Morgunblaðið - 12.11.1992, Page 38
3$ MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1992
Vilhjálmur Björnsson
fv. framkvæmdasljóri
Látinn er í Reykjavík Vilhjálmur
Björnsson, á áttugasta og sjötta
aldursári. Með honum er genginn
góður og vandaður maður, einstakt
ljúfmenni, sem vildi hvers manns
vanda leysa.
Vilhjálmur Björnsson var fæddur
16. september 1907 í Narfakoti í
Njarðvíkum. Hann lauk prófi frá
Verzlunarskóla íslands 1925 og var
starfsmaður hjá Pósthúsinu í
Reykjavík frá 1926 tii 1928 og aft-
ur frá 1930 til 1941. Á árunum frá
1928 til 1930 bjó hann í Winnipeg
í Kanada og stundaði þar ýmis störf.
En í desember 1941 hóf hann að
starfa hjá H. Benediktsson & Co.,
síðar H. Benediksson hf. Hann byrj-
aði sem sölumaður, en árið 1950
var hann gerður að fulltrúa og 1954
varð hann annar af framkvæmda-
stjórum fyrirtækisins. Þeirri stöðu
gegndi hann þangað til 31. marz
1980, er hann lét af störfum fyrir
aldurs sakir, þá sjötíu og þriggja
ára gamall.
Vilhjálmur Björnsson kvæntist
4. nóvember 1933 Bjamveigu
Helgadóttur. Hún lifír mann sinn.
Þau eignuðust eina dóttur, Helgu
lyfjafræðing. Hún er látin.
Við Vilhjálmur Bjömsson vomm
samstarfsmenn hjá H. Benedikts-
son hf. í tæplega þijá áratugi. Tókst
með okkur mikil og góð vinátta, sem
aldrei bar nokkum skugga á. Vil-
hjálmur var afskaplega heiðarlegur
og vel gerður maður og naut hann
óskoraðs traust allra og var hann
vinsæll maður. Hann hafði ríka
kímnigáfu og var yfirleitt stutt í
brosið, þó svo mikið væri að gera.
Vilhjálmur og Bjarnveig, eftirlifandi
kona hans, sýndu mér og fjölskyldu
minni alla tíð mikla ræktarsemi og
tryggð. Fyrir það og fyrir vináttu
þeirra verðum við Sjöfn ævinlega
þakklát. Ég kveð Vilhjálm vin minn
á þessari stundu með eftirsjá og
söknuði. Hvíli hann í friði.
Björn Hallgrímsson.
Samtíðarmennirnir hverfa smám
saman á braut - það er lífsins saga.
Vinur minn Vilhjálmur Bjömsson,
fyrrverandi framkvæmdastjóri, lést
31. október sl. á Landspítalanum.
Hafði hann legið þar sjúkur um
nokkurn tíma og síðustu mánuði
rúmfastur að mestu. Þótt sjúkur
væri naut hann þess að fá heim-
sóknir vina sinna og fyrmm sam-
starfsmanna og það mátti glöggt
sjá þegar hann tók á móti gestum
á 85 ára afmælinu sínu nú í haust.
Ég hef þekkt Vilhjálm í tæp 50
ár og tengdumst við sterkum vin-
áttuböndum í tímans rás. Það er
síður en svo sjálfgefíð að menn
verði vinir. Halldór Laxness segir
einhver staðar að vinátta sé venslun
með kærleika. Hvað sem um það
má segja er þó víst að kunnings-
skapur okkar Vilhjálms þróaðist
upp í vináttu sem mér 'er mikils
virði. Er nú skarð fyrir skildi þegar
Vilhjálms nýtur ekki lengur við.
Kynni okkar Vilhjálms hófust
innan Oddfellow-reglunnar og
styrktist mest á þeim vettvangi.
En þar var hann búinn að starfa í
rúm 50 ár er hann lést. Vilhjálmur
var athugull, varkár og greindur
maður er ávann sér traust félaga
sinna. Hann var því fljótlega kjörinn
til forystu og öll þau störf er hann
vann þar leysti hann svo vel af
hendi að honum verður seint full-
þakkað.
Vilhjálmur fæddist 16. septem-
ber 1907 að Narfakoti í Njarðvík-
um. Foreldrar hans voru hjónin
Guðbjörg Níelsdóttir og Björn
Bjömsson bókari hjá verslunarfé-
lagi Steingrímsfjarðar á Hólmavík
og þar ólst Vilhjálmur upp til 14
ára aldurs, er hann fluttist til föður-
bróður síns Guðmundar póstfulltrúa
Bergssonar í Reykjavík og bjó Vil-
hjálmur lengst af hjá honum áður
en hann kvæntist að undanskildu
tveggja ára tímabili sem hann
dvaldist í Kanada (1928-1930). Vil-
hjálmur lauk prófi frá Verslunar-
skóla Islands árið 1925. Hann starf-
aði hjá verslun Bjöms Kristjánsson-
ar í eitt ár en réðst síðan sem starfs-
maður til Póststofunnar í Reykjavík
þar til hann hóf störf hjá H. Bene-
diktssyni og varð hann síðar fram-
kvæmdastjóri hjá því fyrirtæki þar
til hann lét af störfum sökum ald-
urs.
