Morgunblaðið - 12.11.1992, Qupperneq 50
50
MORGUNBLAÐIÐ IÞROTTIR FIMMTUDAGUR 12. NÓVEMBER 1992
URSLIT
FH-Valur 17:25
Kaplakriki, íslandsmótið í handknattleik,
1. deild kvenna, miðvikudaginn 11. nóvem-
ber 1992.
Mörk FH: Hildur Pálsdóttir 5, Heiga Egils-
dóttir 3, Eva B. Sveinsdóttir 3, María Sig-
urðardóttir 2, Ingibjörg Þorvaldsdóttir 2,
Arndís Aradóttír 1, Brynja Thórsdóttir 1.
Mörk Vals: Hanna Katrin Friðriksen 7,
Kristín Amþórsdóttir 4, Guðrún Kristjáns-
dóttir 4, Sigurbjörg Kristjánsdóttir 3, írina
Skorobogadyrk 3, Soffía Hreinsdóttir 2,
Gerður B. Jóhannsdóttir 1, Ama Garðars-
dóttir 1.
■Valsstúlkur voru §ómm mörkum yfír í
hálfleik, 13:9, og sigurinn var aldrei í hættu
þrátt fyrir að fyrsta mark þeirra eftir hlé
hafi ekki komið fyrr en á 9. mínútu. Eva
B. Sveinsdóttir var kjörin best hjá FH en
Amheiður Hreggviðsdóttir, markvörður, hjá
Val.
Haukar- Fylkir 17:22
Selfoss - Víkingur 14:17
Gangur leiksins: 0:1, 2:2, 3:6, 4:8,4:9,
5:9, 6:10, 7:12,10:13,12:13,14:14,14:15,
14:16,14:17.
Mörk Selfoss: Kristjana Aradóttir 4, Auður
Á. Hermannsdóttir 4, Hulda Bjamadóttir
3, Heiða Erlingsdóttir 1, Drifa Gunnarsdótt-
ir 1, Guðrún Hergeirsdóttir 1.
Mörk Víkinp: Halla Maria Helgadóttir 4,
Elísabet Sveinsdóttir 4, Matthildur Hannes-
dóttir 3, Svana Sigurðardóttir 3, Inga Lára
Þórisdóttir 2, Valdís Birgisdóttir 1.
Áhorfendur: 30.
Dómarar: Láms Lámsson og Jóhannes
Feiixson komust þokkalega frá leiknum.
■Með frábærri markvörslu tryggði Marja
Samardigja Víkingum sigur. Víkingsstúlkur
höfðu yfirburði framan af en í síðari hálf-
leik komst Selfossliðið í gang og náði að
jafna stöðuna og hleypa lífi í lokamínútur
leiksins. Bæði liðin misstu af góðum tæki-
fæmm þegar þeim mistókst að gera sér
mat úr hraðaupphlaupum en það var eins
og endahnútinn skorti. Selfossliðið náði að
vinna upp Qögurra marka mun strax í síð-
ari hálfleik og svo virtist sem Víkingsstúlk-
umar ættu ekki svar en það var Maija
markvörður sem kom í veg fyrir það. Auk
Maiju markvarðar átti Inga Lára Þórisdótt-
ir góðan leik og í Selfossliðinu vom það
Kristjana Aradóttir og Hulda Bjamadóttir
sem áttu einna bestan leik.
Sig. Jónsson
2. deild karla:
UBK-Ármann......................32:22
Ikvöld
Körfuknattleikur
Japisdeild:
Keflavík: ÍBK-Snæfell......kl. 20
1. deild kvenna:
Hagaskóli: KR-UMFG.........kl. 20
Handknattleikur
1. deild karla:
Akureyri: Þór-ÍBV.......kl. 20.30
1. deild kvenna:
Höllin: KR-Stjaman.........kl. 18
Höllin: Ármann - Grótta.kl. 21.15
2. deild karla:
Austurberg: Fylkir-UMFA....kl. 20
Seltj.nes: Grótta-HKN......kl. 20
Höllin: KR-Ögri............kl. 20
Fjölnish.: Fjölnir - ÍH.kl. 20.30
■Þetta er fyrsti leikurinn sem fram
fer í hinu nýju [þróttamiðstöð í Graf-
arvogi.
FELAGSLIF
Herrakvöld Víkings
Fulltrúaráð Víkings gengst fyrir herra-
kvöldi í Vikinni við Stjömugróf á morgun,
föstudaginn 13. nóvember, og hefst sam-
koman með borðhaldi klukkan 19.30. Ræðu-
maður verður Ellert B. Schram, ritstjóri.
Miðar em seldir hjá Jóhannesi Guðmunds-
syni, formanni fulltrúaráðsins, hjá fram-
kvæmdastjóra félagsins í Víkinni í Fossvogi
og við innganginn.
