Morgunblaðið - 09.10.1992, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 9. OKTÓBER 1992
31
fclk í
fréttum
Morgunblaðið/Arinbjörn
Hljómar og Shady Owens í lok sýningar á Hótel íslandi, f.v. Erlingur, Rúnar, Shady, Engilbert og
Gunnar.
HU ÓM ASÝNIN GIN
Gömlu goðin rísa upp
Skemmtanir
Helgi Bjarnason
Sýning Hljóma á Hótel íslandi
hefst með því að gömlu goðin
stíga upp úr „gröfum“ sínum,
sprengja lokin af „líkkistunum“
og stökkva fram á sviðið með
miklu neistaflugi og hávaða. Þetta
er táknrænt upphaf á sýningu
hljómsveitar sem ekki hefur leikið
saman í áratugi. Ljómi hefur allt-
af verið í hugum margra íslend-
inga yfir minningu Hljóma sem
var vinsælasta hljómsveit landsins
í nokkur ár. Hætta er á að goð-
sögnin spillist þegar goðin eru
dregin upp úr kistunum og kom-
ast í birtu ljóskastaranna á nýjan
leik. í ljósi þeirrar fortíðarfíknar
sem tröllriðið hefur skemmtana-
bransanum um skeið má aftur á
móti segja að röðin hafi fyrir
löngu verið komin að Hljómum
vegna sterkrar stöðu þeirra í
poppsögunni.
Sýningin á Hótel íslandi felst
eins og oft áður í mat og skemmt-
un. Húsið er opnað klukkan 19
og boðað var að málsverðurinn
hæfist stundvíslega klukkan 20.
Undirritaður fór á aðra sýninguna
sem var síðastliðið laugardags-
kvöld. Nokkur bið varð á að mat-
urinn væri borinn fram enda var
fólkið að tínast í salinn fram eftir
öllu og þurftu þeir sem komu
tímanlega að bíða hátt í klukku-
stund eftir forréttinum. Málsverð-
urinn vár þríréttaður. í forrétt var
rækjukóngasúpa, grillsteiktur
lambahryggvöðvi í aðalrétt og
frönsk súkkulaðimús í eftirrétt.
Maturinn reyndist góður, sérstak-
lega þegar litið er til þeirrar
fjöldaframleiðslu sem hlýtur að
þurfa að vera í matargerð fyrir
svona kvöld. Kjötið var afbragðs-
gott, það nánast bráðnaði á tung-
unni, súpan bragðaðist ágætlega
en eftirrétturinn var ekkert sér-
stakur.
Miðinn á sýninguna með mat
kostar 4.950 krónur fyrir mann-
inn en 2.000 krónur án matar.
Með sæmilegu rauðvíni með
matnum og kaffi og koníaki á
eftir sem tilheyrir hjá mörgum er
kostnaðurinn nálægt sjö þúsund
krónum fyrir manninn.
Klukkan rúmlega 22 hófst sýn-
ing Hljóma með því að „líkkistur"
með stórum myndum af hljóm-
sveitarmeðlimum lyftust upp úr
„gröfinni" og eins og áður sagði
stukku þeir síðan út úr þeim um
leið og ærandi sprenging glumdi
við. Við tók tæplega hálfs annars
klukkutíma tónlistardagskrá.
Byrjað var á Fyrsta kossinum og
endað á sama hátt.
Hinir „einu og sönnu“ Hljómar,
Gunnar Þórðarson, Rúnar Júlíus-
son, Engilbert Jensen og Erlingur
Björnsson, léku og sungu fyrri
hluta skemmtunarinnar og söng-
konan Shady Owens söng með
þeim í seinni hlutanum. Mér
fannst hljómsveitin vera stirð í
upphafi en sækja í sig veðrið. I
upphafinu virtust Gunnar og Rún-
ar njóta sín, enda atvinnumenn
sem hafa verið á fullu í hljómsveit-
um seinni hluta aldarinnar en
Erlingur og Engilbert, sem lítið
eða ekkert hafa skemmt seinni
árin, voru lengur í gang. Þeir síð-
arnefndu áttu einnig sína góðu
spretti. Hljómsveitin flutti mörg
af sínum þekktustu lögum, bæði
eigin lög, Bítlalög og fleiri. Á bak
við Hljóma, oftast falið í myrkr-
inu, var úrvalslið söngvara og
hljóðfæraleikara, meðal annars
söngvararnir Jóhann Helgason og
Eyjólfur Kristjánsson, og lögðu
greinilega mikið af mörkum til
söngs og hljóðfæraleiks í sýning-
unni.
