Morgunblaðið - 13.11.1992, Blaðsíða 3

Morgunblaðið - 13.11.1992, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1992 3 Upphaf fiskveiðaárs Þorskafl- inn meiri en í fyrra ÞORSKAFLINN fyrstu tvo mán- uði þessa fiskveiðiárs er 27.372 tonn samkvæmt _ bráðabirgða- tölum Fiskifélags Islands. Sömu mánuði í fyrra varð þorskaflinn 26.579 tonn og 31.518 haustið 1990. Botnfiskaflinn alls varð nú tæplega 81.000 tonn, nærri 5.000 tonnum minni en á sama tima í fyrra og rúmum 3.000 tonnum minni en 1990. Munurinn nú liggur í miklum samdrætti í ufsaafla. Sé þorskaflinn allt almanaksárið tek- inn saman, var hann að loknum októbermánuði 226.863 tonn nú, en 262.056 síðasta ár. Ýsuafli í haust er 4.800 tonn, sem er tæpum 2.000 tonnum minna en í fyrra og enn minna en 1990. Ufsa- afli nú er um 15.500 tonn, 7.000 tonnum minni en í fyrra. Karfaafli hefur hins vegar aukizt milli þessara tímabila. Hann varð í haust 23.600, en þar af voru 1.120 tonn úthafs- karfi. Sama tímabil í fyrra og hittið- fyrra var karfaafli minni, enda veidd- ist þá enginn úthafskarfi utan 28 tonn í fyrra. Grálúðuveiði í haust er mun meiri en í fyrra og hittiðfyrra, en kolaveiði minni. Síldin hefur gefið sig mun betur í haust en tvö hin síðari. Fyrstu tvo mánuði fiskveiðiársins veiddust 56.200 tonn af síld, 17.900 í fyrra og 19.500 í hittiðfyrra. Loðnuafli varð nú nærri 100.000 tonn, en síð- asta haust veiddist engin loðna og 27.000 haustið 1990. Rækjuafli hef- ur einnig aukizt mikið milli tímabila. í haust öfluðust 8.300 tonn, 5.300 í fyrra og 3.300 1990. Heildarafli umrætt tímabil er því 247.311 tonn nú, var 113.013 í fyrra og 137.819 í hittiðfyrra. Einar Benediktsson Einar Bene- diktsson ráðinn for- stjóri OLÍS STJÓRN OLÍS hf. hefur ákveðið að ráða Einar Benediktsson for- stjóra félagsins og tekur hann við stöðunni frá og með 1. febrúar á næsta ári. Þessi ákvörðun var tek- in á fundi stjórnarinnar í gærdag. Einar er 41 árs gamall viðskipta- fræðingur og gegnir nú stöðu fram- kvæmdastjóra Síldarútvegsnefndar. Einar er stúdent frá Verslunarskóla íslands og hann lauk námi í við- skiptafræði frá Háskóla íslands vorið 1976. Frá þeim tíma hefur hann starfað við Síldarútvegsnefnd, fyrst sem aðstoðarframkvæmdastjóri og síðar framkvæmdastjóri. Einar er fæddur á Bolungarvík, sonur hjónanna Hildar Einarsdóttur og Benedikts Bjarnasonar. Hann er kvæntur Maríu Guðmundsdóttur og eiga þau fjögur böm. Seltjarnarnes Skoðanakönnun meðal íbúanna eftir áramót Á OPNUM borgarafundi sem hald- inn var i félagsheimili Seltjarnar- ness um skipulag vestursvæðis yst á nesinu var samþykkt ályktun um að fram færi skoðanakönnun með- al íbúa um skipulag svæðisins. Að Vesturhluti Selljarnarness sem deilt er um, en þar gerir skipulagstillaga sem lengst gengur í nýtingu landsins ráð fyrir íbúðabyggð og vegteng- ingu yfir nesið. sögn Sigurgeirs Sigurðssonar bæj- arstjóra fer skoðanakönnunin væntanlega fram eftir áramót. Þá var samþykkt ályktun um að umrætt svæði yrði gert að fólkvangi. „Það sem gerist næst er að við mun- um fara okkur hægt til að byrja með samkvæmt fyrri ályktuninni en sam- kvæmt þeirri síðari gerum við vænt- anlega eftir áramót skoðanakönnum meðal bæjarbúa," sagði Sigurgeir. „Þar verða settir upp þeir valkostir sem fyrir hendi eru en þeir eru nokkr- ir.“ Harðjaxlinn frá Ameríku Nú er nýr Ford Ranger kominn til landsins, pallbíllinn sem hefur ótrúlega möguleika í útfærslu og þú getur valið um margskonar aukabúnað. Rangerinn er mjög sterkbyggður og ótrúlega sparneytinn prátt fyrir öfluga vél. Með nýrri hönnun, að utan sem innan, hafa náðst enn betri aksturseiginleikar og hann er þýður sem fólksbíll. Rað er ekki að furða að Ford Ranger skuli vera mest seldi pallbíllinn í Bandaríkjunum í áratug. Rangerinn er fyrir þá sem vilja öðruvisi bíl; glæsilegan og öflugan. Sýnum Ford Ranger laugardag og sunnudag frá kl. 13-1 7. Komdu og reynsluaktu. Verðdæmi: Ford Ranger STX SUPERCAB 31 tommu dekk, sérstaklega öflug 6 cyl, V6 4,0L EFI f vél, 160 hestöfl, vökva- og veltistýri, hraðafesting, AM/FM útvarp og segulband, snúningshraðamælir, sport hábaksstólar og sportfelgur 1.748.000 kr. Innífalið I verði er ryðvarnar- og skráningarkostnaður. Hefur þú ekiö Ford.....nýlega? G/obusP -heimur gœða! Lágmúla S, slmi 91- 68 15 55

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.