Morgunblaðið - 30.10.1992, Side 50
^50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FÖSTUDAGUR 30. OKTÓBER 1992
■ TOMISLA V Ivic stóð ekki und-
ir væntingum Benfica í Portúgal
og var látinn taka poka sinn í fyrra-
dag. Króatinn var fyrst ráðinn
þjálfari liðsins 1984 en hætti þá
eftir mánuð vegna ósamkomulags
um launamál. Hann gerði aftur
samning við Benfica s.l. vor og tók
við liðinu í ágúst, en hann'var áður
hjá Marseille í Frakklandi.
■ IVIC er annar þjálfarinn, sem
_ hefur verið látinn fara í portúgölsku
deildinni í vikunni. Búlgarinn Ra-
doslav Zdravkov var sagt upp hjá
Chaves, neðsta liðinu, í fyrradag.
■ NORSKI landsliðsmarkvörður-
inn Erik Thorstvedt stóð aftur í
markinu hjá Tottenham í vikunni
í sigrinum á Manchester City í
ensku deildarbikarkeppninni og
varði mjög vel.
■ THORSTVEDT er þó ekki ör-
uggur með sæti í liðinu á morgun
er Tottenham mætir Liverpool í
deildinni. Hann lék á miðvikudag
vegna meiðsla Ians Walker, en
allt bendir til að hann verði orðinn
heill á ný og standi jafnvel milli
stanganna.
" ■ NORÐMAÐURINN hafði ekki
leikið í aðalliðinu síðan Tottenham
tapaði 0:5 í Leeds í ágúst, þar til
á miðvikudag.
■ RAY Clemence þjálfari hjá
Tottenham segir félagið heppið að
vera með tvo góða markmenn. „En
fyrr á keppnistímabilinu ákváðum
við að Ian yrði aðalmaður og höld-
um okkur við það.“
■ ZVONIMIR Boban, Króatinn
hjá AC Milan, verður hugsanlega
með í fyrsta deildarlejk sínum í
vetur á sunnudag er efsta liðið fær
Tórinó, sem er í öðru sæti, í heim-
sókn.
■ RUUD Gullit og Frank Rijka-
ard, Hollendingarnir frábæru hjá
ítalska félaginu, eru báðir meiddir
og er líklegt að Roban leiki í stað
þess síðamefnda. Þá verða væntan-
lega Frakkinn Jean-Pierre Papin
og þriðji Hollendingurinn í herbúð-
um félagsins, Marco van Basten,
í fremstu víglínu.
■ EMILIO Mondonico, þjálfari
Tórinó, hvíldi þijá af lykilmönnum
liðsins í bikarleik vikunnar — úrugv-
æska framheijann Carlos Aguil-
era og miðjumennia Enzo Scifo,
. hinn belgíska og Gianluca Sordo,
fyrir átökin á sunnudag.
■ FRÖNSKU meistaramir í
Marseille leika í Sochaux í kvöld
í frönsku 1. deildinni án þriggja af
sterkustu mönnum liðsins. Vamar-
maðurinn Basile Boli er í þriggja
leikja banni, félagi hans í frönsku
landsliðsvöminni Bernard Casoni
er í eins leiks banni og sömuleiðis
þýski framheijinn Rudi Völler.
■ BOLI var upphaflega úrskurð-
aður í fjögurra leikja bann fyrir að
slá Jiirgen Klinsmann hjá Mónakó
í leik nýlega, en bannið var stytt
niður í þijá leiki nú í vikunni.
■ SPÆNSKA knattspyrnusam-
bandið hyggst rannsaka ólöglegar
greiðslur til leikmanna liðs Tene-
rife á lokadegi síðasta keppnistíma-
bils. Liðið var undir 0:2 gegn Real
Madrid en sigraði 3:2 sem gerði
það að verkum að Barcelona varð
meistari.
■ FYRIRLIÐI liðs Tenerife,
Antonio Hernandez „Tono“ og
samheiji hans Manolo Hierro hafa
viðurkennt að hafa tekið við pening-
um. „Tono“ sagðist hafa tekið við
peningum í plastpoka af manni sem
hann ekki þekkir og dreift þeim til
leikmanna.
■ FYRST kom fram í fréttum að
andvirði þess sem greitt var hefði
verið á bilinu 8 til 13 milljóna ÍSK.
En argentínski framheijinn Juan
Pizzi hjá Tenerife segir upphæðina
hafa verið undir 10 milljónum pe-
seta — um fimm milljónir ÍSK.
■ ANGEL María Villar, forseti
.spænska knattspymusambandsins,
segir málið mjög alvarlegt.
