Morgunblaðið - 12.11.1992, Blaðsíða 30

Morgunblaðið - 12.11.1992, Blaðsíða 30
Mývatnssveit Kiwanisklúbburinn Herðubreið fagn- ar 20 ára starfsemi Björk. Mývatnssveit. KIWANISKLÚBBURINN Herðubreið í Mývatnssveit rainntist 20 ára starfs með veglegu afmælishófi í Hótel Reynihlíð síðastliðinn laugar- dag. Fjölmenni var, eða 115 manns. Frá Grímsey komu 15 með flugi. Áttu viðstaddir þarna mjög ánægjulega kvöldstund. Margar ræður voru fluttar og fékk Herðubreið gjafir og skeyti frá öllum klúbbum Óðinsssvæðis svo og frá Skildi, Siglufirði. var að öflun félaga í klúbbinn og starfið kynnt. Ákveðið var að stofna klúbbinn þann 27. ágúst árið 1972 og var honum gefið nafnið Herðu- breið. Vígluhátíð var haldin í Hótel Reynihlíð 9. september árið 1972. Stofnfélagar voru 25 og eru 6 þeirra enn starfandi innan klúbbsins. Alls hafa 70 gerst félagar f klúbbnum og eru félagar í dag 23. Fyrsti for- seti var Snæbjöm Ingi Jónsson, nú- verandi forseti er Amþór Bjömsson. Þó skipst hafi á skin og skúrir í starfsemi Herðubreiðar á síðustu 20 ámm hefur klúbburinn unnið að fjöl- mörgum framfaramálum. Hann hef- ur m.a. aflað fjár til styrktar margs konar menningar- og félagsmála. Kristján Kiwanisklúbburinn Herðubreið var stofnaður árið 1972. Síðla vetrar árið 1971 komu nokkir menn saman í Mývatnssveit og ræddu um stofnun Kiwanisklúbbs. Til að kynna heima- mönnum Kiwanisstarfíð komu félag- ar úr Kiwanisklúbbunum Kaldbak á Akureyri á fundinn og síðan voru fleiri fundir haldnir þar sem unnið ----» 4.«-- Hvítasunnukirkjan Biblíukennsla og vakninga- samkomur Morgunblaðið/Rúnar Þór Vel heppnað bílabíó Fjöldi manns kom í bílabíó sem Greifínn efndi til við Togara- bryggjuna á þriðjudagskvöldið, en þar var sýnd Stuðmanna- myndin Með allt á hreinu. Það má segja að aðstæðurnar voru nokkuð ólíkar því sem menn hafa séð í bandarískum bíómyndum, í stað leggjalangra sælgætissölustúlkna voru á ferli með poppkomið þeir Andri Gylfason og Reynir Karls- son, kappklæddir í snjókomunni. Af fjölda bíógesta að dæma virðist þessi nýbreytni í skemmtanalífinu falla vel í kramið og því má vænta þess að framhald verði á. HELGA Zidermanis, kennari og predikari, verður með Biblíu- kennslu hjá Hvítasunnukirkjunni í kvöld, fimmtudagskvöld, og föstudagskvöld kl. 20 og á laugar- dag kl. 10.30. Vakningasamkom- ur verða á laugardagskvöld kl. 20 og á sunnudag kl. 15.30. Helga Zidermanis fæddist í Lett- landi þar sem hún ólst upp, en hún býr nú í Dallas í Bandaríkjunum. Hún flúði til Bandaríkjanna ásamt börnum sínum í lok síðari heims- styijaldarinnar þar sem hún komst í tengsl við lifandi kirkju, sem hún hefur verið virk í síðan. Hún ferðast mikið um Bandaríkin sem og til Evrópulanda, og hingað til lands hefur hún oft komið, en þetta er í fyrsta sinn sem hún kemur til Akur- eyrar. (Úr fréttatilkynningu.) -----»-♦...... Starfsemi Kristnesspít- ala ekki skert FUNDUR haldinn í kvenfélagi Fpjóskdæla mótmælir harðlega öllum hugmyndum um skerðingu starfsemi Kristnesspítala og skor- ar á heilbrigðisráðherra að efla heldur endurhæfingardeildina þannig að sjúkrarýmið nýtist til fulls. Þjónustusvæði spítalans er mjög stórt og ómældur kostnaður og erfiði fyrir Norðlendinga að sækja end- urhæfingu til Reykjavíkur og biðlist- ar langir eins og segir í ályktun sem samþykkt var á fundi félagsins fyrir nokkru. Nýr gistivalkostur áAkureyri Auk hagstæðs gisti verðs, njóta gestir okkar afsláttar á veitingahús- unum Bautanum og Smiðjunni. Fastagestum, fyrirtækjum og hóp- um er veittur sérafsláttur. Hótel Harpa Góð gisting á hóflegu verði íhjarta bæjarins. Sími 96-11400 Ath. að Hótel Harpa er ekki í símaskránni. Bæjarstjóramálið rætt á fundi bæjarstjórnar Olafsfjarðar Meirihlutinn hefur hleypt öUu í bál og brand og sundrað fólki - segir Björn Valur Gíslason oddviti minnihlutans í bæjarstjórn Olafsfjarðar MINNIHLUTINN í bæjarstjórn Ólafsfjarðar bókað á fundi bæjarstjórn- ar á þriðjudagskvöld mótmæli við þeim málatilbúnaði sem meirihlut- inn hefði upp varðandi uppsögn Bjarna Kr. Grímssonar úr starfi bæjarstjóra en þar hefði verið um skipulegar ærumeiðingar að ræða. Harmaði minnihlutinn hvernig starfslokin hefði borið að. Hörð gagn- rýni kom fram í máli oddvita minnihlutans á fulltrúa Sjálfstæðis- flokks sem eru í meirihluta. Forseti bæjarstjórar