Morgunblaðið - 30.10.1992, Side 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 30: OKTÓBER 1992
félk f
fréttum
Morgunblaðið/Eyjólfur M. Guðmundsson
Sandra Helgadóttir, Logi Helgason, Ragna Klara Magnúsdóttir,
Inga Sigrún Baldursdóttir, Arnar Halldórsson og Atli Már Guð-
mundsson.
HLUTAVELTA
Vilja börn Sophiu heim
Við viljum að böm Sophiu
Hansen komi aftur heim,“
sagði Ragna Klara Magnúsdóttir
sem ásamt 5 öðrum bömum
efndu til flóamarkaðar og hluta-
veltu í Vogum á Vatnsleysuströnd
til öflunar Qár til að styrkja Sop-
hiu í baráttu hennar fyrir að fá
dætur sínar heima frá Tyrklandi.
Krökkunum þykir leitt hvemig
komið er fyrir dætmnum sem er
haldið í Tyrklandi og móðirin fær
ekki einu sinni að hitta auk þess
sem þau telja að það sé farið illa
með stúlkurnar. Vegna þess að
Sophia þarf að fara reglulega til
Tyrklands hefur hún lent í fjár-
hagsvandræðum og vilja krakk-
amir því leggja henni lið, með
þeim 7-8.000 kr. sem þau söfn-
uðu, í von um að þessir peningar
komi að gagni í þessari erfiðu
baráttu og í von um að stúlkum-
ar komi aftur til móður sinnar.
- E.G.
20, sími 6234561
H E LGARTILBOÐ
Aspassúpa i
Sínnepsgljáður grísahryggur m/hrásalati,
steiktum parísarkartöflum og sósu.
Súkkulaðibúðingur.
Kr. 995,-
Alvöru steilcartilboð
alla daga vil«unnar
Nauta-, lamba- og grísasteikur 180 g
með grænu káli og 1000-eyjasósu, krydd-
smjöri, bökuðum og frönskum kartöflum.
Verð lcr. 790,-
Hádegisverðartilboð alla virlca daga
Súpa og brauð fylgir.
Hamborgari, franskar og kokteilsósa kr. 485,
Samloka, franskar og kokteilsósa kr. 485,-
Tex Mex réttur kr. 485,-
Salatdiskur kr. 485,-
Réttur dagsins kr. 585,-
Kaffi kr. 50.-
POPP
Jackson
ásældist
tign Presleys
Stórpopparinn Michael Jackson
kon\ fram í góðgerðarskyni á
MTV sjónvarpsrásinni fyrir
nokkru, nokkru áður en MTV veitti
árlegar viðurkenningar sínar til
tónlistarmanna í hinum ýmsu geir-
um. Sagt er að Jackson hafi aðeins
tekið í mál að koma fram ef hann
yrði kynntur með konunglegum
hætti, en hann telur sig vera kon-
ung poppsins í dag og jafnvel fyrr
og síðar.
Nokkuð þref varð vegna þessa,
því Jackson óskaði þess að vera
kynntur sem „Konungurinn", en
það þótti mörgum ganga guðlasti
næst þar sem Elvis heitinn Presley
haft tekið þá tign með sér í gröfina
og enginn fengi þá eftirsóttu nafn-
bót í dægurlagadeildinni. Eftir
töluvert japl jaml og fuður var
sæst á að Jackson yrði kynntur
sem„Konungur poppsinsl". Gekk
það eftir og virðist engan eftir-
mála hafa haft.
Morgunblaðið/Sverrir
ÞJONUSTA
Vígður til þjónustu
í Grenjaðarstað
Herra Ólafur Skúlason, bisk-
up íslands, vígði sr. Þóri
Jökul Þorsteinsson til þjónustu
í Grenjaðarstaðarprestakalli í
Dómkirkjunni á sunnudag. F.v.
eru sr. Sigurður Jónsson í Odda
og sr. Örn Friðriksson prófastur
á Skútustöðum, vígsluvottar,
næstir eru þeir sr. Þórir og hr.