KNATTSPYRNA / V-ÞÝSKALAND
Eyjólfur settur Lothar
Mattháus til höfuðs?
Bayem Munchen sækir Stuttgart heim á Neckar-leikvanginn
Lothar Matthaus.
EYJÓLFUR Sverrisson verður í
sviðsljósinu á Neckar-leik-
vanginum í Stuttgart á morgun
þegar Bayern Miinchen kemur
þangað í heimsókn. Christoph
Daum, þjálfari Stuttgart, lét í
það skína í viðtali við Kickeri
gær að Eyjólfur fengi það hlut-
verk að hafa gætur á Lothar
Mattháus, fyrirliða þýska
landsliðsins.
Eg get ekki sagt með vissu hvaða
hlutverk ég fæ gegn Bayern.
Það kemur í ljós á fundi annað
kvöld [í kvöld) þegar við verðum
komnir saman á hótel,“ sagði Eyj-
ólfur í samtali við Morgunblaðið í
gærkvöldi. Uppselt er á leikinn fyr-
ir löngu. „Það verður gaman að
eiga við Bæjarana, en jafnframt
erfitt. Þeir eru mjög sterkir um
þessar mundir," sagði Eyjólfur, sem
hefur skorað mörk í tveimur síðustu
leikjum Stuttgart. „Ég mun að
sjálfsögðu reyna að bæta mörkum
við og það yrði gaman að skora
gegn Bayem."
Allra augu munu beinast að
Mattháus, sem er að verða fullkom-
laga góður eftir meiðsli á hné sem
hann hlaut í leik með Inter Milan
sl. vetur. „Ég finn ekki til og er
að ná fyrri styrk,“ sagði Mattháus
í viðtali í gær. Bayem Miinchen og
Frankfurt, sem gerðu jafntefli, 1:1,
í vikunni, em efst í Þýskalandi með
Eyjólfur Sverrlsson.
sextán stig, en Stuttgart er í sjö-
unda sæti með þrettán stig. Stuttg-
art hefur ieikið fimm leiki á Neckar-
leikvanginum á keppnistímabilinu
og unnið þá alla. Stuttgart, sem
vann Bayern 3:2 heima sl. keppnis-
tímabil, tapaði aðeins tveimur leikj-
um á heimavelli þá - gegn Mönc-
hengladback og Frankfurt. Leverk-
usen og Dortmund eru með fimmt-
án stig. Leverkusen getur skotist
upp á toppinn í kvöld, en þá leikur
félagið gegn Dynamo Dresden
heima.
KNATTSPYRNA / NOREGUR OG SVIÞJOÐ
Rosenborg vann tvöfaK
ROSENBORG frá Þrándheimi
sigraði Lilleström 3:2 í úrslita-
leik norsku bikarkeppninnar á
Ullevál-leikvanginum í Oslo
um helgina. Uppselt var á leik-
inn fyrir fjórum vikum og um
30 þúsund áhorfendur sáu
leikinn, þar af voru um 15
þúsund sem komu alla leið frá
Þrándheimi.
Leikurinn var mjög skemmtileg-
ur og spennandi á að horfa og
Erlingur
Jóhannsson
skrifar frá
Noregi
var sigurmark Rosenborgar skorað
á 93. mínútu leiks-
ins. Sigurinn var
fyllilega verðskuld-
aður því liðið var
betra í leiknum.
Nýlega tryggði Rosenborg sér sig-
ur í norsku úrvalsdeildinni og vann
því tvöfalt í ár. Árangur Rosen-
borgar í norsku knattspymunni á
undanförnum fimm árum er glæsi-
legur. Liðið hefur þrívegis unnið
tvöfalt, 1988, 1990 og 1992, en
Goran Sorloth, einn besti leikmað-
ur Rosenborg og norska landsliðsins.
1989 og 1991 varð liðið í 2. sæti
í deildinni.
Félaglð rekið með hagnaðl
Eftir að hálf atvinnumennska
var leyfð í norsku knattspyrnunni
fyrir nokkrum árum varð Rosen-
borg gert að hlutafélagi og félagið
hefur síðan verið rekið sem fyrir-
tæki. Reksturinn hefur gengið
mjög vel og til marks um það er
Rosenborg eina félagið í úrvals-
deildinni sem rekið er með hagn-
aði. Þessi velgengni hefur gert fé-
laginu kleift að kaupa marga af
bestu knattspymumönnum Noregs
og í dag era 7 af leikmönnum liðs-
ins í norska landsliðinu, sem hefur
náð mjög góðum árangri að undan-
förnu. Stærsti styrktaraðili félags-
ins er stórfyrirtækið Elkem sem
hefur styrkt félagið um 10 milljón-
ir norskar á ári hveiju. Þetta fyrir-
tæki á meðal annars stóran hluta
í jámblendiverksmiðjunni á Grund-
artanga.
