Morgunblaðið - 12.11.1992, Blaðsíða 47

Morgunblaðið - 12.11.1992, Blaðsíða 47
MORGUNBUAÐTÐ FIMMTUDAGUK 12. NÓ'VEMBER 1992 47 Að bíta í skottið á sér Frá Jóni Sæmundi Sigurjónssyni: í LÍTILLI grein í Morgunblaðinu 3. nóvember sl. sér Guðjón Axels- son, prófessor í gervigómagerð, ástæðu til þess að uppfræða ab menning um vanþekkingu mína. Eftir langa veru í háskólanum er- .lendis við nám og störf kannast ég vel við þann eiginleika sumra prófessora að lýsa umsvifalaust yfir vanþekkingu annarra manna ef þeir eru annarrar skoðunar en þeir sjálfir. Það er auðvitað ekki öllum gefið að hafa höndlað sann- leikann. Annar er sá eiginleiki prófessora sem ég kannast jafn vel við, en það er nákvæmni í vinnubrögðum. Ég hélt satt að segja að það gilti eins fyrir þá sem stunda fræði gervigóma sem önnur vísindi. Prófessor Guðjón leggur áherslu á í grein sinni að kynna mönnum brot úr lögum um tannlækningar nr. 38 frá 12. júní 1985. Fer hann yfir þær greinar laganna sem fjalla um verksvið tannlækna og aðstoð- arfólks þeirra. Tilgangur þessarar yfirferðar er að því er virðist að sýna fram á eitthvað varðandi tannsmiði. Um þá gilda þó önnur lög eins og prófessorinn rétt ýjar að, er hann tekur réttilega fram að tannsmiðir séu iðnaðarmenn en ekki tæknimenntuð heilbrigðis- stétt. Hin langa tilvitnun í tann- læknalögin í þessu sambandi var því rétt hæpin. Það gat þess vegna engan veginn verið rökrétt niður- staða er prófessorinn heldur áfram í grein sinni og telur þá tannsmiði engu að síður vera „sérhæft að- stoðarfólk tannlækna". Tannsmíð er sjálfstæð iðngrein og tannsmiðir reka oftar en ekki sjálfstæð fyrirtæki alls óháð rekstri tannlækna. Tannsmiðir eru ekki frekar sérhæft aðstoðarfólk tann- lækna en svæfingarlæknar eru sérhæfðir aðstoðarmenn skurð- lækna. Um nána samvinnu er þó vissulega að ræða í báðum tilvik- um. Niðurstöður prófessorsins eru því rökleysa. Þá kemur að kostulegri staðhæf- ingu í áðurnefndri grein, sem er um leið tilefni þessara skrifa. Pró- fessor Guðjón segir orðrétt í grein sinni: „... lýsir formaður Trygg- ingaráðs opinberlega yfir þeirri skoðun sinni að lögleiða beri skottulækningar." Mér er ljóst, að skv. lögum um tannlækna og sbr. nýuppkveðið lögbann á einn þátt starfsemi Bryndísar Kristinsdótt- ur, tannsmíðameistara, hafa tann- læknar einkarétt á að stunda tann- lækningar í munnholi sjúklings. Þessar staðreyndir veita þó pró- fessor Guðjóni engan veginn þann rétt að leggja mönnum orð í munn, sem aldrei hafa verið sögð. Sú gervismíði getur ekki einu sinni fallið undir fræðin. Sá þáttur í starfi tannsmiðs sem hugsanlega brýtur í bága við lög um tannlækna er mótataka fýrir smíði heilgóms. Þetta er sá þáttur þar sem prófessorinn telur að ver- ið sé að stunda tannlækningar og þá væntanlega skottulækningar, ef það er tannsmiður sem kemur plastmassanum fýrir í munnholi viðskiptavinarins til að taka af honum mót. Nú bendir prófessor Guðjón á „að sá er skottulæknir sem stund- ar lækningar án nauðsynlegs leyfis