Morgunblaðið - 12.11.1992, Qupperneq 36
36
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1992
Morgunblaðið/Gunnlaugur Rognvaldsson
Steingrímur Ingason við heimasmíðaðan keppnisbfl sinn ásamt Páli Kára Pálssyni sem vann með
honum Eikarborgararallið um helgina.
Rallakstur
3.000
fóruí
„SJÁLFSAGT flnnst einhverj-
um brjálæði hvað ég hef eytt
miklnm tima í smiðina á
keppnisbilnum en þetta er
mitt áhugamál. Síðustu tvö
ár hefur ég veríð í bflskúrnum
vinnustundir
sigurbílinn
ÖU kvöld og alLar helgar
ásamt félögum mínum við
smiðina. Líklega Uggja rúm-
lega 3.000 vinnustundir að
baki,“ sagði Steingrímur
Ingason, sem vann Eikarborg-
ararallið um helgina.
Steingrímur ók keppnisbíl
sem er handsmíðaður eftir hans
eigin hugmyndum, aðeins vél,
drif og gírkassi er upprunalega
úr Nissan-keppnisbíl, annað er
Við upphaf smíðinnar. Steingrímur og Ásgeir Ásgeirsson leggja
á ráðin í tómrí yfirbyggingunni sem nú er að mestu úr plasti.
handsmíðað, yfirbygging, fjöðr-
un, bremsu- og stýrikerfi. Yfir-
byggingin er að mestu úr plasti,
aðeins toppurinn er úr jámi en
sérstök röragrind er stór burðar-
hluti bflsins. Hann vegur aðeins
950 kfló og vél bflsins skilar 250
hestöflum. „í raun varð smíða-
vinnan mun meiri en til stóð í
fyrstu og ég fékk fljótlega metn-
að fyrir því að smíða bfl frá
grunni. Lítið annað hefur komist
að síðustu tvö árin,“ sagði Stein-
grímur.
„Þetta er búið að vera dýr en
góður skóli og ég er kominn
með mikla þekkingu á tækni-
legri uppbyggingu keppnisbfla
með grúski í bókum og reynslu
af bflnum. Hann heppnaðist vel,
hefur ekkert bilað í sumar og
skilaði okkur í annað sætið til
íslandsmeistara og tvisvar í
fyrsta sætið.
Með smíði bflsins gerði ég í
raun það sama og verksmiðjulið
gera þegar þau hanna nýja rall-
bfla og finnst tiltækið hafa
heppnast vel. Mig langar að
setja fjórhjóladrif í bflinn, en það
er Iíklega dýr kostur, en einnig
gæti ég vel hugsað mér að selja
bflinn og kaupa mér lítinn
breyttan fjórhjóladrifsbfl og
keppa þá eitthvað á erlendum
vettvangi. Það freistar mín líka
að fara á þessum bfl í bresku
meistarakeppnina. En tímabilið
hefur verið ánægjulegt og það
skemmir ekki að hafa handsmíð-
að hundruð hluta í nýtt verk-
færi sem skilar árangri. Það
fyllir mann sérstökum inn-
blæstri," sagði Steingrímur
Ingason, rallökumaður.
WARNER'S
undirfatnaður
Gæði og glæsileiki
Gullbrá-Nóatúni, Sautján-Laugavegi og Khnglunni,
Evíta-Settjamamesi. Regnhlifabúöin-Laugavegi,
Spes-Háaleitisbraut, Ársól-Grimsbæ,
Libia-Laugavegi, Kjóiaieiga Dóru, Hverfisgötu.
Mensý-Setfossi, Smart-Keflavík, Móna
Lisa-Akranesi, Amaró-Akureyri, Apótek Ólafsvfkur,
Hársnyrtistofa Huldu-HúsavSk, Herta-Reyóarfrði.
Isokl-Sauðárkrókj, Heba-Siglufiröi, Krisma-ísafiröi,
Hársnyrtistota Guólaugar-Vopnafirði, Hársnyrtistofa
Oigu-Höfn, Við lækinn-Neskaupstað, Stórar stelpur
Sandra-Hafnarfirði, Bylgjan-Kópavogi,
Mióbær-Vöstmannaeyjum, Nana-Lóuhólum,
Júllubúð-Eskifirði, Uf-Mjódd, Hjá Soilu-
Hverageröi, Einar Guðfinns-Boiungarvík.
cUj.
Frönsk kvikmyndahátíð
Kvikmyndir
SæbjÖrn Valdimarson
„Hógværa stúlkan“
Sýnd í Háskólabíó. Leikstjóri
Chrístian Vincent. AðalUeikendur
Fabríce Luchini, Judith Henry,
Maurice Garrell. Frakkland 1990.
Suðurlandabúar bera höfuð og
herðar yfir flesta í gerð rómantískra
kómedía og fara Frakkar þeirra
fremstir. Það er virkilega afslappandi
og notalegt að fylgjast með þeim
framkalla hin ólíklegustu blæbrigði
í samskiptum kynjanna einsog
Hógvæa stúlkan ber gott vitni um.
Engu að síður er myndin fyrsta verk-
efni Christians Vincents sem leik-
stjóri og með ólíkindum hversu fang-
inni hann heldur athygli áhorfandans
sem er öllu vanari átökum, hraða og
ofbeldi en þeirri jrfirborðssléttu en
því margbrotnari frásögn undir niðri,
sem hann segir f Hógværu stúlkunni.
