Morgunblaðið - 12.11.1992, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 12.11.1992, Blaðsíða 4
4 MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1992 Stöðvun flugrekstrar Atlantsflugs Rætt við á þriðja tug að- ila um hlutafj áraukningu 25-30 AÐILAR, þar af eitt erlent fyrirtæki í flugrekstri, hafa til athug- unar að leggja fram hlutafé í Atlantsflug hf. sem sl. þriðjudag stöðv- aði flugrekstur sinn. Að sögn Halldórs Sigurðssonar, stjórnarform- anns Atlantsflugs, vantar um 125-200 miiyónir kr. inn í félagið svo það standi undir ákvæðum reglugerðar samgönguráðuneytisins um eiginíjárstöðu flugrekstraraðila sem nægir til þriggja mánaða rekstr- ar án tillits til tekna. Að sögn Haildórs er töluvert tap á rekstri félags- ins í ár, sem einkum er tilkomið vegna Iokunar Flugferða-Sólarflugs. „Við erum að tala við 25-30 að- ila. Þar af er eitt erlent fyrirtæki tilbúið að koma héma inn,“ sagði Halldór. Hann sagði að vegna reglna um eiginíjárstöðu hefði féiagið orðið af samningum, og neyðst til að leggja annarri af tveimur Bœing- vélum sem félagið hefur á leigu. „Það má segja að það sé krafta- verk hér á íslandi ef fyrirtæki er með eiginfjárstöðu sem nemur þriggja mánaða útgjöldum, án þess að nokkuð komi inn á mótL Á með- an féiagið er í svona stöðu gerir enginn við það samninga, hvort held- ur eru ferðaskrifstofur, íslenskar eða eriendar, eða flugrekendur erlendis. Samkvæmt íslenskum reglum fáum við ekki flugrekstrarieyfí nema tU okkar komi einhveijir aðilar með 125-200 miUjónir kr. Þetta er eina starfsgreinin á Islandi sem þarf að sæta þessum afarkostum. Ég er ekki bjartsýnn á að við náum þeirri upphaeð," sagði Halldór. Auk ákvæðis um eiginfjárstöðu þurfa aðilar sem sækja um flug- rekstrarleyfí að leggja fram áætlun um rekstur til tveggja ára. Sam- kvæmt uppiýsingum frá samgöngu- ráðuneytinu gekk reglugerðin í gildi í febrúar á þessu ári. Atlantsflug átti um svipað leyti að sækja um endumýjun flugrekstrarleyfis, en hafði á þeim tíma ekki nægilegt'eig- ið fé til að uppfylla þessi skilyrði. Veitti samgönguráðherra félaginu þá frest til næstu áramóta, til þess að koma eiginfjárstöðunni í rétt horf. Kröfur um nægt eigið fé flugrekstra- raðila koma frá Alþjóða flugmála- stofnuninni, og gilda þessar reglur í meginatriðum um allan heim, sam- kvæmt upplýsingum frá samgöngu- ráðuneytinu. Þær miða einkum að því að tryggja öryggi í flugi, að flug- rekandi hafi á hveijum tíma nægi- legt Qármagn til þess að sinna við- haldi véla sinna. Forsvarsmenn Atlantsflugs hafa óskað eftir því við samgönguráðu- neytið að ekkert verði aðhafst í málum félagsins út þessa viku, á meðan reynt verður til þrautar að ná niðurstöðu um hlutafjáraukningu í félaginu. Samgönguráðuneytið ætl- ar að verða við þeim óskum. VEÐUR VEÐURHORFUR I DAG, 12. NOVEMBER YFIRLIT: Skammt austur af Langanesi er 975 mb tægð sem þokast aust-norðaust- ur en hæðarhryggur við A-Grænland hreyfist hægt austur. Við vesturströnd Græn- lands er 985 mb lægð á leið austur. SPÁ: Minnkandi norðvestan étt og léttír til á noröaustur- og