HANDKNATTLEIKUR / 1. DEILD KARLA
Magnús barg Haukum
- varði frábærlega á lokamínútunum gegn Víkingi íVíkinni
HAUKAR lögðu Víkinga að
velli, 18:19, í miklum baráttu-
leik í Víkinni í gærkvöldi.
Magnús Árnason markvörður
var hetja Hauka. Hann varði
frábærlega á lokakaflanum og
það skóp sigur Hafnfirðinga
öðru fremur. Haukar höfðu
eins marks forskot í hálfleik,
9:10.
Haukar höfðu frumkvæðið í
leiknum nær allan leikinn og
náðu mest þriggja marka forskoti.
Víkinga voru aldrei
langt undan og
náðu nokkrum sinn-
um að jafna. Leikur-
inn einkenndist af
sterkum vömum og góðri mark-
vörslu heggja liða þar sem úrslitn
réðust ekki fyrr en á síðustu sek-
úndum leiksins.
Lokamínúturnar voru spennandi.
Þegar rúmar þijár mínútur voru
til leiksloka minnkaði Birgir mun-
jnn fyrir Víking í eitt mark, 17:18
og Páll Ólafsson kom Haukum í
17:19 skömmu síðar. Magnús
Árnason varði síðan tvívegis glæsi-
lega, fyrst frá Birgi og síðan frá
Stefáni Halldórssyni, áður en Dag-
ur minnka muninn í eitt mark þeg-
ar ein mín. var eftir. Baumruk
Valur B.
Jónatansson
skrifar
Magnús Árnason.
missti boltann í síðustu sókn Hauka
þegar 25 sek. voru til leiksloka.
Víkingar hófu sókn og Árni Frið-
leifsson skaut að marki þegar 10
sek. voru eftir en Magnús, bjarg-
vættur Hauka, var enn á réttum
stað.
Dagur, Gunnar og Revine í
markinu voru bestu leikmenn Vík-
ings. Vömin var góð en sóknarleik-
urinn var ekki nægilega beittur,
sérstaklega vinstri vængurinn. Vík-
ingar eiga þó hrós skilið fyrir bar-
áttuvilja og kraft í lokin, sem hefði
að öllu jöfnu átt duga til að ná
jöfnu.
Haukar léku sterka vörn og
sóknir þeirra vora markvissari en
Víkinga. Sveinberg Gíslason og
Siguijón komust vel frá leiknum,
Baumruk og Páll Ólafsson áttu
góða spretti en ems og áður segir
var það Magnús Ámason sem stal
senunni.
„Ef lið ætlar sér að komast í
úrslitakeppnina verður það líka að
vinna á útivöllum. Þetta var því
mikilvægur útisigur fyrir okkur.
Með sigrinum náðum við einnig að
kveða niður þá tröllasögu, að Vík-
ingar hefðu tapað viljandi fyrir
okkur í síðasta leik íslandsmótsins
í fyrra,“ sagði Jóhann Ingi Gunn-
arsson, þjálfari Hauka.
ÍR valtaði yfir HK
UPPGJÖF HK íseinni hálfleik
hleypti lífi í ÍR sem valtaði yfir
gestina i gærkvöldi og vann
með níu marka mun, 26:17. „Ef
ég bara vissi hvað væri að. Við
náum ekki saman, klárum ekki
leikinn og ég veit ekki hvort
menn hafa slappað af því þeir
héldu sig svo góða en það er
greinilega eitthvað mikið að,“
sagði Eyjólfur Bragason þjálf-
ari HK.
Fum og fát einkenndi leikinn í
byijun og lítið var um mörk
enda vamarleikur betri hlið beggja
■■■■ liða. ÍR var þó yfir-
Stefán leitt einu eða tveim-
Stefánsson ur mörkum yfir
skrifar nema hvað HK náði
að jafna 7:7.
Gestimir jöfnuðu og komust yfir
strax eftir hlé en síðan ekki söguna
meir. Þeir misstu mann útaf fyrir
að setja boltann ekki strax niður
eftir dóm og annan fyrir óþarfa
röfl. Heimamenn náðu þá að skipu-
leggja sóknir sínar aðeins betur,
héldu boltanum og nýttu færin á
meðan HK-menn hjökkuðu á vöm
ÍR og þegar ÍR-ingar skoruðu nokk-
ur heppnismörk hristu þeir bara
hausinn. Undir lokin leystist leikur-
inn upp en ÍR-ingar höfðu betur.
Róbert Þór Rafnsson og Branilav
Dimitrijv bára hitann og þungann
af sóknunum ÍR, Jóhann Ásgeirs-
son og Matthías Matthíasson áttu
homin en útslagið gerði Magnús
Sigmundsson með frábærri mark-
vörslu. „Þetta var erfitt en hafðist.
