Morgunblaðið - 09.10.1992, Page 26
2.6 „ MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1992
. ' ... ... ................ --í.. i 1 • r-
Síðasti harðjaxlinn
Kvikmyndir
Arnaldur Indriðason
Hinir vægðarlausu („Unforgiv-
en“). Sýnd í Bíóborginni. Leik-
stjóri og framleiðandi: Clint
Eastwood. Handrit: David Webb
Peoples. Kvikmyndataka: Jack
N. Green. Aðalhlutverk: Clint
Eastwood, Gene Hackman,
Morgan Freeman, Jaimz Woolv-
ett, Richard Harris.
Það eru fáir sem leggja út í að
gera vestra þessa dagana nema
Clint Eastwood og sannast sagna
ættu fáir aðrir að reyna það á
meðan haps nýtur við. Hinir vægð-
arlausu („Unforgiven") sýnir ekki
aðeins yfirburði hans sem vestra-
leikstjóra og vestraleikara hún get-
ur allt eins verið summan af hans
starfi í kvikmyndum og sérstaklega
vestrum. Hún er goðsagnakennd
frásögn af gömlum byssubófa og
manndrápara sem sest eina ferðina
enn í hnakkinn til að elta uppi mis-
yndismenn. Stærsta goðsögnin er
þó Eastwood sjálfur sem sest eina
ferðina enn í leikstjórastólinn, orð-
inn 62 ára gamall, og filmar vestra
sem er með því besta sem hann
hefur gert, móralskan og banvænan
um lokakippinn í síðasta harðjaxlin-
um. Myndin er afbragðsvel tekin í
haustlitunum sem á ekki aðeins vel
við efniviðinn sjálfann heldur líka
þá staðreynd að það er tekið að
hausta í lífi vestrans, Eastwoods
og reyndar flestra þeirra ágætis-
leikara sem hann hefur safnað sam-
an í myndina. Þeir eru Gene Hack-
man, sem leikur vafasaman lög-
reglustjóra í smábæ, Richard Harr-
is, sem leikur dráparann Enska-Bob
og Morgan Freeman, sem leikur
gamlann byssubófa og vin East-
woods. En það þýðir ekki að vestr-
inn sé daufari fyrir bragðið. Síður
en svo. Hann er þroskaður og vís
en líka hráslagalegur og grimmur
og miskunnarlaus rétt eins og gamli
dráparinn William Munny, sem
Eastwood leikur.
Það er líka tekið að hausta í lífi
Munnys. Hann er svínabóndi og
ekkjumaður með tvö börn og situr
á friðarstóli. Mörg ár eru síðan
hann snerti á byssu eða hellti í sig
brennivíni þegar hann fær tilboð
um að elta ofbeldismenn, sem skor-
ið hafa í andlit hóru nokkurrar.
Hórurnar hafa safnað saman fé til
höfuðs þeim og ungur byssumaður
(Jaimz Woolvett) vill fá Munny með
sér í eltingarleikinn. Munny er treg-
ur til en vantar sárlega peninginn
svo hann heldur af stað ásamt vini
sínum (Freeman) og saman ríða
þessir þrír á vit æfintýranna.
Nema hér er ekkert æfintýri á
ferðinni heldur iðrun Munnys og
eftirsjá og uppgjör við fortíð, sem
er langt í frá glæsileg. Og fleiri
dráp. A leiðinni fáum við að kynn-
ast fortíð hans í hálfkveðnum vísum
og hún er svört eins og opin gröf.