Ólafur en þá sr. Kristján Valur
Ingólfsson rektor í Skálholti og
sr. Hjalti Guðmundsson Dóm-
kirkjuprestur sem einnig voru
vígsluvottar við athöfnina. Sr.
Hjalti þjónaði fyrir altari.
Michael Jackson.
MYNDLIST
Konfekt-
kassalist
Nýlegt málverk af Díönu prins-
essu hefur vakið mikið umtal
í Bretlandi. Málverkið, sem er eft-
ir David Hankinson, fyrrum sjól-
iðsforingi, sýnir Díönu klædda
bleikum síðkjól, með axlimar ber-
ar. Það eru sér í lagi myndlistar-
gagnrýnendur og listrýnar sem
hafa látið í sér heyra. Kallaði einn
þeirra myndina „konfektkassal-
ist“, sagði hana rusl sem ætti helst
heima utan á sælgætisöskju og
því engan veginn sýna prinsessuna
í réttu ljósi. Hafa íjölmargir kol-
lega hans tekið undir þessa gagn-
rýni. Ekki hefur þó verið hætt við
að hengja málverkið upp á áætluð-
um stað, Cornwall, sem er eitt
skipa drottningar.
Myndin umdeilda af Díönu prins-
essu.
BÆKUR
Bók Madonnu
veldur írafári
Nýjasta afurð poppstjörnunnar
Madonnu, kynlífsbók með
myndum af henni sjálfri fá-
klæddri, hefur valdið miklu írafári
allstaðar sem hún hefur verið fá-
anleg. Aldrei hefur byijunarupp-
Iag einnar bókar verið jafnstórt,
750.000 eintök. Seldust 100.000
eintök upp á einum degi í Bret-
landi.
SACHS
KÚPLINGAR í
BENZ
Framleiðendur BENZ og aðrir framleiðendur
vandaðra vöru- og fólksflutningabifreiða nota
SACHS kúplingar og höggdeyfa sem uppruna-
lega hluta í bifreiðar sínar.
Þekking Reynsla Þjónusta
ÞAÐ BORGAR SIG r Á| MJT I Ik I |k I
AÐ NOTA ÞAÐ BESTA! ■ Al L Wl N Hl
SUÐURLANDSBRAUT 8 • SfMI: 81 46 70 • FAX: 68 58 84
Útgáfa bókarinar hefur víða
valdið deilum. Sumar verslanir í
Bandaríkjunum neita að selja
hana, í Bretlandi er rætt að banna
sölu hennar en Frakkar og ítalir
taka henni opnum örmum og kepp-
ast við að kaupa hana.
Óhætt er að segja að markaðs-
setning bókarinnar hafí tekist von-
um framar. Það var vissulega með
ráðnum hug að Time-Warner
pökkuðu bókinni vandlega inn í
plast sem aðeins verður opnað með
skærum eða hníf og létu prenta
viðvörun utan á; Aðvörun! Aðeins
fyrir fullorðna! Allt er það hluti
af markaðsáætlun sem gengur út
á að gera bókina dularfulla og
spennandi og æsa þannig upp for-
vitni almennings.
Útgefendurnir gengu meira að
segja svo langt að viðskiptavinir
þeirra, bókaverslanirnar sjálfar,
fengu ekki að skoða bókina áður
en þeir pöntuðu. Á bókasýningu í
Bandaríkjunum í júní síðastliðinn
gátu kaupendur aðeins farið inn í
lítinn lokaðan bás þar sem þeim
Hollendingum þykir ekki mikið
til Madonnu koma, halda sig við
sínar eigin stjörnur í ljósbláa
geiranum.
voru sýndar aðeins örfáar blaðsíð-
ur úr bókinni. Engu að síður voru
pöntuð um 500.000 eintök af
fyrstu útgáfu í Bandaríkjunum
einum.
í flestum Evrópulöndum hefur
bókin einnig verið rifín út. í Bret-
landi komu fram kröfur á þinginu
um að hún yrði bönnuð og er það
mál enn til skoðunar hjá yfirvöld-
um. Sú umræða varð aðeins til
að auka á sölu bókarinnar. I
Frakklandi selst bókin einnig vel
þrátt fyrir hátt verð. í framhaldi