Morgunblaðið - 30.10.1992, Síða 24
24
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992
Risastyrja
í Yangtz-á
Peking. Reuter.
RISASTYRJA á stærð við
smárútu veiddist í
Yangtze-á í Kína nýverið.
Vísindamenn telja, að fisk-
urinn sé allt að 100 ára
gamall, að sögn Xinhua-
fréttastofunnar.
Styrjan, sem var kvenkyns,
vó hálft tonn og mældist 5,2
metrar á lengd. „Sérfræðingar
staðhæfa, að þetta sé stærsta
og elsta styija sem nokkru
sinni hefur veiðst í Yangtze,"
sagði í frétt Xinhua, .jafnvel
stærsti fískur sem nokkru
sinni hefur veiðst."
Samkvæmt Heimsmetabók
Guinness er stærsti fersk-
vatnsfískurinn, sem komið
hefur á land, af gedduætt og
veiddist í Norður-Tælandi.
Hann var þriggja metra lang-
ur.
Rcuter
Múslimskar konur og börn á flótta við bæinn Prozor. Þar geisuðu harðir bardagar milli Króata og
muslima um síðustu helgi.
Ekkert lát á þjóðemishreinsunum í Bosníu
Króatískir hermenn hrekja
hundruð múslima til fjalla
Nélægt Prozor. The Daily Telegraph.
HUNDRUÐ og ef til vill þúsundir múslima hafa verið hrakin frá
heimilum sínum í stórskotaárásum og „þjóðernishreinsunum" Kró-
ata í bænum Prozor, um 28' km suðvestur af Sarajevo, höfuðborg
Bosníu-Herzegovínu. Fólkið hefur leitað til fjalla og reynir að
halda í sér lífinu í nístingskulda án nokkurs skjóls fyrir veðri og
vindum og með lítinn sem engan matarforða. Flóttamennirnir eru
aðallega konur og börn og óttast er að þorri karlmanna bæjarins
hafi verið drepinn. Króatar vilja stofna eigið ríki í Bosníu og
Prozor var hindrun sem þeir ruddu í burtu.
„Við höfum verið í skóginum í leita að hellum,“ sagði kona, sem
flóra daga og núna erum við að var ásamt nokkrum öðrum konum
og bömum á leið yfír ijallaskarð
í leit að matvælum, vatni og skjóli.
Konumar vom ekki með neinn
matarforða og höfðu aðeins eitt
teppi hver til að verjast nepjunni.
„Heimili okkar voru brennd til
kaldra kola,“ hélt konan áfram.
„Við getum hvergi farið nema til
fjalla. Króatamir hafa „hreinsað
bæinn“ eins og Serbamir hefðu
gert ef þeir væm hér.“
MÁLA5KÓLINN MÍMIR - MÁLASKÓLINN MÍMIR - MÁLASKÓLINN MÍMIR
HRAÐNÁMSTÆKNI í TUNGUMÁLUM
afköst,
ÁNAöif1,
A
Ísloppon
Viltu verða mörgum sinnum
fíjótari og skemmta þér
við það?
Þú getur lært t.d. ensku,
þýsícu, frönsku, ítölsku,
spænsku, dönsku, sænsku,
japönsku, hebresku, íslensku
fyrir útlendinga oa íslenska
réttritun með hraonámstækni,
- aðeins hjá Mimi.
HRAÐNAMSTÆKNI I TUNGUMALUM
Perro línunr byggir ó ronmóknum Dr. Bobcsok i Dudopey 1979 og 5.N. Smirnovo
i Moskvu 1973. Semm ronnsóknir bendo ril oö hroönómsrœknin ouki nómshroöo
ollr oö 2 nl 10 sinnum Engin ronnxikn bendir ril minni órongurs en rvöföldunor
fró heföbundnu mólonómi.
Skráning stendur yfir núna - Síminn er
10004 a
V Hj Námskeiðin hef|as» 2. nóvember. Æ£fj\
V yy Opið um helgina frá kl. 12-18.
MÁLASKÓLINN MÍMIR ER t EIGU STJÓRNUNARFÉLAGS ÍSLANDS
Þegar konan var spurð hvar fjöl-
skylda hennar væri brast hún í
grát. „Maðurinn minn, sonur og
dóttir vom fyrir utan bæinn þegar
Króatarnir hófu stórskotaárásim-
ar á föstudag. Kannski fluttu
Króatamir þau í burtu. Þau gætu
líka hafa verið drepin."
Flestir múslimana höfðu ekki
færi á að hafa neitt með sér nema
föt en margir vom í inniskóm,
aðrir skólausir. Þeir fáu karlmenn
sem blaðamaður The Daily Te-
legraph sá vom einir á gangi og
héldu sig fjarri vegunum af ótta
við að króatískir hermenn fyndu
þá. Þeir virðast þó mega prísa sig
sæla því stór hluti múslimskra
karlmanna á herþjónustualdri í
Prozor hefur einfaldlega horfíð.
Fjölskyldur þeirra vona að þeir séu
fangar Króata en segjast vita að
króatísku hermennimir, sem skutu
á bæinn þeirra án viðvörunar,
hafí lítinn hug á að halda föngum.
