Morgunblaðið - 13.11.1992, Qupperneq 23
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1992
23
Morgunblaðið/Anna G. Ólafsdóttir
Dagbjört og Rúna á blaðamannafundi föður þeirra 1 fyrrakvöld.
„Vona að allir Tyrk-
ir séu ánægðir núna“
Halim segist ekki hafa ákveðið hvort
Sophia fær stúikurnar 1 júlí
HALIM A1 brosti breitt og lyfti höndum til merkis um signr þegar
hann gekk út úr skrifstofu dómarans eftir að honum hafði verið úr-
skurðað forræði dætra þeirra Sophiu Hansen í gærmorgun. Á hæla
hans komu fylgdarmenn hans með gleðibros á vör. Halim sagðist í sam-
tali við blaðamann vera afar ánægður með niðurstöðu dómarans. Hann
sagðist ekki vera búinn að ákveða hvort Sophia fengi að hafa stúlkumar
í júlí eins og úrskurður dómarans kveður á um, enda hefði hann 7-8
mánuði til að hugsa málið.
Samstarf norrænna útvarpsstöðva
Islensk dægurtónlist
kynnt á Norðurlöndum
TEKIÐ hefur verið upp samstarf milli norrænna útvarpsstöðva um
kynningu á norrænni dægurtónlist. íslensk dægurtónlist er kynnt
sérstaklega í vikulegum þáttum á Norðurlöndunum og á dagskrá
rásar 2 á sunnudögum er klukkustundar langur þáttur, þar sem Orn
Petersen kynnir lög frá Norðurlöndum. Á sunnudag verður þáttur-
inn í beinni útsendingu og verða þá meðal annars leikin ný lög
frá Svíþjóð.
Þegar Haiim kom að dómshúsinu
í gærmorgun lék hann á als oddi.
Hann sagðist vera bjartsýnn á niður-
stöðu dómarans og áætlaði að um
4.000 manns væru fyrir utan húsið.
Hann sagðist fá mikinn stuðning frá
fólkinu og tók það fram að það kæmi
sjálfviljugt til að sýna stuðning sinn
í verki.
Hann var einnig léttur á brún þeg-
ar málið var tekið fyrir í skrifstofu
dómarans og gekk fagnandi út þegar
úrskurðurinn lá fyrir. Þegar blaða-
maður ræddi við Halim síðdegis í gær
sagðist hann vera búinn að segja
dætrum sínum frá niðurstöðunni. Þær
hefðu hoppað fagnandi upp um háls-
inn á honum og sagt: „Við unnum
pabbi, við unnum“. Halim sagði lík-
legt að þau feðginin myndu halda
upp á niðurstöðu dómarans, en ekki
í gærkvöldi því þá væru stúlkurnar
í leiktíma í skólanum.
Halim sagðist þakka lögfræðing-
um sínum og allri tyrknesku þjóðinni
sigurinn. „Ég vona að allir Tyrkir séu
ánægðir núna,“ sagði hann.
Öm er fulltrúi íslands í Sam-
starfsnefnd um kynningu á nor-
rænni dægurlagatónlist, Nord-disk.
Hugmyndin að föstum þáttum í
dagskrám norrænu útvarpstöðv-
anna kom frá deildarstjóra hjá
danska ríkisútvarpinu. Tekist hefur
samstarf milli dagskrárgerðar-
manna sem fást við flutning á nor-
rænni dægurtónlist og miðla þeir
meðal annars efni milli landanna.
Norrænt tónlistarefni hefur fengið
fastan sess í dagskrám með klukku-
stundar löngum þáttum á laugar-
dögum eða sunnudögum á öllum
Norðurlöndum. Norðmenn fjalla
eingöngu um danska, íslenska,
sænska og finnska tónlist og Danir
um norska, íslenska, sænska og
fínnska tónlist, svo dæmi séu tekin.
„Þessir aðilar hafa samband sín
á milli og hittast einu sinni á ári,“
sagði Örn. „Ég er búsettur í Dan-
mörku og hlustaði á danska þáttinn
og fannst vanta efni frá íslandi, sem
mér fannst fyllilega sambærilegt.
