Morgunblaðið - 13.11.1992, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1992
UM HELGINA
Tónlist
Oddi og Breiða-
bólsstaður í
Rangárþingi
MARGRÉT Bóasdóttir sópransöng-
kona og Chalumeaux-tríóið halda
tvenna tónleika í Rangárþingi á
næstunni. Þeir fyrri verða í Odda-
kirkju sunnudaginn 15. nóvember
kl. 15.00 og þeir síðari að Breiða-
bólsstað í Fljótshlíð miðvikudags-
kvöldið 18. nóvember kl. 21.00.
Á efnisskrá tónleikanna eru verk
eftir Graupner, Bach, Jón Leifs og
Mozart. Chalumeaux-tríóið er skipað
klarinettuleikurunum Kjartani Ósk-
arssyni, Óskari Ingólfssyni og Sig-
urði Ingva Snorrasyni. Þeir félagar
hafa leikið saman á klarinettur í fjöl-
mörg ár, en það var ekki fyrr en á
síðasta ári að þeir gáfu tríóinu nafn-
ið Chalumeaux, en það hljóðfæri var
foiyeri klarinettunnar.
í fréttatilkynningu segir að tón-
leikamir séu styrktir af Félagi ís-
lenskra tónlistarmanna og aðgangur
sé ókeypis.
Hraunhvörf
ísafjörður
SÝNING verður opnuð á verkum
Halldórs Ásgeirssonar í Slúnkaríki
á ísaflrði laugardaginn 14. nóvem-
ber. Á sýningunni eru myndverk
gerð úr bræddu hraungrýti.
í fréttatilkynningu segir: „Þetta
eru litlar furðumyndir sem'festar eru
beint á veggina og eru bræddar úr
hraunsteini sem hangir úr loftinu í
miðjum salnum.
„Hraunhvörf“ kallar Halldór
þessa aðferð er hann hitar hraunið
upp að bræðslumarki og það um-
breytist í svartan glerung, ekki
ósvipaðan hrafntinnu.
Einnig eru til sýnis tvær bækur
eftir listamanninn, gerðar með bleki
og vatnslitum. Sýningin stendur til
6. desember og er opin frá kl. 16-18,
fimmtudaga til sunnudaga.
Gallerí Sævars Karls
Sýning á verkum Elínar Magnús-
dóttur, myndlistakonu, verður opn-
uð í Galleríi Sævars Karls, Banka-
stræti 9, föstudaginn 13. nóvcmber
kl. 16.00. Sýningin verður opin til
4. desember. Þema sýningarinnar
er „Rómantík og erótískir straumar
milli okkar mannanna".
Elín er fædd 9. febrúar 1956. Hún
stundaði nám við Myndlista- og'
handíðaskóla íslands í tvö ár. Hún
var við nám einn vetur við listaaka-
demíuna AKI í Enschede í Hollandi
og útskrifaðist með diploma í frjálsri
málun frá Gerrit Rietveldt-Akadem-
íunni í Amsterdam vorið ’87. Elín
hefur unnið hérlepdis að frjálsri list-
sköpun síðan.
Elín Magnúsdóttir myndlista-
kona.
Margrét Bóasdóttir og Chalumeaux-tríóið.
í fréttatilkynningu segir að Elín
eigi sjö einkasýningar að baki. Þær
helstu eru tvær sýningar í Gallerí
List, sýning í Gallery Witte Veen í
Amsterdam og sýning í Mennta-
málaráðuneytinu í sumar.
Perlan
LJÓSMYNDASÝNING frá Venezu-
ela verður opin í Perlunni í Reykja-
vík frá kl. 16 sunnudaginn 15. nóv-
ember til kl. 16 laugardaginn 21.
nóvember 1992.
Heiti sýningarinnar er Venezuela,
töfrandi land, en sýning þessi hefur
farið milli margra borga í heiminum,
og var síðast á Ítalíu, Spáni og í
Bandaríkjunum. Fyrirtækið Corpo-
ven hefur gert þessa sýningu mögu-
lega, en það er dótturfyrirtæki olíu-
félagsins „Petroleos de Venezuela".
