Morgunblaðið - 30.10.1992, Síða 34
34
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992
Fundur KRFÍ um konur í breyttri Evrópu
Samningiirinn um EES
kemur konum til góða
SAMNINGURINN um evrópskt
efnahagssvæði, EES, snýst um
viðskipti fyrst og síðast og verður
íslensku atvinnulífi lyftistöng
hljóti hann samþykki hér. Þar
með njóta konur, karlar og krakk-
ar góðs af honum. Um þetta voru
ræðumenn á fundi Kvenréttinda-
félags íslands nýlega um konur í
nýrri Evrópu sammála.
Valgerður Bjamadóttir hagfræð-
ingur í Brussel leiddi rök að hvemig
fjórfrelsið svokallaða gæti nýst ís-
lenskum fyrirtækjum, ýtt undir hag-
vöxt og bættan efnahag sem nauð-
synlegur væri til að sinna betur
mannlegum verðmætum og bægja
frá atvinnuleysi og landflótta. Hún
sagði stöðu konunnar margslungið
vandamál og taldi lög að takmörk-
uðu leiti geta tryggt jafnrétti kynj-
anna. En Bima Hreiðarsdóttir fram-
kvæmdastjóri Jafnréttisráðs rakti
hvemig reglur EES samningsins og
framkvæmd þeirra gætu greitt fyrir
jafnrétti á vinnustöðum.
Ara Skúlasyni hagfræðingi ASÍ
þótti miður hvemig EES hefði orðið
pólitískt bitbein stjómmálaflokka á
kostnað umijöllunar um efni samn-
ingsins og afleiðingar. Hann nefndi
hópuppsagnir og rétt lau'nþega við
eigendaskipti fyrirtækja til dæmis
um hvar samningurinn myndi knýja
fram brejtingar til betra horfs.
Lilja Olafsdóttir sendiráðunautur
í Genf sagði að konur hefðu mest
áhrif á þróun Evrópumála með þátt-
töku í pólitík, þær yrðu að byija
heima en varast að festa sig í mjúku
málunum svokölluðu.
Hvers vegna eru konur með
ofnæmi fyrir efnahagsmálum?
„Konur í aðildarríkjum EFTA
hafa verið of uppteknar af mjúku
málunum," sagði Lilja Ólafsdóttir í
erindi sínu. „Störf í stofnunum
EFTA snúast fyrst og fremst um
viðskiptapólitík þótt félagsmál komi
einnig við sögu. Það eru einfaldlega
of fáar konur sem komnar eru með
næga reynslu eða hafa réttan bak-
grunn fyrir stöður eftirlitsfulltrúa
eða dómara þar. Lilja sagði mikla
þátttöku íslenskra kvenna í samn-
ingaviðræðum um EES hafa vakið
athygli. Þær ættu því góða mögu-
leika á embættum í þessum stofn-
unum.
mmm
{***'>*Wjt**
mm
Áhugaleysi ungra kvenna á sér-
stökum kvennamálum er að sögn
Lilju helsta vandamál þeirra sem
fást við kvenréttindamál innan Evr-
ópubandalagsins (EB). Hún sagði
þetta kunna að vera rétt, en ekki
hitt, að ungar konur hafí engan
áhuga á kvenréttindamálum. „Staða
þeirra er hins vegar allt önnur en
þeirra kvenna sem létu helst að sér
kveða þegar kvennapólitík var mest
í tísku," bætti hún við. „Nú hafa
ungar konur tækifæri og þær sem
velja að nota þau eru uppteknar upp
fyrir haus í að sanna gildi sitt á
sviðum sem áður voru einokuð af
körlum. í ofanálag bætast skyldur
við fjölskylduna. Þessar konur vinna
hörðum höndum að þvi að koma
markmiðum kvenréttindabaráttunn-
ar í framkvæmd bæði á vinnustað
og á heimilinu. Að mínu mati snýst
vandamál kvenna aðallega um gam-
aldags viðhorf til stöðu konunnar á
heimilinu og úti í þjóðfélaginu. Ekki
aðeins viðhorf karla til kvenna, held-
ur ekki síður kvenna til þeirra
sjálfra."
Lilja sagði skoðanakannanir sýna
að konur frekar en karlar væru á
móti EES-samningnum. Þær teldu
sig lítið vita um efni hans, væru
tregar til að ræða það og segðust
hræddar við afleiðingar hans og
nánari samruna Evrópuþjóða. Rit-
stjóri dagblaðs í Genf kvartaði að
hennar sögn nýlega yfír því í leiðara
að blaðakonur vildu helst ekki skrifa
um evrópska efnahagssvæðið. Við-
brögð þeirra væru oftast að þær
þyldu ekki að gæla við almenna
hugmyndafræði efnahagssamvinnu
en vildu fá skýr, afmörkuð verkefni.
