Morgunblaðið - 30.10.1992, Side 22

Morgunblaðið - 30.10.1992, Side 22
22 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992 BANDARISKU FORSETAKOSNINGARNAR Búist við metkjörsókn 1 landi dræmrar þátttöku í síðustu forsetakosningum sat helmingur bandarískra kjósenda heima Leíkkonan Susan Sarandon (fyrir miðju) gekk ásamt hundruðum kvenna eftir Manhattan í New York í gær til stuðnings Bill Clinton en göngunni lauk með fjöl- mennum útifundi í Washing- ton Square Park. Skoðana- kannanir benda til, að mikið hafi dregið saman með þeim Clinton og Bush og hefur það orðið til að færa aukna hörku í kosningabaráttuna. Boston. Frá Karli Blöndal, fréttaritara Morgunblaðsins. ÁHUGI Bandaríkjamanna á pólitík hefur hingað til ekki talist óhóflegur, en á þessu kosningaári virðist sem almenningur fylg- ist með af áhuga. Rúmlega níutíu milljónir manna horfðu á sjón- varpskappræður forsetaframbjóðendanna. Alls staðar að berast fregnir af metskráningu til að komast á kjörskrá. Bandaríkja- menn fara margir í varnarstöðu þegar minnst er á að kjörsókn sé hvergi minni í hinum vestræna heimi en í Bandaríkjunum. Nú er því spáð að í ár muni kosningaþátttaka aukast verulega. Rétt rúmlega helmingur Banda- ríkjamanna með aldur til (50,2%) gekk að kjörborðinu í forsetakosn- ingunum árið 1988 og var það minnsta kjörsókn frá árinu 1924. George Bush naut því aðeins full- tingis rúmlega fjórðungs þjóðar- innar þegar hann var kjörinn for- seti. Að komast á kjörskrá Oft er sagt að litla kosninga- þátttöku Bandaríkjamanna megi rekja til vandkvæða á að skrá sig. Yfirleitt þurfa Bandaríkjamenn að skrá sig í hvert skipti sem þeir flytja, og víðast hvar er síðasti dagur til kjörskráningar mánuði fyrir kosningar. Þegar Bush beitti neitunarvaldi í sumar til að koma í veg fyrir að lög, sem kváðu á um að menn færu sjálfkrafa á kjörskrá um leið og þeir skráðu bíla sína, tækju gildi sakaði dag- blaðið The New York Times hann í leiðara um að standa í vegi fyrir lýðræðinu. Fyrr í þessari viku voru birtar niðurstöður rannsóknar sem renn- ir stoðum undir þá tilgátu að skráningarreglur skipti sköpum um kjörsókn auk takmarka á áhrif sérhagsmuna. Fyrir fjórum árum var kosningaþátttaka yfír 60% í sjö ríkjum. Þar á meðal voru Norð- ur-Dakóta, eina ríkið þar sem kjós- endur þurfa ekki að skrá sig, og Maine og Wisconsin, einu ríkin þar sem hægt er að skrá sig fram á kjördag. Átta ríki í Bandaríkjunum krefjast þess að einstaklingar láti lýsingu á íjárhagslegum hags- munum sínum fylgja ijárframlög- um og banna bein pólitísk framlög fyrirtækja. Fimm þeirra voru í sjö ríkja hópnum. Höfundur könnunarinnar, Bill Hall, sagði í viðtali við bandaríska fréttastofu að í þeim fímm ríkjum þar sem meðalkjörsókn hefði verið minnst á síðasta áratug, Georgiu, Suður-Karólínu, Texas, Virginíu og Tennessee, væri hefð fyrir því að svipta minnihlutahópa og fá- tæka hvíta menn atkvæði sínu og aðhafast ekkert til að draga úr áhrifum peningamanna. Stjómmálafræðingurinn Walter Dean Bumham er þeirrar hyggju að ástæðuna fyrir lítilli kosninga- þátttöku sé að fínna í stjómkerfínu sjálfu. Flokkamir hafí glatað ítök- um sínum og hver frambjóðandi bjóði í raun fram fyrir sig. Einu gildi hvaða flokki hann tilheyri og „sjónvarp, kosningastjórar og ímynd frambjóðandans og umbúð- ir“ ráði úrslitum. Þannig geti for- seti unnið stórsigur án þess að það hjálpi flokkssystkinum hans í þingframboði vitund. Niðurstaða Bumhams er sú að kjósandinn hafí einungis milli einstakra fram- bjóðenda að velja en ekki flokka með málstað sem hann getur stutt eða hafnað. Mest kjörsókn 1960 Kjörsókn í Bandaríkjunum fór yfír 50% í fyrsta skipti þegar Franklin D. Roosevelt var kjörinn forseti árið 1932 og kreppan mikla var í algleymingi. Þá jókst kosn- ingaþátttaka einkum meðal verka- manna. Mest var þátttaka þegar John F. Kennedy var kjörinn for- seti árið 1960 og náði þá 62,8%. Burnham segir að síðan hafí dæmið snúist við og þeir sem snú- ið hafí baki við bandarískum stjórnmálum komi flestir úr röðum verkamanna og fólks í þjónustu- störfum. Árið 1964 greiddu rúm 66% verkamanna og fólks í þjónustu- störfum atkvæði, en aðeins 48% árið 1980. Á sama tíma minnkaði kjörsókn atvinnulausra einnig um 18%. Kjörsókn skrifstofu- og menntamanna minnkaði hins veg- ar aðeins um 10%, fór úr 83% nið- ur í 73% frá 1962 til 1980. Fræðimaðurinn Austin Ranney hefur litlar áhyggjur af lítilli kosn- ingaþátttöku. Hann er þeirrar hyggju að svo lengi sem kjósendur sitji heima af fúsum og fijálsum vilja beri hvorki stjórnmál né ríki skaða af og Bandaríkjamenn verði ekki sviptir „réttinum til að kalla okkur lýðræðisríki". Ein af meginrökum Ranneys eru þau að kannanir sýni að kjós- endur og þeir sem heima sitja séu nokkurn veginn sama sinnis um menn og málefni. Niðurstaða kosninga yrði því hin sama, hversu margir sem gengju að kjörborðinu. Þessi niðurstaða verður að telj- ast hæpin. Kjörsókn minnkar eftir því sem tekjur lækka. í síðustu þremur forsetakosningum greiddu aðeins 42% af þeim 16% Banda- ríkjamanna sem hafa lægstar tekj- ur atkvæði. 