Mikill kraftur kom í sýninguna
þegar Shady Owens bættist í hóp-
inn. Hún náði vel til áhorfenda
enda eftirminnileg söngkona.
Gestir voru ekki margir á mæli-
kvarða Hótels íslands. Hálftómt
hús var í snæðingnum og þó tölu-
vert bættist við fyrir sýninguna
var tómlegt í skotunum. Margir
gestanna voru á óræðum aldri,
meirihlutinn líklega af Hljóma-
kynslóðinni en margir voru einnig
eldri og yngri.
Undir lok sýningarinnar náðu
Rúnar og Shady upp ágætri
stemmningu þó að hún hafi ekki
verið eins geggjuð og frásagnir
herma af frumsýningunni viku
áður. Rúnar þeyttist um salinn
og spilaði uppi á borðum gestanna
við góðar undirtektir. Ekki sýndi
hann þó viðlíka tilþrif og þegar
hann prílaði upp um allt og sveifl-
aði sér eins og apabróðir í bitum
yfir sviðinu í Húsafelli um verslun-
armannahelgi einhvem tímann
fyrr á öldinni. En lengi lifir í göml-
um glæðum og li'fleg sviðsfram-
koma Rúnars fellur enn vel í
kramið. Sýningin stóð í tæpan
hálfan annan klukkutíma og voru
engir dauðir punktar á þeim tíma.
Hermann Gunnarsson var kynnir
og var ekki með neitt óþarfa
málæði, lét sýninguna ganga.
Heildaráhrifin af Hljómasýn-
ingunni eru þau að þetta er hin
ágætasta skemmtun sem hægt
er að mæla með. Þeir sem halda
vilja upp á Hljómagoðsögnina
ættu þó að hafa það í huga að á
þessari sýningu munu þeir ekki
sjá Hljóma afturgengna í sinni
gömlu mynd heldur sýningu þar
sem meðlimir þessarar fornfrægu
hljómsveitar koma fram í aðal-
hlutverkunum.
FÉLAGSMÁL
Umdæmisstjóra-
skipti hjá Kiwanis
Færeyjar laugardaginn 26. septem-
ber. I íslenska umdæminu eru 1.300
STYKKISHÓLMUR
Arlegt umdæmisþing íslenska
Kiwanisumdæmisins ísland-
Færeyjar var haldið á Hótel Sögu
26.-18. ágúst sl. Að venju fór fram
fræðsla verðandi embættismanna á
föstudegi og umræðuhópar störfúðu
sama dag. Þingið sjálft var síðan á
laugardag og lauk því með lokahófi
um kvöldið í Súlnasal Hótels Sögu.
Alls sóttu þingið og fræðslu 180 fé-
lagar.
Þá fóru fram umdæmisstjóraskipti
í íslenska Kiwanisumdæminu ísland-
félagar, karlar og konur í 46 klúbb-
um sem skiptast í 6 svæði. Meðfylgj-
andi mynd var tekin við þetta tæki-
færi. Frá vinsti er fráfarandi um-
dæmisstjóri 1991-1992, Steindór
Hjörleifsson, og Unnur Hjartardóttir
frá Kiwanisklúbbnum Elliða í
Reykjavík og umdæmisstjóri 1992-
1993 frá Kiwanisklúbbnum Vífli í
Reykjavík, Finnbogi G. Kristjánsson
og Gunnhild Ólafsdóttir.