Munny var fullkomlega siðlaus of-
beldismaður og drápari, konu- og
bamamorðingi, frægur um sýslum-
ar fyrir ódæðisverk sín, og nú þeg-
ar hann er aftur kominn af stað
sækja að honum ekki svo Ijúfar
minningar. Vestrinn á það sameig-
inlegt með íslendingasögunum að
lifa ekki síst á stómm goðsögnum
og góðum sögum og Hinir vægðar-
lausu, sem David Webb Peoples
skrifar handritið að, býr yfir hvora
tveggja. Hún er ekki aðeins um
þjóðsagnakenndar persónur og
hefndarskyldu og vináttubönd og
menn í veröld sem gerir ekki ráð
fyrir þeim lengur. Hún er um sam-
viskubitið líf dráparans og hún er
um drápið sjálft, þetta að drepa
mann, sem í einu eftirminnilegasta
atriði myndarinnar verður átakan-
legt sjónarspil. Það atriði eins og
reyndar myndin öll sýnir fjarska
öragg tök Eastwoods sem leik-
stjóra. Hann skapar hijúfa en heill-
andi veröld fulla af siðleysi og tví-
skinnungi þar sem heyra má sterk-
an enduróm frá gömlu vestranum
hans. Það má vera að Munny sé
eitthvert mesta hörkutólið sem
Eastwood hefur leikið. Það er eins
og hann sé morðingi í eðli sínu og
þetta eðli hans vekur í honum við-
bjóð um leið og það heldur honum
á lífi. Kannski er það kjaminn í
vestraleik Eastwoods. Allir standa
þeir sig vel í hlutverkunum sínum
Freeman, Hackman, Harris og ekki
síst sá ungi Jaimz Woolvett, sem
leikur unga manninn áfjáðan í að
fremja fyrsta drápið. En fyrst og
fremst er þetta Eastwood-mynd þar
sem hrakkótt og veðrað andlit Clint
Eastwoods segir eins og oft áður
mestu söguna og minnir sífellt á
að hann er síðasti harðjaxlinn.
RAiWÞAUGL YSINGAR
A
Frá Bæjarskipulagi Kópavogs
Digraneskirkja við
Digranesveg
1) Tillaga að breytingu á staðfestu Aðal-
skipulagi Kópavogs 1988-2008 á svæði
sem afmarkast af Reynihvammi, Hlíðar-
vegi, Digranesvegi (Stútulautarvegi) og
Kópavogslæk, auglýsist hér með sam-
kvæmt 17. og 18. grein skipulagslaga frá
1964.
í tillögunni er gert ráð fyrir að um miðbik
ofangreinds svæðis verði landnotkun
blönduð, stofnanasvæði (kirkjulóð) og
opið svæði til sérstakra nota í stað opins
svæðis og opins svæðis til sérstakra nota.
Ennfremur er opið svæði til sérstakra
nota stækkað til austurs að Digranesvegi
(Stútulautarvegi). Göngutengsl breytast
lítillega.
2) Tillaga að deiliskipulagi á ofangreindu
svæði, þ.e. milli Reynihvamms, Hlíðarveg-
ar, Digranesvegar og Kópavogslækjar,
auglýsist hér með samkvæmt grein 4.4 í
skipulagsreglugerð nr. 318/1985.
Uppdrættir, Skipulagsskilmálar og Ijós-
myndir verða til sýnis á Bæjarskipulagi
Kópavogs, Fannborg 2, 4. hæð, frá kl.
9.00-15.00 aila virka daga frá 9. október
til 20. nóvember 1992.
Athugasemdum eða ábendingum skal
skila skriflega til Bæjarskipulags eigi síðar
en kl. 15.00 4. desember 1992.
Þeir, sem eigi gera athugasemdir innan
tilskilins frests, teljast samþykkir tillög-
unni.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
m Frá Bæjarskipulagi Kópavogs
Félagssvæði Gusts
Breytt deiliskipulag
Tillaga að breyttu deiliskipulagi félagssvæðis
hestamannafélagsins Gusts í Kópavogi aug-
lýsist hér með samkvæmt gr. 4.4. í skipulags-
reglugerð nr. 318/1985.
f tillögunni felst m.a. stækkun félagssvæðis-
ins og staðsetning reiðskemmu með tilheyr-
andi aðstöðu.
Deiliskipulagsuppdráttur í mkv. 1:1000 verður
til sýnis á Bæjarskipuiagi Kópavogs, Fannborg
2, 4. hæð, frá kl. 9.00-15.00 alla virka daga
frá 9. október til 6. nóvember 1992.
Athugasemdum eða ábendingum, ef ein-
hverjar eru, skal skila skriflega til Bæjarskipu-
lags innan auglýsts kynningartíma.
Skipulagsstjóri Kópavogs.
