Morgunblaðið - 30.10.1992, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992
33
Vikulegt
flug til
Grænlands
FLUGLEIÐIR og Grænlandsflug
ætla að hafa samvinnu um viku-
legt flug milli Kulusuk og
Reykjavíkur í vetur. Liggur
umsókn um flugleiðina til af-
greiðslu í danska samgöngu-
ráðuneytinu. Þórhallur Jósefs-
son deildarsljóri i samgöngu-
ráðuneytinu segir að hjá því liggi
umsókn um fargjöld á þessari
leið en hún bíði þar til ákvörðun
Dana liggur fyrir.
Eftir gjaldþrot Odin Air losnaði
flugleiðin milli íslands og Græn-
lands og sóttu bæði Flugleiðir og
Grænlandsflug um hana. Að sögn
Einars Sigurðssonar blaðafulltrúa
Flugleiða ákváðu fyrirtækin síðar
að sækjast sameiginlega eftir
Grænlandsfluginu og nýta Fokker
50 vélar og áhafnir frá Flugleiðum.
Yfírmaður grænlensku ferða-
málaskrifstofunnar, Jens K. Lib-
erth, segist vonast til að flugið
hefjist 1. nóvember næstkomandi.
Angmassalik er vinsæll áfanga-
staður erlendra ferðamanna sem
fljúga margir til Kulusuk frá ís-
landi og að sögn grænlenska út-
varpsins myndu Grænlendingar
missa milljónatekjur ef reglulegt
flug yrði stijálla.
Þórhallur Jósefsson segir að
samgönguráðuneytið hafi sent já-
kvæða umsögn um Flugleiðir til
Danmerkur og bíði nú eftir svari
þaðan. „Um leið og staðfesting
berst frá Dönum munum við af-
greiða beiðni Flugleiða um fargjöld
á þessari leið,“ segir hann.
Varað við
breytingum á
Námsgagna-
stofnun
AÐALFUNDUR Félags ís-
lenskra sérkennara haldinn í
Álftamýrarskóla 10. okt. 1992
ályktaði eftirfarandi:
„Á síðustu árum hefur Náms-
gagnastofnun staðið fyrir lang-
þráðu og mikilvægu átaki í útgáfu
og dreifingu námsefnis fyrir þá
nemendur sem þurfa á sérhæfðu
námsefni að halda. Skólavörubúð
hefur jafnframt haft á boðstólum
námsgögn fyrir sérkennslunem-
endur þótt markaður sé afar tak-
markaður hér á landi.
Aðalfundur FÍS lýsir yfir
áhyggjum vegna ummæla mennta-
málaráðherra í ijölmiðlum undan-
farna daga og vikur um fyrirhugað-
ar breytingar á starfsemi Náms-
gagnastofnunar.
Fundurinn bendir á að það hafi
tekið mörg ár að koma á útgáfu
námsefnis og verði þeirri jákvæðu
þróun sem átt hefur sér stað stefnt
í óvissu m.a. vegna lítillar markaðs-
hlutdeidlar námsefnis fyrir sér-
kennslunemendur.
Fundurinn varar við því að þjón-
usta Námsgagnastofnunar verði á
nokkurn hátt skert eða hún aflögð
án þess að tryggt verði að skóla-
nemendum verði séð fyrir námsefni
og námsgögnum við hæfi.
(Fréttatilkynning)
Frá opnun leikskólans.
Morgunblaðið/Sveinn Guðmundsson
Leikskólinn Hólabær tekinn til
starfa á Reykhólum
Miðhúsum.
LEIKSKÓLINN Hólabær var tekinn í notkun við hátíðlega athöfn
laugardaginn 17. október sl.
Leikskólinn er um 130 fm að
grunnfleti og er í gamla skólahús-
inu. Húsnæðið er allt nýuppgert
og hið vistlegasta. Skólinn er vel
búinn tækjum og er heilsdags-
skóli þar sem börnin fá mat í
hádeginu úr mötuneyti Reykhóla-
skóla.
í byrjun verða 13 börn í leik-
skólanum en fæst eru allan dag-
inn.
- Sveinn.
Morgunblaðið/Kristinn
Tveir af eigendur Brúðuhússins í versluninni, Ragnheiður Sigur-
jónsdóttir og Halldóra Gunnarsdóttir.
Verslun með smækkuð hósgögn
NÝLEGA var opnuð verslun Brúðuhúsið að Laugavegi 92 (við
hliðina á Sljörnubíói). í Brúðuhúsinu gefur að líta smækkaða
mynd af raunverulegu heimili. Þar fást hús, húsgögn, húsbúnað-
ur og brúður - allt í smækkaðri mynd.
Verslunin selur einnig muni Jóhannsdóttir og Ragnheiður Sig-
eftir íslenska handverks- og lista- uijónsdóttir. Verslunin er opin frá
kl. 10-18 virka daga og kl. 10-14
á laugardögum.
(Úr fréttetilkynningu)
menn. Eigendur verslunarinnar
eru: Halldóra Gunnarsdóttir,
Heiðrún Kristjánsdóttir, Linda
Samningar undirritaðir
Við opnun íþróttamiðstöðvar í Grafarvogi fyrir nokkru voru undirritað
ir samningar milli borgaryfirvalda og Ungmenna- og íþróttafélagsins
Fjölnis um rekstur íþróttamiðstöðvarinnar og stuðning Reykjavíkur-
borgar að upphæð 40 milljóna króna vegna framkvæmda á svæði fé-
lagsins. Samningana undirrituðu borgarstjóri Markús Örn Antonsson,
Guðmundur Kristinsson, formaður Pjölnis, Júlíus Hafstein, formaður
íþrótta- og tómstundaráðs, Árni Sigfússon, formaður Skólamálaráðs,
og Jón Eiríksson frá Fjölni.
