Morgunblaðið - 12.11.1992, Blaðsíða 21

Morgunblaðið - 12.11.1992, Blaðsíða 21
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1992 21 Vöruskiptajöfnuður V öruinnflutningur minnkar um 12% VERÐMÆTI vöruinnflutníngs til landsins fyrstu níu mánuði þessa árs var um 12% minni en sama tímabil á síðasta ári. Þar af minnk- aði almennur innflutningur um 8%. Verðmæti vöruútflutnings var á þessum tíma 5% minni en í fyrra. í septembermánuði voru fluttar út vörur fyrir 7,6 milljarða kr.-og inn fyrir 7,4 milljarða. Við þessar innflutningstölur bætir Hagstofan síðan verðmæti þriggja skipa, alls 2,2 milljarða kr., sem flutt voru inn í sumar en ekki gengið frá tollafgreiðslu fyrr en nú.' Með skip- unum er því óhagstæður vöru- skiptajöfnuður í september sem nemur 2 milljörðum samanborið við 800 milljóna kr. hagstæðan jöfnuð í fyrra. Fyrstu níu mánuði þessa árs voru fluttar út vörur fyrir 65,7 milljarða kr. en inn fyrir 63 millj- arðar kr. fob. Vöruskiptajöfnuður- Aukin þjón- usta bókabíla ÁÆTLUN bókabíla breytist all- verulega frá 16. nóvember. Þá bætast við nýir viðkomustaðir í Grafarvogi og Suðurhlíðum og einnig við Hús aldraðra í Mjódd, við Sléttuveg, Skúlagötu Og Vest- urgötu, segir í frétt frá Borgar- bókasafninu. Viðkomustaðir bókabíla fjölgar úr 32 í 40. Með fjölgun þeirra breyt- ist áætlun bókabíla og verður stans- að eina klukkustund á hverjum stað. inn var því hagstæður um 2,8 milljarða kr. en á sama tíma á síðasta ári var hann óhagstæður um 2,1 milljarð kr. Úr fiskeldisstöð. Ný skýrsla um framtíð fiskeldis Lagt til að 200 milljónir fari í þróunar- og rannsólmaverkefni Læra ber af mistökum fortíðarinnar RANNSÓKNARRÁÐ ríkisins hefur gefið út nýja skýrslu um fiskeldi og sjávarbúskap á íslandi. Þar kemur fram að lagt er til að varið skuli tæplega 200 milljónum króna í þróunar-og ransóknarverkefni á þessii sviði á næstu fjórum árum. Höfundar skýrslunnar segja að íslendingum beri að læra af mistökum fortíðarinnar í fiskeldismálum en jafnframt að þessi atvinnugrein eigi mikla möguleika I framtíðinni ef vel er hald- ið á málunum. Á blaðamannafundi sem haldinn var til að kynna efni skýrslunnar kom m.a. fram hjá Guðmundi Stefánssyni framkvæmdastjóra, eins af höfund- um hennar, að helstu orsakir þess að svo illa fór í fiskeldismálum hér- lendis á síðasta áratug og raun ber vitni hafi verið að menn fóru alltof geyst af stað og skorti líffræðilega, tæknilega og rekstrarlega þekkingu á laxeldi. Ennfremur hafi eldisstofn- inn verið óhentugur og þótt miklum fjármunum hafi verið varið til grein- arinnar var fjárskortur samt þáttur þess að illa fór. Guðmundur Stefánsson segir að þrátt fyrir þessa ógæfulegu byrjun séu miklir möguleikar til staðar fyrir fiskeldi í framtíðinni. Hann nefnir sem dæmi að áætlað er að neysla sjávarfangs í heiminum muni aukast um 30 milljónir tonna á næstu 10 árum og þar af muni um 20 milljón- ir tonna koma úr fiskeldi. „Það skipt- ir okkur því miklu máli að þeir mögu- leikar sem til staðar eru hérlendis séu nýttir á sem bestan hátt,“ segir Guðmundur. í máli hans kemur fram að þær tillögur sem höfundar skýrsl- unnar eru sammála um að þurfí að komast til framkvæmda eru m.a. að tæplega 200 milljónum króna verði varið til rannsókna og þróunar á næstu íjórum árum, bæði í laxeldi og lúðueldi auk annarra tegunda. Hinu opinbera beri að marka heildar- stefnu í þessum málum a.m.k. til næstu aldamóta og að nauðsynlegt sé að vista þennan málaflokk undir einu ráðuneyti. Rætt hefur verið um að um 10 milljörðum króna hafí verið eytt í fískeldi á undanfömum árum og höfundar skýrslunnar segja að ljóst sé að mikið af þeim fjármunum sé glatað fé. Þeir vilja hinsvegar ekki benda á neina sökudólga í þessum efnum en leggja áherslu á að við höfum þessa fortíð til að læra af henni svo mistökin verði ekki endur- tekin. Snjókoma í Þing- eyjarsýslu Rafmagnið af austan Húsavíkur Húsavík. FYRSTA snjókoma vetrarins hqfst í fyrrakvöld og hefur ver- ið svo tií stanslaus síðan. í gær- kvöldi var kominn dálítill snjór í bænum. Ófærð hefur verið á vegum í nágrenni Húsavíkur. Þá fór rafmagn af á þéttbýlis- stöðunum fyrir austan Húsavík. Það sem einkennir þetta hret er að á vegi milli Húsavíkur og Akureyrar má heita greiðfært og lítið hefur orðið að hreinsa snjó af þeim vegi. Er það helst á Víkur- skarði og Laxamýrarleiti og í ná- grenni Húsavíkur. Tjörnesvegur er alveg ófær og hætt var við að hreinsa hann í gær. Mesta úrkom- an á landinu í fyrrinótt var á Mánárbakka. Aðal snóbeltið virð- ist ná frá Laxamýrarleiti og norð- ur í Öxarfjörð. Þegar austar dreg- ur hefur frekar rignt en snjóað. Rafmagn fór af byggðinni fyrir austan Reykjaheiði og þéttbýli- staðirnir Kópasker, Raufarhöfn og Þórshöfn misstu rafmagn frá Laxárvirkjun klukkan 16 í gær. Var álitið að bilunin væri á Reykjaheiði. Viðgerðarflokkur Rafmagnsveitna ríkisins var staddur við eftirlit í Kelduhverfí og hóf þegar leit og viðgerð. Þétt- býlisbæimir hafa rafmagn frá dís- elrafstöðvum. (Fréttaritari) MAIMOLEUM G Ó L F E F N I Ú R R í K I NÁTTÚRUNNAR ó MARMOLEUM gólfefnum í verslun okkar að Síðumúla 14 frá mánudegi til laugardags í tilefni nýrrar litalínu. MARMOLEUM er unnið úr náttúrulegum efnum og er (dví fullkomlega vistvænt. MARMOLEUM fæst í 68 litum. MARMOLEUM býður heildarlausn í gólfefnum með óteljandi samsetningar- möguleikum. Olöf Flygenring arkitekt og Júlía P. Andersen innanhússarkitekt verða í versluninni frá klukkan 16-18 alla sýningardagana og veita viðskiptavinum ókeypis ráðleggingar um val á MARMOLEUM KJARAN Gólf bú na& u r SÍÐUMÚLA 14 • SÍMI (91) 813022

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.