yfirvalda“. Ef lögum er breytt þannig að enginn vafi leiki á að þessi mótataka er heimil fyrir tannsmiði, þá er varla um skottu- lækningar að ræða. Sá sem heldur því engu að síður fram virðist mér hafa bitið rökfræðilega í skottið á sér. Það er eftirtektarvert að pró- fessor G'uðjón hirðir ekkert um möguleika elli- og örorkulífeyris- þega til að fá heilgóma 35% ódýr- ara en verið hefur. Hann er einfald- lega ekki sammála því að það gefí tilefni til að eftir einhveiju sé að slægjast. Mér dettur ekki í hug að gera lítið úr hæfni og dugnaði íslenskra tannlækna. Þvert á móti. Þeir veita þjónustu, sem er stund- um með því besta sem völ er á. En talsmenn þeirra hafa heldur aldrei ljáð máls á því að sú þjón- usta ætti að vera ódýr. Ekki held- ur fyrir elli- og örorkulífeyrisþega — í kreppunni. JÓN SÆMUNDUR SIGURJÓNSSON formaður Tryggingaráðs Tryggingastofnun ríkisins Laugavegi 144, Reykjavík Tollar á fiski til EB landa og bókun 6 Frá Aðalsteini Sigurðssyni: Fimmtudaginn 5. þessa mánað- ar birtist í Morgunblaðinu grein eftir einn af þingmönnum okkar Reyknesinga, Áma R. Árnason, þar sem hann ræðir m.a. um meint ágæti EES-samningsins. Það er, frá mínum bæjardyrum séð, ýmis- legt rangsnúið í málflutningi hans, en ég ætla aðeins að gera athuga- semdir við fullyrðingar hans um tolla á fiski, sem við seljum til EB-landa. Hann segir: „Samningurinn mun gjörbreyta færum okkar til að flytja unnar sjávarafurðir til EB-landa vegna mikilla tollaniður- fellinga þegar í byijun næsta árs. Af saltfiski falla þá strax niður allir tollar, þeir samsvara 20% af framlegð sjávarútvegs á íslandi í ár og nema milljörðum króna. Svo mikil breyting verður á tollum á fullunnum afurðum, neytenda- pakkningum og sjávarréttum, að útflutningur þeirra getur loksins hafist." Rétt er það, að tollar myndu falla niður af saltfiski, ef við gengj- um í EES, það er að segja 12% af saltfiski og 20% af saltfiskflök- um, en að það samsvari ^,20% af framlegð sjávarútvegs á Islandi í ár“ getur ekki staðist. Tollar geta hins vegar varla fall- ið niður af öðrum „fullunnum af- urðum, neytendapakkningum og sjávarréttum", þar sem engir tollar hafa verið á þeim til EB-landa síð- an 1976, samkvæmt hinni títt nefndu bókun 6. Þegar þingmenn okkar vita ekki meira en þetta um viðskipti okkar við EB-löndin, hvernig eigum við þá að treysta þeim til að afgreiða samninginn um aðild okkar að EES? Frammámenn okkar hafa að undanförnu brigslað almenningi um að vera of heimskur til að taka afstöðu til samningsins, en það hvarflar að mér hvort við séum nokkuð verr gefin en blessaðir þingmennirnir okkar. Ættum við því alveg eins að geta dæmt um samninginn og þeir. AÐALSTEINN SIGURÐSSON fískifræðingur, Vallarbraut 8, Seltjarnarnesi. Pennavinir Þrettán ára sænsk stúlka með áhuga á hundum, tónlist, sundi o.fl: Asa Samuelsson, Vitsippevagen 13, S-43833 Landvetter, Sweden. VELVAKANDI ATVINNU- SKAPANDI ÚRRÆÐI Konráð Friðfinnsson, Þórhóls- götu la, Neskaupstað: Það er mikið atvinnuleysi í dag. Mörg