Sýningunni fylgir myndband sem
gefur frekari innsýn í tilgang sýn-
ingarinnar.
í fréttatilkynningu segir m.a.:
„Hinn þekkti ljósmyndari Roberto
Calantoni var ráðinn af Corpoven til
að hanna þessa ljósmyndasýningu
þar sem koma fram menningararf-
leifð og athyglisverðustu þættir úr
náttúru Venezuela, sem þegar hafa
hrifið fjölda ferðamanna víðsvegar
úr heiminum. Hinn viilta fegurð
Qalla og fljóta; heillandi fjallatoppar
og jöklar Andesfjallanna, sem hægt
er að nálgast með hæstu kapallyftu
í heimi; Englafossamir sem eru
hæstu fossar í heimi; hin dularfulli
Guacharo-hellir; stórkostlegar bað-
strendur Karabíska hafsins; hin sér-
stæða Margarita-eyja; og Roques-
skaginn, allt þetta er í minningum
ferðamannsins, ásamt sérkennum
íbúanna, menningu þeirra og hátta.“
Steinvör Bjarnadóttir við eitt
verka sinna.
Lóuhreiður
STEINVÖR Bjarnadóttir heldur
myndlistarsýningu i kaffihúsinu
Lóuhreiðri á Laugavegi 59, 2. hæð.
Steinvör hefur sótt myndiistar-
námskeið hjá Rúnu Gísladóttur og
hefur t.d. haft sýningu í Þrastalundi.
Sýningin stendur yfir frá 14. nóv-
ember til 11. desember og er opin
alla virka daga frá kl. 9-18, nema
laugardaga kl. 10-16.
Eitt verka Thors Barðdal.
Kjarvalsstaðir
Höggmyndasýning Thors Barðdal
á Kjarvalsstöðum lýkur um helgina.
Þetta eru marmara- og granítverk
sem flest eru unnin í Portúgal á
þessu ári. Þetta er fjórða einkasýn-
ing listamannsins. Sýningin er opin
til kl. 18.
Húsavík
MYNDLISTAKONAN Aðalbjörg
Jónsdóttir frá Gestsstöðum á
Ströndum, nú búsett í Reykjavik,
opnaði fjölbreytta sýningu á lista-
verkum sínum í síðustu viku í Safn-
húsinu á Húsavík og var gerður
góður rómur af.
Á sýningunni eru 50 listaverk
máluð í vatnslitum, pastel og olíu
og myndefnið hið fjölbreyttasta.
Einnig sýnir listakonan nælur og
kort sem hún hefur gert og myndir
af handprjónuðum kjólum úr ís-
lenskri ull sem hún hefur sýnt í
Reykjavík og hafa þeir af þjóðþekkt-
um listgagnrýnendum hlotið hina
bestu dóma.
Aðalbjörg hefur sýnt list sýna á
Kjarvalsstöðum og haft einkasýn-
ingar víða um land nú á síðustu
árum.
— Fréttaritari.
Fold
KYNNING verður á vcrkum Hafdís-
ar Ólafsdóttur myndlistarkonu i
Fold listmunasölu, Austurstræti 3,
dagana 14.-22. nóvember.
Hafdís er fædd 1956. Hún stund-
aði nám við Myndlista- og handíða-
skóla íslands 1975-1981 og lauk
prófi úr kennara- og grafíkdeild.
Undanfarin ár hefur hún kennt við
skólann. Hafdís hefur haldið einka-
sýningar, meðal annars í Norræna
húsinu og tekið þátt í fjötda, samsýn-
inga innanlands og utan. í fréttatil-
kynningu segir að myndir eftir hana
séu meðal annars í opinberri eigu
hér á landi og erlendis.