Bóksalinn í
IStykkishólmi starfrækja hjónin
Ingveldur Sigurðardóttir og
Kristinn B. Gestsson bókaverslunina
Stellubúð. Þar selja þau allrahanda
varning, skrifföng, skólavörur og
skrifstofugögn auk smávamings.
Ingveldur og Kristinn tóku við
rekstrinum eftir fráfall föður Ing-
veldar, sem hafði rekið verslunina
um langt skeið. Kristinn hefur feng-
ist við margt um dagana. Hann var
lengi bifvélavirki og hefur einnig
stundað sjóinn en hann á bát, sem
hefur komið að góðu haldi. Ingveldur
er kennari að mennt og hefur auk
þess lagt stund á sérkennslu. Hún
hefur verið kennari við grunnskólann
í Hólminum í fjölmörg ár.
Kristinn er mikill dugnaðarforkur
Morgunblaðið/Árni Helgason
Kristinn í bókaversluninni Stellu-
búð í Hólminum.
Hólminum
í því sem hann tekur sér fyrir hend-
ur. Hann var t.d. einna atkvæða-
mestur þeirra sjálfboðaliða sem unnu
að byggingu Lionshússins í Stykkis-
hólmi og starfaði í klúbbnum í 25 ár.
Árni
NY SENDING
AF KARATEGÖLLDM
L4 r* r
útiuf:
GLÆSIBÆ, S(MI 812922
Bílamarkaóurinn
Smiðjuvegi 46E TTTl
v/Reykjanesbraut, j f
Kopavogi, sími
671800 HðP
Opið sunnudaga
kl. 2-6
Daihatsu Feroza EL-II '89, grásans, 5 g.,
ek. 65 þ., mikið af aukahl. Mjög gott
ástand. V. 930 þús.
Isuzu Tropper LS '88, 5 g., ek. 109 þ.
km., 7 manna, rafm. í öllu o.fl. V. 1150
þús., skipti.
Nissan King Cap m/húsi '87, 6 cyl.,
sjálfsk., ek. 74 þ. Fallegur bíll.
V. 1080 þús. stgr.
Nissan 200 SX turbo Interc. '89, rauður,
5 g., ek. 48 þ., sóllúga.-rafm. í öllu o.fl.
Vinsæll sportbfll. V. 1490 þús., sk. á ód.
MMC Pajero V-6 (USA týpa) '90, grá-
sans, sjálfsk., ek. 25 þ., sportfelgur, rafm.
i öllu o.f I. Sem nýr. V. 2.150 þús., sk. á ód.
MIKIÐ ÚRVAL JEPPA OG
FÓLKSBÍLAÁSTAÐNUM.
VERÐ 0G KJÖR VIÐ ALLRA HÆFI.
M. Benz 190 '87, rauður, 5 g., ek. 53 þ.
V. 1550 þús.
Nissan Micra QL '84, 3 dyra, ek. 55 þ.
V. 190 þús. stgr.
Suzuki Samurai 413 Hi Roof '88. Fallegur
jeppi, ek. 60 þ. V. 750 þús.
Toyota 4Runner SR5 '84, rauður, ek. 91
þ. Talsvert breyttur. Góður jeppi.
V. 1100 þús.
Mazda 121 '93 (nýr) 5 dyra, óekinn.
V. 870 þús. stgr.
Daihatsu Applause 16v 4x4 '91, 5 g.,
ek. 12 þ. V. 1080 þús., sk. á Subaru
Legacy '92.
Willys Cj-5 '64, endurbyggður V-8 (350)
Hurst, 4 g., 5:38 drif, læstur, ásamt fleiru.
V. 490 þús. stgr., sk. á ód.
Mazda 323 1.5 GLX '88, 5 d., ek. 76 þ.
Góður bíll. V. 580 þús.
BMW 520i '89, sjálfsk., ek. 71 þús.
Toppeintak. V. 1710 þús. stgr.
Gódcm dagirm!
)