austurlandi og nokkurt frost. Léttskýjað ó sa-landi en vestanlands fer að snjóa nálægt hádegi vestanlands með sunnan golu eða kalda og hlýnandi veðri. I/EÐURHORFUR NÆSTU DAGA: HORFUR A FÖSTUDAG: Hæg suðlæg átt og fremur svalt. Purrt um noröanvert landið en skúrir eöa slydduél syðra. HORFUR Á LAUGARDAG: A og SA strekkingur og hiti é bilinu 0-5 stig. Rigning eða slydda um s- og a-vert landið, en annars þurrt að mestu. HORFUR Á 8UNNUDAG: Austan strekkingur og slydda eða rigning um norðanvert landið en fremur hæg sunnan og suðvestan átt og skúrir eða slydduél um sunnan- vert landið. Nýir veðurfregnatímar: 1.30,4.30, 7.30,10.46,12.46,16.30,19.30, 22.30. Svarsfmi Veðurstofu ísiands — Veðurfregnir: 990600. o Heiðskírt ■A Léttskýjað r r r * r * r r * r r r r r * r Rigning Slydda * Hálfskýjað * * * * * * * * Snjókoma ö Skýjað Alskýjað V ^ V Skúrir Slydduél Él Sunnan, 4 vindstig. Vindörin sýnir vindstefnu og fjaðrimar vindstyrk, heil fjöður er 2 vindstig. 10° Hitastig y Súld = Þoka stig.. FÆRÐA VEGUM: (Kl. 17.30 í gær) Skafrenningur og hálka er víðast hvar ó þjóðvegum landsins, en þeir eru flestir færir, en mun meiri skafrenningur á norðanverðum Vestfjörðum, Norður-, Norðaust- uriandi og Austurtandi. ófært er um Klettsháls. Dynjandisheiði og Hrafnseyrar- heiði, þá er ófært um Lágheiði, Möðrudalsöræfi, Axarfjarðarheiði, Vopnafjarðarheiði og Mjóafjaröarheiði. Upptýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftiriiti í síma 91-631500 og í grænni línu 99-6315. Vegagerðin. VEÐUR VIÐA UM HEIM kl. 12.00 í gær að ísl. tíma hití veður Akureyri 0 úrkomaígrennd Reykjavík i-2 skýjað Bergen 6 skýjað Helsinki 3 þokumóða Kaupmannahöfn 7 þokumóða Narssarssuaq +8 snjókoma Nuuk +6 skafrenntngur Ósló 4 skýjað Stokkhólmur 6 skýjað Þórshöfn 5 skúr Algarve 19 léttskýjað Amsterdam 12 rigning/súld Barceiona 17 mistur Berlín 10 alskýjað Chicago 4 alskýjað Feneyjar 10 þokumóða Frankfurt 10 rígning Glasgow 6 skúr Hamborg 6 rigning London 8 skýjað LosAngeles 10 heiðskírt Lúxemborg 11 rigning Madrid 13 þokumóða Malaga vantar Mallorca 20 skýjað Montreal 4 rigning NewYork 9 skýjað Oriando 26 skýjað Paris vantar Madeira vantar Róm 20 léttskýjað Vín 8 skýjað Washington 8 mistur Winnipeg 4-3 skýjað / DAG kl. 1 Heimild: Veðurstofa íslands (Byggt á veðurepá kL 16.15 í gær) Indriði G. Þorsteinsson Hermann Jónasson Ævisaga Hermanns Jónassonar eftir Ind- riða G. Þorsteinsson SÍÐARA bindi ævisögu Hermanns Jónassonar, forsætisráðherra, Ættjörð mín kæra eftir Indriða G. Þorsteinsson er komin út og nær frá árinu 1939—1976 eða frá upphafi þjóðstjórnar til dánardægurs Hermanns. Fyrir tveimur árum kom út fyrra bindi ævisögunnar undir nafninu Fram fyrir skjöldu. í kynningu útgefanda segir: „Á meðan þjóðstjóm sat að völdum undir forsæti Hermanns Jónassonar gengu í garð miklir örlagatímar í lífi þjóðarinnar svo og alls heims- ins. Miklu skipti fyrir íslendinga ' að þá sæti sá maður við stjómvölinn sem fólkið treysti og var traustsins verður. Áður og um það leyti sem til heimsátaka kom höfðu nasistar beitt smærri