Morgunblaðið - 12.11.1992, Blaðsíða 25

Morgunblaðið - 12.11.1992, Blaðsíða 25
Nýr utanrík- isráðherra í Lettlandi Þing Lettlands skipaði á þriðjudag Georgs Andrejevs í embætti utanríkisráðherra í stað Janis Jurkans, sem var vísað úr stjórninni fyrir tveimur vikum síðan. Andrejevs, sem er sextugur, er skurðlæknir að mennt og hefur undanfarið ver- ið áheyrnarfulltrúi Lettlands hjá Evrópuráðinu í Strassborg. Fjölmiðlamenn í Lettlandi höfðu eftir Andrejevs að hann hygðist ekki gera neinar stór- vægilegar breytingar á utanrík- isstefnu landsins og fara eftir þeim-fyrirmælum sem kæmu frá þinginu. Forvera hans Jurk- ans var vikið úr embætti eftir að hann lenti í deilum við lett- neska þingið vegna laga um ríkisborgararétt. Rússar hafa gagnrýnt lögin, sem þeir segja bijóta gegn rétti rússneska minnihlutans í landinu. Þing- menn urðu Jurkans mjög reiðir er hann varaði þá við því að samþykkt laganna kynni að erfiða samskiptin við Rússa. Aðgerðir gegn PKK ganga vel Suleyman Demirel, forsætis- ráðherra Tyrklands, sagði í tyrkneska þinginu á þriðjudag að hernaðargerðir Tyrkja gegn skæruliðum Kúrda í norður- hluta íraks gengju „mjög vel“. Háttsettur embættismaður hersins sagði að verið væri að fínkemba ijallahéröðin í leit að bækistöðvum Verkamanna- flokks Kúrdistans (PKK). Um 20 þúsund hermenn hafa tekið þátt í aðgerðunum, sem hófust þann 16. október, og hafa þeir notið aðstoðar þyrlna, orrustu- flugvéla og skriðdreka. Hafa Tyrkir náð á sitt vald tveimur æfingabúðum á vegum PKK. íraskir Kúrdar hafa einnig haf- ið herferð til að reka liðsmenn PKK á brott frá írak og sagði Demirel að ekki væri um sam- hæfðar aðgerðir að ræða.. ■ ■■ 1 ERLENT MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1992 25 Loka fyrri heimsstyrjaldarinnar minnst 71 árs Ástrali, sem barðist í síðari heimsstyijöldinni, minnist hér fallinna félaga sinna við styttu af áströlskum hermanni í Sydney. í gær var þess minnst að heimsstyijöldinni fyrri lauk á elleftu stundu á ellefta degi ellefta mánaðar 1918. Bönkun- um fækk- ar í Sviss Ziirich. Reuter. TALIÐ er, að allt að 100 af 577 bönkum í Sviss geti horf- ið á næstu árum vegna auk- innar samkeppni og nýrrar tækni. Kemur þetta fram í skýrslu, sem birt var í gær. I skýrslunni, sem ráðgjafar- fyrirtækið Arthur Andersen vann, segir, að í bankakerfinu sé búist við verulegri fækkun starfsmanna á næstunni og einnig, að bönkunum sjálfum muni fækka mikið eða um 100 að minnsta kosti. Þá eru sér- fræðingarnir aliir á því, að Svisslendingar muni samþykkja aðild að Evrópska efnahags- svæðinu í desember en við það mun samkeppni í bankastarf- seminni stóraukast. Á síðustu þremur árum hefur svissnesku bönkunum raunar fækkað um 9% en þeir voru 631 við árslok 1989. Bretland Hart sótt að Major í vopnasölumáJinu London. Reuter. HART er lagt að John Major, forsætisráðherra Bretlands, að skýra nákvæmlega frá þætti sínum í því, sem breskir fjölmiðlar kalla „Iraqgate“ og snýst