sagðist harma að svona hefði farið, hann hefði kosið mildari leiðir, en brostinn hefði verið trúnaður milli bæjarsljóra og meirihlutans og við það ástand hefði ekki verið lengur unað. Björn Valur Gíslason oddviti minnihlutans í bæjarstjórn Ólafs- fjarðar sagði við umræður um starfs- lok bæjarstjóra á bæjarstjórnarfund- inum að meirihlutinn hefði. hleypt öllu í bál og brand og sundrað fólki í bænum, skipt því upp í fylkingar og sár yrðu Iengi að gróa. Ágreining- ur væri innan flokksins um hvort segja ætti bæjarstjóranum upp störf- um, en menn hugsuðu alltaf fyrst um hagsmuni flokksins, ekki bæjar- félagsins. Hafði hann efasemdir um að Sjálfstæðisflokkurinn stæði heill á bak við þessa ákvörðun. Óskar Þór Sigurbjömsson forseti bæjarstjórar sagði deilumálin í bæj- arstjórn mikla ógæfu, ekki væri deilt um málefni. Rekja mætti upphafíð til persónulegra væringa milli manna, röð misklíðarefna hefði magnast upp í hatramma deilu. Uppúr hafi soðið í júní á síðasta ári, er bæjarstjóri hafí verið borin ávirðingum er hann hafi ekki getað skrifað undir. í kjölfarið tóku þrír áf aðalfulltrúum flokksins sér leyfi frá störfum í bæjarstjórn til síðustu áramóta og ljóst hafi verið fljótlega eftir að þeir komu aftur til starfa í bæjarstjórn að sættir hefðu ekki tekist. Á haustdögum hafi bæði Bjarni Kr. Grímsson bæjarstjóri og Sigurður Björnsson formaður bæjar- ráðs gefið sterkt til kynna að þeir gætu ekki unnið saman. Sífelldar sáttaumleitanir hefðu engan árang- ur borið, en ástandið hefði verið óþolandi og því hefði uppsögn Bjarna verið aðgerð til að breyta því ástandi. Kvaðst Óskar harma mjög að svo hefði farið, en brostinn hefði verið trúnaður milli bæjarstjóra og meiri- hlutans og því nauðsynlegt að gera eitthvað í málinu. Guðbjörn Arngrímsson í minni- hluta bæjarstjórnar bar fram tillögu þess efnis að bæjarstjórn hafi for- göngu um að rannsókn fari fram á viðskiptum Ólafsfjarðarbæjar og Fiskmars hf. er Sigurður Björnsson var framkvæmdastjóri fyrir, en fram kom í bókun Bjarna Kr. Grímssonar sem lögð var fram á lokuðum fundi bæjarstjórnar sl. laugardag harðar ásakanir á Sigurð vegna þess máls. Vildi hann koma Fiskmarsmálinu út af borði bæjarstjórnar enda biðu mörg stór mál úrlausnar í bæjar- stjórn. Tillögu minnihlutans var vísað til frekari umfjöllunar í bæjarráðj, en Sigurður hefur óskað eftir því við ríkissaksóknara að rannsókn fari fram á viðskiptum forráðamanna Fiskmars og bæjarsjóðs Ólafsfjarð- ar. Myndi hann óska eftir því að niðurstaða rannsóknarinnar verði send bæjarráði Ólafsfjarðar. Eyjafjarðarsveit Unnið við þreskingn á korni Ytri-Tjörnum. UNNIÐ var við þreskingu á komi síðastliðinn mánudag á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit. Verður það að teljast til tiðinda svo seint á hausti. Uppskeran var allgóð en var þó farin að láta á sjá. Akurinn er í nokkrum halla og því erfitt að fara um hann fyrr en jörð var orðin frosin. í Kaupmannahöfn Á undanförnum árum hafa nokkr- ir bændur í Eyjafjarðarsveit verið að þreifa fyrir sér með kornrækt. Óskar Kristjánsson í Grænuhlíð er kominn einna lengst. Hann hefur ásamt tveimur öðrum bændum rækt- að bygg á jörðinni Miðgerði, en þar er ekki annar búskapur stundaður og meirihluti af ræktuðu landi jarð- arinnar fer undir byggræktina, alls 14 hektarar. Uppskeran var um flmm tonn af blautu korni á hektara. Þremenningarnir þurrkuðu komið þannig að komið var fyrir vöruflek- um á gólfi og strigi strekktur yfir. Þar ofan á var kornið í 30 sentí- metra lagi og síðan blásið undir með heitum blæstri. Þá er kornið sett í plasttunnur og súrsað í þeim. Kýr og kálfar éta byggið mjög vel beint úr tunnunum, en það hefur einnig verið notað til íblöndunar í hey- köggla. Öskar sagði að þeir stefndu að því að nota eigið fræ næsta vor, en kornið er meðhöndlað á annan hátt ef nota á það sem fræ og má hiti við þurrkun þá ekki fara yfir 30 gráður. Stofnarnir sem Óskar notaði heita „Lilly", „Nord“, og „Bamse“ og eru þeir mjög dýrir í innkaupum, en kílóið kostaði 124 krónur síðstlið- ið vor. Á hvern hektara þarf 180 til 200 kíló af fræi. Besta uppskeran Morgunblaðið/Beajamín Benedikt Hjaltason á Hrafnagili virðir fyrir sér nýþreskt kornið. fékkst af „Bamse“-stofninum. Benjamín

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.