Morgunblaðið - 30.10.1992, Page 38

Morgunblaðið - 30.10.1992, Page 38
38 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992 Minning Jakobína Jónsdóttír Walderhaug frá Lónkoti Fædd 19. október 1912 Dáin 21. október 1992 í dag kveð ég elsku ömmu mína hinstu kveðju. Amma varð áttatíu ára aðeins tveimur dögum áður en hún lést. Það er margs að minnast þegar litið er til baka. Amma var yndisleg kona sem vildi öllum vel. Það var gott að tala við ömmu, það var hægt að segja henni allt. Amma giftist afa ung og eignuðust þau tíu böm. Fyrsta bamið dó aðeins nokkurra vikna gamalt, þá var amma aðeins átján ára og svo fædd- ist yngsta bamið andvana. Hin átta bömin komust öll upp. Það hefur örugglega oft verið mikið að gera á heimilinu með öll bömin og ekki voru þá öll þau tæki sem fólki finnst ómissandi í dag til að létta undir heimilisstörfunum. Hún missti afa fyrir tuttugu árum ásamt dóttur þeirra sem dó af slysförum og voru þau jarðsett saman. Svo dó önnur dóttir þeirra fyrir átta árum. Já, lífíð hjá ömmu var ekki alltaf dans á rósum og mátti hún reyna sitt af hverju, en alltaf stóð hún upp þannig að manni fannst að hún gæti sigrað allar raunir lífsins. Ég hitti ömmu tvisvar í sumar. í fyrra skiptið er við vorum í sumarbústað í Varmahlíð í Skagafirði. Þá kom hún og var hjá okkur í nokkra daga. Það var mjög gaman að hafa hana, hún var svo hress andlega þó svo að líkamlega hafí hún verið illa far- in. Seinna skiptið var þegar haldið var upp á afmælið hennar síðustu helgina í ágúst. Það var haldið að Lónkoti í Skagafírði þar sem amma var fædd og uppalin. Þar vorum við komin saman næstum öll fjöl- skyldan og áttum saman mjög skemmtilega helgi. Amma fékk að sofa í gamla herberginu sínu frá því hún var stelpa og ég veit að henni fannst yndislegt að koma og gista í Lónkoti. Þetta var í síðasta skiptið sem ég sá ömmu. En núna hefur hún fengið hvfld- ina miklu og er í faðmi drottins síns. Ég þakka elsku ömmu minni fyr- ir allt sem hún gaf mér í lífinu og minningin um hana mun lifa að eilífu. Guðríður Walderhaug. Elskuleg móðursystir mín og vin- ur, Jakobína Jónsdóttir frá Lónkoti, lést í sjúkrahúsinu á Siglufirði 21. október síðastliðinn. Hún fæddist í Lónkoti í Sléttuhlíð í Skagafirði. Foreldrar hennar voru Jón Sveins- son, bóndi þar og Ólöf Baldvina Sölvadóttir. I Lónkoti lifði Jakobína sín æsku- og unglingsár, ásamt tví- burasystrum sínum, Sölvínu og Sveinsínu. Þær systur voru alla tíð mjög samrýndar og gaman var að heyra þær á góðri stundu rifja upp æskuminningarnar úr Skagafírði. Æskuslóðimar drógu þær til sín og ánægjulegt var þegar flestir nán- ustu afkomendur og tengdaböm Jakobínu hittust á haustdögum í Lónkoti og fögnuðu henni í tilefni af væntanlegu áttræðisafmæli hennar. Þar var Jakobína mætt þrátt fyrir veikindi sín. Hún gat stolt litið jrfír þennan stóra og mynd- arlega hóp, glaðst með þeim í síð- asta sinn og riijað upp langa ævi þar sem skin og skúrir hafa skipst á. Eiginmanni sínum, Andrési Wald- erhaug, kynntist Jakobína í föður- húsum, þar sem hann hafði ráðist í ráðsmennsku hjá Jóni bónda. Andrés var Norðmaður, fæddur í Álasundi. Hann var lserður bakari og starfaði lengst af sem slíkur. Þeim varð tíu bama auðið: stúlku- bam sem lést skömmu eftir fæð- ingu; Jónína Ólöf, var gift Hirti Gunnarssyni sem nú er látinn, býr í Hveragerði, þau eignuðust fjögur böm; Jóhann Severín, maki hans er Hulda Guðnadóttir, þau eiga fimm böm og em búsett í Reykja- vík; Halldóra Maiý, var gift Lárusi Helgasyni og eignaðist með honum sjö böm, síðar giftist hún Þóri Þóris- syni og eignaðist með honum eina dóttur, sambýlismaður Marýar er Halldór Æ. Þiðrandason, búsett