Morgunblaðið - 12.11.1992, Blaðsíða 19

Morgunblaðið - 12.11.1992, Blaðsíða 19
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1992 19 umhverfis- og þróunarmálum en í niðurstöðum ráðstefnunnar er Iögð rík áhersla á svæðisbundna sam- vinnu í umhverfísmálum. Ekki er að efa að hin nána sam- vinna Norðurlandanna á ýmsum sviðum muni skapa færi á að ná góðum árangri í umhverfísmálum. Islendingum er það fagnaðarefni að utanríkisráðherra Noregs, Thor- vald Stoltenberg, hefur boðið til ráðstefnu með Norðurlöndunum og Rússlandi í byrjun næsta árs um málefni Barentshafsins sem varða augljóslega allar þjóðir á norður- slóðum, sem byggja afkomu sína á lífríki sjávar. Endurskoðun Norðurlanda- samstarfsins Skýrsla starfshóps forsætisráð- herranna um endurmat á norrænni samvinnu er á margan hátt athygl- isverð. Hugmyndir um að forsætis- ráðherramir verði virkari í norrænu samstarfi eru jákvæðar, enda geta þær leitt til þess að samstarfið fái aukið pólitískt vægi. En virk for- ysta má ekki Ieiða til þess að lýð- ræðisleg áhrif séu fyrir borð borin. Það eru t.d. allar forsendur fyrir því að á fundum Norðurlandaráðs taki þingmenn ákvarðanir í ríkari mæli, m.a. um flárhagsmálefni samstarfsins. Ekki má líta framhjá hagsmun- um sjálfstjórnarsvæðanna á Norð- urlöndum við þá endurskipulagn- ingu sem fyrirsjáanleg er á norrænu samstarfi. Þótt ný verkefni bíði á alþjóðavettvangi er brýnt að móta framtíð norrænnar samvinnu á þann hátt að Álendingar, Færeying- ar og Grænlendingar muni áfram sjá sér akk í að taka þátt í því. Norræn samvinna hefur frá upp- hafi verið ein af meginstoðum utan- ríkissteftiu Norðurlandaþjóðanna. Því er þó ekki að leyna að á síð- ustu áram hefur gætt stöðnunar og ákveðinna takmarkana á vissum sviðum í þessu samstarfi. Á öllum Norðurlöndunum era tímar efna- hagslegs samdráttar. Þeim fylgja erfiður niðurskurður og endurmat á íjármálum hins opinbera og hlut- verki og skipan velferðarkerfisins. Til þess að komast út ur þessum erfíðleikum er mikilvægt að Norð- urlöndin beiti sér sameiginlega á vettvangi OECD, Alþjóðagjaldeyr- issjóðsins og Evrópusamstarfsins fyrir samræmdri efnahagsstefnu til að endurvekja hagvöxt og efla at- vinnu í heiminum. Það er mikilvæg- asta leiðin til að varðveita velferð og lífskjör. Nýir tímar — nýjar lausnir Fastir þættir í heimsmynd okkar hafa horfið og ný vandamál skotið upp kollinum. Nýir tímar kalla á nýjar lausnir. Nú verður að þróa norrænt samstarf og samvinnu í takt við nýja tíma. Höfundur er iðnaðar- og viðskiptaráðherra. Lauk doktorsprófi í eðlisefnafræði AUÐUNN Lúðvíksson lauk 13. febrúar sl. doktorsprófi í eðlis- efnafræði við University of California í Santa Barbara (UCSB) í Bandaríkjunum. Rit- gerðin nefnist „Surface Oxidati- on and Chlorination of GaAs hálfleiðara. GaAs er mjög að ryðja sér til rúms í fljótvirkum rafeindarásum og oxun á yfírborði þess gegnir þar mjög mikilvægu hlutverki þar sem sambönd súrefnis og GaAs mynd einangrandi lög milli leið- andi yfirborða. Notkun þessara sambanda er þó erfiðleikum bund- ið, mestmegnis vegna þess að GaAs er blanda tveggja frumefna (Ga og As) sem mynda súrefnis- sambönd með mismunandi eigin- leika. Rannsóknir Auðuns beind- ust að notkun efnasambanda sem innihalda nitur og súrefni (No, N20, N02) við oxunarferlið og leiddu í Ijós að þessi sambönd era á ýmsan hátt hagkvæmari í notk- un en hreint súrefni (02) sem er venjulega notað. Við framleiðslu örsmárra GaAs eininga eru klórinnihaldandi efni einna mest notuð en þau mynda afar margvísleg myndefni þegar þau hvarfast við GaAs. Rannsókn- ir Auðuns á þessu sviði vora eink- um varðandi greiningu þessara myndeftia og áhrif ýmissa hvarf- þátta á myndun þeirra, Dr. Auðunn Lúðvíksson. Auðunn lauk stúdentsprófi frá Fjölbrautaskólanum í Breiðholti 1980 og BS-prófi frá efnafræði- skor Háskóla íslands 1985. Ári síðar lauk hann framhaldsverkefni þaðan og hóf nám við UCSB 1986. Foreldrar hans era Lúðvík Leós- son, byggingafræðingur og Guð- rún Auðunsdóttir, myndlistar- kona. Auðunn starfar nú við rann- sóknir við University og Washing- ton í Seattle. ...alltaftilað •O tryggja atvinnu SÆTRE FYRIR SÆLKERANN Kaptein kexið gerir lífið léttara þegar allt annað bregst. Hæfir öllu áleggi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.