RANNSÓKNARÁÐ RlKISINS
statens FORSKNINCSRÁD
THE NATIONAL RESEARCH COUNCIL
LAUGAVEGl 13 BRÉFSlMI 91 29814
101 REYKjAVlK SlMI 91 21320
auglýsir styrki
til forverkef na 1992
Rannsóknaráð ríkisins hefur ákveðið að veita
styrki til forverkefna er miði að því að kanna
forsendur nýrra áhugaverðra rannsókna- og
þróunarverkefna. Um slíka styrki geta sótt
fyrirtæki, stofnanir og einstaklingar. Við mat
á umsóknum verður sérstaklega litið til rök-
semdafærslu um tæknilegt og hagrænt mikil-
vægi verkefnisins og hugmynda um leiðir til
að koma niðurstöðum verkefnisins í fram-
kvæmd, ef það skilar jákvæðum árangri.
Markmiðið með stuðningi við forverkefni er
að kanna nýjar hugmyndir og skilgreina bet-
ur tæknileg og þróunarleg vandamál og
markaðsþörf, svo og forsendur samstarfs,
áður en lagt er í umfangsmikil rannsókna-
og þróunarverkefni, sem hugsanlega verða
styrkt úr Rannsóknasjóði.
Gert er ráð fyrir að upphæð stuðnings við
forverkefni geti numið allt að 500.000 kr.
Umsóknarfrestur er til 15. október nk.
Engin sérstök eyðublöð gilda, og nægir stutt
bréfleg lýsing á hugmynd ásamt kostnaðar-
áætlun.
Rannsókrtaráð ríkisins,
Laugavegi 13,
101 Reykjavík,
sími 91-621320.
\
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu embættisins á Heiðarvegi 15,
Vestmannaeyjum, sem hér segir á eftirfarandi eignum:
1. Áshamar 72, 2. hæð D, Vestmannaeyjum, þinglýst eign Ernu
Fannbergsdóttur, eftir kröfu Ríkisútvarps, innheimtudeildar,
fimmtudaginn 15. október 1992, kl. 10.00.
2. Áshamar 75, 3. hæð B, Vestmannaeyjum, þinglýst eign Vest-
mannaeyjabæjar, eftir kröfu veðdeildar Landsbanka Islands,
fimmtudaginn 15. október 1992, kl. 10.00.
3. Áshamar 75, 3. hæð C, Vestmannaeyjum, þinglýst eign Stjórn-
ar verkamannabústaða Vestmannaeyja, eftir kröfu veðdeildar
Landsbanka (slands, f immtudaginn 15. október 1992, kl. 10.00.
4. Búhamar 21, Vestmannaeyjum, þinglýst eign Jósúa Steinars
Óskarssonar, eftir kröfu Utvegsbanka (slands (Islandsbanka
hf.), fimmtudaginn 15. október 1992, kl. 10.00.
5. Foldahraun 42, 3. hæö B, Vestmannaeyjum, þinglýst eign Petr-
ínu Sigurðardóttur, eftir kröfum veðdeildar Landsbanka Tslands,
versluninni Kósý og Ríkisútvarps, innheimtudeildar, fimmtudag-
inn 15. október 1992, kl. 10.00.
6. Kirkjuvegur 14, e.h. ris og kjallari, þinglýst eign Harðar Rögn-
valdssonar, eftir kröfum Búnaðarbanka Islands og Islándsbanka
hf., fimmtudaginn 15. október 1992, kl. 10.00.
7. Kirkjuvegur 39A, Vestmannaeyjum, þinglýst éign Kristófers H.
Helgasonar, eftir kröfu veðdeildar Landsbanka íslands, fimmtu-
daginn 15. október 1992, kl. 10.00.
8. Vestmannabraut 32, Vestmannaeyjum, þinglýst eign Jóns Inga
Guðjónssonar, eftir kröfu (slandsbanka hf., fimmtudaginn 15.
október 1992, kl. 10.00.
9. Vesturvegur 25B, kjallari, Vestmannaeyjum, þinglýst eign Sig-
urðar G. Jónssonar, eftir kröfu Lífeyrissjóðs Vestmannaeyinga,
fimmtudaginn 15. október 1992, kl. 10.00.
9. október 1992.
Sýslumaðurinn í Vestmannaeyjum.
Framhald uppboðs
Framhald uppboðs á eftirtöldum fasteignum verður háð á þeim sjálf-
um sem hér segir:
1. Foldahraun 42, 2. hæð F, Vestmannaeyjum, þinglýst eign Þuríðar
Sigurðardóttur og Steinars Vilhjálmssonar, eftir kröfum Unnar
Mariasdóttur, Ríkisútvarps, innheimtudeildar, A-Eyjafjallahrepps
og Fannbergs sf., miðvikudaginn 14. október 1992, kl. 16:00.
