Morgunblaðið - 12.11.1992, Page 40
40
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1992
....
Þessi hopur hefur unnið 1 samtals um 1000 ár fyrir Héðinn, f.v.Sverrir Sveinsson, Gunnar Magnússon,
Gunnar Gunnarsson, Guðmundur Jónsson, Guðmundur Maríusson, Signrjón Guðnason, Aðalsteinn Ingi-
mundarson, Stefán Olafsson, Pétur Sigurbjörnsson, Guðmundur Sigurðsson, Ágúst Pálsson, Ketill Björns-
son, Axel Sigurðsson, Sveinn Jónatansson, Óskar Jónsson, Gísli Guðlaugsson, Ólafur Kristjánsson, Sig-
rún Markúsdóttir, Valtýr Gíslason, Guðjón Emilsson, Þorgeir Jónsson, Sigurður Gíslason og Þorsteinn
Stefánsson.
HÉÐINN
Fjöldi heiðraður á afmæli Héðins
Fyrir stuttu var haldin 70 ára afmælisveisla Héðins
hf. á Hótel Sögu sem 250 sóttu. Við það tæki-
færi voru margir núverandi og fyrrverandi starfsmenn
fyrirtækisins heiðraðir. Gullmerki Héðins fengu þeir
sem eiga 50 ára starf að baki eða meira. Af þeim eru
þrír starfandi enn við fyrirtækið., en alls á sá hópur
að baki samtals um 1000 starfsár fyrir Héðinn! Silfur-
merki fengu hins vegar þeir sem lokið hafa 25 til 40
árum í þágu fyrirtækisins. Allir eru þeir starfandi við
fyrirtækið enn þann dag í dag.
Þetta fólk hefur 25 til 40 ára starfsferil að baki hjá Héðni, f.v. Markús Sveinsson, Sverrir Sveinsson,
Haukur Júlíusson, Elías Hergeirsson, Friðjón Friðjónsson, Sigríður Friðriksdóttir, Tómas Tómasson,
Júlíus Sigmarsson, Gísli Jóhannsson, Guðni Marelsson, Þórarinn Öfjörð, Elísabet Bjarnadóttir, Halldór
Vigfússon, Jóhann Guðmundsson og Einar Brynjólfsson.
6AFLARA- &
EYJAKVÖLD
MEÐ VÍKINCAÍVAFI
HALLI & LAPDIVERPA HEIPUR5VÍKINCAR N.K. FÖSTUD.KVÖLD
ATHUGID AD UPP5ELT HEFUR
VERIÐ Á HIN VINSÆLU
CAFLARA- OC EYJAKVÖLD
SÍÐUSTU HELCAR. VIÐ
MINNUMÁAP NÚ ERU
AÐEINS EFTIR TVÆR
HELCAR:
FÖS. 13. NÓV. LAUS BORÐ
LAU. 14. NÓV. uppseit
FÖ5. 20. NÓV. UPPSELT
LAU. 21. NÓV. LAUS BORP
FÖS. 27. NÓV. LAUS BORO
LAU. 28. NÓV. laus borð
FIORUCARÐURINN ER
TILVALINN STAÐUR FYRIR
HÓPA SEM VILJA REYNA
EITTHVAE2 NÝTT.
ÞRÍRÉTTUÐ MÁLTÍÐ
FYRIR KR.2600,-
CÓMSÆTIR CRILL-
RÉTTIR FRAMREIDDIR
AF SYNCJANDI
CENCILBEINUM OC
VfKINCUM. LÍFLEC
TÓNLIST OC STEMNINC
SEM ENCU ER LÍK.
JÖRUKRAIN
FJORUGARÐURINN
Sími 651213 - 651890
STRÍÐSHETJA
Svarthöfði
skrifar bók
Hetjan úr Flóabardaga, hers-
höfðinginn Norman
Schwarzkopf (sem merkir Svart-
höfði), er nýbúin að gefa út end-
urminningabók sem heitir It Do-
esn’t Take a Hero - Það þarf
ekki hetju til. Bókarheitið er sótt
í orð hershöfðingjans þegar hann
sagði að það þyrfti ekki hetju til
að skipa mönnum til orrustu, en
það þyrfti hetju til að vera í hópi
þeirra sem leggðu til orrustu.
Bókin geymir bæði minningar frá
uppvaxtarárunum og herförinni
miklu gegn Saddam Hussein.
Norman Schwarzkopf átti erf-
iða æsku og ólst upp í fjölskyldu
sem leið mikið fyrir áfengissýki
húsmóðurinnar. „Oft á tíðum átti
ég í miklu tilfinningastríði við
ritun bókarinnar. Drykkja
mömmu átti ekki minnstan þátt
f að móta mig í uppvextinum, ég
vona að aðrir skilji að þeir eru
ekki einir í kringumstæðum sfn-
um og að þeirra getur beðið dá-
samleg framtíð," segir hershöfð-
inginn. Norman dvaldi mikið hjá
föður sínum, sem var atvinnuher-
maður, og fylgdi honum á milli
staða. „Ég tel hermennskuferil-
inn hafa byijað þegar ég flutti
12 ára gamall með föður mínum
til íran. Eftir þá reynslu átti við
um mig það sem oft er sagt, að
það er hægt að taka hermann
úr hemum, en herinn tekur þú
aldrei úr hermanninum." Leiðin
lá víðar á vegum hersins, til
West Point herskólans og til Evr-
ópu. „Stríðsævintýri pabba urðu
næsta óraunveruleg samanborið
við orrusturnar heima. Mamma
var oft orðin drukkin fyrir kvöld-
mat, þá jagaðist hún í systrum
mínum þangað til þær fóru að
gráta og ég lét mig hverfa inn í
herbergi.1'
Norman Schwarzkopf er ham-
Hershöfðinginn úr Flóabar-
daga, Norman Scwartzkopf,
hefur nú ritað endurminning-
ar sínar.
ingjusamlega giftur og á tvær
dætur og einn son. Hann kann
Saddam Hussein litlar þakkir fyr-
ir að hafa rænt sig tíma méð ijöl-
skyldunni. „Þegar ég fór að heim-
an var sonur minn að komast á
unglingsaldur. Þegar ég kom
heim aftur, níu mánuðum síðar,
hafði hann vaxið um heilt fet og
kominn í mútur. Ég missti af
þessum umskiptum." Sem vænta
má var heimkoman úr Flóabar-
daga eftirminnileg. „Daginn sem
ég kom heim ríkti algjör ringul-
reið. Fjölskyldan hafði geymt all-
ar jólagjafirnar og ég opnaði þær
í apríl. Hundurinn var alveg að
tapa sér, það var endalaus
straumur af gestum og síminn
stoppaði ekki. I miðri hringiðunni
bar konan mín í mig mat, líkt
og ég væri nýsnúinn úr fangabúð-
um. Þetta var einn af þessum
dásamlegu dögum sem orð fá
ekki lýst.“
Hershöfðingj-
anum barst
fjöldi gjafa
frá aðdáend-
um um víða
veröld. Hann
geymir gjaf-
irnar í sér-
stöku her-
bergi.
Norman Schwarzkopf í faðmi fjölskyldunnar. 1 efstu röð eru
sonurinn Christian og eiginkonan Brenda, dæturnar Cindy og
Jessica eru sín til hvorrar handar föður sínum og fremstur er
hundurinn Bangsi.