Morgunblaðið - 12.11.1992, Blaðsíða 33

Morgunblaðið - 12.11.1992, Blaðsíða 33
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1992 33 YFIRTAKA LANDSBANKANS A SAMBANDSFYRIRTÆKJUM Erfitt að selja hlutabréfin á almennum hlutabréfamarkaði Meðeigendur í Samvinnuferðum og íslenskum sjávarafurðum munu nýta forkaupsrétt VEGNA ástandsins á hlutabréfamarkaðnum nú um stundir telja verðbréfasalar að erfitt geti verið fyrir Landsbankann að selja hluta- bréf sín í Sambandsfyrirtækjunum á aimennum markaði á næstu mánuðum. Ýmsar eignir eru þó taldar ágæt söluvara til lengri tíma litið. Þá er talið að einstakir fjárfestar, bæði erlendir og innlendir, gætu haft áhuga á sumum fyrirtækjanna af ýmsum ástæðum, til dæmis til þess að halda uppi eða draga úr samkeppni. Meðeigendur Sambandsins í sumum fyrirtækjunum eiga forkaupsrétt og hyggjast í einhveijum tilvikum nýta sér hann. Að sögn Helga Jóhannssonar, forstjóra Samvinnuferða-Landsýnar hf., munu aðrir hluthafar ferða- skrifstofunnar örugglega nýta sér forkaupsrétt sinn og Hermann Hansson, stjórnarformaður Islenskra sjávarafurða hf., segist gera ráð fyrir að framleiðendur sem eiga meirihluta hlutafjár í fyrirtæk- inu og eiga forkaupsrétt að þeim hlut sem Landsbankinn keypti af Sambandinu hefðu hug á að kaupa í það minnsta eitthvað af þeim hlut. Kaup Eimskips á hiutabréfum í Samskipum hafa ekki verið rædd í stjórn Eimskips en stjórnarformaður Eimskips segir að félag- ið vilji fylgjast með hvernig þessi mál gangi fram. Guðmundur Hauksson, fram- kvæmdastjóri Kaupþings, sagði að hlutabréfamarkaðurinn væri í nið- ursveiflu, annars vegar vegna efna- hagsástandsins í landinu og hins vegar vegna þess að nú byðust mjög góðir vextir á verðbréfamark- aðnum, ekki síst af verðbréfum rík- isins. Taldi hann að fólk vildi fara varlega í kaup á hlutabréfum og legði peninga frekar í öruggari verðbréf. Þetta sagði Guðmundur að ætti eftir að breytast og betri sölumöguleikar myndu skapast þegar frá liði. Aðrir stjórnendur verðbréfafyrir- tækja sem rætt var við í gær sögðu það sama. Söluhorfur væru ekki góðar á almennum markaði í bili en útlit fyrir að Landsbankinn gæti selt hlutabréf sín á lengri tíma. Einn verðbréfasalinn benti á að þó að litlir sölumöguleikar væru nú á almennum markaði gæti verið að annarskonar fjárfestar vildu kaupa þessi fyrirtæki. Nefndi hann sem dæmi að fýrirtæki gæti haft áhuga á að kaupa keppinaut eða önnur fyrirtæki vildu kaupa sig inn í fyrir- tæki í annarri starfsemi til að víkka út starfsemi sína. Þá nefndi hann að þó að deyfð væri á almennum hlutabréfamarkaði væri huganlegt að ýmsir sjóðir vildu fjárfesta í þess- um hlutabréfum. Guðmundur Hauksson sagði að vaxandi möguleikar væru á sölu hlutabréfa til útlendinga eftir því sem fleiri hömlum á fjármagns- flutningum væri aflétt og ísland öðlaðist meiri viðurkenningu á fjár- festingarmörkuðum erlendis. Við- mælendur nefndu Samskip hf. og íslenskar sjávarafurðir hf. sem álit- lega söluvöru erlendis. Forkaupsréttur í Samvinnuferðum nýttur Hlutabréfin