Sóknin var slök í fyrri hálfleik en
vömin var góð og þá kemur mark-
varslan. Ég átti von á þeim sterk-
ari en það er eitthvað að hjá þeim
þvf þeir eru miklu betri en þetta
enda með marga toppmenn," sagði
Magnús.
Michal Tonar var eini leikmaður
HK sem aldrei gafst upp en flestir
aðrir vora heldur betur daufir og
ótrúlegt að horfa á svona reynda
leikmenn leyfa sér að gefast upp.
STAÐAIM
VALUR .9 5 4 0 207:186 14
SELFOSS.... .9 5 2 2 235:216 12
FH .9 5 2 2 233:218 12
STJARNAN. .9 5 2 2 224:222 12
HAUKAR.... .9 5 1 3 234:213 11
ÍR .9 4 2 3 216:207 10
VÍKINGUR. .9 5 0 4 207:198 10
ÞÓR .8 3 2 3 196:207 8
HK ..9 2 1 6 211:229 5
KA .9 2 1 6 198:214 5
ÍBV .8 1 2 5 176:203 4
FRAM ..9 1 1 7 204:228 3
KNATTSPYRNA / HM
Ungverjar náðu
jöfnuíAþenu
UNGVERJAR sluppu með skrekkinn, þegar þeir náðu markalausu
jafntefli gegn Grikkjum á útivelli f gærkvöldi. Þetta var fyrsta
tapstig Grikkja í 5. riðli undankeppni HM, en þeir eru í efsta
sæti riðilsins.
B-STIG KSI
KSÍ heldur B-stigs þjálfaranámskeið í íþróttamið-
stöðinni í Laugardal 20.-22. nóvember nk.
Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt.
Meðal efnis er: Lífæra- og lífeðlisfræði
Leikfræði
Sálarfræði
Þjálffræði
Leikreglur
Markmannsþjálfun
Verð: kr. 10.000,-
Inntökuskilyrði: A-stíg KSÍ.
Skráning og nánari upplýsingar eru veittar á
skrifstofu KSÍ, sími 814444.
Góð þjálfun - betri knattspyrna!
Fræðslunefnd KSÍ
Zsolt Petry, markvörður, var hetja
Ungveija og varði meistara-
lega hvað eftir annað. Snemma í
leiknum átti miðjumaðurinn Tsalou-
hides skalla í stöng hjá Ungverjum,
en Petry varði hörkuskot frá varnar-
manninum Apostolakis og skalla frá
Tsalouhides og miðheijanum Dimitr-
iades.
Jozef Kiprich fékk eina marktæki-
færi Ungveija, en skaut framhjá af
10 m færi á 14. mínútu. Hann meidd-
ist um miðjan fyrri hálfleik og fór
af velli 10 mínútum síðar, en eftir
það var enginn broddur í gestunum.
Peter Lipcsei var vikið af velli á 73.
mínútu fyrir brot.
Grikkland: George Mirtsos, Stratos Apostol-
akis, Theodore Pahatourides, Stelios Manolas,
Thanasis Kolitsidakes, Yotis Tsalouhides, Tas-
os Mitropoulos, George Toursounides (Costas
Franzescos, 66.), Vassilis Dimitriades (George
Vaitsis, 46.), Nikos Nioplias, Nikos Tsiantakis.
Ungveijaland: Zsolt Petry, Tibor Nagy,
Laszlo Disztl, Florian Urban, Emil Lorincz,
Zsolt Limberger, Jozsef Kiprich (Istvan Salloi,
32.), Tibor Balor, Peter Lipcsei, Ferenc Mesza-
ros (Zsolt Paling, 78.), Kalman Kovacs.
Svíar með fullt hús
Anders Limpar var i aðalhlut-
verki, þegar Svíar unnu ísrael 3:1 í
6. riðli, en þetta var þriðji sigur
þeirra í jafn mörgum leikjum. Limp-
ar gerði fyrsta markið með glæsilegu
skoti átta mínútum fyrir hlé, en jöfn-
unarmark Banins fímm mínútum
síðar var ekki síður gott. Dahlin
gerði 10. mark sitt í 17 Iandsleikjum
með skalla eftir sendingu frá Limpar
í byijun seinni hálfleiks og Ingesson
innsiglaði síðan sigurinn.
Heimamenn vora óheppnir í fyrri
hálfleik, þegar þeir áttu skot í stöng
og annað í slá. „Lánið lék við okkur
í fyrri hálfleik," sagði Tommy Svens-
son, þjálfari Svía. „En við bættum
við okkur og höfðum undirtökin eft-
ir það. Ég er sérstaklega ánægður
með að tvö markanna voru gerð með
skalla við fjærstöng, en við æfðum
slíkt sérstaklega."