Hinn 4. nóvember 1934 kvæntist
yilhjálmur Bjamveigu Helgadóttur
Árnasonar safnhúsvarðar í Reykja-
vik og bjuggu þau alla tíð hér í
Reykjavík. Þau eignuðust eina dótt-
ur, Helgu Þuríði, sem nam lyfja-
fræði og var lyfsali í Mosfellsbæ.
Rak hún þar apótek með miklum
myndarbrag. Hún var gift Reyni
Eyjólfssyni lic. pharm. og eignuðust
þau eina dóttur, Kristínu sjúkra-
þjálfara. Fyrir tveimur árum urðu
þau Vilhjálmur og Bjarnveig fyrir
þeirri miklu sorg að missa Helgu
sína. Kristín hefur, ásamt Reyni
föður sínum og systurdætrum
Bjamveigar, reynst ömmu sinni og
afa einstök hjálparhella í veikindum
Bjarnveigar í sumar og nú síðast í
veikindum afa síns og við fráfall
hans.
Við hjónin áttum margar
ánægjulegar stundir með þeim
Bjarnveigu og Vilhjálmi. Það var
ætíð ánægjulegt að koma á heimili
þeirra og vorum við þar tíðir gestir
og þau hjá okkur. Margs er að
minnast frá skemmtilegum sam-
vemstundum á ferðalögum innan-
lands sem utan. Nú er komið að
leiðarlokum hjá Vilhjálmi.
Kæra Veiga, við hjónin og ijöl-
skylda okkar vottum þér og fjöl-
skyldu þinni innilega samúð okkar
og þökkum allar góðu stundirnar
sem við höfum átt saman á liðnum
ámm.
Blessuð sé minning Vilhjálms
Bjömssonar.
Hilmar Garðarsson.
Jörðin leggst í langan vetrardvala.
Lífíð sefur rótt um myrka stund.
En seinna kemur sumarrós á bala
og sólin kyssir lautir, hæðir, sund.
+
ÁSDÍS SVEINSDÓTTIR THORODDSEN
gullsmiður,
lést að morgni hins 10. nóvember.
Jarðarförin fer fram í kyrrþey.
Börn, tengdabörn,
barnabörn og systur.
t
Eiginkona mín, móðir, tengdamóðir og amma,
SIGRÍÐUR ELÍN JÓNASDÓTTIR
frá Lisudal, Staðarsveit,
til heimilis á Álfhólsvegi 30,
Kópavogi,
andaðist miðvikudaginn 11. nóvember.
Fríðgeir Ágústsson,
Jónas Friðgeirsson, Sigurveig Runólfsdóttir,
Sigurveig Friðgeirsdóttir,
Ágúst Friðgeirsson, Sigurbjörg Traustadóttir,
Ásgeir Friðgeirsson
og barnabörn.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og vinarhug við andlát
og jarðarför
HELGU SVEINSDÓTTUR,
Grjótá,
Fljótshlíð.
Þorbjörn Jónsson,
börn, tengdadóttir og sonardætur.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð og vináttu við andlát og jarðar-
för systur okkar og frænku,
GUÐRÚNAR ANDRÉSDÓTTUR,
Hellukoti,
Stokkseyri.
Margrét Andrésdóttir,
Jórunn Andrésdóttir
Ester Þorsteinsdóttir
og aðrir vandamenn.
+
Eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma,
GUÐBJÖRG EINARSDÓTTIR,
Stigahlíð 30,
verður jarðsungin frá Háteigskirkju föstudaginn 13. nóvember
kl. 13.30.
Oddgeir Ólafsson,
Einar Oddgeirsson, Valgerður Brand,
Oddgerður Oddgeirsdóttir, Daníel Pétursson,
Ólöf Oddgeirsdóttir, Magnús Magnússon
og barnabörn.
+
Þökkum innilega auðsýnda samúð við andlát og útför dóttur
minnar og systur okkar,
INGER ÁGÚSTU KRISTJÁNSDÓTTUR,
San Jose,
Kaliforníu.
Sigríður Á. Söebech,
Pétur Kristjánsson,
Kristján Kristjánsson,
Ellen Kristjánsdóttir
og aðrir aðstandendur.
+
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug við fráfall eigin-
konu minnar, móður, tengdamóður, ömmu og langömmu,
GUÐMUNDU SIGURÐARDÓTTUR,
Sólvöllum 5,
Húsavík.
