Morgunblaðið - 12.11.1992, Blaðsíða 48
48
MORGUNBLAÐIÐ FIMMTUDAGUR 12. NÓVÆMBER 1992
-----------------------------------------
NEYTENDAMAL
20-50% AFSLÁTTUR
ATH. nýkomnir skíðagallar
á hreint frábæru verði.
Fulloröins kr. 7.990.-
Barna st. 80 - 120 kr. 3.500.-
Barnast. 120 - 170 kr. 5.990,-
Kartöflur á mark-
aði betri en áður
Það er mikið ánægjuefni fyrir
neytendur að nú er boðið upp á
mun betri kartöflur en áður í mat-
vöruverslunum. Yfirleitt er minna
um smælki (sem reyndar á ekki að
sjást nema e.t.v. sérpakkað) og
kartöflurnar eru jafnari að stærð í
pokunum.
Þessa dagana er að koma á
markað nýtt afbrigði kartaflanna
frá Jaðri í Þykkvabæ og verða þær
seldar í Hagkaup. Kartöflurnar eru
óvenjulegar í útliti að því leyti að
þær hafa sterkrautt hýði en eru
hvítar að innan. Þetta eru þéttar,
mjölmiklar kartöflur og mjög
bragðgóðar. Þær hafa notið vin-
sælda í tilraunaeldhúsi neytendasíð-
unnar.
Jens Gíslason á Jaðri í Þykkvabæ
segir að þessar kartöflur, „Jaðar
rauðar“, hafi fyrst verið settar á
markað fyrir jólin í fyrra og hafi
þær reynst vinsælar hjá neytendum.
Hann segir það áberandi erlendis,
t.d. í Bretlandi, að þessi gömlu,
kjarnmiklu og þéttu kartöfluaf-
brigði séu orðin mun eftirsóttari af
neytendum en fljótsprottnu afbrigð-
in sem komið hafa á markaðinn
undanfarin ár.
M. Þorv.
ið svo til í nokkrar vikur eða þar
til losna tók um þeirra innri spennu.
Þá fyrst voru þeir tilbúnir að tala.
Eftir það komu þeir sjálfviljugir án
lögreglufylgdar og þá fyrst var
hægt að nálgast þá og ræða málin
og hefja meðhöndlun.
Markvissar aðgerðir fækkuðu
afbrotum
Árangur þessara aðgerða sem
hér hefur verið greint frá þótti ein-
stakur og fékk talsverða fjölmiðla-
kynningu á sínum tíma. Dómarinn
hélt því fram, að flestum unglingum
væri hægt að hjálpa ef tekið væri
á málum nógu snemma. En því
væri ekki að neita að í u.þ.b. einu
prósenti tilfella virtist einhvers kon-
ar andleg brenglun geta vera til
staðar, hjá ákveðnum hópi einstak-
linga, og væri engin viðunandi skýr-
ing á því. Oft væru þessir einstakl-
ingar frá ágætum heimilum svo þar
væri ekki skýringu að finna. En
brenglunin gæti verið það alvarleg
að veija þyrfti þjóðfélagið fyrir
þessum einstaklingum, og þar yrðu
stofnanir að taka við.
Umhyggja áhrifaríkasta
fyrirbyggjandi aðgerðin
Það var orðið skuggsýnt þetta
vorkvöld þegar hann lauk máli sínu
með þessum orðum: „Eitt vil ég
biðja ykkur um, góðir foreldrar,
gefið bömum ykkar tíma, sinnið
þeim, hlustið á þau, lesið fyrir þau
og biðjið með þeim bænir á kvöldin.
Ég á sjálfur sjö börn, og þó að ég
sé mjög tímabundinn maður þá gef
ég mér alltaf tíma til að lesa með
þeim bænirnar á kvöldin, jafnvel
þó það verði til þess að ég komi
seint á fundi eins og þennan hér í
kvöld. Ég læt börnin mín alltaf
ganga fyrir, því reynsla mín í þessu
starfi hefur kennt mér að þegar
eitthvað fer úrskeiðis hjá barni eða
unglingi, er það oft vegna þess að
þar hefur umhyggju skort.“
Dómarinn auglýsti þetta vor eftir
einhverjum sem tilbúinn væri til að
taka við starfí hans og halda því
áfram. Enginn gaf sig fram.