2. Skólavegur 47, hæðin % hl., Vestmannaeyjum, þinglýst eign
Eðvalds Eyjólfssonar, eftir kröfum Lífeyrissjóðs starfsmanna Vest-
mannaeyjabæjar og veðdeildar Landsbanka Islands, miðvikudag-
inn 14. október 1992, kl. 16.30
Sýslumaðurinn i Vestmannaeyjum,
9. október 1992.
Nauðungaruppboð
Eftir kröfu Gjaldheimtunnar í Reykjavík, tollstjórans í Reykjavík,
skiptaréttar Reykjavíkur, Vöku hf., Bifreiðageymslunnar hf. og ýmissa
lögmanna, banka og stofanann, verður haldiö opinbert uppboð á
bifreiðum og vinnuvélum á Smiðshöfða 1 (Vöku hf.), laugardaginn
10. október 1992 og hefst það kl. 13.30. Fyrirhugaö er að selja eftir-
taldar bifreiðar:
EI-145; EK-196, FZ-601, FÖ-387, G-11235, G-11839, G-2084, FD-
224, G-919, GE-709, GG-087, GK-932, GM-680, GN-192, GS-116,
GZ-722, GZ-908, GÖ-451, HA-178, HA-626, HG-352, HM-456, NN-
204, H0-321, IA-319, IC-962, 10-400, 1-1793, KC-904, KV-085, KV-
903, P-289, HE-139, P-536, P-858, P-956, GD-988, GF-441, R-
13639, R-18966, R-21293, R-28875, R-41677, R-44917, R-55928,
R-61466, R-73291, GH-046, IG-201, FY-472, HJ-103, GH-562, R-
9424, GE-132, Y-18126, Ö-10935, Ö-769, IO-479, G-25212, HX-
032, Þ-4710, JM-226, R-61369.
Væntanlega verða seldar fleiri bifreiöar.
Ávisanir ekki teknar gildar sem greiðsla nema með samþykki upp-
boðshaldara eða gjaldkera. Greiðsla við hamarshögg.
Sýslumaðurinn í Reykjavik.
Uppboð
Uppboð munu byrja á skrifstofu emb-
ættisins á Hörðuvöllum 1, Selfossi,
miðvikudaginn 14. október 1992
kl. 10.00, á eftirfarandi eignum:
Reykjamörk 2b, íb. 202, Hveragerði, þingl. eig. Hveragerðisbær,
talin eig. Þórdís Skúladóttir, gerðarbeiðendur Byggingasjóður verka-
manna, Hveragerðisbær og Húsfélag Reykjamörk 2b.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
7. október 1992.
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirtöldum
eignum verður háð á þeim sjálfum
sem hér segir:
Eyrarbraut 20 (Óseyri), Stokkseyri, þingl. eig. Gunnar Einarsson,
geröarbeiðandi Lífeyrissj. sjómanna, 13. október 1992 kl. 14.00.
Stekkholti 34, Selfossi, þingl. eig. Selma Katrín Albertsdóttir, gerðar-
beiðendur Bæjarsjóður Selfoss, Höfðaleigan hf., Inga Berg Jóhann-
esd., innheimtum. ríkissj., Innheimtustofnun sveitarfél. og Samb.
alm. lífeyrissj., 12. október 1992 kl. 11.00.
Álfafelli 1, Hverageröi, þingl. eig. Sveinn Gíslason og Magnea Á.
Árnadóttir, gerðarbeiðendur Búnaðarbanki Islands, Landsbanki Isl., •
Self. og Verðbréfam. Fjárfestf., 13. október 1992 kl. 11.00.
Sýslumaðurinn á Selfossi,
7. október 1992.
IIFIMIJAI.UJK
Stefnuskrár-
ráðstefna Heimdallar
F U S
Stefnuskrárráðstefna Heimdallar, félags ungra sjálfstæðismanna í
Reykjavík, verður haldin í Valhöll, Háaleitisbraut 1, laugardaginn
10. október kl. 15.00. Hlutverk ráðstefnunnar er að samþykkja nýja
stefnuskrá fyrir Heimdall og liggja stefnuskrárdrög frammi á skrif-
stofu félagsins.
Félagar i Heimdalli eru eindregið hvattir til þess að sækja ráðstefn-
una og taka þannig virkan þátt í stefnumótun félagsins.