Ég hafði samband við Stefán Jón
Hafstein dagskrárstjóra rásar 2 og
það var ákveðið að rás 2 tæki fyrir
hönd ríkisútvarpsins formlega þátt
í þessu samstarfi. Eftir að það hófst
er vikulega leikin íslensk tónlist,
að minnsta kosti eitt dægurlag á
öllum Norðurlöndum með ítarlegri
kynningu."
Örn sagðist reyna að kynna nýj-
ustu og vinsælustu tónlistina frá
Norðurlöndum í þáttum sínum. „Ég
reyni að hafa sem mest af efninu
sungið á máli viðkomandi landa, en
það er mesta vandamálið," sagði
hann. „Brot af þeirri tónlist sem
kemur frá íslandi er sungið á ensku,.
en meirihluti tónlistarefnis sem til
dæmis er gefíð út í Danmörku og
Svíþjóð er sungið á ensku. Þeir eru
það framarlega í dægurtónlist á
alþjóðlegum mælikvarða að þeir
komast upp með að syngja á ensku.
Þetta er smá vandamál en það verð-
ur að hafa það. Efni þáttarins yrði
fremur þunnt ef ekki væru leikin
lög sungin á ensku.“
Bílamarkaöurinn
Smiðjuvegi 46E p ;
v/Reykjanesbraut, ,
Kopavogi, sími
671800
Opið sunnudaga
kl. 2-6.
PÍymouth Laser Twin Cam, turbo, 16V,
'90, svartur, 5 g., ek. 35 þ. Mikið af aukahl.
V. 1890 þús., sk. á ód.
Suzuki Samurai Hi Roof '88, rauður, 5
g., ek. 62 þ., mikið breyttur (lækkuð hlut-
föll, heitur knastás, flækjur o.fl.). Gott ein-
tak. V. 790 þús.
Toyota 4Runner V-6 '91, rauður, sjálfsk.,
ek. 30 þ., ýmsir aukahl. V. 2.3 millj.
Toyota 4Runner EFi SR5 '88, V-6, 5 g.,
ek. 65 þ., ýmsir aukahl. V.'1550 þús., sk.
á 6d.
GMC 1500 Pick Up (High Sierra) 4x4
'84, 6.2 diesel, m/húsi, sjálfsk., ek. 88 þ.
V. 1190 þús.
M. Benz 280 SE '81, sjálfsk. Góður bíll.
V. 1050 þús.
Peugout 309 Rofile '91, 5 dyra, 5 g., ek.
3 þ. Sem nýr. V. 790 þús. stgr.
Toyota Corolla GTI 16v '88, svartur, 5
g., ek. 69 þ., sóllúga, rafm. í öllu. V. 750
þús. stgr.
Honda Accord EX '88, blásans, sjálfsk.,
ek. 64 þ., sóllúga, rafm. í öllu. Toppein-
tak. V. 890 þús., sk. á ód.
Lada Sport '88, 5 g., léttist., ek. 41 þ.
Gott útlit. V. 330 þús. stgr., skipti.
Subaru 1800 4x4 Sedan '88, 5 g., ek.
89 þ. V. 620 þús. stgr.
Toyota Corolla XL Liftback '88, hvítur, 5
g., ek. 80 þ. Gott útlit. V. 670 þús., sk. á ód.
VANTAR GÓÐA BÍLA
Á STAÐINN
HYunoni
...til framtíáar
4. dyra stallbakur • 114 hestafla vél • 16 ventla tölvustýrð fjölinnspýting
5 gíra beinskipting eða 4. þrepa tölvustýrð sjálfskipting • Rafdrifnar rúður
og samlæsing • Rafstýrðir hliðarspeglar • Styrktarbitar í hurðum • Veltistýri
Útvarp m/kassettutæki og 4 hátölurum
Verð frá 1.059.000,- kr.
BIFREIÐAR &
L&NDBÚNAÐARVÉLAR HF.
ÁRMÚLA 13, SÍMI: 68 12 00
BEINN SÍMI: 3 12 36
■
-......f-
Einn best útbúni bíllinn í sínum flokki!