Opið er í Fold frá kl. 11-18 alla
daga nema sunnudaga, meðan á
kynningu stendur. Allar myndirnar
eru til sölu.
Listasafn Sigurjóns
til sýnis
UM SÍÐUSTU helgi var opnuð sýn-
ing í Listasafni Sigurjóns
Ólafssonar á 30 verkum eftir Sigur-
jón. Sýningin spannar tímabilið 1934
til 1982 og í efri sal safnsins eru
valdar myndir frá síðustu æviárum
Sigurjóns en þá vann listamaðurinn
nær eingöngu í tré.
í vetur verður safnið opið um
helgar milli kl. 14 og 17 og er kaffi-
stofan opin á sama tíma. Tekið er
á móti hópum utan opnunartímans
eftir samkomulagi.
(Fréttatilkynning)
A
FIM-salur - Norræna
húsið
SÝNINGUM Guðrúnar Kristjáns-
dóttur í FÍM-sal og Norræna húsinu
lýkur sunnudaginn 15. nóvember.
I FIM-salnum eru litlar landslags-
myndir, klipptar saman úr hand;
gerðum pappír, og ein lágmynd. í
Norræna húsinu eru stór olíumál-
verk og lágmyndir, gerðar úr ryðfríu
stáli. Öll verkin eru unnin á árunum
1991-1992.
Opið er í FÍM-salnum kl. 14-18,
en í Norræna húsinu kl. 14-19, alla
daga.
Blátt áfram og
af guðhræðslu
Ensk kirkjutónlist fjögurra alda á
tónleikum Mótettukórs Hallgríms-
kirkju á sunnudag
Tónleikar Mótettukórs Hallgrímskirkju eru að þessu sinni helgaðir
enskri kirkjutónlist og spannar efnisskráin tónlist fjögurra alda, frá
Robert Whyte (d. 1574) til Williams H. Harris (d. 1973), en alls verða
flutt verk eftir 10 helstu kirkjutónskáld Englendinga í gegnum tíðina.
Stjórnandi kórsins á þessum tónleikum er Bernharður Wilkinson, sem
hefur enska kirkju- og kórtónlist nánast í blóðinu, en hann er fæddur
og uppalinn í Englandi, sonur þekkts kórstjórnanda og söng sjálfur
með drengjakór Westminster Abbey-dómkirkjunnar á æskuárum.
Bemharður hefur verið búsettur á
Islandi frá 1975 og starfar sem þver-
flautuleikari við Sinfóníuhljómsveit
íslands. Hann kennir einnig þver-
flautuleik við Tónlistarskólann í
Reykjavík en hefur auk þess fengist
nokkuð við hljómsveitarstjóm,
stjórnað m.a. Sinfóníuhljómsveit ís-
lands og Æskuhljómsveit höfuð-
borga Norðurlanda 1991. Þá er Bem-
harður einn af félögunum í Blásarak-
vintett Reykjavíkur sem gert hefur
garðinn frægan á undanfömum
misserum.
Bernharður stjómar Mótettukóm-
um að þessu sinni í fjarveru stofn-
anda kórsins og stjómanda frá upp-
hafi, Harðar Áskelssonar, sem und-
anfarna mánuði hefur haft nóg að
starfa við uppsetningu hins mikla
orgels sem komið er í kirkjuna.
Kórdrengur í Westminster
„Þegar ég var sjö ára fékk ég
inngöngu í drengjakór Westminster
Abbey og fór þá á heimavistarskóla
sem rekinn var í tengslum við kirkj-
una og kórinn. Skólavistin var
ókeypis en á móti var kórstarfíð
mjög tímafrekt,“ segir Bemharður
um fyrstu kynni sín af kirkjutónlist.
— Þú hefur þá hreinlega unnið
fyrir náminu með söngnum sjö ára
gamall?
„Já, það má kannski segja það.