í Ólafsfírði; Lillý Henný, nú látin, var gift Sigurði Guðnasyni og bjuggu í Keflavík, þau áttu fjögur böm; Alf Kasten, ókvæntur og búsettur á Ólafsfírði; Edda Minný, látin, lætur eftir sig fjögur böm; Ómar Bragi, ókvæntur og búsettur í Reykjavík; Elsa María, gift Eyjólfi Haukssyni, búsett í Lúxemborg, þau eiga fímm böm; yngsta bam þeirra Andrésar og Jakobínu fæddist andvana. Af- komendur Andrésar og Jakobínu t Móðir okkar, GUÐRÚN GUÐMUNDSDÓTTIR, Nóatúni 30, lést á Sólvangi í Hafnarfirði 28. október. Torfhildur Ingvarsdóttir, Svanhildur Ingvarsdóttir, Steinþór Ingvarsson, Jóna Ingvarsdóttir, Guðmundur V. Ingvarsson. t Hjartkær eiginmaður minn, ÞORSTEINN SIGURÐSSON, Birkivöllum 18, Selfossi, er andaðist á heimili sínu 19. október, verður jarðsunginn frá Selfosskirkju laugardaginn 31. október kl. 13.30. Guðrún Valdimarsdóttir. t Útför föður okkar, RAFNS SIGURÐSSONAR, Bröttugötu 6, Borgarnesi, verður gerð frá Borgarkirkju laugardaginn 31. október kl. 14.00. Sigrún Rafnsdóttir, Signý Birna Rafnsdóttir, Ævar Andri Rafnsson. munu nú vera 73. Andrés lést 17. maí 1972. Nóttína eftir lát hans átti sér stað sá hörmulegi atburður að dóttir þeirra hjóna, Edda Minný, fórst í bflslysi. Það má nærri geta hvað slíkir atburðir hafa reynt á Jakobínu, en hún stóð jafnan sem klettur, hvað sem á gekk. Þar var trúin hennar styrkur. Líf þeirra Andrésar og Jakobínu var ekki alltaf dans á rósum. Heim- ili þeirra var íjölmennt og það hefur ekki verið létt verk á þeim tíma að taka sig upp og flytja frá einum stað til annars vegna atvinnu Andr- ésar. Lengst bjuggu þau á Ólafs- fírði, einnig í Keflavík og síðast í Reykjavík. Um skemmri tíma var heimili þeirra einnig á Siglufírði, Dalvík og Akureyri. Jakobína var vel af guði gerð og glæsileg kona á sínum yngri ámm. Velferð bama, tengdabama og ann- arra ættingja var henni efst í huga og hún gladdist innilega þegar vel gekk og tók þátt í erfiðleikum ann- arra. En hún hafði fengið sinn skammt af erfíðleikum lífsins, en hún lét aldrei bugast. Hún missti tvö bama sinna, það elsta og yngsta, stuttu eftir fæðingu, og missti tvær elskulegar dætur sínar í blóma lífs- ins, Eddu eftir hörmulegt bifreiða- slys eins og áður sagði, og Lillý af ólæknandi sjúkdómi. Ég á Jakobínu margt og mikið að þakka. Á þeim tíma sem ég dvaldi í Reykjavík og bjó á Eiríksgötunni hjá þejm Andrési, kynntist ég henni mjög vel og reyndist hún mér sem hin besta móðir. Það var gaman og gagnlegt fyrir mig unglinginn, að ræða við hana og kynnast viðhorfum Minning Magnús Magnússon Fæddur 25. apríl 1909 Dáinn 21. október 1992 Það er oft fagurt á haustdögum er grösin eru að sölna og haustlit- imir rauðir og gylltir koma fram, þá er og gaman fyrir bóndann að fylgjast með kindum sínum koma frískar af íjalli og oft eru það fagn- aðarfundir því þarna mætast vinir eftir aðskilnað yfir sumartímann. Það var alltaf gaman að fylgjast með Magga er fór að líða að smöl- un að hausti, mikil eftirvænting í svip hans og fasi og stundum var hann dapur eftir fyrstu réttir því hún Móra eða Golsa höfðu ekki skilað sér. Oftast rættist nú úr bú- raunum og þá var stutt í bros og ýmsar sögur sagðar um blessaðar kindurnar. Hann eyddi nánast öllum frístundum í félagsskap kindanna sinna. Eftir vinnu var hann farinn í fjárhúsið og fóru þá einhverjir vinir hans með honum að gegna í Fjárborginni. Nú er Maggi vinur minn horfínn yfír móðuna miklu yfír í löndin þar sem grösin aldrei sölna. Ég er viss um að hann hefur alheimt sitt fé og það hefur allt fagnað honum við komuna. Maggi byrjaði að vinna fyrir Skógræktarfélag Reykjavíkur vorið 1958, þá starfaði hann sem sendi- bílstjóri og