ríki margvíslegu of- beldi. Enginn virtist treystast til að ganga gegn vilja Hitlers og sendi- sveina hans. Þá gerðist það að stór- blaðið New York Times birti for- síðufrétt þar sem tilkynnt var að loksins hefði maður fyrirfundist sem þorði að neita. Hemtann Jónas- son, forsætisráðherra íslands, varð þannig fyrsti leiðtoginn í heiminum sem þorði að segja nei við Hitler. Hermann Jónasson hafði á hendi forystu fyrir slitum sambandsins við Dani 1940 þegar undirbúningi að stofnun lýðveldis hófst. Þannig er hinn pólitíski æviferill Hermanns Jónassonar varðaður merkisatburð- inn þar sem traust og geiglaus framkoma og fumlaus stefna tryggði æskiiegar niðurstöður. Indriði G. Þorsteinsson sem þekkti Hermann vel hefur skrifað ævisögu hans og engum sem hana les dylst að Hermann var ein af hetjum íslendinga.“ Útgefandi er Reykholt. Bókin er 240 blaðsíður og kostar 3.480 krónur. Islenska óperan Uppselt á allar 12 sýningamar SYNING íslensku óperunnar á óperunni Lucia di Lammermoor hefur fengið mjög góðar viðtök- ur, að sögn Olafar Kolbrúnar Harðardóttur óperustjóra. Upp- Hópferð í Metro- politanóperuna Miðar seld- ust upp á sex tímum EITT hundrað farmiðar í hópferð á sýningu í Metropolitanóperunni í New York 25. mars, þar sem Kristján Jóhannsson óperusöngv- ari og Placido Domingo munu koma fram, seldust upp hjá Úr- vali-Útsýn á sex klukkustundum. Hópferðin var auglýst í Morgun- blaðinu sl. sunnudag og seldust allir miðamir á mánudag. Hörður Gunn- arsson, forstjóri Úrvals-Útsýnar, var í New York í gær að reyna að út- vega fleiri aðgöngumiða á sýninguna og meira gistiiými. Að sögn Drafnar Bjömsdóttur skrifstofustjóra var ekki ljóst í gærkvöldi hvort það tæk- ist. selt hefur verið á allar 12 sýning- ar til þessa en óvist er hvað sýn- ingamar verða margar. í febrúar er ráðgert að setja upp Sardas- furstynjuna eftir ungverska tón- skáldið Kálmán. Ópercttan var flutt í Þjóðleikhúsinu árið 1964. „Það hefur verið fullt hús á tólf sýningum," sagði Ólöf. „Og viðtökur sterkar í lokin. Þetta er tónlist sem heillar ef til em söngvarar til að syngja hana. Titilhlutverkið er Lucia og Diddú er heillandi í því hlut- verki. Hún bæði syngur og fylgir vel eftir með leik sem heillar áhorf- endur. Þeir sitja dolfallnir, að ég held. Þetta er svo mikill flúrsöngur alveg frá bytjun í hennar hlutverki og er strax svo mikill línudans að manni finnst í raddbeitingu. Þetta er í fyrsta sinn sem við höfum átt söngkonu til að takast á við hlut- verkið á íslandi. Ég held að áhorf- endur séu mjög stoltir og glaðir yfír því að hún skuli vera þeirra." Ólöf sagði að stjórnendur óper- unnar væm á verði og fylgdust með aðsókninni og um leið og færi að draga úr henni yrði dregið í land og hætt „Um leið og einhver bilbug- ur verður á, sem við höfum reyndar ekki fundið enn, gætum við þess að sýningum fari fækkandi. Ef við fmn- um að fólk vill enn koma munum við jafnvel stinga inn jólasýningum. Það væri ekki nema fólk hreinlega gefi óperumiða í jólagjöf." I I > I > i I i

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.