagreiðslu og það sama gerði síðasta bandalagsþing BSRB. Þessi afstaða hefur líka komið fram hjá samtökum bænda, Neytendasam- tökunum, BHMR, Kennarafélagi ís- lands og öðrum fjölmennum al- mannasamtökum í landinu. Það er með öðrum orðum vilji alls þorra fólks að þjóðin fái að láta í ljós vilja sinn í þessu máli. Aukin pólitísk umræða Andstæðingar þjóðaratkvæða- greiðslu hafa gjaman fært fram þau rök að samningurinn sé of flókinn til að þjóðin geti tekið afstöðu til hans. Þá sýni skoðanakannanir að þjóðin viti alltof lítið um málið. Slík rök endurspegla mikið vanmat á kjósendum. í þjóðaratkvæðagreiðslu myndi fólk öðru fremur taka afstöðu til grundvallarþátta samingsins en ekki einstakra atriða sem í honum eru. Þjóðin væri í raun að velja sér framtíðarþróun og hún verður ein- faldlega að vera fær um það og taka ábyrgð á því vali. Það vefst ekki fyrir Svisslending- um að greiða atkvæði um EES-samn- inginn hinn 6. desember nk. og er varla með nokkram rökum hægt að halda því fram að þeir séu upplýst- ari þjóð en Islendingar. Þá má benda á að EES-samningurinn er síst flókn- ari en Maastricht-samningurinn sem þegar hefur verið borinn undir Dani, Ira og Frakka. í öllum þessum löndum ýtti þjóð- aratkvæðagreiðslan mjög undir póli- tíska umræðu sem kom m.a. fram í því að ýmsar útgáfur af Maastricht- samningnum vora á metsölulista í Frakklandi — þrátt fyrir að stjórn- völd hafí dreift honum ókeypis í millj- ónaupplagi — og fundarsalir fylltust á hverju kvöldi af fólki sem var kom- ið í þeim tlgangi einum að ræða fram- tíðarþróun Frakklands og Evrópu. íslenskt þjóðfélag og íslenskir stjórn- málamenn þyrftu sannarlega á slíkri vakningu að halda. Árangur óháður niðurstöðu Ég er sannfærð um að sú umræða sem yrði undanfari þjóðaratkvæða- greiðslu myndi ein og sér skila alveg gífurlegum árangri — óháð niður- stöðu atkvæðagreiðslunnar. Hún myndi skila upplýstari þjóð sem gerði sér betur grein fyrir og væri tilbún- ari til að takast á við margvíslegan vanda sem við er að etja í íslensku samfélagi. Ef niðurstaða atkvæða- greiðslunnar yrði sú að þjóðin kysi aðild að EES væri hún mun betur í stakk búin til að glíma við hættumar sem era samfara aðildinni og nýta sér kostina. Ef atkvæðagreiðslan færi á hinn veginn þýddi það einfald- lega að þjóðin væri tilbúin til að skapa sér stöðu í alþjóðaviðskiptum upp á eigin spýtur. Eins og málum er háttað í dag má vissulega efast um að stjómvöld, fólk og fyrirtæki séu tilbúin til að fara að vinna eftir þeim reglum sem gilda innan Evrópubandalagsins. Það getur bæði orðið til þess að menn vari sig ekki á hættunum sem vissu- lega fylgja samningnum né heldur nái þeir að nýta sér möguleikana sem í honum felast. Góð ögran hvetur flesta menn til dáða og þjóðarat- kvæðagreiðsla er þess háttar ögran. Ekki tjaldað til einnar nætur Þau rök hafa heyrst að óþarfí sé að bera samninginn undir þjóðina þar sem hann sé uppsegjanlegur með 12 mánaða fyrirvara. Hér sé því hvorki um varanlegar né óafturkræf- ar skuldbindingar að ræða fyrir ís- lendinga. í sjálfu sér era þetta ekki Ingibjörg Sólrún Gísladóttir „Ég er sannfærð um að sú umræða sem yrði undanfari þjóðarat- kvæðagreiðslu myndi ein og sér skila alveg gífurlegum árangri — óháð niðurstöðu at- kvæðagreiðslunnar. Hún myndi skila upp- lýstari þjóð sem gerði sér betur grein fyrir og væri tilbúnari til að tak- ast á við margvíslegan vanda sem við er að etja í íslensku samfé- lagi.