um vopnasölu til íraks rétt fyrir innrás- ina í Kúveit. Þá var bannað að selja Irökum vopn en breska stjórn- in vissi þó um og virðist hafa samþykkt söluna. Major hefur skipað fyrir um rannsókn á þessu máli en það kom upp þegar máli gegn þremur kaup- sýslumönnum, sem voru sakaðir um að hafa selt írökum vopn, var vísað frá. Var það gert þegar Alan Clark, fyrrverandi ráðherra í bresku stjórninni, skýrði frá því, að hann hefði vitað af vopnasöl- unni. John Smith, leiðtogi Verka- mannaflokksins, telur, að fyrir- huguð rannsókn Majors sé alls ónóg til að upplýsa málið en sam- kvæmt leynilegum gögnum, sem birt voru við réttarhöldin yfir kaupsýslumönnunum, virðist sem breska stjórnin hafi með leynd breytt stefnu sinni varðandi vopnasölu til íraks aðeins tveimur vikum fyrir innrásina í Kúveit í ágúst 1990 og í trássi við gildandi vopnasölubann. Gefur Smith í skyn, að Major sé riðinn við málið og David Clark, talsmað- ur Verka- mannaflokks- ins í varnarmál- um, fullyrðir, að svo sé. Tals- maður Majors segir hins veg- ar, að hann hafi ekki verið á ríkisstjórnarfundi 19. júlí 1990 þegar rætt um reglur um vopnasölu til íraks en þá var hann fjármálaráðherra í stjórn Margaret Thatcher. Þetta mál kemur á slæmum tíma fyrir Major, sem hefur átt við ærinn vanda að stríða í efna- hags- og Maastricht-málum og vaxandi atvinnuleysi í Bretlandi. John Major JÓLAPAKKI BAÐIÐ í LAG FYRIR JÓL! 1. Gæðaflísar, stærð: 20x20, á vegg 15 m2 og 31,6x31,6 á gólf 4 m2 ásamt IFÖ salerni m/þunnri setu og handlaug. Fullt verð = 56.167. Jólapakki 1 = 47.900 stgr. 2. Gæðaflísar, stærð: 20x25,15 m2 á vegg og 31,6x31,6 4 m2 á gólf ásamt IFÖ salerni m/harðri setu og handlaug. Fullt verð = 69.152. Jólapakki 2 = 57.900 sfgr. Ps. Það fá allir jólapakkatilboð við hæfi í Flísabúðinni Gæðaflísar á góðu verði iu mm. Stórhöfða 17, við GuIIinbrú sími 67 48 44 M tr meiro spunniö í símonn þinn en bú heldur Vakning/áminning* ef hann er tengdur stafrœna símaherfinu *Þessi þjónusta ertil staðar hjá öllum notendum stafræna símakerfisins. Að sjálfsögðu getur þú einnig hringt í 02 eins og áður og látið vekja þig. Notaðu símann þinn; hann gerir meira gagn en þig grunar. Til að fá nánari upplýsingar um sérþjónustu stafræna símakerfisins getur þú hringt í Grænt númer 99-6363 á skrifstofu- tíma (sama gjald fyrir alla landsmenn), á söludeild Pósts og síma eða á næstu póst- og símstöð. Vakning/áminning kostar 5 skref eða kr. 16.60. Þú getur látið sírriann þinn vekja þig eða minna þig á áríðandi stefnumót hvenær sólarhringsins sem er. Ef þú þarft að vakna snemma, til dæmis klukkan 4.00 vegna ferðalags tii útianda, er gott að geta treyst á að síminn veki þig. Þegar þú pantar vakninguna tekur þú upp símatólið og eftir að sónninn kemur ýtir þú á E355Q vakningartímann 0400 03 Ef þú hættir við að láta símann vekja þig, ýtir þú á Q355Q vakningartímann 0400 CD SÉRÞJÓNUSTA SÍMANS I

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.