Halldór Bárðarson,
Bárður Halldórsson, Jóhanna M. Kristjánsdóttir,
Sigurður Halldórsson, Laila Valgeirsdóttir,
Lissý Halldórsdóttir,
Halldór Halldórsson, Birna Sigbjörnsdóttir,
Sigurbjörg Halldórsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Lokað
Vegna jarðarfarar VILHJÁLMS BJÖRNSSONAR,
fyrrverandi framkvæmdastjóra, verður skrifstofa
okkar lokuð í dag, fimmtudaginn 12. nóvember,
frá kl. 13.00.
H. Benediktsson hf.,
Suðurlandsbraut 4.
Þannig lífið einlægt áfram heldur
og ávallt sigrar myrkur dauðaþrauL
í sálu manns er óslökkvandi eldur
og er í leit að nýrri þroskabraut.
(Elín Eiríksdóttir)
Lífsbókinni hans afa lauk rétt
eftir miðnætti 31. október, en hún
hófst fyrir rétt rúmum 85 árum.
Afi fæddist í Garðinum, sonur hjón-
anna Bjöms Björnssonar (f. 31.
október 1875, d. 31. október 1950)
og Guðbjargar Níelsdóttur (f. 21.
desember 1883, d. 10. júlí 1964).
Sem barn fluttist hann með fjöl-
skyldu sinni norður á Hólmavík þar
sem hann ólst upp, elstur fimm
systkina. Á unglingsárunum kom
hann til R.eykjavíkur þar sem föður-
bróðir hans kom honum til mennta.
Hann lauk verslunarskólaprófi 18
ára. Hann átti góðar minningar úr
Verslunarskólanum og minntist
hann sérstaklega kennslustund-
anna hjá íslenskukennara sínum,
skáldinu Þórbergi Þórðarsyni. Rétt
rúmlega tvítugan greip ævintýra-
þráin hann og vin hans og héldu
þeir til Vesturheims þar sem afi
dvaldi í 2 ár við ýmis störf við
Winnipegvatn. Fljótlega eftir heim-
komuna kynntist hann ömmu,
Bjarnveigu Helgadóttur, en þá vann
hann á pósthúsinu í Reykjavík. Þau
giftu sig 4. nóvember 1933 og 17.
júní 1934 fæddist þeim einkadóttir-
in, Helga Þuríður.
Afi var dulur að eðlisfari, mikill
nákvæmnismaður og góður samn-
ingamaður, sem kom sér vel í hjá
H. Benediktssyni, en þar vann hann
samfleytt í 40 ár. Barngóður var
hann og áttu börn öruggt skjól þar
sem hann var. Þau hændust bók-
staflega að honum. Afí hafði gaman
af að spila brids og var í spila-
klúbbi með félögum sínum úr póst-
húsinu í mörg ár. Einnig fannst
honum um tíma ganga að grípa í
litkrít og teikna sér til skemmtunar
og einhvern tíma tók hann nokkra
tíma í olíumálun. Afi og Bensinn
hans eru óaðskiljanleg tvennd í
æskuminningum mínum, reisn yfir
þeim báðum. Það voru stórkostlegar
stundir að fá að fara með þeim í
bíltúr. Minnist ég sérstaklega einn-
ar er ég kom ásamt foreldrum mín-
um til íslands frá Danmörku. Þá
vorum við drifín í útilegu með
ömmu, afa og Bensa. í úrhellisrign-
ingu í Borgarfirði datt púströrið
undan og var það bundið svo ræki-
lega upp að aðeins var hægt að
fara út úr bílnum farþegamegin og
það með herkjum.
Það var mikill harmur kveðinn
að ömmu og afa er þau misstu
einkadóttur sína langt um aldur
fram 18. júní 1990. Eftir það fór
afí að hægja ferðina. Þá sat hann
gjarnan uppi í holi með spilastokk-
inn sinn og kaffíbrúsann og lagði
kapalinn sinn. Hann varð svo fyrir
áfalli í vor og var lagður inn á öldr-
unardeild Borgarspítalans og þar
hélt amma honum veislu í tilefni
85 ára afmælis hans. Vinir og
vandamenn komu til að minnast
þess með honum og virtist hann
njóta þess síðdegis mjög vel. En svo
kom að því að síðustu blaðsíðu lífs-
bókarinnar var flett og hann sofn-
aði vært á koddanum sínum, saddur
lífdaga.
Elsku amma, guð blessi þig og
styrki á þessari kveðjustund. Bless-
uð sé minning afa míns.
Kristín Bjarnveig.
ERFIDRYKKJUR
Verð frá kr. 850-
P E R L A N sími 620200
Fákafeni 1 1
s. 68 91 20
Blóm Skreytingar Gjafavara
Kransar Krossar Kistuskreytingar
Opiðalla daga frá kl. 9-22