Við þurftum að syngja alla daga
nema miðvikudaga, og tvisvar,
stundum þrisvar, á sunnudögum. En
þetta var mjög skemmtilegur tími,
ég fékk góða kennslu í söng, tón-
fræði og píanóleik, auk almennrar
kennslu og lauk þarna bamaskóla-
prófí 12 ára gamall. Þá hætti ég í
kómum og fór í annan skóla. Enda
röddin farin að breytast,“ segir hahn
og brosir.
Kórsöngur og bresk kirkjutónlist
hefur þannig verið fylgifiskur Bem-
harðs frá blautu bamsbeini, því faðir
hans er mikilvirkur kórstjóri í Eng-
landi og stjórnaði um árabil Kór
breska útvarpsins, BBC, ásamt því
að stjóma dagskrárgerð um tón-
list.„Það má segja að kórsöngur í
kirkjum hafi risið upp úr 150-200
ára lægð í lok síðustu aldar. Þó ótrú-
Frá Hafnarborg, menningar- og lista-
stofnun Hafnarfjarðar
Þekktur píanóleikari frá
Venezúela með tónleika
ELENA Riu píanóleikari frá
Venezúela verður með tónleika í
Hafnarborg sunnudaginn 15. nóv-
ember kj. 17.00. Sendiráð Venezú-
ela á Islandi, Hafnarborg og
Menningarstofnun Venezúela
(CONAC) standa að tónleikunum,
sem eru haldnir í tilefni af útnefn-
ingu fyrsta ræðismanns Venezú-
ela á Islandi.
I fréttatilkynningu segir að Elena
Riu sé talin einna fjölhæfust yngri
píanóleikara í Suður-Ameríku. Hún
er af spænskum og ítölskum ættum,
en fluttist til Lundúna til náms eftir
að hafa hlotið ríkisstyrk frá Venezú-
ela. Hún nam fyrst hjá Niel Immel-
man, en varð síðar nemandi Joseph
Weingarten við Trinity-tónlistarhá-
skólann. Þar vann hún til fjölda verð-
launa og hefur síðan haldið tónleika
víða um Suður-Ameríku, á Spáni, í
Frakklandi og Englandi.
Hún hefur hlotið lof fyrir leik sinn,
Kjósarmenn
endurútgefnir
Kiðafclli.
EFTIR að starfsemi Átthagafé-
lags Kjósverja hætti starfsemi
sinni afhenti það Kjósarhreppi
útgáfuréttinn af Kjósarmönnum
sem er bók með ábúendatali í
Kjósinni frá 16. öld fram að miðri
20. öld. Bókin er löngu uppseld.
Nú er í ráði endurútgáfa á bók-
inni með viðbót til okkar daga. Mik-
ið hefur verið spurt eftir henni og
er hún talið með betri ábúendatölum
sem út hafa verið gefin en það var
Haraldur Pétursson sem tók hana
saman fyrir Átthagafélag Kjósverja
í kringum 1950.
- Hjalti.
Elena Riu píanóleikari.
meðal annars frá Vlado Perlemuter,
Imogen Cooper og Bernand Keefe.
Á árunum 1991-’92 kom hún víða
fram, meðal annars í útvarpi í Frakk-
landi, i útvarpi og sjónvarpi í
Venezúela og víðar í Suður-Amer-
íku. Ennfremur í Ripley Arts Centre,
í Bolivar Hall, Barbican Centre, í
Salle Unesco í París og í Madríd.
Á þessu ári hefur hún þegar leik-
ið á ijölda tónieika, síðast í Kantara-
borg með Simon Bolivar sinfóníu-
hljómsveitinni.
Á efnisskrá tónleikanna í Hafnar-
borg verða verk eftir suður-amerísk
og spænsk tónskáld. Elena Riu mun
flytja meðal annars verk eftir Scarl-
-atti, Alveniz, Granados, Moleiro,
Frederic Nompou og Diana Arism-
endi frá Venezúela. Hún telur að
um frumflutning sé að ræða á verk-
um þeirra tveggja síðastnefndu.