Morgunblaðið - 30.10.1992, Síða 30
Morgunblaðið/Rúnar Þór
Forsvarsmenn Tölvu- og hugbúnaðarþjónustunnar. Bjarni Einars-
son kerfisfræðingur til hægri.
Tölvu- og hugbúnaðarþjónustan
Viðskiptahugbún-
aður á markaðinn
TOLVU- og hugbúnaðarþjónustan á Akureyri setti á markað fyrir
skömmu nýjan viðskiptahugbúnað, sem ber heitið Garri. Fyrirtækið
er þriggja ára gamalt og hið eina sinnar tegundar í bænum og er
það til húsa í Gránufélagsgötu 4. Eigandi þess er Bjarni Einarsson
kerfisfræðingur og vann hann einn til að byija með en eftir því
sem verkefnum fjölgaði hafa bæst við tveir starfmenn.
Barlómur dregur
kjarkínn úr fólkí
Bú Hafnarstrætis 83-88
Ekkert fékkst
uppíum75
millj. kröfur
SKIPTUM er Iokið í þrotabúi
Hafnarstrætis 83, 85 og 88, sem
tekið var til gjaldþrotaskipta í
desember á síðasta ári.
Eina eign búsins, húseignin Hafn-
arstræti 83-85 á Akureyri, hafði ver-
j0fið seld á nauðungaruppboði í október
1991 og fékkst hluti lýstra krafna
utan skuldaraðar greiddur út úr upp-
boðsandvirði. Byggðastofnun og
Ferðamálasjóður keyptu eignina á
uppboðinu á 54 milljónir króna.
Engar frekari eignir fundust í
búinu og lauk skiptum fyrir nokkru
án þess að greiðsla fengist upp í lýst-
ar kröfur samtals að upphæð um 75
milljónir króna.
Skiptum í þrotabúi Hótels Stefan-
íu hf., en hótelið leigði húseignir
Hafnarstrætis 83, 85 og 88, er ekki
lokið. Lýstar kröfur í þrotabú Hótels
Stefaníu námu rúmlega 90 milljónum
króna, en félagið átti eitthvað af
lausamunum, að sögn bústjóra
Hreins Pálssonar.
—...-4--------
Rapsódía í ágúst
sýnd í Borgarbíói
Kvikmyndaklúbbur Akureyrar
sýnir myndina Rapsódía í ágúst
eftir Akira Kurosawa í Borgarbíói
á sunnudag, 1. nóvember kl. 17
og á mánudag kl. 19. Með aðalhlut-
verkið í myndinni fer Richard
Gere.
Myndin gerist í Japan og fjallar
'um fjögur böm sem eyða sumrinu
hjá ömmu sinni, en í upphafi myndar-
innar fær hún bréf frá bróður sínum
sem liggur fyrir dauðanum og vill
hitta hana áður en hann deyr. Amm-
an átti tíu systkin og fer að segja
bömunum frá þeim og sökkvir sér
ofan í minningamar. Bamabömun-
um finnast sögur ömmu sinnar
skrýtnar, sorglegar og skemmtileg-
ar.
„Ég byijaði á því að vinna við
gerð kennsluforrits í landafræði og
síðan hefur hvert verkefnið tekið
við af öðru. Ég held að við séum
búnir að sanna okkur á markaðnum
og höfum núna yfir eitt hundrað
viðskiptamenn, þar af eru 38 á
Norðurlandi," sagði Bjami.
Tölvu- og hugbúnaðarþjónustan
hefur m.a. smíðað garðyrkjukerfi,
fyrirtækjaforrit, gæru- og húðafor-
rit, kerfi fyrir Lionsþing, félagatal
fyrir íþróttafélög, húsbréfakerfi,
bónuskerfið Flakara fyrir frystihús
og eftirlitskerfi fyrir heilbrigðiseft-
irlit, auk orlofshúsa, félagatals og
samningakerfisins Ofsa, sem
starfsmannafélög víða um land
nota. Nýjasta kerfi fyrirtækisins
er Garri, sem kom á markaðinn
fyrir skömmu og yfir 30 fyrirtæki
nota um þessar mundir, en Bjami
sagði að reynsla manna af kerfinu
væri góð.
Einn af meginkostum nýja við-
skiptahugbúnaðarins, að sögn
Bjama er að auðvelt er að smíða
og tengja ýmis sérkerfi við hann
að óskum notenda. Þessi hugbún-
aðar byggist upp á nokkrum kerf-
um, m.a. fjárhagsbókhaldi, við-
skiptamannakerfi, lánardrottna-
kerfi, sölukerfi, tilboðskerfi,
birgðakerfi, pantanakerfi og launa-
kerfi.