Lilja sagði einungis þriðjung spyrj-
enda í sérstökum upplýsingasíma í
Sviss um EES vera kojiur og þær
vildu einungis vita um almanna-
tryggingar. „Ritstjórinn spyr ör-
væntingarfullur og ég tek undir,“
sagði hún, „hvers vegna eru konur
með ofnæmí fyrir efnahagsmálum?"
Opnar íslenskum
samgöngufyrirtækj um
möguleika sem aldrei fyrr
„Sú árátta að skipta málefnum í
kvennamálefni og karlamálefni vinn-
ur gegn hagsmunum kvenna,“ sagði
Valgerður Bjamadóttir. Hún kvaðst
ganga út frá að þeir fælust í að eiga
sömu möguleika og karlar, aðra en
líkamleg einkenni beinlínis ákvæðu,
en ekki neita því að sum mál snertu
konur meira. „En valdhöfum og lög-
gjafanum verður ekki kennt um það,
heldur miklu frekar uppeldinu og
venjum þjóðfélagsins sem ekki verð-
ur breytt með lögum," sagði hún.
„Sannast segja held ég að við kven-
frelsiskynslóðin höfum staðið okkur
verr en hið opinbera í að tryggja
jafnrétti, ekki síst með uppeldi sona
okkar sem mér virðast upp til hópa
síst minni karlrembur en feður þeirra
voru.“
Valgerður sagði EES-samninginn
geyma ákvæði um jafnrétti kvenna
og karla til vinnu, launa og mögu-
leika á starfsframa en að öðru leyti
kæmi hann konum ekki frekar við
en fólki almennt. Einhvem tímann
hefði hún heyrt að þetta Evrópusam-
starf snerist allt um hagvöxt og
efnahag og viðkomandi hefði bætt
því við að sér væri nokk sama um
slíkan hégóma og vildi huga að
mannlegum verðmætum. En aug-
ljóst væri að þetta færi saman, ef
íslensk framkvæmdaskáld notfærðu
sér þau tækifæri sem EES-samning-
urinn byði upp á yrði hann gífurleg
lyftistöng fyrir íslenskt efnahagslíf
og þar með allt íslenskt fólk.
Valgerður sagði EFTA-þjóðirnar
einfaldlega vilja hlutdeild í þeim
efnahagsbata sem innri markaður
EB hefði í för með sér. Afnám alls
konar tæknilegra hindrana á við-
skiptum milli Evrópulanda væri
meginmarkmið innri markaðarins.
Það næðist með sameiginlegum lág-
marksreglum um framleiðslu, flest-
um vegna öryggis- og hollustusjón-
armiða. Að auki væri samið um einn
markað með þjónustu, fjármagn og
atvinnu.
Einn þjónustumarkaður opnar að
sögn Valgerðar íslenskum sam-
göngufyrirtækjum möguleika sem
aldrei fyrr. „Þau hafa tækin og
kunnáttuna en þurfa á evrópskan
mælikvarða einungis lítinn sérþarfa-
markað til að geta blómstrað ein og
sér eða á stærri mörkuðum í sam-
vinnu við aðra.“
Réttindamál launþega í betra |
horf vegna EES
Alvarlegt er að áliti Ara Skúlason- .
ar hvað EES-málið hefur blandast '
mikið inn í almennt dægurþras
stjómmálamanna á kostnað efnis-
legrar umfjöllunar. Hann sagði mál- I
ið ekki snúast um stjómarskrár-
spuminguna þótt hún væri mikil-
væg. Það einfaldaði ekki myndina
að meirihluti flokka á Alþingi hefði
skipt um skoðun á EES við ríkis-
stjórnarskiptin í fyrra þó að næstum
ekkert hefði breyst efnislega í mál-
inu.
Ari kvað fólk ekki vita mikið um
efni samningsins þrátt fyrir að tals-
vert hefði verið gert til að kynna
það. EES tæki yfír mun afmarkaðra
svið en margir héldu. Samkomulagið
snerti til dæmis ekki sjávarútvegí
landbúnað, skatta, menntun, trygg-
ingar eða heilbrigðismál. Þáttur
EFTA-ríkjanna í fjórfrelsi EB-landa j
í viðskiptum væri aðalefni samnings-
ins og stefnt væri að auki að sam-
ræmingu ýmissa hliðarmála á evr- i
ópska efnahagssvæðinu. Þetta væm '
félags- og neytendamál, öryggis- og
aðbúnaðarmál á vinnustöðum. ,
Ari sagðist ekki mótmæla því að '
möguleikinn á vinnu utan heima-
lands gæti nýst körlum betur en
konum, meðal annars vegna þess
að atvinna karla ákvarði frekar bú-
setu þar sem þeir hafí hærri laun.
