Morgunblaðið - 30.10.1992, Page 35
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992
35
EES-samningsins um frjáls atvinnu-
og búseturéttindi verði ekki einkum
til að tryggja rétt íslenskra kvenna
í framtíðinni.*1
Ari nefndi ný lagafrumvörp í
tengslum við EES sem bættu stöðu
íslenskra launþega við hópuppsagnir
og eigendaskipti fyrirtækja. Þarna
hefðu konur átt meira undir högg
að sækja en karlar. „Annað dæmi
um mál þar sem við höfum fengið
rök upp í hendurnar vegna EES-
samningsins er spurningin um ríkis-
ábyrgð á launum vegna gjaldþrota
fyrirtækja...í baráttu okkar við ríkis-
stjórnina hefur tilskipun EB um
þessi mál verið okkar aðalvopn og
niðurstaðan varð sú að áform stjórn-
valda um að rýra þennan rétt mikið
náðu ekki fram að ganga.“
íslensk jafnréttislög þarf að
endurskoða frá grunni
Birna Hreiðarsdóttir sagði því
fljótsvarað hvar jafnréttismál kæmu
inn í fjórfrelsið svokallaða, áhersla
hefði verið lögð á það innan Evrópu-
bandalagsins að tryggja jafnrétti
kynjanna á vinnumarkaðnum. í
starfi ýmissa alþjóðastofnana að
jafnréttismálum liggi þrennt eins og
rauður þráður: Jöfn laun kvenna og
karla fyrir sambærilega vinnu, betri
samræming atvinnu bæði karla og
kvenna við fjölskyldulíf, til dæmis
með sveigjanlegum vinnutíma,
auknu fæðingarorlofl og fleiri dag-
vistarheimilum, og tímabundnar
áætlanir til að vinna gegn ákveðnum
þáttum misréttis.
Birna sagði íslensk jafnréttislög-
um segja að stjórnvöld skuii tryggja
konum og körlum jafna möguleika
til atvinnu og menntunar og að þeim
beri jöfn laun og sömu kjör fyrir
sambærilega vinnu. Hún las upp
119. grein Rómarsáttmálans, nokk-
urs konar stjórnarskrá EB, sem svip-
ar mjög til jafnlaunaákvæðis ís-
lensku jafnréttislaganna.
Birna sagði 119. greinina hafa
legið nokkurn veginn óhreyfða í
fimmtán ár frá setningu sáttmálans
1957, hún hefði lítið verið kynnt í
aðildarlöndum Evrópubandalagsins
og dómstólar hefðu nær ekkert beitt
henni. Þetta hefði síðan breyst,
margir dómar byggðust á reglunni
um jöfn laun til beggja kynja og hún
væri talin ná yfir hvers konar
greiðslur til starfsmanna, samnings-
bundnar eða ekki, laun og eftirlaun,
bíla- og fatapeninga. „Sýnir þetta
svart á hvítu að lagasetning dugir
ekki ein sér, umræða verður að eiga
sér stað og vekja fólk til umhugsun-
ar um rétt sinn.
En þetta ákvæði nær ekki einung-
is yfír beina mismunun, heldur einn-
ig óbeina, dulda mismunun og er
það sjónarmið flestra að það verði
mál málanna á næstu árum,“ sagði
Birna. Hún sagði það óbeina mis-
munun þegar ókynbundið ákvæði,
til dæmis í lögum eða kjarasamn-
ingi, kæmi í reynd öðru kyninu frek-
ar til góða en hinu.
Þessu til skýringar rakti hún dóm
Evrópudómstólsins frá 1981 þar sem
fallist var á þá skoðun konu að nafni
Weber að um óbeina mismunun
kynja væri að ræða af hálfu vinnu-
veitandans, vöruhússins Bilka Kauf-
haus. Aðeins þeir sem höfðu unnið
15 ár af 20 í fullu starfi við vöruhús-
ið áttu rétt á eftirlaunum, en frú
Weber var í hlutastarfi og hafði
engan rétt. Þetta vildi hún ekki
sætta sig við og taldi brotið á 119.
grein þar sem mun líklegra væri að
karlmaður en kona uppfyllti skilyrð-
ið um fullt starf vegna hefðbundinn-
ar ábyrgðar kvenna á uppeldi barna
og heimilishaldi.
Birna sagði að 119. grein Rómar-
sáttmálans væri tekin næstum orð-
rétt í 69. grein samningsins um
EES. En þar sem ákvæðin þijú hefðu
sama megininntak mætti spyija
hvort 4. grein íslensku laganna dygði
ekki til að koma í veg fyrir launamis-
munun hér. Því væri til að svara að
dómsúrlausnir á grundvelli greinar
Rómarsáttmálans væru mun strang-
ari en hér hefði tíðkast og tilskipan-
ir EB meira afgerandi en ákvæði
j afnréttislaganna.
Birna nefndi kæru kvenna í Álver-
inu í Straumsvík til Jafnréttisráðs
árið 1988. Þær kvörtuðu yfír að
karlar í sambærilegum störfum
fengju hærri laun en þær og klofn-
aði ráðið í afstöðu sinni. Meirihlutinn
taldi 4. grein jafnréttislaga of óljósa
og reglugerð þyrfti en minnihlutinn
sagði ekki sýnt að kjarasamningar
hefðu verið brotnir. Birna sagði
vafalaust að ef mál sem þetta kæmi
upp eftir að samningurinn um EES
gengi í gildi yrði ákvæði íslensku
laganna túlkað I samræmi við hvem-
ig reglu Rómarsáttmálans, sem tek-
in er upp í samninginn, hefði verið
beitt. Þannig yrði ekki hægt að
skjóta sér bak við að ekki bæri að
hrófla við kjarasamningi.
