Morgunblaðið - 12.11.1992, Blaðsíða 13
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1992
.‘.‘f—“ ‘ f ; jf • f ■ V": i' i ?,'-
13
íslenskir gullsmiðir
List og hönnun
Bragi Ásgeirsson
Þessa dagana og fram til 14.
nóvember kynna íslenskir gull-
smiðir smíðisgripi sína í Perlunni.
Það munu fimm ár síðan þeir
efndu til slíkrar sýningar síðast,
sem þá var haldin á Kjarvalsstöð-
um, og telst það full langur tími
á milli sýninga.
Sýningin í Perlunni er ali viða-
mikil, en það eru 26 gullsmiðir sem
taka þátt í henni. Og það er eftir
öðru að fjölgað hefur í stéttinni
og breiddin er sífellt að verða
meiri og fagleg kunnátta fullkomn-
ari. Um leið verður það meira mál
að hanna frumlega gripi, og víst
eigum við ennþá enga menn eins
og Sigvard Bernadotte eðaHenn-
ing Koppel svo einungis tveir nafn-
kenndir og sígildir norrænir meist-
arar séu nefndir.
í flestum tilvikum er gullsmíða-
nám faggrein, en einstaka gull-
smiður hefur þó byijað í myndlist-
arskólum og jafnvel útskrifast úr
höggmyndadeild fagurlistaskóla
eins og t.d. nefndur Henning Kopp-
el.
Slík undirstaða, sem byggist á
þjálfun form- og snertiskynsins
eins og slíkt nám var áður fyrr,
er ótvírætt af hinu góða svo og
einnig hönnunarnám, og í það heila
allt nám sem byggist á skapandi
mótun.
Hér er á engan hátt gert lítið
úr sjálfu gullsmíðafaginu, því að
hreinir gullsmiðir hafa oftar en
ekki verið völundar í sínu fagi og
frumlegir skapendur smíðisgripa.
Þessar hugleiðingar eru til
komnar fyrir þá sök, að ég hef á
þessu ári skoðað margt verka
heimsþekktra hönnuða í gullsmíð-
afaginu. Annars vegar á Victoria
og Albert-safninu í London og hins
vegar á listiðnaðarsafninu í París
(Musée d’la Art Decorativs). Eink-
um var samsafnið á Victoria og
Albert-safninu mikilsháttar, en hér
var sýnd þróun nútímahönnunar í
gullsmíði á þessari öld. Báru marg-
ir gripirnir vott um ótrúlega hug-
kvæmni í hönnun og tæknilegri
útfærslu.
Þegar ég svo skoðaði sýninguna
í Perlunni bar ég hana ósjálfrátt,
þótt óréttlátt væri, saman við það
sem ég hafði séð í útlandinu, og
það sem varð mér helst til ásteyt-
ingar var, að uppsetningu hennar
er nokkuð ábótavant. Perlan er
erfitt sýningarhúsnæði, en hitt
truflaði mig þó öllu meira hve sýn-
ingarkassarnir voru margir og því
erfitt að gera samanburð. Sýningin
í heild er þá mun óaðgengilegri
en t.d. ef gripunum er raðað sam-
an undir gler eftir ákveðnu kerfi.
I sjálfu sér voru einstakir sýn-
ingarkassar prýðilegir og mikil
áhersla lögð á uppsetningu hvers
fyrir sig og umbúðir allar, en það
var nú einmitt þetta sem raskaði
heildarmyndinni, því að þá er sem
um margar einkasýningar sé að
ræða.
Mikið var um vel formaða gripi
í sígildri hönnun, en minna um að
menn tækju áhættu og það voru
þá helst sem fyrr feðginin Jens og
Hansína, en bæði hafa þau sér-
stæða formtilfinningu. Þá eru grip-
ir Katrínar Didriksen hinir at-
hyglisverðustu og má gera miklar
væntingar til hennar.
Nú eru tilraunir hvorki einhlítar
né algildar og þannig dái ég ekki
síður sígilda gripi. Af þeim var nóg
á sýningunni og margt þeiri-a voru
vel gerðir og hugvitsamlega form-
aðir, einkum varð mér starsýnt á
mjög vel formuð föt, en það er
hægara sagt en gert að ná þeim
árangri er við blasir í þeirri hreinu
og kláru mótunarglímu.
Dregið saman í hnotskurn er
niðurstaðan sú, að þessi sýning sé
mikið augnayndi, og að við eigum
margt prýðilegra fagmanna, en
hvað frumlega hönnun snertir
mætti úrvalið vera meira.
