Morgunblaðið - 09.10.1992, Qupperneq 1

Morgunblaðið - 09.10.1992, Qupperneq 1
72 SIÐUR B/C STOFNAÐ 1913 230. tbl. 80. árg. FOSTUDAGUR 9. OKTOBER 1992 Prentsmiðja Morgunblaðsins Borís Jeltsín lætur loka skrifstofu stofnunar Gorbatsjovs Gorbatsjov skammast sín fyrir yfirvöld Moskvu. Reuter. RÚSSNESK yfirvöld auðmýktu í gær Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrver- andi sovétforseta, með þvi að senda tugi lögreglumanna að skrifstofu- byggingu hans í Moskvu til að loka henni. „Lögreglan hefur lokað byggingunni rétt eins og hún væri njósnarabæli," sagði Gorbatsjov við blaðamenn fyrir utan bygginguna. „Ég skammast mín fyrir rússn- esk yfirvöld. Þetta gerist í landi sem valdhafarnir kalla lýðræðisland." Nokkrum klukkustundum áður en lögreglan var send á vettvang gaf Borís Jeltsín, forseti Rússlands, út tilskipun um að taka skyldi bygg- inguna af Gorbatsjov-stofnuninni Thatcher í viðtali Maastricht þýðir stjóm skriffinna New York. Reuter. MARGARET Thatcher, fyrr- um forsætisráðherra Bret- lands, ræðst harkalega að Maastricht-samkomulaginu, um pólitískan og efnahagsleg- an samruna Evrópubanda- lagsins (EB), í grein sem birt- ist í bandaríska tímaritinu Forbes á sunnudag en dreift var í gær. Thatcher segir Maas- tricht-sam- komulagið ganga í þveröf- uga átt við það sem æskilegt væri. Markmið leS* VæurÍ f Thatcher breyta banda- lagi, sem væri fyrst og fremst efnahagsbandalag, í evrópskt sambandsríki með sameiginleg- an ríkisborgararétt, gjaldmiðil og efnahagsstefnu. Þetta væri tilraun til að afnema lýðræðis- lega stjórn og koma á stjóm skrif- finna í staðinn. Bætti hún við að undir for- sæti Jacques Delors, forseta framkvæmdastjómar EB, yrðu 80% allra efnahagslegra ákvarð- ana Breta teknar í Brussel. Thatcher sagðist einnig óttast hið sameinaða Þýskaland. Væri hún þeirrar skoðunar að frelsi yrði einungis virt áfram í Þýska- iandi ef bandarískar hersveitir yrðu áfram í Evrópu. „Stóran hluta þessarar aldar hefur verið, reynt að byggja upp kerfi sem myndi halda völdum Þýskalands í skefjum. Staðan var önnur þeg- ar Þýskaland var klofið í tvennt og Kalda stríðið geisaði í Evr- ópu. Allt er breytt nú.“ Breski íhaldsflokkurinn held- ur um þessar mundir flokksþing sitt í borginni Brighton á Eng- landi og er talið að ummæli Thatchers muni koma John Maj- or, forsætisráðherra Bretlands og leiðtoga íhaldsflokksins, illa. svokölluðu, því nota ætti hana við þjálfun fjármálasérfræðinga. Gorb- atsjov-stofnunin gæti leigt smærra húsnæði. Þegar Jeltsín úthlutaði Gorbatsjov byggingunni í desember lagði hann áherslu á að hann vildi binda enda á þá sovésku hefð að ofsækja fallna leiðtoga. Ljóst er þó að forsetatilskipunin er svar Jeltsíns við gagnrýni Gorb- atsjovs á rússnesk stjómvöld að undanförnu, til að mynda þeim ummælum hans að forsetinn valdi ekki embætti sínu. Þremur strætisvögnum, fullum af lögreglumönnum, var ekið að byggingunni í gærmorgun. Síðar hurfu flestir lögreglumannanna af vettvangi en nokkrir urðu eftir við aðalinnganginn. „Þessi stjórn vill ekki þiggja ráð af neinum," sagði Gorbatsjov. „Þetta er svar Jeltsíns - „Við skul- um sýna þessum Gorbatsjov í tvo heimana!" Þeir eru að reyna að sanna eitthvað í stað þess að leysa vandamál Rússlands, samveldisins, umbótastefnunnar. Samveldið hef- ur reynst sápubóla, efnahagurinn er að hrynja, en þeir hlusta ekki á það sem fólk vill segja þeim.“ Auðmýktur og reiður Reuter Míkhaíl Gorbatsjov, fyrrverandi sovétforseti, ræðir við blaðamenn fyrir utan skrifstofu stofnunnar sinnar í Moskvu í gær. Var hann mjög reiður vegna þeirrar ákvörðunar Jeltsíns Rússlandsforseta að loka stofnuninni með lögregluvaldi og lýsa því yfír að húsnæðið yrði framvegis notað til að þjálfa upp fjármálasérfræðinga. Leiðtogafundur Samveldisríkja Deilt um kjamavopn á nýjan leik Bishek. Reuter. LEIÐTOGAR aðildarríkja Sam- veldis sjálfstæðra ríkja koma sam- an í Bishkek, liöfuðborg Kírgízíst- ans, í dag og búist er við miklum átakafundi. Blossað hefur upp deila að nýju milli Rússa og Úkra- ínumanna um kjarnavopn Sovét- rikjanna fyrrverandi og rússneska stjórnin hótaði því í gær að hætta að sejja öðrum lýðveldum olíu nema þau greiddu skuldir sínar við Rússa. Samveldisríkin