í Samskipum hf. eru einu hlutabréf Hamla hf. sem eru skráð á almennum hlutabréfamark- aði. Olíufélagið er einnig skráð á markaðnum en þó að verðmæti hlutabréfa þess séú í pakkanum sem Hömlur hf. yfirtóku af Sam- bandinu hefur Olíufélagið sjálft keypt bréfin með samþykki bank- ans. Hin félögin eru flest lokuð og hafa aðrir eigendur forkaupsrétt. Vitað er að forkaupsréttur verður nýttur í einhverjum tilvikum. Þann- ig segir Helgi Jóhannsson, fram- kvæmdastjófi Samvinnuferða- Landsýnar hf., öruggt að aðrir eignaraðilar muni nýta forkaupsrétt sinn. Eignarhlutur Sambandsins í ferðaskrifstofunni nam 33% og tel- ur Helgi að eigendaskiptin muni engin áhrif hafa á starfsemi fyrir- tækisins. Hlutafé Samvinnuferða dreifist mjög jafnt á milli annarra eignaraðila en þeirra helstir eru Olíufélag íslands hf., Vátrygginga- félag íslaiids hf., Alþýðusamband íslands, Bandalag starfsmanna rík- is og bæja^ Bandalag háskóla- manna, Farmanna- og fískimanna- sambandið, Samband bankamanna og Stéttarsamband bænda. „Þeir ijölmörgu eigendur sem þarna eru munu örugglega nýta sér sinn forkaupsrétt,“ segir Helgi Jó- hannsson. Bæði jákvæðar og neikvæðar hliðar fyrir Samskip Eftir að Samskip hf. voru gerð að almenningshlutafélagi var ákveðið að hlutafé félagsins yrði aukið með almennu hlutafjárútboði. í fyrsta áfanga var boðið út hlutafé að nafnverði 100 milljónir kr. á genginu 1,12, eða 12% yfír nafn- verði. Tókst að selja þessi bréf og ákveðið var að ráðast í annan áfanga útboðsins. Vátryggingafé- lag íslands keypti hluta þess útboðs á sama gengi í ágústmánuði. Bréfin hafa ekki hreyfst á markaðnum sið- an og hafa nú verið tekin af mark- aðnum. Landsbankinn yfírtók hlutabréf Sambandsins í fyrirtæk- inu á genginu 0,9, eða 10% undir nafnverði. Hæsta tilboð í bréf fyrir- tækisins á hlutabréfamarkaðnum nú er á genginu 0,T%. Ástæðan fyrir þessu verðfalli frá því bréfín voru metin við hlutafjárútboðið er sú staðreynd að rekstraráætlanir hafa ekki staðist. Gert var ráð fyr- ir 122 milljóna kr. hagnaði af fyrir- tækinu á árinu 1992 en 129 millj- óna kr. tap varð fyrstu sex mánuði ársins og ekki útlit fyrir hagnað á árinu. Starfsmaður verðbréfafyrir- tækis sem rætt var við í gær taldi að lækkun gengisins í 0,9 endur- speglaði ágætlega þá breytingu sem orðið hefði á rekstri fyrirtækisins. Ómar Jóhannsson, forstjóri Sam- skipa, vildi ekkert tjá sig um kaup Landsbankans á fyrirtækinu fyrr en hann hefði fengið formlegar upplýsingar um eigendaskiptin. Samkvæmt upplýsingum Morgun- blaðsins er það skoðun forsvars- manna fyrirtækisins að frá við- skiptalegu sjónarmiði sé meiri styrkur í því fyrir fyrirtækið að hafa Landsbankann að baki sér heldur en veikt Samband. Á þessu máli séu þó bæði jákvæðar og nei- kvæðar hliðar. Eimskip fylgist með „Ég geng út frá því að bæði ís- lenskir innflytjendur og útflytjend- ur óski eftir því að hafa valkosti í flutningum hér eftir sem hingað til og að samkeppni verði tryggð. Allir vilja hafa eitthvert val fremur en einn aðila með