M. Þorv.
Dæmi um verð
LA. GEAR SKÓR
H20 JOGGING GALLAR
H20 EROBIKK SETT
BARNA JOGGING GALLAR
H20 HETTUBOLIR
H20 PEYSUR
KÖRFUBOLTAR
TÖSKUR
ÁÐUR NÚ
-7490r- 3.745,-
-Tör9501- 5.475.-
3.990.-
3.990.-
æmor.- 2.925.-
-éæo-.- 3.475,-
1.183.-
--zæo-.- 1.530.-
Laugavegi 62-Sími 13508
Harðsvíraðir afbrotaunglingar
18-20 ára í sérstakri meðferð
Dómarinn hélt áfram: „Erfiðastir
viðureignar voru margir þessir 18-
20 ára piltar sem voru orðnir
harðsvíraðir og áttu mótaðan af-
brotaferil að baki. Þeir voru margir
orðnir svo harðir og andlega kreppt-
ir að mjög erfitt var að ná eðlilegu
sambandi við þá, svo hægt væri að
hjálpa þeim.“ Dómarinn fékk þá til
umráða tveggja hæða óíbúðarhæft
hús, og til liðs við sig fékk hann
reynda sálfræðinga, eingöngu
karla. Piltamir vom síðan skikkaðir
til að mæta þar, nokkrir saman í
hóp, ákveðinn tíma dag hvern. Þeir
vora í fyrstu fluttir þangað með
lögregluvaldi. Inni í húsinu mættu
þeim 2-3 sálfræðingar sem aðhöfð-
ust ekkert til að byija með. Beiskja
út í allt og alla var svo djúpstæð
að þeir gengu berserksgang og
börðu og spörkuðu í veggi. Þeir
voru látnir í friði og gat þetta geng-
Við Fiöldum nokkra tilboðsdaga
í verslun okkar að Laugavegi
sem enginn ætti að
láta fram hjá sér fara
Afbrot
Fyrsta afbrot ákall um hjáp
Afbrot unglinga hafa farið
vaxandi hér á landi og virðist
fátt vera til ráða. Þau ráð sem
helst hafa verið notuð hafa Iítinn
árangur gefið. Af þeim ástæðum
er rétt að íhuga vel þau úrræði
sem komið hafa fram á sjónar-
sviðið og skilað meiri árangri.
Árangursríkar aðgerðir felast
oft í markvissu forvarnastarfi.
Börn á eigin vegum hættara
við afbrotum
Ég minnist dómara, í 80 þúsund
manna bæ í Michigan í Bandaríkj-
unum, sem náði að draga úr afbrot-
um unglinga sem svarar 80 prósent
á 10 ára tímabili. Þessi bær var
Royal Oak og er rétt utan við Detro-
it. Bær þessi hafí stækkað hratt á
árum seinni heimsstyijaldarinnar
m.a. vegna vopnaframleiðslu sem
hafði verið sett upp í nágrenninu.
Eftir miðjan sjötta áratuginn, þegar
hagur fólks fór að eflast, fluttu hin-
ir betur stæðu í burtu og inn í
bæinn fluttu einstæðar mæður og
lágtekjufólk bæði af hvítum og
svörtum kynstofni. Börnin vora
mikið á eigin vegum vegna þess
að foreldramir unnu úti, fíkniefna-
neysla var að halda innreið sína og
á seinni hluta áratugarins var mál-
um svo komið að afbrot og ofbeldi
ungmenna voru hvergi meiri í
Bandaríkjunum en í þessum litla
bæ.
Unglingadómstóll
Yfirvöld gripu þá til þess ráðs
að setja upp unglingadómstól, þar
sem mál bama og ungmenna undir
tvítugu voru tekin fyrir. Til starfs-
ins var fenginn maður sem reyndist
einstaklega farsæll í starfi. Aðferð-
ir hans þóttu nokkuð nýstárlegar
en mannlegar og byggðar á heil-
brigðri skynsemi. En þær vora einn-
ig umdeildar af sumum áhrifamikl-
um sálfræðingum sem töldu að
ætur afbrota næðu dýpra en að
skorti á umhyggju.