“ rök í málinu þar sem íslensk stjórn- völd mega aldrei ganga svo frá milli- ríkjasamningum að Islendingar eigi ekki útleið ef þeim fínnst samstarfið vera að stefna þeim í ógöngur. Það er engu að síður full ástæða til að vara við léttúðarfullum rökum af þessu tagi af þeirri einföldu ástæðu að það er nóg komið af koll- steypum í íslensku þjóðfélagi. Með aðildinni að EES er ekki verið að tjalda til einnar nætur heldur er ver- ið að aðlaga fjölmörg svið samfélags- ins að því sem gerist í Evrópubanda- laginu. Þess vegna er Alþingi nú að fjalla um a.m.k. 70 frumvörp til breytinga á enn fleiri lögum og þarf að afgreiða þau fyrir áramót. Þessar breytingar yrðu ekki teknar aftur eins og hendi væri veifað þó svo að við kæmumst að því að aðildin að EES hentaði okkur ekki. Einstakl- ingar og fyrirtæki munu miða áætl- anir sínar og starfsemi við þessi lög og eiga að sjálfsögðu heimtingu á því að vera ekki notuð sem hver önnur tilraunadýr. Það er vissulega hægt að segja upp þeim skuldbind- ingum sem samningurinn hefur í för með sér fyrir íslenska ríkið en aðlög- unin að reglum EB stendur eftir sem og þær skuldbindingar sem einstakl- ingar og fyrirtæki hafa gengist und- ir á grandvelli samningsins. Ótti við fólkið og lýðræðið Bæði á Alþingi og í dagblöðum hafa menn fundið þjóðaratkvæða- greiðslu það til foráttu að það sé engin hefð fyrir notkun hins beina lýðræðis á íslandi enda hafí þjóðin kjörið sér fulltrúa til að ráða málum sínum. Er helst á þessum mönnum að heyra að með því að leita eftir vilja þjóðarinnar í almennri atkvæða- greiðslu væri vegið að íslenskri stjórnskipan og þingræði. Þeim sem þetta segja flökrar þó sjálfsagt ekkert við þvf á hátíðar- stundum að tala um forna lýðræðis- hefð íslendinga. Sú hefð á rætur sín- ar á þjóðveldisöld þegar menn ástunduðu hið beina lýðræði og réðu málum sínum á opnum fundum heima í héraði. Þeirri hefð hefur ekki verið mikill sómi sýndur frá því íslendingar fóra að ráða málum sín- um sjálfir. Þá fór að bera á ótta við lýðræðið og skoðanir fólksins. Á fyrri hluta þessarar aldar fór þjóðarat- kvæðagreiðsla fram sex sinnum hér á landi, en það hefur aldrei verið leitað til þjóðarinnar með einstakt mál eftir lýðveldisstofnun. Það er löngu tímabært að hin foma lýðræð- ishefð verði endurvakin. Það á við í þessu máli eins og svo mörgum öðrum að vilji er allt sem þarf. I næstu viku ræðst væntanlega hvort þingmenn hafa vilja til að leita til umbjóðenda sinna minnugir þeirr- ar tvö hundruð ára gömlu kenningar frönsku mannréttindayfírlýsingar- innar, sem er grundvöllur vestræns lýðræðis, að allt þjóðfélagsvald sé komið frá fólkinu. Fólkið á rétt á því að velja um þá kosti sem nú liggja fyrir um skipan og þróun íslensks þjóðfélags. Höfundur er þingmaður Kvennalistans. Barnasáttmáli Sam- einuðu þjóðanna Mannréttindagjöf til barna heimsins eftir Arthur Morthens Bamasáttmáli Sameinuðu þjóð- anna er merkasta yfírlýsing um mannréttindi barna sem gerð hefur verið. Nú þegar hafa yfír 123 þjóðir fullgilt sáttmálann og skilað hinni dýrmætu gjöf til bama í sínu landi. Þær hafa tekið á sig þá ábyrgð sem því fylgir að fullgilda sáttmálann með kynningu jafnt til barna sem fullorðinna. íslendingar hafa einir fárra vestrænna þjóða ekki fullgilt sáttmálann og því ekki enn þegið þá miklu gjöf sem sáttmálinn er ís- lenskum bömum sem og öðrum böm- um heimsins. Væntanlega munu ís- lensk stjómvöld fullgilda sáttmálann innan fárra daga. Á meðan nágrannaþjóðir okkar hafa fyrir allnokkru fullgilt sáttmál- ann og hafíð mikla kynningarherferð á sáttmálanum, bæði fyrir börn og fullorðna samkvæmt 42. grein sátt- málans, hafa íslensk stjómvöld hvorki fullgilt hann né haft neina burði uppi um kynningaráætlun, hvað þá að í gangi sé kynning á sáttmálanum. íslendingum til máls- bóta má þó benda á að íslendingar voru meðflutningsmenn þessa sátt- mála hjá Sameinuðu þjóðunum þegar hann kom fram 1989. En því miður hafa íslensk stjómvöld ekki haft dug í sér til að fullgilda sáttmálann. Þessi gjöf til bama heims hefur því enn ekki náð til íslenskra bama. Hér skal þó tekið fram að Alþingi heimil- aði fyrir