Morgunblaðið - 13.11.1992, Síða 4
4
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1992
Kristján Loftsson formaður stjórnar Olíufélagsins
Hlutafé verði lækkað um 209
milljónir og hækkað aftur
Hluthafar hafi forkaupsrétt að
því hlutafé sem boðið verður út
KRISTJÁN Loftsson varð formaður Olíufélagsins hf. á stjórnar-
fundi félagsins í fyrradag, þegar Sigurður Markússon, stjórnarfor-
maður Sambandsins, sagði af sér stjórnarformennsku í félaginu,
en Kristján hefur verið varaformaður. Varamaður í stjórn, Ólafur
Björnsson, formaður stjórnar Oliusamlags Keflavíkur, mun taka
sæti í stjórn félagsins næst þegar stjórnin kemur saman til fundar.
ur á hvaða gengi bréfin yrðu boð-
in, en eins og kunnugt er var kaup-
verð bréfanna á fimmföldu nafn-
verði, en gangverð bréfanna á
markaði er 4,5-falt nafnverð.
Morgunbiaðið/Sigurður Jónsson
Prestbústaðurinn á Arnarbæli
í Ölfusi brenndur
Gamli prestbústaðurinn á Amarbæli í Ölfusi var brenndur til grunna
fyrir skömmu. Það voru slökkviliðsmenn í Þorlákshöfn sem stóðu
að brunanum og notuðu tækifærið til æfinga í slökkvistörfum. Eldur-
inn sást víða að enda stóð húsið uppi á hæð og var hið reisulegasta.
Það var byggt upp úr aldamótunum síðustu og var tvílyft hús á
háum grunni.
Boðaður hefur verið hluthafa-
fundur í Olíufélaginu næstkomandi
fimmtudag, 19. nóvember, þar sem
lögð verður fram tillaga stjómar
til hluthafa um að lækka hlutafé
félagsins um nafnverð þeirra bréfa
sem félagið keypti nýlega af Sam-
bandi íslenskra samvinnufélaga, á
fímmföldu nafnverði, eða fyrir
1.048 milljónir króna. Nafnverð
bréfanna er 209 milljónir króna.
Kristján Loftsson, formaður
stjómar Olíufélagsins, sagði í sam-
tali við Morgunblaðið í gær að hann
VEÐUR
. 12.00
IDAG k\
Heímitd: Veðutstofa Istands
(Byggt á veðurspá Kt. 16.15 í gær)
VEÐURHORFUR 1DAG, 13. NÓVEMBER:
YFIRLIT: Yfir landinu er hæðarhryggur á leið austur en skammt norður
af Grímsey er 998 mb lægð sem einnig fer austur. Við suðvesturströnd
Grænlands er 985 mb lægð á hreyfingu norðaustur.
SPÁ: Sunnan- og suðvestan kaldi eða stinningskaldi með rigningu eða
súld á Suð- og Vesturlandi og einnig um tíma norðanlands og austan
en þar léttir til síðdegis. Veöur fer hlýnandi og á morgun verður hiti á
bilinu 2-6 stig.
VEÐURHORFUR NÆSTU DAGA:
HORFUR Á LAUGARDAG: Suðaustlæg átt og hiti um og rétt yfir frost-
marki ó landinu. Siydduél eða skúrir sunnan- og suðaustanlands en
þurrt annars staðar.
HORFUR Á SUNNUDAG: Vaxandi sunnan- og suðaustanótt og fer að
rigna, fyrst vestanlands. Hiti 3 til 6 stig.
Nýir veðurfregnatímar: 1.30, 4.30, 7.30, 10.45, 12.45, 16.30, 19.30,
22.30. Svarsími Veðurstofu Islands — Veðurfregnir: 990600.
Heiðskírt Léttskýjað Hálfskýjað Skýjað
r r r
r r
r r r
Rigning
* / *
* /
/ * /
Slydda
* * *
* *
* * *
Snjókoma
Alskýjað
V ^ v
Skúrir Slydduél Él
Sunnan, 4 vindstig.
Vindórin sýnir vindstefnu
og fjaðrirnar vindstyrk,
heil fjðður er 2 vindstig.^
10° Hitastig
v Súld
= Poka S
FÆRÐA VEGUM: «a 17.30 fgær,
Greiðfært er nú á vegum í nágrenni Reykjavíkur, nema Mosfellsheiði
er þungfær. Vel fært er um Suðurland til Austfjarða. Ágæt ferð er fyrir
Hvalfjörð um Vesturland, vestur fyrir Gilsfjörð í Reykhólasveit. Fært er
frá Brjánslæk til Bíldudals um Kleifaheiði og Hálfdán. Greiðfært er norð-
ur yfir Holtavörðuheiði til Hólmavíkur og þaðan er fært til Isafjarðar um
Steingrímsfjarðarheiði. Botnsheiði er þungfær og Breiðadalsheiði er
ófær. Fært er um Norðurland og með ströndinni ó Noröausturlandi til
Vopnafjarðar. Mývatns- og Möðrudalsöræfi eru ófær. Víða um land er
hálka og snjór á vegi án fyrirstöðu.
Upplýsingar um færð eru veittar hjá Vegaeftirliti í sima 91-631500 og
í grænni línu 99-6315. Vegagerðln.