eru nú aðeins tíu, því þing Azerbajdzhans hefur sam- þykkt úrsögn úr bandalaginu. Af 15 fýrrverandi Sovétlýðveldum gengu Georgía og Eystrasaltsríkin þrjú aldrei í samveldið. Jevgeníj Shaposhníkov, yfirmaður sameiginlegs herafla samveldisins, kvaðst ætla að leggja það til á leið- togafundinum í dag að Rússar fengju þegar í stað yfírráð yfir öllum kjarna- vopnum Sovétríkjanna fyrrverandi. „Það er ekki hægt að skilja svo hræðileg vopn eftir án yfírráða ákveðins ríkis,“ sagði hann. Konst- antín Morozov, vamarmálaráðherra Úkraínu, sagði hins vegar að ekki kæmi til greina að Úkraínumenn afsöluðu sér yfirráðum yfír kjarna- vopnum í lýðveldi sfnu fyrr en í lok ársins 1994. Spennan í samskiptum samveldis- ríkjanna jókst ennfremur þegar Vikt- or Tsjemomyrdín, orkumálaráðherra Rússlands, krafðist þess að önnur lýðveldi greiddu skuldir sínar við Rússa eigi síðar en á mánudag, ella yrði olíusölu til þeirra hætt. Samveld- isríkin fá því sem næst alla olíu sína frá Rússlandi og sum á mun lægra verði en gengur og gerist á heims- markaði. Stj órnmálamenn eru ekki rúnir öllu trausti segir Atli Dam lögmaður í samtali við Morgnnblaðið Þórshöfn. Frá Hirti Gíslasyni, blaðmanni Morgunblaðsins. FÆREYSKA landsstjórnin vinnur nú hörðum höndum að því að koma saman hallaláusum fjárlögum og hlíta þannig skilyrðum danskra sljórn- valda fyrir fjárhagsaðstoð. Samtök opinberra starfsmanna ákváðu í gær að hefja viku mótmælaverkfall á mánudag gegn fyrirhuguðum launalækkunum og fleiri stéttarfélög íhuga aðgerðir. Er Morgunblaðið ræddi við Atla Dam, lögmann Færeyja, í gær sagðist hann áljta að bankarnir hefðu verið óvarkárir í lánveitingum en auðvitað bæru sljórn- málamenn einnig ábyrgð á ástandinu. Atli minnti á að aflabrestur og lækkandi afurðaverð hefðu valdið þungum búsifjum en gjaldeyristekjur landsmanna koma nær eingöngu frá sjávarútvegi. Hann var spurður hvort færeyskir stjórnmálamenn væru nú ekki pólitískt gjaldþrota, rúnir öllu trausti. „Nei, það tel ég alls ekki. En auð- vitað er reynt að fínna blóraböggla og ástandið er erfítt þótt því fari fjarri að landið sé gjaldþrota. Fær- eyjabanki lenti í miklum erfiðleikum en því var bjargað með aðstoð dan- skra stjómvalda, vissulega fylgdu hörð skilyrði. En við getum unnið okkur út úr þessu. Ég minni á að landssjóður skuldar ekkert innan- lands og aðeins fjórðungur erlendu skuldanna er á ábyrgð hans.“ Atli sagði að frá 1989 hefði landssjóður ekki ábyrgst nein lán fyrir einkafyrir- tæki. Að sögn Sigurds Poulsen, banka- stjóra færeyska Þjóðbankans, skuld- ar landssjóður um 2.000 milljónir danskra króna í útlöndum [nær 20 milljarða ÍSK] og eru þá meðtaldar lánsábyrgðir hans vegna einkafyrir- tækja. Sveitarfélög eru ekki á ábyrgð þings og landsstjórnar, þau skulda samanlagt einnig um 2.000 milljónir. Skuldir einkafyrirtækja eru um 4.000 milljónir. Alls er erlendi skuldabagginn því um átta milljarðar en öll þjóðarframleiðsla á þessu ári er áætluð um sex milljarðar og út- flutningstekjur, sem hafa minnkað allra síðustu árin, um 4,5 milljarðar. Um 36% af útflutriingstekjum fara nú i að greiða vexti og afborganir af erlendum skuldum. Fjölmiðlar keppast við að fínna út hver beri ábyrgðina á því hvemig komið er í efnahagsmálunum. Þar fara blöðin fremst í flokki enda gef- in út af flokkunum. Allir virðast sam- mála um að eyðslusemi hafi komið mönnum í koll en sökudólgamir eru ýmist stjórnmálamenn eða forystu- menn í atvinnulífi og lánastofnunum. Blaðið 14. september, málgagn Þjóð- veldisflokksins, sem er í stjórnarand- stöðu, segir: „Flestir hafa áttað sig á því að þetta er rammasta alvara. Alþjóðlegi lánamarkaðurinn varaði við stöðunni í vor, fólk var farið að velta því fyrir sér hvenær áfallið kæmi. En í Þinganesi [aðsetri lands- stjórnarinnar] skildu menn ekkert. Og þeir þykjast enn ekkert skilja í þessu. Útvarpið ræddi við fjármála- ráðherrann, Jógvan Sundstein, og Atla Dam lögmann og þeir sögðu það sama og alltaf áður, að þetta gengi vel“. Málgagn Fólkaflokksins, sem Sundstein er í forystu fyrir, segir að lánastofnanir hafí „ausið peningum í hagkerfíð og flestir Færeyingar áttu sinn hlut i eyðsluseminni".

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.