FOLK
■ BRYNJAR Kvaran þjálfari ÍR
þekkir sína stuðningsmenn og skrif-
aði ábendingar til leikmanna á
spjöld og notaði táknmál því _að
venju var hávaðinn á heimavelli IR,
íþróttahúsi Seljaskóla, gífurlegur.
■ BJARNI Frostason , mark-
vörður HK, fékk fingur í augað —
ekki frá mótheija, heldur dómara.
Hann hafði varið nokkram sekúnd-
um fyrir leikhlé í óðagoti að ná
boltanum og henda fram en hljóp
á Guðjón L. Sigurðsson dómara
sem stóð teinréttur með puttann
útí loftið.
■ GUÐJÓN dómari var aumur í
fingrinum það sem eftir lifði leiks-
ins. Hann hafði á orði áð þetta væri
í fyrsta sinn á 20 ára dómaraferli
sem hann slasaði sig.
■ BIRGIR Sigurðsson, línumað-
ur Víkings, fékk skurð á augabrún
í byijun leiksins gegn Haukum og
varð að fara útaf. Hann lét plástra
augabrúnina og kom fljótlega inná
aftur eins og ekkert hafði í skorist.
ÚRSLIT
Knattspyrna
HM 3. RIÐILL
Tirana, Albanía:
Albanía - Lettland................1:1
Ilir Kepa (69.) - Oleg Aleksejenko
(3.). 3.500.
STAÐAN:
Írland.............3 2 1 0 6:0 5
Litháen...........5. 1 3 1 5:5 5
N-Irland...........3 1 2 0 5:2 4
Spánn..............3 1 2 0 3:0 4
Lettland...........6 0 4 2 3:8 4
Danmörk............3 0 3 0 0:0 3
Albanía............5 1 1 3 2:9 3
HM 5. RIÐILL
Salonika, Gríkklandi:
Grikkland - Ungveijaland..........0:0
45.000.
Staðan:
Grikkland..........3 2 1 0 2:0 5
Rússlnd............2 2 0 0 3:0 4
Ungveijaland......3 111 4:2 3
ísland.............4 1 0 3 2:4 2
Lúxemborg..........2 0 0 2 0:5 0
HM 6. RIÐILL
Tel Aviv, ísrael:
ísrael - Sviþjóð..................1:3
Banin (42.) - Anders Limpar (37.), Martin
Dahlin (58.), Klas Ingesson (74.). 40.000.
Svíþjóð.......:....3 3 0 0 6:1 6
Búlgaría...........3 2 0 1 5:2 4
Austurríki.........2 1 0 1 5:4 2
Frakkland..........2 1 0 1 2:2 2
Finnland...........2 0 0 2 0:4 0
ísrael.............2 0 0 2 3:8 0
Vináttuleikur
París, Frakklandi:
Portúgal - Búlgaria...............2:1
Jose Semedo (16.), Oceano da Cruz (33. -
vítasp.) - Krassimir Balakov (29.). 12.000.
England
3. umferð deildarbikarkeppninnar
Liverpool - Sheffield Utd.........3:0
■Steve McManaman gerði tvö marka Li-
verpool og Mike Marsh það þriðja úr víta-
spymu. Paul Stewart og Mark Walters, leik-
menn Liverpool, meiddust báðir í leiknum
og urðu að fara útaf. Liverpool fær Crystal
Palace í heimsókn í 4. umferð.
Scarborough - Plymouth............2:1
■Scarborough á heimaleik gegn Derby eða
Arsenal i 4. umferð.
Skotland
Úrvalsdeildin
Aberdeen - Motherwell.............2:0
Dundee United - Celtic............1:1
Rangers - Dundee..................3:1
■Ally Mc Coist gerði tvö af mörkum Ran-
gers og hefúr nú gert 31 mark í 25 leikjum
á þessu keppnistímabili. Rangers hefur ekki
tapað í síðustu 18 leikjum.
Spánn
Meistarakeppnin:
Seinni leikur
Atletico Madrid - Barcelona.......1:2
Manolo Sanchez (30.) - Aitor Beguiristain
(21.), Hristo Stoichkov (57.). 19.000.
■Barcelona vann 5:2 samanlagt.
Körfuknattleikur
NBA-deildin
Nokkrir leikir voru á þriðjudagskvöldið:
Cleveland - Washington Bull....131: 92
Miami Heat - Boston Celtics....110:106
New York - NewJersey...........99: 96
Minnesota Timberw. - Dallas....118:104
Chariotte - Orlando Magic......112:108
SA Spurs - Milwaukee Bucks.....104: 98
Utah Jazz - Denver Nuggets.....118:109
LA Lakers - Golden State ......107:106
Portland - Phoenix.............100: 89
Sacramento - LA Clippers.......99: 97