hefur síðan starfað hjá félaginu allt til þessa árs, seinast aðeins hálfan daginn og slitrótt seinustu ár vegna veikinda. Harkan og vinnuáhuginn voru svo mikil að á milli þess sem hann var á spítala kom hann til okkar og spurði mig hvort hann mætti ekki vera nokkra daga í viðbót, sem var auðvitað veitt. Maggi átti einstaklega gott með að umgangast ungt fólk, sem oft er mikið af hjá félaginu, og var ómetanlegt að hafa þvílíkan starfs- mann, sem alltaf var tilbúinn að rétta hinum ungu óþroskuðu og vankunnandi unglingum leiðsögn og aðstoð. Ég veit að það eru marg- t Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir og afi, ÓLAFUR H. JÓHANNESSON, Vogatungu 109, Kópavogi, lést í Borgarspítalanum 27. október. Dætur, tengdasynir og barnabörn. t Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengdafaðir, afi og langafi, ÓLAFUR ÓLAFSSON járnsmiður, Miðvangi 65, Hafnarfirði, verður jarðsunginn frá Fríkirkjunni í Hafnarfirði í dag, föstudaginn 30. október, kl. 13.30. Blóm og kransar vinsamlegast afþökkuð, en þeim sem vildu minn- ast hins látna, er bent á minningar- og styrktarsjóð Guðjóns Magnússonar og Guörúnar Einarsdóttur til styrktar Fríkirkjunni í Hafnarfirði. Dagbjört Guðjónsdóttir, Hrefna Ólafsdóttir, Bjarni Þráinsson, Gísli Ólafsson, Lilja Ólafsdóttir, Guðjón Ólafsson, María Gréta Ólafsdóttir, Katrín Sigurðardóttir, Ólafur Guðmundsson, Sigurlaug Hauksdóttir, Viðar Sverrisson, barnabörn og barnabarnabörn. hennar til manna og málefna. Það var eitthvað sem dró mig að þess- ari frænku minni. Hlýja hennar og kærleikur til annarra, ekki síst þeirra sem minna máttu sín, var ríkur þáttur í hennar fari. Gestrisni þeirra hjóna og hlýja var við brugð- ið þrátt fyrir þröngan kost á stund- um. Bros hennar og glaðværð gleymist seint. Við ræddum um til- gang lífsins, örlög manna og van- mátt mannsins gagnvart skapara sínum. Jakobína var trúuð kona en spurði jafnframt margra spurninga sem við fáum ekki alltaf svör við. Jakobína var greind kona og hlaðin mikilli lífsreynslu. Hún bjó greini- lega alla tíð að áhrifum úr foreldra- húsum, enda voru þau Jón og Ólöf sterkir uppalendur í bestu merkingu þess orðs. Guðstrú, skyldurækni og heiðarleiki var þeirra boðskapur, enda lifðu þau í samræmi við það. Síðustu ævikvöldin naut Jakobína kærleika og hlýju dótturdóttur sinnar, Helenu Svölu, sem búsett er á Siglufírði. Hún reyndist ömmu sinni sem besta dóttir. Ég votta eftirlifandi börnum, tengdabömum og öðmm ættingjum innilega samúð mína og bið guð að geyma minningu Jakobínu Jónsdótt- ur. Jón Þorvaldsson. ir, sem eiga honum gott upp að unna, og þakka honum fyrir leið- sögn og handleiðslu á sínum fyrstu vinnudögum. Maggi var sérstaklega stundvís og var ævinlega mættur fyrstur manna og kominn að vinnu. Seinni árin vann hann mest við að potta plöntur, flokka og klippa græðlinga og urðu allir hlutir að geta gengið hnökralaust. Maggi var hamingju- samur maður í einkalífí. Kona hans, Guðlaug Norðdal, var honum kær svo og fósturdóttir og ekki síst fóst- urdótturbörnin, sem hann hugsaði um eins og hans væm. Þetta allt lýsir hans innra manni, sem var heiðarleiki, trúmennska og mann- gæska heil og sönn. Ég þakka fyrir allt sem hann var okkar félagi og vinnufélögum sín- um. Það er fyrsti vetrardagur og geislar sólar farnir að styttast en við vitum að daginn lengir og bjart- ir dagar em framundan, líka í hans nýju heimkynnum. Villyádmur Sigtryggsson. ERFIDRYKKJUR Verð frá kr. 850- p E R L a n sími 620200 Sérfræðingar i l)lóiiiiiski‘(‘y(iiii>uni i ið <»lI (ipkifipri Skólavörðustig' 12, á horni Bergstaðastrætis, sími 19090

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.