einokunaraðstöðu," sagði einn af forystumönnum Sam- skipa. Sem hugsanlegir kaupendur hlutabréfanna í Samskipum hafa samtökin íslensk verslun verið nefnd, en það eru samtök kaup- manna og heildsala. Einnig skipafé- lög, svo sem Eimskip og erlend flutn- ingafyrirtæki. Ekkert fékkst stað- fest um áhuga þessara aðila í gær. Indriði Pálsson, stjórnarformaður Eimskips, sagði í gærkvöldi þegar leitað var eftir viðbrögcíum hans: „Eimskipafélagið hefur áhuga á því sem er að gerast í viðskiptaum- hverfinu sem það starfar í. Af þeirri ástæðu hljótum við að hafa áhuga á því hvemig þessi mál ganga fram. En málið hefur ekki verið rætt í stjórn Eimskipafélagsins og engin afstaða verið tekin í því efni. Þess vegna get ég ekki talað meira um málið efnislega.“ Er Indriði var spurður að því hvort hann teldi koma til greina að Eimskip byði í hlutaréfin í Samskipum sagðist hann ekki getað svarað því. Sagði hann að ekki væri hægt að taka afstöðu til málsins fyrr en vitað væri hvað væri í gakkanum. Hlutabréf í Islenskum sjávarafurðum á markað Hlutur Sambandsins í íslenskum sjávarafurðum hf. nam 45%. Aðrir hlutir skiptast á milli framleiðenda sem eiga fímm menn af sjö í stjórn þess. Hermann Hansson, kaupfé- lagsstjóri á Höfn og stjómarfor- maður félagsins, segist ekki sjá að breyting verði á starfsemi sölusam- takanna þrátt fyrir að breyting verði á eignarhaldi. Sagði hann að frekar myndi leita á einhvetja hvort þessi breyting yrði hvati til þess að breytingar yrðu gerðar á uppbygg- ingu sölusamtakanna. „Ég er ekki að segja að það sé ósk okkar en vafalaust myndu einhveijir hugsa um það,“ sagði Hermann. Ekki tókst að ná í helstu forsvarsmenn Sölumiðstöðvar hraðfrystihúsanna til að spyija þá hvort áhugi væri hjá SH á sameiningu fyrirtækjanna. „Það er ljóst að núverandi hlut- hafar, sem eru fyrst og fremst frystihús, eiga forkaupsrétt á þeim hlutum sem þama skipta um eig- endur, og ég geri frekar ráð fyrir að menn hafí hug á að kaupa í það minnsta eitthvað af þessum hlut,“ sagði hann. Kvaðst Hermann ekki hafa leitt hugann að því hvort er- lendir aðilar keyptu hlut í félaginu og sagðist telja það afar ólíklegt. Hermann sagðist hins vegar telja líklegt að félagið yrði opnað og ein- hver hlutabréf í íslenskum sjávaraf- urðum færu út á almennan hluta- fjármarkað á næsta ári. „Við höfum haft þá stefnu að þetta hlutafélag yrði opnað. Mönnum fannst rétt að leyfa því að stíga fyrstu sporin sem lokað félag áður en það yrði opnað en mér kæmi það á ðvart ef ekki yrði tekin ákvörðun um að opna félagið á næsta aðalfundi og þá færu sjálfsagt einhver hlutabréf á opinn markað," sagði Hermann. í máli hans kom ennfremur fram að ekki hafi verið boðað til stjómar- fundar vegna sölu Sambandsins til Landsbankans en það mál yrði væntanlega til umræðu á næsta reglulega fundi stjómar. Stjórn Kaupfélags Eyfirðinga á Akureyri lýsti á dögunum yfir áhuga á að kaupa hlut Sambands- ins í Efnagerðinni Sjöfn hf. og Kaffibrennslu Akureyrar sem kaup- félagið á til helminga á móti Sam- bandinu. * Islandsmeist- arakeppni