Birna kvaðst telja óhjákvæmilegt
að endurskoða jafnréttislögin frá
grunni ef gengið yrði í hið evrópska
efnahagssvæði. Þá sagði hún að
ýmis ákvæði laga um félagsleg rétt-
indi virtust frekar sniðin að þörfum
karla en kvenna. Til dæmis væri 14.
grein laga um réttindi og skyldur
opinberra starfsmanna að hennar
mati skýrt dæmi um óbeina mismun-
un kynja. Greinin segði til um rétt
á biðlaunum ef staða er lögð niður,
í hálft ár hafi ríkisstarfsmaður unn-
ið skemur en fímmtán ár en heilt
ár annars. Með sömu rökum og í
máli Weber sem fýrr er rakið sagði
hún líklegra að karlmaður hefði
unnið sér rétt til árs biðlauna.
Þótt stærstu vankantamir hafi
verið sniðnir af landslögum áður en
samningurinn um EES var lagður
fyrir Alþingi væri mikið starf til
úrbóta óunnið.
Áfengis varnaráð
Lýsir vanþoknun á
„hátíð til heiðurs hóf-
lausri bjórdrykkju“
MORGUNBLAÐINU hefur borist
aráði sem samþykkt var á fundi 21
„Áfengisvarnaráð lýsir vanþóknun
sinni á svokallaðri hátíð til heiðurs
hóflausri bjórdrykkju og telur kald-
hæðnislegt að á sama tíma og hún
er haldin dynja yfir alls kyns hörm-
ungar af völdum áfengisdrykkju.
Með því að heimila slíka starfsemi
er verið að ganga erinda þeirra
gróðaafla er hag hafa af sem mestri
vímuefnaneyslu um leið og brugðið
er fölskum dýrðarljóma á einn mesta
bölvald okkar tíma. Þarna er um að
ræða ekki einasta beinar áfengisaug-
lýsingar af ósvífnasta tagi heldur
auglýsingaherferð og þarf varla að
minna á að samkvæmt landslögum
er bannað að auglýsa áfengi.
Vítavert er að lögregluyfirvöld
skuli hafa látið undan tillitsleysi,
ágengni og frekju bjórbruggara.
i alyktun fra Afengisvam
október sl.:
Áfengisvamaráð minnir á þá stað-
reynd að 99% þeirra sem neyta ólög-
legra vímuefna hafa byijað á neyslu
bjóra eða annars áfengis. Bjór„hátíð-
ir“ sem þessi eru því bein ávísun á
hvort tveggja: Aukna áfengisdrykkju
og enn meiri og almennari neyslu
ólöglegra vímuefna en nú er.
Hörmulegur eru sá tvískinnungur
og það ábyrgðarleysi sem birtist í
því að ýmsir fjölmiðlar og einstakl-
ingar hafa hampað þessari sölu- og
auglýsingastarfsemi án þess að setja
hana í eðlilegt samhengi við hörm-
ungaratburði líðandi stundar.
Væntir Áfengisvarnaráð þess að
framvegis verði að því gætt að fram-
fylgt sé Islenskum lögum í þessum
efnum sem öðrum.“
(Fréttatilkynning)
Boddíhlutir og lugtir
Mikið úrval í eftírtaldar bilreiðir ð
mjög hagstæðu verði:
BMW 300—500.
DAIHATSU
DATSUN
FORD
HONDA
LADA
MAZDA
MERCEDES BENZ
MITSUBISHI
NISSAN
OPEL
PEUGEOT
SUBARU
SUZUKI
TOYOTA
VOLKSWAGEN
VOLVO
W
BílavörubúÓin
lintemationall
Skeifunni 2, sími 81 29 44
Villibmðarhlaðborð
í hminu á Loftleiðum
Helgarnar 30. október til 1. nóvember, 6.-8., 13.-15.
og 20.-22. nóvember mun hlaðborðið í Lóninu svigna
undan villtum réttum frá kl. 19:00.
Heppnir gestir geta tekið flugið til London, Kaupmannahafnar eða Luxemborgar með
Flugleiðum, því eftir hverja helgi verður dregið um glæsilega ferðavinninga á Aðalstöðinni.
Villibráðarhlaðborðið nýtur geysilegra vinsælda og því er öruggara að panta borð strax
í síma 22321. Lifand^ggft . Verið velkomin.
HÓTEL LOFTLEIÐIR
Fylgist með útdrætti vinninga f Sterum og stærilæti á Aðalstöðinni kl. 13-15 á sunnudögum.
Forréttir:
Villibráðarseyði
Hreindýrapaté
Sjdvarréttapaté
Grafinn silungur
Aðalréttir:
Heilsteiktur hreindýravöðvi
Ofnsteikt villigces
Pönnusteikt lundabringa
Smjörsteikt rjúpubringa
Ofnsteikt önd
Hreindýrapottréttur
Eftirréttir:
Heit eplakaka
Ferskir ávextir
Ostar