fyrirtæki beijast í bökkum og atvinnuleysið mun aukast enn verði þau gjald- þrota: Ég er að velta því fyrir mér hvort lífeyrissjóðirnir gætu ekki komið þarna inn í og veitt fé úr sínum sjóðum til að styrkja fyrirtækin. Ég sé ekki ástæðu til þess að þeir einblíni á húsnæðiskerfið, eins og þeir hafa gert, við þessar aðstæður. Þeir hljóta að þurfa að líta á aðstæðurnar eins og þær eru núna — því fyrst skulum við útvega fólkinu vinnu en síðan getum við reynt að selja því hús. GLERAUGU Gyllt og kringlótt gleraugu í svörtu hulstri töpuðust við Laugarnesskóla fyrir nokkru. Finnandi er vinsamlegast beð- inn að skila þeim í Laugarnes- skóla. VETTLINGAR Bláir útpijónaðir fingravettl- ingar töpuðust sl. mánudag á Freyjugötu eða í Þingholtunum. Finnandi er vinsamlegast beð- inn að hringja í síma 27515. Fundarlaun. GLERAUGU Barnagleraugu með gylltri umgjörð töpuðust við Selja- skóla. Finnandi er vinsamlegast beðinn að hringja í síma 78029 eða skila þeim í Seljaskóla. Sautján ára japönsk stúlka með margvísleg áhugamál: Fumiyo Meguro, 68-6 Kitano Aza Shitakari Kanaashi, Akita-shi Akita-ken, 010-01 Japan. LEIÐRÉTTIN G AR Rithöfundur lýsir myndlistarmanni í grein Erlends Jónssonar, Rit- höfundur lýsir myndlistarmanni (4. nóv. sl.), féllu niður nokkrar línur með þeim afleiðingum að fyrri hlut- inn brenglaðist. Hér kemur hið rétta: Gömlu meistararnir voru enn starfandi og í hávegum hafðir. Öðru máli gegndi um abstraktmálarana sem svo voru kallaðir, unga menn sem flestir voru nýkomnir frá námi og höfðu furðulegar hugmyndir um myndlist, að ýmsum þótti. Norskur gír Meinleg villa var í frétt í blaðinu s.l. þriðjudag um gjöf Heklu hf til Vélskólans. Gírinn sem Hekla gaf er norskur af gerðinni Hytek en ekki notaður. Ökeypis lögfræðiaðstoð ó hverju fimmtudugskvöldi milli kl. 19.30 og 22.00 í símu 11012. ORATOR, élag laganema. I Royal -fjolbrcyttuir skyndibúðingur Vántar þig nýtt sjónvarp?? Eigum ennþá eftir örfá litsjónvarps- tæki á alveg frábæru verði!! 20" litsjónvarpstæki m/fjarstýringu. Verð frá kr. 25.900,- stgr. Hágæða myndband m/fjarst. + 2 stk. 3ja tíma spólur. Verð aðeins kr. 25.900,- stgr. Þú fínnur varla betra verð!!! □ Vasaútvarp m/heyrnatólum kr. 800 LJ Vasadiskó kr. 1.440 □ Vasadiskó m/útvarpi kr. 1.990,- Ll Útvarpsklukkur frá kr. 1.400 □ Útvarpsklukkur m/segulbandi frá kr. 3.400 □ Heyrnartól frá kr. 200 □ Bíltæki m/segulbandi frá kr. 3.900 □ Bíltæki með geislaspilara kr. 26.900 Ll Bílahátalarar frá kr. 1.600 parið _l Bilamagnarar frá kr. 3.500 U Hljómtæki án geislaspilara frá kr. 13.900 □ Hljómtæki með geislaspilara frá kr. 19.900 □ 14" sjónvörp m/fjarstýringu kr. 24.600 □ 20" sjónvörp m/fjarstýringu kr. 29.900 U 21" sjónvörp m/fjarstýringu og textavarpi kr. 49.900 U Ferðatæki (útvarp - segulband) frá kr. 3.900 U Ferðaútvörp frá kr. 1.300 Þýskt gæðamerki Hefur þú efni á að sleppa þessu? TÓNVER _Garðastræti 2, sími 627799._ Sendum hvert á land sem er. Munalán Ábyrgð

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.