Lukkudísimar með AIK
Stokkhólmsfélagið AIK tryggði
sér Svíþjóðarmeistaratitilinn í
fyrsta skipti í 55 ár, eða síðan árið
1937, þegar félagið
vann Malmö FF,
3:2, á útivelli um sl.
helgi. Félagið er vel
að meistaratitlinum
komið, þar sem leikmenn AIK hafa
leikið skemmtilega sóknarknatt-
Sveinn
Agnarsson
skrifar
frá Svíþjóð
spymu.
Það er þó ekki hægt að loka
augunum fyrir því að heppnin var
á bandi AIK og lukkudísimar vöktu
vel yfir leikjum liðsins í lokabarátt-
unni. AIK skoraði fyrsta markið í
leiknum gegn Malmö FF, en síðan
tóku heimamenn leikinn í sínar
hendur, en þrátt fyrir látlausa sókn
vildi knötturinn ekki í netið hjá
AIK. Tvisvar strauk knötturinn
stöngina, einu sinni hafnaði hann á
slánni á marki AIK, eitt sinn skaut
leikmaður Malmö-liðsins yfir mark
af markteigslínu og eitt sinn bjarg-
aði varnarmaður AIK á marklínu.
AIK skoraði, 0:2, í seinni hálf-
leik, en leikmenn Malmö FF náðu
að jafna, 2:2. Þó svo að leikmönnum
AIK nægði jafntefli drógu þeir sig
ekki í vöm, heldur sóttu. Áður en
þeir skoruðu sigurmarkið, 2:3, skall
hurðin nær hælum á marki þeirra.
Leikmaður Malmö átti skot sem
hafnaði á stönginni innanverðu -
þaðan fór knötturinn í markvörð
AIK og af honum aftur í stöngina
og þaðan svo i fang hans.
Nörrköping hafnaði í öðru sæti
og Öster í því þriðja. Þessi lið ásamt
Trelleborg, Malmö FF, IFK Gauta-
borg, Örebro, Halmstad, Hácken
og Brage eru örugg með sæti í
úrvalsdeildinni næsta ár en þau lið
sem leika um fjögur laus sæti eru
Djurgárden - Degerfors, GAIS -
Örgryte, Helsingborg - IFK Sund-
svall og Luleá - Frölunda.
ENGLAND
Tottenham
Þorvaldur Örlygsson og fé-
lagar hans hjá Nottingham
Forest mæta Tottenham í 16-
liða úrslitum ensku deildarbikar-
keppninnar. Forest fær heima-
leik. Annars var drátturinn
þannig:
Sheff. Utd. eða Liverpool - C. Paiace
Plymouth eða Scarborough - Derby eða
Arsenal
Cambridge - Oldham
Everton eða Wimbledon - Chelsea
Sheffield Wed. QPR
Nottingham Forest - Tottenham
Aston Villa - Ipswich
Blackburn - Watford eða Leeds
FELAGSLIF
Afmælishóf Keilis
í tilefni 25 ára afmælis Golf-
klúbbsins Keilis býður stjórn
klúbbsins öllum félögum í afmælis-
hóf á morgun, laugardag, í golfskál-
anum að Steinholti 1 milli kl. 17
og 19.
Haustfagnaður Stjörnunnar
Haustfangaður Stjörnunnar verður hald-
inn í Stjömuheimilinu á morgun, laugar-
dag, kl. 19. Miðar eru seldir í Stjömuheimil-
inu í síma 651940.
Uppskeruhátíð Fram
Árleg uppskeruhátið knattspyrnudeildar
Fram verður haldin í Framheimilinu mánu-
daginn 2. nóvember kl. 18:00.
Uppskeruhátíð Víklngs
Uppskeruhátlð á vegum unglingaráðs
knattspymudeildar Vikings verður haldin á
morgun, laugardag, i hátíðarsal Víkings í
Víkinni milli kl. 14:00 og 16:00.
Sambandsþing fatlaðra
Sambandsþing íþróttasambands fatlaðra
fer fram á Hótel Ork dagana 30. október
til 1. nóvember. Þingið verður sett kl. 9.30
á laugardag.
Aðalfundur Vikings
Aðalfundur Knattspyrnufélagsins Vík-
ings verður haldinn í Víkinni miðvikudaginn
4. nóvember kl. 20.30.