VEÐUR VIÐA
kl. 12.00 í gær
UM HEIM
að ísl. tíma
Akureyri Reykiavík hitl +4 +3 veður skýjað skýjað
Björgvin 4 suld
Helsinki vantar
Kaupmannahöfn 6 rígnlng
Narssarsauaq +1 snjókoma
Nuuk +8 snjðkoma
Ó8ló 3 rlgning
Stokkhótmur 4 rigning
Pórshöfn 3 akúr
Algarve 18 heiðskírt
Amsterdam 8 háifskýjað
Barceiona 17 skýjað
Beriín 7 skýjað
Chicago 8 rigning
Feneyjar 13 þokumóða
Frankfurt 7 skýjað
Glasgow 6 úrkoma
Hamborg 6 skúr
London B léttskýjað
LosAngeles 12 heiðskírt
Lúxemborg 6 skýjað
Madríd 15 lóttskýjað
Malaga 22 léttskýjað
Mallorca 17 alskýjað
Montreal 1 skýjað
NewVork 10 súld
Orlando 22 skýjað
Paris 10 skúr
Madelra 21 hátfakýjað
Róm 10 hálfskýjað
Vín vantar
Washington 11 þokumóða
Winnipeg +3 skýjað
reiknaði með því að ofangreind til-
laga yrði samþykkt. Ef svo yrði,
þá yrði lögð fram önnur tillaga um
heimild stjórnar til að hækka hluta-
fé með sölu nýrra hluta. „Það yrði
þá þannig að gefín yrðu út ný hluta-
bréf um sömu upphæð. í framhaldi
af því yrði hlutafjárútboð, eins og
í öðrum hlutafélögum, þar sem
hluthafar í félaginu, um 1.200 aðil-
ar, hefðu forkaupsrétt að því hluta-
fé sem boðið yrði út, í hlutfalli við
hlutafjáreign sína,“ sagði Kristján.
Kristján sagði stjómina hafa tal-
ið að þetta væri eðlilegasta leiðin
fyrir félagið að fara, í staðinn fyrir
að eiga bréfin áfram og þurfa að
hraða sölu á þeim, þar sem félag
má ekki eiga meira en 10% í sjálfu
sér, samkvæmt hlutafélagalögum,
lengur en þijá mánuði. „Með því
að lækka hlutaféð og fara þessa
leið, þá komumst við hjá slíku,“
sagði Kristján. Kristján sagði stjóm
ESSO ekki hafa tekið ákvörðun um
hversu mikill hluti bréfanna yrði
boðinn út til að byrja með, né held-
Geðrænn
vandi hjá
Vs barna og
unglinga
FIMMTUNGUR barna og ungl-
inga hér á landi á við geðræn
vandamál að stríða, samkvæmt
niðurstöðum könnunar, sem gerð
var á Landspítalanum og náði til
2.000 barna og unglinga á aldrin-
um tveggja til átján ára.
Algengustu kvillarnir eru hegð-
unar- og tilfínningavandamál,
þroskafrávik, sállíkamleg einkenni,
atferlistruflanir og eirðarleysisein-
kenni. Samkvæmt samanburði við
rannsóknir, sem gerðar hafa verið
erlendis, eru íslenzk böm með svip-
aða geðheilsu og böm í Hollandi
og Bandaríkjunum og betri en böm
í Kanada, Frakklandi og Thailandi.
Sjá bls. 1B.
Ný ljóðabók eftir
Þorstein frá Hamri
SÆFARINN sofandi heitir ný
ljóðabók eftir Þorstein frá
Hamri.
Í lýsingu útgefanda segir: „í
þessari nýju bók kveður ef til vill
við persónulegri tón en áður hefur
gætt þegar skyggnst er í hugskotið
og víða er leitað fanga á vegferð
skáldsins. Skáldskapurinn er þó hér
sem fyrr fýrst og fremst spurning
um manneskjuna sjálfa, samspil
hennar við sinn innri mann og við
umhverfi sitt. Og á listrænan hátt
rennur efni og uppbygging ljóðsins
saman í einum farvegi þar sem
hugsunin fær mál, formið skynjun.
Þorsteinn frá Hamri er trúr lesend-
um sínum - og þó fyrst og fremst
sjálfum sér í þessari nýju bók.“
Útgefandi er Iðunn. Bókin er
prentuð i Prentbæ hf., 55 blaðsíð-
ur, og kostar 2.680 krónur.
Þorsteinn frá Hamri
„Haustdreifar“, bók eft-
ir Sig’iirbjörn Einarsson
BÓKIN Haustdreifar eftir Sigur-
björn Einarsson biskup er komin
út. í þessari bók fjallar Sigur-
björn í 20 erindum, ritgerðum
og ræðum frá síðustu árum um
margvísleg efni sem höfða jafnt
til leikra og lærðra.
í tilkynningu útgefenda segir:
„Mörg kjamatriði kristinnar trúar
eru tekin fyrir og rædd á skilmerki-
legan hátt, hvernig trúin tengist
lífi sérhvers manns, sögu þjóðarinn-
ar, sögu mannsandans. I bókinni
birtast greinar um skímina, bæn-
ina, kyrrðina, sorgina, atburði
dymbilviku, páska og upprisu. Bók-
in á því erindi til allra þeirra sem
kynna vilja sér kjarnaatriði krist-
innar trúar, lærðra jafn sem leikra.
Útgefandi er Skálholtsútgáfan —
útgáfufélag þjóðkirkjunnar. Bókin
er alls 261 blaðsíða, umbrot var í
höndum Skerplu, hönnun á bók-
arkápu annaðist Guðjón Ketilsson,
ljósmynd af höfundi tók Odd Stefán
Sigurbjörn Einarsson
en prentvinnsla fór fram í Stein-
dórsprent Gutenberg hf. Bókin
kostar kr. 2.980.