Heimdallur
Fundur um samkeppni
á flutningamarkaði
HEIMDALLUR, félag ungra sjálfstæðismanna í Reykjavík, heldur op-
inn fund um hækkun farmgjalda íslensku skipafélaganna i Valhöll,
Háaleitisbraut 1, í kvöld kl. 20.30. Framsögumenn verða dr. Össur
Skarphéðinsson, formaður þingflokks Alþýðuflokksins, og dr. Hannes
Hólmsteinn Gissurarson, dósent i félagsvísindadeild Háskóla íslands.
í fréttatilkynningu frá Heimdalli
segir að tilefni fundarins sé ný-
afstaðin hækkun á farmgjöldum
skipafélaganna og ummæli ýmissa
stjómmálamanna vegna hennar.
Meðal annars hafi skipafélögin ver-
ið sökuð um óeðlilegt verðsamráð
og einokunartilburði í þessu sam-
bandi. Á fundinum í kvöld verður
meðal annars reynt að bregða ljósi
á þá þróun, sem hefur orðið á hinum
íslenska flutningamarkaði á undan-
fömum árum og greina á milli hug-
takanna „fákeppni" og „einokun".
Á eftir framsöguerindum verða
almennar umræður og þá gefst
Dr. Össur Dr. Hannes
fundarmönnum kostur á að bera
fram fyrirspumir eða koma með
athugasemdir. Fundurinn er öllum
opinn.
MÍR sýnir
Sunnudag
íVíti
KVIKMYNDASÝNING verður
að venju í bíósal MÍR, Vatnsstig
10, nk. sunnudag 1. nóvember
kl. 16.
Sýnd verður kvikmyndin Sunnu-
dagur í Víti sem gerð var í kvik-
myndaverinu í Vilníus áður en Lit-
háar sögðu skilið við Sovétríkin. í
myndinni er m.a. lýst vítisvist í
fangabúðum Þjóðverja á styijaldar-
áninum. Skýringartal á ensku. Að-
gangur öllum heimill.
(Fréttatilkynning)
Njálsborg
stækkuð
BORGARRÁÐ hefur samþykkt
breytingar á húsunum við Njáls-
götu 9 og Njálsgötu 11 ásamt
nýrri tengibyggingu.
Verða húsin og tengibyggingin
nýtt sem leikskóli og mun hann
rúma eftir breytingu 50 börn sam-
tímis, eða 100 börn í fjórar til sex
klukkustundir á dag. Áætlaður
kostnaður við tengibyggingu og
endurbætur á Njálsgötu 11 er 16
milljónir, búnaður er talinn kosta
3,5 milljónir og gerð lóðar 4 milljón-
ir.
Basar á Hrafn-
istu í Reykjavík
Á HRAFNISTU í Reylqavík er
nú unnið af krafti við undirbún-
ing á sölu handavinnu. Hér er
um að ræða árlega fjáröflun
vistfólks. Hver vistmaður fær
andvirði þeirra muna sem hann
hefur unnið og seldir verða fyr-
ir efniskostnaði.
Þama er um að ræða hvers
kyns handavinnu t.d. ofna borð-
dregla, stóra og smáa heklaða og
pijónaða dúka, trévömr, handmál-
aðar silkislæður, tauþrykkta dúka,
tilta skinnskó að ógleymdu úrvali
af pijónavörum.
Basarinn verður opinn frá kl.
13.30 til 17 laugardaginn 31. okt.
og kl. 10 til 15 mánudaginn 2.
nóv. á Hrafnistu Reykjavík.
(Fréttetilkynning)
Herstöðvarandstæðmgar
Atvinnuuppbygging komi í
stað samdráttar hjá hernum
SAMTOK herstöðvarandstæðinga
hafa sent frá sér ályktun, þar sem
segir m.a. að vegna samdráttar í
framkvæmdum á vegum hersins á
Keflavíkurflugvelli, hafi komið til
stórfellds atvinnuleysis á Suður-
nesjum.
I því sambandi krefst landsfund-
ur Samtaka herstöðvarandstæðinga
þess að stjórnvöld geri nú þegar
áætlun um atvinnuuppbyggingu á
Suðumesjum i kjölfar samdráttar-
ins hjá herliðinu. Meðal þátta, sem
taka verður afstöðu til er að tryggja
þarf þeim vinnu, sem unnið hafa
þjá hernum eða laun til frambúðar.
Þá vilja herstöðvarandstæðingar að
eignir íslenskra aðalverktaka verði
gerðar upptækar og andvirði þeirra
nýtt til uppbyggingar nýrra atvinn-
ugareina á Suðumesjum og loks
að gerð verði heildaráætlun um
hreinsun svæðisins.
hagstœð kjör, langur lánstími, sveigjanlegt lánshlutfall, margir
gjaldmiðlar
IÐNÞROUNARSJOÐUR
Kalkofnsveqi 1 150 Revkjavík sími: (91) 69 99 90 fax: 62 99 92