Dómarinn safnaði um sig fjölda
sérfræðinga, 80 manna hjálpar-
sveit. í henni vora kennarar fjöl-
mennastir, einnig voru þar sálfræð-
ingar, geðlæknar og lögfræðingar.
Það var vegna aðdáunar kunningja,
kennara úr hjálparsveitinni, á þessu
árangursríka starfi dómarans, að
farið var á foreldrafund í fram-
haldsskóla þar sem þessi áhuga-
verði maður hélt ræðu kvöldsins.
Oft erfitt að ná til foreldra
barna í erfiðleikum
Hann gekk í stofu og við litum
undrandi upp. Hann virtist koma
flestum á óvart. Maðurinn var há-
vaxinn, stórgerður, luralegur,
burstaklippur, í flókaskóm og hann
kom of seint. „Ég vona að þið haf-
ið ekki á móti því að ég sitji á
meðan ég held ræðuna," sagði
hann, „ég er ekki heill heilsu".
Hann leit síðan rannsakandi yfír
hópinn og sagði: „Ég sé að hér era
ekki þeir foreldrar sem ég hefði
helst viljað ná til,“ og hann bætti
við eins og við sjálfan sig: „Þeir
láta venjulega ekki sjá sig á fundum
sem þessum.“ Og hann hélt síðan
áfram: „Ég ætla þá að segja ykkur
frá starfi mínu, ég veit að fólk hef-
ur mikinn áhuga á því.“ Hann tal-
aði rólegri röddu og þó að hún
væri nokkuð hijúf var í henni
ákveðin hlýja. Það var auðvelt að
skilja hversvegna honum reyndist
svo auðvelt að vinna traust bæði
skjólstæðinga sinna og þeirra sem
með honum störfuðu.
Fyrsta afbrot ákall um hjálp
Hann lýsti ástandinu eins og það
hafði verið og hvernig tekið hafði
verið á málum. Mikil áhersla væri
lögð á að tekið væri á fýrsta af-
broti af festu. „Fyrsta brot unglings
er ákall um hjálp,“ sagði hann. Það
mætti sjá á því að unglingurinn
skildi alltaf eftir sig spor, hvort
hann gerir sér grein fyrir því eða
ekki, spor sem gerir öðram auðvelt
að fínna hann. Enda fyndust þeir
alltaf. Þó aðeins sé um hnupl að
ræða þarf að gera allt sem hægt
er til að koma í veg fyrir að slíkt
endurtaki sig, því þá er um leið
farið að mótast ferli sem mun erfíð-
ara er að ráða við. Eftir fyrsta brot
er nauðsynlegt að unglingurinn fái
ákveðna meðferð, þá er aðili, sem
þau geta borið traust til, fenginn
til að ræða við þau og komast að
undirrót vandans. Þetta sagði dóm-
arinn að væri nauðsynlegt til að
reyna að hindra að brot yrði endur-
tekið.
Hindra þarf mótun
afbrotaferlis
Ef um annað eða þriðja afbrot
var að ræða vora sálfræðingar kall-
aðir til, enda hafði þá mótast ákveð-
ið ferli sem mjög erfítt var að bijóta
upp. Dómarinn sagði að fljótt hefði
orðið ljóst að erfíðleikar í skóla
vora áberandi hjá börnum sem lentu
í afbrotum. Lélegur námsárangur
virðist tengjast skertri sjálfsímynd,
þessvegna var mikil áhersla lögð á
að fá kennara til að veita þessum
ungmennum stuðning og hjálpa
þeim að ná tök'um á náminu. í hjálp-
arsveit hans vora 60 kennarar. Ég
minnist orða kunningjakonu minnar
sem var að reyna að hjálpa 16 ára
gömlum þeldökkum pilti við námið.
Hún sagði: „Hann langar svo til að
gera vel, en hann hefur dottið út
úr náminu fyrir svo löngu, að ég
veit ekki hvort hann nær að vinna
það upp.“