Morgunblaðið - 12.11.1992, Blaðsíða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1992
Framdi rán á sólbaðsstofu
Búrfellið í slipp Stálsmiðjunnar.
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Skemmdir á Búrfell-
inu meiri en talið var
MUN MEIRI skemmdir komu í
ljós á flutningaskipinu Búrfelli en
í fyrstu var talið, þegar skipið var
tekið í slipp hjá Stálsmiðjunni hf.
Um er að ræða skemmdir á síðu
skipsins og þarf að skipta um stál,
en áður var talið að aðeins væru
skemmdir á botni þess. Að sögn
Skúla Jónssonar, forsljóra Stál-
smiðjunnar, er hér um 25% magn-
aukningu á stáli að ræða í viðgerð
skipsins.
Upphaflega var reiknað með að
16 tonn af stáli færu í viðgerð á
Búrfellinu, en nú er ljóst að það
verður ekki undir 20 tonnum. Skúli
sagði að endanlegt mat á skemmd-
unum lægi ekki fyrir. Reikna mætti
með að aukakostnaður vegna þessa
yrði á þriðju milljón kr.
Eftirlitsaðili skipsins, Norsk Ver-
itas, fylgist með því að skipið upp-
fylli ákveðin skilyrði til að það fái
haffærisskírteini. Norsk Veritas
gerði kröfu um að skemmdimar á
síðunni yrðu lagaðar. Það er síðan
Siglingamálastofnun sem endanlega
gefur út haffærisskírteini.
Stálsmiðjan ráðgerir að skila skip-
inu 9. desember nk.
Vegna fyrigreindrar nauðgunar
á Akureyri lá ákveðinn maður undir
grun en var hreinsaður af þeim grun
eftir DNA-rannsókn þar sem blóð
hans var borið saman við sæði úr
tilræðismanninum. Nauðgunin var
hrottaleg en auk þess sem hettu-
klæddur maður ógnaði konunni með
hnífi hótaði hann að vinna sofandi
bömum hennar mein ef hún léti
ekki að vilja hans. Nú liggja fyrir
upplýsingar sem staðfesta að
maðurinn hafi verið staddur á Akur-
eyri á þeim tíma sem nauðgunin var
framin.
Maðurinn hefur verið ákærður
fyrir héraðsdómi Reykjavíkur fyrir
að hafa einnig í sumar ráðist
vopnaður að konu inni á heimili
hennar. Atvik þess máls voru, sam-
kvæmt upplýsingum Morgunblaðs-
ins, þau að ung kona þáði far með
manninum heim úr samkvæmi sem
bæði höfðu sótt. Eftir að hún hafði
kvatt manninn og neitað honum um
að koma með sér inn ruddist hann
inn á konuna vopnaður hnífi, tók
um kverkar' konunni og taldi hún
að hann hefði haft í hyggju að
nauðga sér en hann flúði burt þegar
fólk barði að dyrum á íbúðinni.
Aukin sala á stórum troll-
um veg’na úthafskarfaveiða
Sala Hampiðjunnar skiptist jafnt
á milli íslendinga og útlendinga
MIKIL söluaukning hefur verið hjá Hampiðjunni að undanförnu á
stórum trollum fyrir togara á djúpslóð. Gunnar Svavarsson, for-
stjóri Hampiðjunnar, segir að gert sé ráð fyrir að heildarsala fyrir-
tækisins verði um 730 milljónir kr. á árinu.'
Að sögn Gunnars eru þessi stóru að átta sig á því hvemig það snúi.
troll tiltölulega ný vara, en þau
komu fyrst á markað fyrir þremur
árum og voru hönnuð af Hampiðj-
unni þegar íslendingar byijuðu
fyrst á úthafskarfaveiðum. Sér-
kenni þeirra er að þau eru stærri
en önnur troll og hafa stækkað enn
meira með árunum. Fyrsta trollið
var með trollopi sem var um 6
þúsund fermetrar, en nú er stærsta
trollið um 36 þúsund fermetrar.
Önnur einkenni eru stórir möskvar
í stórum hluta trollsins sem gerir
það létt í drætti og mismunandi
litir eru í hinum ýmsu byrðum
trollsins til að auðvelda mönnum
Þá væru notuð óhefðbundin efni,
svonefnd ofurefni, auk nælons í
trollin.
Gunnar sagði að trollin hefðu
selst ágætiega í hitteðfyrra en lítil
sem engin sala hefði verið í fyrra.
Mjög góð sala væri í ár, einkum
vegna aukinnar sóknar í úthafs-
karfa. í grófum dráttum hefði salan
skiptst til helminga á milli íslend-
inga og útlendinga. Verð á troliun-
um lægi á bilinu 4-9 milljónir kr.
hvert, allt eftir stærðum og út-
færslum.
„Okkar áætlanir frá síðasta ári
gerðu ráð fyrir óbreyttri sölu í krón-
um talið. Salan var jafnvel undir
áætlun allt fram undir haust og
síðan kom skot í hana. Þegar upp
er staðið er reiknað með að salan
verði 10% yfir því sem hún var í
fyrra í krónutölu. Uppsveiflan er
því um 5-7% að raungildi. í fyrra
var salan tæpar 670 milljónir kr.
og við reiknum með að hún fari í
um 730 milljónir kr. á árinu. Hins
vegar má geta þess að til að halda
raungildi sölu ársins 1987 hefðum
við þurft að selja fyrir 1.200
milljónir kr.“
Hann sagði að Hampiðjan hefði
beint sjónum að fjarlægari mörkuð-
um og selt tilbúin troll og trollefni
til Suður-Ameríku og til verkefna
annars staðar, m.a. Indónesíu.