„Það liggur nokkuð Ijóst fyrir að
þeir sem einkum geta nýtt sér þessa
möguleika em þeir betur menntuðu,
einkum háskólafólk og kannski kon-
ur í minna mæli. En nú er staðan
hér innanlands orðin sú að mun fleiri
konur en karlar stunda háskóla-
nám... Má því spytja hvort ákvæði
SIGUNGASKÓLINN
30 RÚMLESTA
RÉTTINDANÁMSKEIÐ
hefst mánudaginn 2. nóv.
Kennt er eftir námsskrá
menntamálaráðuneytisins.
Kennt er á mánudags-
og miðvikudagskvöldum
frá kl. 7-11.
Námskeiðsgjald er kr. 20.500.-
Ef tveir eða fleiri eru úr
sömu fjölskyldu, sem og ef
3 eða fleiri innritast saman,
er gefinn 10% afsláttur.
Öll námsgögn fást í skólanum.
Upplýsingar og innritun í
síma 91 - 68 98 85 og 3 10 92.
alla daga og öll kvöld.
Lýsing á öllum námskeiðum
sem skólinn býður er send þeim sem þess óska.
SIGUNGASKÓUNN ,
- meðlimur i Alþjóðasambandi siglingaskóla, ISSA
Verkamannafélagið Hlíf
Núverandi fiskveiðistjómun '
ógnar tilvem byggðarlaga '
FUNDUR haldinn í stjórn Verkamannafélagsins Hlífar fimmtudag-
inn 15. október 1992 ályktar að núverandi fiskveiðistjórnun og
útflutningur á óunnum ferskum fiski frá landinu ógni tilveru
margra byggðarlaga vítt og breitt um landið og ýti undir atvinnu-
leysi.
Helstu fískistofnar okkar ís-
lendinga eru fullnýttir og tak-
marka verður veiðar úr þeim. Það
er því mjög mikilvægt að fullvinna
sem mest af aflanum hér heima í
stað þess að senda hann í tugþús-
undum tonna óunninn úr landi.
Þá hefur frystitogurum fjölgað
verulega og hluti fískvinnslunnar
færst út á sjó.
Brýna nauðsýn ber til að endur-
skoða þessi mál sem fyrst með
tilliti til hagsmuna allrar þjóðar-
innar. Við þá endurskoðun verða
m.a. eftirfarandi breytingar að
koma fram: Að útflutningur á
óunnum ferskum fiski sé bundinn
því skilyrði að hérlendis sé á sama
tíma nægilegt hráefni til vinnslu;
að krókveiðar verði frjálsar ef afl-
inn fer til vinnslu hérlendis og að
frystitogurum verði kerfisbundið
beint á djúpslóð, úr veiðum á
þorski og ýsu, til betri nýtingar á
vannýttum fískistofnum.
Fundurinn leggur áherslu á að
fiskistofnarnir við landið eru sam-
eign allrar þjóðarinnar og setja
verður strangar reglur til að nýt-
ing þeirra verði okkur öllum til
hagsbóta. Fiskikvótar eiga ekki
að ganga kaupum og sölum um
landið þvert og endilangt þannig
að íbúar heilu byggðarlaganna séu
sviptir lífsviðurværi sínu. Koma
verður í veg fyrir brask nokkurra
sægreifa með þessa mestu auðlind
okkar. Fiskistofnunum á ekki að
ráðstafa af gróðasjónarmiðum
fárra, heldur eiga hagsmunir og
velferð þjóðarinnar að sitja þar í
fyrirrúmi.
(Fréttatilkynning)
-------é-4—*-------
■ HUÓMSVEITIRNAR T-
World, Reptilicus og Inferno-5
bjóða í kvöld, föstudaginn 31. októ-
ber, til hljóðveislu á veitingastaðn-
um Hressó. Reptilicus, sem er skip- (
uð þeim Guðmundi Inga Markús-
syni og Jóhanni Eiríkssyni er að
gefa út sína aðra plötu um þessar |
mundir hjá World Sperpent. T-
World, dansdúettinn góðkunni frá
Eldborgarhátíðinni, verður einnig (
með nýtt efni. Inferno-5 lýkur svo
dagskránni að sínum hætti með
hljóð-, sjón-, trans- og danstónlist
sinni.