Á FUNDI um atvinnumál sem
haldinn var í 1929 á þriðjudags-
kvöld að frumkvæði Junior
Chamber á Akureyri var sam-
þykkt eftirfarandi ályktun:
„Barlómur og neikvæð umræða
hefur að undanfömu dregið allan
kjark úr fólki og haft mikil áhrif
á allt atvinnulíf. Öðrum, þar á
meðal hinu opinbera, er gjaman
kennt um atvinnuástandið en hvað
höfum við, ég og þú gert til að
bæta það? Það er nauðsynlegt að
við leggjumst öll á eitt og gemm
okkar besta til að breyta umræð-
unni í jákvæða átt. Gerum okkur
grein fyrir því að við verðum að
treysta á okkur sjálf. Virkjum
hugann, komum hugmyndum okk-
ar á framfæri og vinnum ötullega
að því að koma þeim í verk, at-
vinnulífinu til heilla. Spyijum ekki
Svellið verður síðan opið dag-
lega frá kl. 13 til 16 og á kvöldin
frá kl. 20 til 22, nema á þriðjudög-
um og fimmtudögum þegar opið
verður frá kl. 19 til 21.
Þá gefst hópum kostur á að
leiga svellið ásamt kennara frá og
með 10. nóvember næstkomandi,
en einnig er fyrirhugað að bjóða
gestum svellsins upp á tilsögn
kennara á laugardögum kl. 13 og
þriðjudögum kl. 17 í klukkustund
í senn.
Æfingar fullorðinna hefjast á
morgun, laugardag, kl. 17, en
hvað aðrir geta gert, heldur skul-
um við spyija okkur sjálf: Hvað
getum við gert til að efla atvinnu-
lífið?“
....-----------
Kór Glerárkirkju
syngur í Ydölum
KÓR Glerárkirkju á Akureyri
heldur tónleika í Ýdölum i Aðal-
dal á morgun, laugardaginn 31.
október, kl. 16.
A efnisskrá tónleikanna eru fjöl-
breytt verk, en þeir skiptast í tvo
flokka, kirkjulega tónlist og verald-
lega. Flest lögin eru eftir íslenska
höfunda, t.d. Björgvin Guðmundsson,
Áskel Jónsson, Jakob Tryggvason,
Jón Ásgeirsson, Jón Nordal og Þor-
kel Sigurbjömsson, íslensk þjóðlög,
þjóðlög frá Norðurlöndunum og tvö
þýsk lög á efnisskránni.
þeir sem stunda æfíngar í yngri
flokkunum er beðnir um að mæta
kl. 17 á sunnudag.
Skautaiðkun hefur notið vin-
sælda meðal bæjarbúa og er áætl-
að að á síðasta vetri hafi um 10
þúsund gestir komið á svellið. Að
sögn Magnúsar Finnssonar, gjald-
kera Skautafélags Akureyrar, er
stefnt að því að fá enn fleiri gesti
í vetur og ætla skautafélagsmenn
að reyna að fjölga gestum að
minnsta kosti upp í íbúatölu bæjar-
ins, eða fá á milli 14 og 15 þús-
und gesti á skauta í vetur.
Skautasvellið á Krók-
eyri opnað í kvöld
SKAUTASVELLIÐ á Krókeyri verður opnað í kvöld, föstudags-
kvöld, kl. 20 í fyrsta sinn á þessum vetri. Opið verður fyrir almenn-
ing um helgina frá kl. 13 til 16 og frá 20 til 22.
Moi^unblaðið/Steinunn Ósk Kolbeinsdóttir
Nemendur Tónlistarskóla Rangæinga í nótnalestri.
Hvolsvöllur
Mikill tónlistaráhugi
Hvolsvelli.
Tónlistarskóli Rangæinga hóf
starfsár sitt 1. okt. sl. Um 200
nemendur hófu nám á haustönn,
en kennt er á 7 stöðum í sýsl-
unni. Agnes Löve píanóleikari er
nýráðin skólastjóri.
Agnes var innt eftir því hvemig
Til sölu
ú Akureyri
ca. 290m2 steinhús í friðsælli
og fallegri götu. Tvær hæðir
og óinnréttað ris með mikilli
lofthæð. Stór bílskúrsgrunnur,
séríbúð á jarðhæð. Húsið er
að mestu leyti endurnýjað á
síðustu árum. Selst í heilu eða
tvennu lagi. Makaskipti á Rvík-
ursvæði möguleg. Mjög hag-
stætt verð og góð lán á eign.
Upplýsingar í síma 96-27351.
starfsemi skólans yrði háttað í vetur
og sagði hún að kennt yrði á 15 hljóð-
færi og fyrirhugað væri að stofna
lúðrasveit í vetur. Einnig færi fram
kennsla í tónfræði og tónheym. Þá
stæði yfir námskeið í nótnalestri fyr-
ir fullorðna og væri það hugsað fyr-
ir hina fjölmörgu kórsöngvara í sýsl-
unni.