í karaoke Á VEGUM karaokekeppninnar Olvers í Glæsibæ er nú hafin ís- landsmeistarakeppnin í karaoke- söng. Þetta er í þriðja skipti sem keppni þessi er haldin og að þessu sinni í samstarfi við Bylgjuna FM 98.9. Keppnin fer þannig fram að á hveijum fimmtudegi og sunnudegi fram að úrslitakeppni keppa sex þátttakendur hvert kvöld. Tveir þeirra vinna sér rétt til þátttöku í undanúrslitum, sem verða í Ölveri í desember nk., en þar verða valdir tíu keppendur til þátttöku í úrslita- keppninni og jafnframt valin Reykja- víkurmeistari í karaokesöng. Sú ný- breytni hefur verið tekin upp frá fyrri keppnum að nú gefst færi á að keppa í dúettsöng. (Úr fréttatilkynningu) Heiðrún Anna Björnsdóttir, miss University, tók þátt í karaoke- keppni Olvers í fyrra og var myndin tekin við það tækifæri. Sænskir Biblíukeimarar hjá Hjálpræðishernum HÉR Á LANDI eru stödd í boði Hjálpræðishersins hjónin Inge- mar og Marie-Helene (Majsan) Myrin frá Örebro í Svíþjóð. Síðastliðna helgi voru haldnar samkomur í hersalnum á Akureyri og einnig voru margir Biblíutímar. Samkomurnar í Herkastalanum í Reykjavík byija fimmtudaginn 12. nóvember og verða á hveiju kvöldi til og með sunnudagskvöldsins 15. nóvember. Einnig verða Biblíu- tímar á laugardag og sunnudag. (Fréttatilkynning) Leiðrétting á línuriti VEGNA mistaka við vinnslu línurits, sem birtist með grein Kristjáns Þórarinssonar, stofn- vistfræðings Landssambands ís- lenskra útvegsmanna, á bls. 10 C í blaðinu í gær, er línuritið birt hér leiðrétt. Þá féllu niður nokkrar línur í greininni og eru þær feitletraðar hér: „Vera kann að léleg nýliðun undanfarinna ára stafí að hluta til af smæð hrygningarstofnsins, sem er aft; ur afleiðing mikillar sóknar. í öðru lagi ber að nefna að von- ir um stóra Grænlandsgöngu árið 1991 brugðust. í þriðja lagi var of stíft sótt í smáfisk, einkum á árunum 1987-1989.“ Síðar í greininni á að standa: „Hækkunar hlutfallsins á seinni árum verður þó vart hjá báðum kynjum, en munstrið er ekki nákvæmlega eins hjá kynjunum. í framhaldi af þessu hefur verið ákveðið að bæta við næstu úttekt útreikningi á hrygningarstofni byggðum á hrygnum eingöngu.“ Blaðið biðst velvirðingar á þessum mistökum. Myndl: Kynþroskahlutfall þorsks, eftir aldri, janúar til maí 1,0 0,9 0,8 0,7 0,6 0,5 0,4 0,3 0,2 0,1 0,0 1982 1983 1984 1985 1986 1987 1988 1989 1990 1991 Atriði úr myndinni. „Blade Runn- er“ í Saga-Bíói SAGA-BÍÓ hefur hafið sýningar á myndinni „Blade Runner". Myndin er framleidd af Michael Deeley og Ieikstýrð af Ridley Scott. Með aðalhlutverk fara Harrison Ford og Sean Young. Leikstjórinn Ridley Scott hefur nú gert nýja útgáfu af framtíðarþrillern- um „Blade Runner" sem hann gerði árið 1982. Hann hefur bætt inn nýj- um áður óséðum atriðum. Myndin gerist árið 2019 og segir frá einka- spæjara þess tíma sem á í höggi við glæpamenn í Los Angeles. Eru þar á ferðinni vélmenni sem eru svo full- komin að nánast ógerlegt er að þekkja þau frá mannfólkinu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.