Astamálin eru í algleymingi. Rit-
höfundurinn Luchini hyggst láta vin-
konu sína flakka, en hún verður fyrri
til. Slíkt fer fyrir bijóstið á mönnum
SINFÓNÍUHLJ ÓMS VEIT ÍSLANDS
TÓNLEIKAR 12. NÓVEMBER
í HÁSKÓLABÍÓI
FORLEIKUR AO VILHJÁLMI TELL EFTIR ROSSINI
G r æ n tónlcikaröð
FIÐLUKONSERT { G-MOLL EFTIR MAX BRUCH
Háskólabíói z>/Hagatorg. S í m i 6 2 2 2 5 5
SINFÓNÍA NR.5 EFTIR L. VAN BEETHOVEN
Miðasala fer fram atla virka dnga frá 9-17
|
HLJÓMSVEITARSTJÓRI ER GUÐMUNDUR Ó. GUNNARSSON
1
I
fiGreiðslukortaþjónnsta
?
ÍEINLEIKARI E R ZHENG RONG WANG
Judith Henry er fínleg og óræð
sem Hógværa stúlkan.
og fyllist nú skáldið angurværð og
hefiidarhug. Honum hefur ekki
gengið of vel að fá verk sín á prent
en mitt í öllu andstreyminu fær hann
tilboð frá vini sínum, útgefandanum
Garrel. Vill hann að Luchini næli sér
í nýja vinkonu, nái ástum hennar og
varpi síðan á dyr. Haldi dagbók um
samneytið sem Garrel muni síðan
gefa út. Þeim hefndarþyrsta líst vel
á ráðabruggið og fyrir valinu verður
hin unga og sakleysislega Judith
Henry. En hún er ekki öll þar sem
hún er séð ...
Fabrice Luchine er sem fæddur í
hlutverk skáldsins málgefna. Hann
skapar skemmtilega pempíulegan
kjaftask sem verður æ ráða- og átta-
villtri með hverri mínútunni og held-
ur vel saman þessari mynd sem ein-
göngu byggist upp á samtölum örf-
árra persóna. Garrell er gustmikill í
hlutverki útgefandans og hin fínlega
Henry smellpassar í hlutverk hins
ópræða fómarlambs Luchinis. Hóg-
væra stúlkan er vel þegin, svo mann-
leg og ólík iðnaðarvamingi hvers-
dagsins, dæmi um vel heppnaða há-
tíðarmynd, þær mega ekki allar
flokkast í þungavikt.
Vinskapur á tímamótum
Kvikmyndlr
Arnaldur Indriðason
Stórkostlegir vinir („Shaking the
Tree“). Sýnd í Sagabíói. Leik-
sfjóri: Duane Clark. Aðalhlutverk:
Arye Gross, Gale Hansen, Dough
Savant og Courteney Cox.
Þær eru orðnar ófáar myndimar
um félagana fjóra sem haldið hafa
hópinn alla tíð en eru nú komnir að
þeim timapunkti f lífinu að þurfa að
þroskast, fullorðnast og taka ábyrgð
á lífí sinu. Sumum hefur tekst vel
upp við að lýsa þessum breytingar-
tíma á hvíta tjaldinu, „Diner" eftir
Barry Levinson er eftirminnileg, en
Stórkostlegir vinir er mynd sem mis-
tekst ætlunarverk sitt á flestum svið-
um.
Hún er einmitt um ijóra vini sem
komast að þvi einn góðan veðurdag
að þeir eru engir unglingar lengur,
áhyggjulausu fylleríin og spilakvöld-
in heyra sögunni tfl. Hjúskapur og
fiölskyldulíf er það sem koma skal
hjá flestum þeirra. Einn þeirra er
bókmenntafræðikennari sem á von á
bami með sambýiiskonu sinni, annar
er kaupsýslumaður sem á í erfiðleik-
um í hjónabandi, þriðji er milljónera-
sonur sem haldinn er sjálfseyðingar-
hvöt og sá fjórði er barþjónn sem
saknar tengsla við föður sinn og
stefnir hærra í lífinu.
Málið er að ekkert af þessu snert-
ir mann á neinn veg, nema kannski
sagan um milljónerasoninn því hann
sýnir besta ieikinn í mynd sem mjög
skortir almennilegan leik til að virka
trúverðug. Það er góður efniviður í
vináttu- og þroskasögu sem þessari
en leikstjóranum Duane Clark tekst
aldrei að virkja hann og gera öðru-
vísi en gervilegan og væminn.
Það fer að auki lítið fyrir frum-
leika í myndinni heldur eru troðnar
fomar slóðir svo heila málið er fyrir-
segjanlegt og aiveg laust við spennu
áður en hnýttar em krúttlegar slauf-
ur á vandamál vinanna, sem tryggja
góðan endi. Sögumar eru reyndar
misjafnar. Ódýr karíagrobbshúmor
hittir ekki í mark í sögunni um bar-
þjóninn, er lítur á kvenfólk sem ein-
nota. Melódramað í kringum bók-
menntafræðikennarann er mjög
smitað af vondum leik. En svo eru
einstaka góðir sprettir innan um.
Mestanpart eru Stórkostlegir vinir
þó einkar ómerkileg mynd, sem tekst
aldrei að lyfta efninu á „hærra plan“.