Sýningarskráin hefði mátt vera
þægilegri á milli handanna og auk
þess hefðu skýringar á einstaka
gripum verið vel þegnar.
Ingibjörg Guðjóns-
dóttir á ljóðatón-
leikum Gerðubergs
AÐRIR Ljóðatónleikar Gerðu-
bergs í vetur verða haldnir laug-
ardaginn 14. nóvember kl. 17. Þá
syngur Ingibjörg Guðjónsdóttir,
sópran, Ijóðasöngva m.a. eftir
Hjálmar H. Ragnarsson, J. Tur-
ina, L. Bernstein, Ravel og V.
Bellini. Meðleikari verður Jónas
Ingimundarson, píanóleikari.
Tónleikarnir verða endurteknir
mánudaginn 16. nóvember kl.
20.30.
Ingibjörg Guðjónsdóttir lauk
burtfaraprófi frá Tónlistarskóla
Garðabæjar vorið 1986. Kennari
hennar var Snæbjörg Snæbjarnar-
dóttir. Aðeins 19 ára gömul sigraði
Ingibjörg í Söngkeppni Sjónvarpsins
og tók þátt í alþjóðlegri keppni ungra
söngvara í Cardiff í Wales 1985.
Framhaldsnám stundaði Ingibjörg í
Bandaríkjunum og lauk BM-prófi frá
Indiana University. Þar naut hún
leiðsagnar m.a. hinnar virtu rúm-
ensku söngkonu Virginiu Zeani og
pr. Roy Samuelsen. Ingibjörg hélt
sína fyrstu sjálfstæðu tónleika í febr-
úar 1991 í Garðabæ. í apríl 1992
söng Ingibjörg hlutverk Mimiar í
óperunni La Boheme í uppfærslu
Óperusmiðjunnar í Borgarleikhús-
inu. Ingibjörg hefur sungið við hin
ýmsu tækifæri, hér á landi og erlend-
is, m.a. söng hún sópranhlutverkið
í Carmina Burana í Færeyjum fyrr
á þessu ári. Ingibjörg hefur hlotið
styrki og viðurkenningar, m.a. úr
Listasjóði Garðabæjar og frá Félagi
íslenskra leikara. Ingibjörg hefur
kennt við Tónlistarskóla Garðabæjar
og við Tónlistarskólann á Sauðár-
króki.
Ljóðatónleikar Gerðubergs eru nú
á sínu fimmta starfsári. í vetur
Ingibjörg Guðjónsdóttir, sópran.
syngja, auk Ingibjargar Guðjóns-
dóttur, Garðar Cortes, tenór, Kol-
beinn J. Ketilsson, tenór, Unnur A.
Wilhelmssen, sópran og Sigrún
Hjálmtýsdóttir, sópran. Elsa Waage
hefur þegar komið fram á Ljóðatón-
leikum Gerðubergs. Reynir Axelsson
þýðir erlendu ljóðin sem verða flutt
og eru þýðingar hans ásamt frum-
texta birtar í efnisskrá. Hægt er að
kaupa áskriftarskírteini sem gilda á
alla tónleikana.
VIÐSKIPTI í
AU STUR-E VRÓPU
Félag íslenskra stórkaupmanna boðar
til haustfundar í dag, fimmtudaginn
12. nóvember, kl. 12:00
í Skálanum, Hótel Sögu.
Gestur fundarins verður Þórir Gunnarsson,
veitingamaður í Tékkóslóvakíu. Þórir hefur um
nokkurt skeið rekið veitingastaðinn Restaurant
Reykjavík í Prag og mun hann skýra frá reynslu
sinni af viðskiptum í Austur-Evrópu og segja frá
þeim tækifærum, sem bjóðast mönnum í inn-
og útflutningsviðskiptum.
Þátttökugjald með hádegisverði er kr. 2.500.
Vinsamlega tilkynnið þátttöku í síma 678910.
FUNDURINN ER ÖLLUM OPINN
15% AFSLÁTTUR
af tvískiptum kjólum
Pöntunarsími 91 -S7 37 18
JOHS-SOd
ÍMl
Opiðvirka dagafrá kl. 10-18og laugard. frá kl. 10-14
SVANNI
Stangarhy/ 5
Pósthó/f 10210 ■ 130 Reykjavik
Simi 91-67 37 18 ■ Telafax 67 37 32
ÁLEIÐ
TIL
LAIMDSINS
V