„Okkur þykir ástæða til að horfa
til þeirra markaða þar sem við
höfum eitthvað meira að selja en
aðeins staðlaða fermetra af neti eða
möskvum; markaða þar sem hönn-
un, þjónusta og þekking fylgir
með,“ sagði Gunnar.
Gunnar sagði að greiðsiugeta
íslenskra sjávarútvegsfyrirtækja
væri misjöfn en almennt væri hún
erfíð. Ennfremurværu heldurerfið-
ari tímar framundan.
Islendingarnir
í Angóla
Bíða eftir
pappírum
ALLT er með kyrrum kjörum
í Luanda höfuðborg Angóla,
eftir að uppreisn UNITA-
skæruliða var kveðin þar nið-
ur í síðustu viku. Þrír íslend-
ingar eru enn í borginni og
biða þess að geta hafist handa
við þjálfun áhafna á flugvél
Sun Angola, stærsta olíufé-
lags landsins, en tilskilin leyfi
hafa enn ekki fengist að sögn
Kjartans Guðmundssonar
flugstjóra.
Auk Kjartans eru í Luanda
Jóhann Jóhannsson flugmaður
og Smári Sigurðsson flugvirki.
Kjartan sagði í samtali við Morg-
unblaðið að allt athafnalíf væri
að færast í eðlilegt horf og að
þjóðhátíðardagur landsins hafi
verið í gær. Hann sagði að rétta
pappíra þyrfti frá samgöngu-
ráðuneytinu í Angóla svo unnt
væri að hefja þjálfun áhafna en
svo virtist sem þeir væru ekkert
á leiðinni. „Ég er farinn að halda
að maður eigi ekki eftir að gera
nokkum skapaðan hlut hér.
Smári hefur verið að gera við
flugvélina, gat eftir byssukúlu
sem fór í gegnum vængbarð
vélarinnar. En það stóð til að
fara til Sao Tome og þjálfa
áhafnirnar þar ef pappíramir
fengjust," sagði Kjartan.
Stangarhylur 1, hús Landsbjargar.
Landsbjörg
Morgnnblaðið/Þorkell
Grunaður um nauðg-
un á Akureyri í sumar
Ákærður fyrir líkamsárás með hnífi
MAÐUR sá sem handtekinn var eftir að hafa framið rán á sóibaðs-
stofu í Reykjavík fyrr í vikunni er grunaður um að hafa framið
nauðgun á Akureyri í sumar vopnaður hnifi og hettuklæddur. Morg-
unblaðið fékk staðfest hjá rannsóknarlögreglunni á Akureyri I gær
að blóðsýni úr manninum hefði verið sent til DNA-rannsóknar í
Bretlandi til samanburðar við sæði úr tilræðismanninum og er niður-
stöðu að vænta síðar í mánuðinum. Maður þessi var kærður fyrir
að hafa framið nauðgun í Hafnarfirði fyrr í sumar og sætir ákæru
fyrir að hafa ráðist vopnaður hnifi inn á heimili konu i miðbæ
Reykjavíkur fyrr í sumar.
Rætt um hugsanlegt vamarsam-
starf Norðurlanda. 22.
í dag
Uppselt á allar sýningar á óper-
unni Lueia di Lammermoor til
þessa. 4.
Þing Norðurlandaráðs
íslenska óperan
WmmMaMt
VEDSQFTIJDVINNUIÍF
Handboltinn
Selfoss vann íslandsmeistara FH í
gærkvöldi í Hafnarfirði. 50-51.
Leiðari
Norðmenn sækja um EB-aðiId. 26.
Dagskrá
► Bíómyndin Guðfaðirinn III —
Baráttan um Rúnu og Dagbjörtu
í Tyrklandi — Ungt fólk hefur
skoðun á íslendingasögum —
Kynningarþættir um EES
Viðskipti/Atvinnulíf
► Hlutafjárútboð Granda —
Virðisaukaskatt af bílaleigubíl-
um? — Pirelli skilar jákvæðu hag-
kvæmnimati — Hvað verður um
jólaverslunina?
Eru að byggja 700
fermetra húsnæði
LANDSBJÖRG, landssamtök hjálparsveita skáta og flugbjörgunars-
veitanna í Iandinu, Ilytur á næstu vikum úr húsnæði sínu í Skátahús-
inu á Snorragötu, í nýtt 700 fermetra húsnæði, sem samtökin eru
að byggja í Stangarhyl 1. Samtökin hyggjast nýta 350 fermetra sjálf
og vilja leigja út 350 fermetra.
Bjöm Hermannsson, fram-
kvæmdastjóri Landsbjargar, sagði
að bygging nýja húsnæðisins væri
fjármögnuð með sölu flugelda og
sjúkrakassa auk hagnaðar af happ-
drættum samtakanna. „Það kreppir
mjög að okkur, eins og t.d. með lag-
eraðstöðu og aðstöðu fyrir markaðs-
deild og annað," sagði Bjöm.
Engin tæki eða áhöld til björgun-
arstarfa eru í eigu samtakanna, enda
eru þau öll í eigu björgunarsveitanna
sjálfra, sem eru aðilar að Lands-
björg. Hins vegar er húsnæðið einn-
ig hugsað sem aðstaða fyrir þjálfiin-
arskóla björgunarsveitarmanna.
Aðspurður um hvort nægir pen-
ingar væru til fyrir slíkri byggingu
innan samtakanna sagði Bjöm að
ákveðnar áætlanir hefðu verið gerð-
ar og þær hefðu staðist. „Við þurfum
þetta. Þess vegna erum við að byggja
þetta," sagði Bjöm.