Agnes kvað það einkar ánægjulegt
hversu margir fullorðnir nemendur
væm nú í skólanum. Oft væri það
þannig að foreldrar sendu böm sín
í tónlistarskóla af því þá langar sjálfa
að læra á hljóðfæri en nú virtist vera
að verða breyting á þessu og fólk
léti nú drauminn um að læra á hljóð-
færi rætast í æ ríkari mæli.
Um breytingar á starfsemi skólans
sagði Agnes: „Það hefur verið stofn-
uð söngdeild við skólann en við hana
stunda 8 nemendur nám og komust
færri að en vildu. Hinn ágæti hesta-
maður Jón Sigurbjömsson hefur ver-
ið ráðinn kennari við deildina."
- S.Ó.K.
43. ársþing LH
Þinghald annað hvert
ár enn á dagskrá
Talið að 70% fulltrúa styðji tillöguna
________Hestar____________
Valdimar Kristinsson
126 fulltrúar 48 hestamanna-
félaga koma saman um helgina
undir merkjum Landsambands
hestamannafélaga á Flúðum
þar sem þeir munu fjalla um
hin margvíslegustu málefni
samtakanna auk þess að hlusta
á fyrirlestra og taka þátt í
umræðu um reiðvegamál. Dag-
skráin hefst í dag, föstudag,
klukkan 10 en þinginu lýkur á
laugardagskvöld. Fyrir þinginu
liggur 21 tillaga og þar á með-
al er tillaga frá stjórn samatak-
anna þess efnis að þingið verði
framvegis haldið annaðhvert
ár.
Samhljóða tillaga hefur verið bor-
in fram undanfarin ár á þingi
samtakanna en ávallt verið felld.
í greinargerð með tillögunni segir
að Ijóst sé eftir könnun sem gerð
var meðal hestamannafélaga í
vetur að um 70% þingfulltrúa
hafi væntanlega það veganesti að
ing skuli haldið annaðhvert ár.
ljósi þess telji stjómin sér skylt
að endurflytja tillöguna á þessu
þingi. Þá er að geta tillögu frá
nokkrum norðlenskum félögum
þar sem lagt er til að kosin verði
sjö manna nefnd á þinginu sem
skuli hafa það hlutverk að kanna
kosti og galla þess að sameina
LH og Hestaíþróttasambands ís-
lands í eitt landssamband hesta-
manna. í tillögunni segir að
nefndin skuli hafa lokið störfum
fyrir 1. febrúar nk. og verði niður-
stöður kynntar félögum sem aftur
skili áliti á málinu til nefndarinnar
fyrir 1. júní. Síðan segir að nefnd-
in skuli skila framkomnum niður-
stöðum til ársþings LH 1993. Þá
leggur stjórnin til að gerðar verði
lagabreytingar í þá átt að losa
samtökin undan þeirri skyldu að
efa út tímaritið „Hestinn okkar“.
tillögunni er gert ráð fyrir að
stjóminni verði falið að ráðstafa
tímaritinu. Það vekur athygli að
aðeins tvær tillögur koma fram
um reiðvegamál sem er aðalþema
þingsins. Flutt verða þijú erindi
af fulltrúa Vegagerðarinnar, Jón
Birgi Jónssyni, fultrúa samgöngu-
nefndar Alþingis, Áma Mathiesen
og Kristjáni Auðunssyni, fulltrúa
hestamanna. Þá verður Kristinn
Hugason, hrossaræktarráðunaut-
ur, með erindi um hrossaræktina
1992. Á laugardag verður Brynj-
ólfur Sandholt, yfirdýralæknir,
með erindi um sveppasýkingu sem
Morgunblaðið/Valdimar Kristinsson
í einni tillögunni sem lögð verð-
ur fram á þinginu er lagt til
að hestamenn noti reiðhjálma
sem taldir eru sjálfsagður ör-
yggisbúnaður £ hestamennsk-
unni og hafa margsinnis forðað
hestamönnum frá slæmum
meiðslum.
komin er upp í hrossum hér á
landi. Eins og komið hefur fram
í fréttum Morgunblaðsins gefur
Kári Arnórsson, formaður, ekki
kost á sér til endurkjörs og mun
Guðmundur Jónsson, varaformað-
ur, gefa kost á sér í stöðu for-
manns. Ekki er vitað um mót-
framboð. Þá hefur Ingimar Ingi-
marsson, meðstjómandi, tilkynnt
að hann gefi ekki kost á sér til
endurkjörs. Er því ljóst að tveir
nýir aðalmenn verði kosnir í
stjómina á þinginu. Þingið er öll-
um opið en því lýkur með þing-
slitafagnaði á laugardagskvöld
sem er jafnframt árshátíð hesta-
mannafélagsins Smára sem sér
um undirbúning og framkvæmd
þingsins.