„Enginn veit hversu margir
vom drepnir," sagði einn flótta-
mannanna. „Við vitum aðeins að
engir múslimar em eftir á lífí í
Prozor. Og varla nokkurt okkar
veit hvar nánustu skyldmenni okk-
ar em niðurkomin."
„Ég sá króatíska hermenn
smala í burtu þremur til fjórum
röðum af fólki,“ sagði annar flótta-
maður. „Tveir hermenn vom fyrir
framan hverja röð, tveir fyrir aftan
og einn á hvorri hlið. 20 manns
vom í hverri röð. Þeir hurfu allir.
Hvers vegna? Vegna þess að þeir
hafa múslimsk nöfn. Ef þetta er
ekki þjóðemishreinsun þá veit ég
ekki hvað það er.“
„Ég á þijú böm og við amma
vitum ekki hvar þau em,“ sagði
miðaldra kona. „Króatamir skip-
uðu okkur að láta öll vopn af hendi.
Síðan byijuðu þeir að skjóta án
nokkurrar viðvömnar. Allir króa-
tískir nágrannar okkar höfðu flúið
tveimur dögum áður. Fyrsta fall-
byssukúlan lenti á húsinu okkar
og við fómm inn í kjallara. Við
hlupum berfætt út og sluppum úr
bænum um holræsið. Öll fötin sem
ég er í fékk ég gefíns af fólki í
grenndinni. Það eina sem ég á
eftir er lykillinn að húsinu."
ísraelar
ræða við Pal-
estínumenn
Fulltrúar ísraelsstjórnar og
um fjömtíu erlendra sendi-
nefnda, þ. á m. frá öllum helstu
Arabaríkjunum, hófu í gær við-
ræður um framtíðarþróun
efnahagsmála í Mið-Austur-
löndum í París. Meðal þeirra
sem þátt taka í viðræðunum
era fulltrúar Palestínuaraba og
er þetta í fyrsta skipti sem ísra-
elar fallast á að ræða við Pa-
lestínumenn utan hernumdu
svæðanna. Það var þó gert með
því skilyrði að enginn fulltrúi
Frelsissamtaka Palestínu
(PLO) yrði viðstaddur sjálfar
viðræðurnar.
Fischer gegn
Polgar?
Janos Kubat, Ungveijinn
sem stjómar einvígi Bobby
Fischers og Borís Spasskís í
Belgrad, skýrði frá því í gær
að Fischer myndi tefla 12
skáka einvígi við ungversku
skákkonuna Judith Polgar en
ekki var tekið fram hvenær.
Hollenskur styrktarmaður
myndi sjá um kostnaðinn og
verðlaunaféð yrði 2,5 milljónir
dollara, í Belgrad er verðlaun-
aféð 5 milljónir. Polgar varð
stórmeistari 15 ára gömul í
desember sl. og var þá nokkr-
um mánuðum yngri en Fischer
er hann hlaut titilinn fyrir 33
ámm. Hún hefur 2.575 skák-
stig en Spasskí 2.560.
Bandaríkja-
menn bjart-
sýnir á
GATT-sam-
komulag
Edward Madigan, landbún-
aðarráðherra Bandaríkjanna,
sagði í gær að enn væm líkur
á að samkomulag næðist í
GATT-viðræðunum fyrir
bandarísku forsetakosningarn-
ar í næstu viku. Madigan sagði
í viðtali við BBC að hægt væri
að mjókka bilið milli sjónar-
miða Bandaríkjastjórnar og EB
og fá báða aðila að samninga-
borðinu. Sagðist hann vonast
til að eiga fund með Ray MacS-
harry, sem fer með landbúnað-
armál innan framkvæmda-
stjórnar EB, um helgina.
Viðræður i
Kosovo
Leiðtogar Serba og Albana
í Kosovo-héraði í fyrmm Júgó-
slavíu settust í gær niðúr til
viðræðna í fyrsta sinn í þijú
ár eftir að Owen lávarður, sem
hefur yfímmsjón með friða-
rumleitunum Evrópubanda-
lagsins, tókst að fá Ibrahim
Rugova, leiðtoga Albana, með
sér á fund þar sem fyrir vom
serbneskir embættismenn. Al-
banir em í miklum meirihluta
í Kosovo, átta á móti einum,
og nutu verulegrar sjálfstjórnar
þar til Slobodan Milosevic, for-
seti Serbíu, afnam sérréttindi
þeirra árið 1990. Átök blossuðu
upp í kjölfarið og féllu um sjö-
tíu manns í þeim. Margir óttast
að átökin í fyrrum Júgóslavíu
muni brátt breiðast út til
Kosovo og að það gæti leitt til
þess að stjórn Albaníu færi að
hafa afskipti af deilunni. Miklar
vonir em því bundnar við við-
ræður Serba og Albana í hérað-
inu og er það talinn mikill sigur
fyrir Owen og Cyras Vance,
fulltrúa Sameinuðu þjóðanna í
fyrram Júgóslavíu, að hafa
fengið báða aðila til að setjast
niður í sama herbergi.