77% hinna tekjuhæstu 5% Bandaríkjamanna kusu að meðaltali á sama tíma. Hagsmunir þessara tveggja hópa eru tæplega hinir sömu. Dræm kjörsókn orðum aukin? Raymond E. Wolfínger, prófess- or í stjómmálafræði við Kalifor- níuháskóla í Berkeley, segir að yfirleitt komist menn að rangri niðurstöðu um orsakir lítillar kjör- sóknar. Hann hafnar því að Bandaríkjamenn kjósi ekki af því að þeim „leiðist stjómmál, þeir hafí orðið fírringunni að bráð, treysti ekki stjórnmálamönnum og/eða séu fullir efasemda um hið pólitíska kerfí“ og vísar á bug samanburði við ofurmannlega kjörsókn í Evrópu. Wolfinger bendir á að 85% Bandaríkjamanna séu stolt af stjómarskrá sinni og stjórnkerfí, en aðeins 3% ítala þótt þeir kjósi nánast allir með tölu. Wolfinger heldur því fram að kjörsókn sé alla jafna miðuð við síðasta manntal, þar sem íbúar Bandaríkjanna em taldir burtséð frá því hvort þeir hafa ríkisborg- ararétt (og það af leiðindi kosn- ingarétt) eða ekki. Þar sem inn- flytjendum fjölgi stöðugt sé þessi kvarði ónothæfur því að inni í heildartölu kjósenda sé fólk, sem ekki megi kjósa. Næst spyr Wolf- inger hvort hægt sé að notast ein- göngu við skráða kjósendur og svarar því til að sú tala yrði held- ur ekki marktæk vegna þess fjölda sem flust hefur búferlum án þess að tilkynna það og sitji því eftir á skrám um allt land. Þá vitnar hann í kosningakönnun Michigan- háskóla þar sem ógildar skráning- ar voru vinsaðar úr með þeim af- leiðingum að í síðustu þremur for- setakosningum hefðu um 85% skráðra kjósenda neytt atkvæðis- réttar síns. Með þessum talnak- únstum hefur Wolfinger tekist að lyfta Bandaríkjamönnum upp í ell- efta sæti úr því neðsta með aðeins 8% minni kjörsókn en ríkið í efsta sæti. Það vakir ekki fyrir Wolfinger að gera lítið úr þessu vandamáli. Hann bendir einnig á að þótt kjör- sókn sé mismunandi eftir þjóðfé- lagshópum í Bandaríkjunum minnki bilið talsvert þegar borin er saman kosningaþátttaka verka- manna á kjörskrá og mennta- manna á kjörskrá annars vegar og þessir hópar í heild sinni hins vegar. Niðurstaða hans er því í samræmi við könnunina sem getið var í upphafi: „... mikilvæg skýr- ing á lítilli kjörsókn í Bandaríkjun- um er vandkvæði á skráningu (miðað við önnur þjóðríki).“ Skrán- ing á kjörskrá í Evrópu er víðast hvar sjálfkrafa og fer fram um leið og menn skrá nýtt lögheimili. í Belgíu varðar það meira að segja ijársektum að kjósa ekki. „Þeir sem telja að leiðin til að auka kjör- sókn sé að skrá fleira fólk, eru á réttri leið,“ segir Wolfínger. Dagblaðið The New York Times lýsti yfír því á dögunum að tutt- ugu ára hnignun hefði nú verið snúið við og Bandaríkjamenn hefðu fyllt skráningarskrifstofur um allt land. Þessi aukning á ekki rætur að rekja til þess að skráning hafi verið auðvelduð. Hins vegar hafa ýmis samtök skorað á fólk að skrá sig, allt frá popp-sjón- varpsstöðinni MTV til hagsmuna- hópa svartra í Chicago, sennilega demókrötum til góðs, og í fjölmiði- um var meiri áhersla lögð á að frestur til að skrá sig væri að renna út en áður. Sennilega er þó helsta ástæðan fyrir þessum aukna áhuga óháð framboð auðkýfíngsins Ross Pe- rots frá Texas. Perot verður e.t.v. aðeins neðanmálsgrein við þessar kosningar þegar atkvæðin verða talin, en „lýðfylkingin gegn Wash- ington er sýnu áhrifameiri og rétt- mætari en frambjóðandi hennar“, svo vitnað sé í Robert L. Tumer, einn dálkahöfunda dagblaðsins The Boston Globe. Það myndi auka kjörsókn að auðvelda skráningu, en helsti hvatinn til að kjósa er sá að kjósandinn sjái hagsmunum sínum annaðhvort borgið eða ógn- að. Kreppuástandið í Bandaríkjun- um hefur ógnað hagsmunum margra og nú er að sjá hvort þeir skila sér að kjörborðinu 3. nóvem- ber. GULLREGN Rauðarárstíg 33, sími 627033. Öðruvísi blómabúð Sérstakar gjafavörur Opið frá kl. 10-21. - Sunnud. frá kl. 12-21.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.