sitt leyti sl. vor að samning- urinn yrði fullgiltur af íslands hálfu. Gildi barnasáttmálans Hafa alþjóðlegir sáttmálar gildi, áhrif á framkvæmd mála hjá einstök- um þjóðum innan Sameinuðu þjóð- anna? Eða era þeir einungis ábend- ingar sem hafa það að markmiði að styrkja þær stofnanir sem láta þær frá sér fara? Það er óumdeilanlegt í dag að mannréttindasáttmálinn frá 1948 hefur í tímans rás fengið mikla út- breiðsiu meðal ríkja heims og haft jákvæð áhrif á réttindi manna víða um heim. Mannréttindasáttmálinn hefur augljóslega haft víðtæk áhrif og orðið hluti af lagaumbótum í fjöl- mörgum ríkjum. Barnasáttmálinn er í raun eðlileg- ur hluti mannréttindasáttmálans og hefur í dag öðlast alþjóðlegt laga- gildi undirritaður af á annað hundrað þjóðum. Hann tryggir börnum mann- réttindi óháð þjóðemi, kyni, mállýsku eða félagslegum uppruna. Hinum 54 greinum er ætlað að tryggja íslensk- um bömum jafnt sem öðram bömum þau réttindi til uppeldis, þroska og velferðar sem gerir bamæskuna að sterkum grunni fullorðinsáranna. Sú spurning hefur ítrekað komið fram í umræðum um bamasáttmál- ann hvort hann komi nokkuð íslensk- um börnum við, hvort hann sé ekki fyrst og fremst fyrir börn þriðja heimsins? Hvort að mannréttindi bama á íslandi séu ekki gulltryggð með lögum? Því er til að svara að hinar Norðurlandaþjóðirnar hafa orð á sér fyrir að hafa unnið markvisst og vel að málefnum bama, þannig að eftir hefur verið tekið í heimi þjóð- anna. Þessar þjóðir hafa lagt metnað sinn í að framkvæma bamasáttmál- ann á sem markvissastan og bestan hátt. Þær telja það ekki eftir sér að vinna að þessu máli með sem bestum hætti og era þess fullvissar að barna- sáttmálinn sé tæki til að styrkja enn frekar mannréttindi bama sinna. Það má væntanlega minna þá sem telja allt svo gott hjá okkur á eftirfar- andi: — Upplausn fjölskyldunnar og fé- lagslega erfiðleika fjölmargra bama því samfara. — Fjárhagslega erfiðleika margra fjölskyldna. Arthur Morthens „Islensk stjórnvöld ættu að leggja metnað sinn í að framfylgja barnasáttmálanum, öll- um börnum til góðs. Eftir slíku verður tekið meðal hinna Sameinuðu þjóða.“ — Vanrækslu af ýmsu tagi gagnvart bömum. — Vaxandi vímuefnaneyslu. — Vaxandi sjálfsmorðstíðni ungl- inga. — Vegalaus börn. — Pokabörn. — Lyklaböm. — Skilnaðarbörn. — Innflytjendabörn. — Einelti. — Líkamlegar og andlegar mis- þyrmingar. Og svo mætti lengi telja. Það má öllum vera ljóst að íslensk börn þurfa mjög á bamasáttmálan- um að halda. íslendingar eru hvorki betur né verr af guði gerðir en aðrir þeir er þessa jörð byggja. Bamasátt- málinn byggist á þeirri grandvallar- viðurkenningu að börn eru viðkvæm- ur hópur í samfélaginu sem þarfnast sérstakrar verndar. Barnasáttmálinn er fyrsti sáttmáli SÞ sem veitir rétt- indi sérstaklega til barna og leggur jafnframt lögfræðilegar skyldur á herðar þeim þjóðum er fullgilda sátt- málann. Brýnt er að þeir sem vinna að málefnum barna hafi góða þekkingu á barnasáttmálanum í heild og ein- stökum greinum hans. Hér er átt við starfsfólk í mennta-, félags- og dóms- og heilbrigðiskerfi. Síðast en ekki síst ber stjórnvöldum skylda til að kynna hann börnum jafnt sem fullorðnum. Barnaheill hefur boðist til þess að taka þátt í kynningu á barnasátt- málanum, m.a. með ráðstefnuhaldi, útgáfu, myndbandagerð og fleiru. Það er von Barnaheilla að stjórnvöld taki nú á sig rögg og fullgildi sátt- málann nú þegar og opni þar með þá gjöf sem hinar Sameinuðu þjóðirn- ar hafa gefið íslenskum börnum, sem og öðrum börnum heimsins. Islensk stjórnvöld ættu að leggja metnað sinn í að framfylgja barna- sáttmálanum, öllum börnum til góðs. Eftir slíku verður tekið meðal hinna Sameinuðu þjóða. Höfundur er formaður Bnrnaheilla.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.