Morgunblaðið - 13.11.1992, Qupperneq 25
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1992
25
Skoðanakannanir benda til „skiln-
ings“ á ofbeldi gegn útlendingum
Þýskaland líkist fé-
lagslegri púðurtunnu
Bonn. Reuter.
ÞÝSKT samfélag líkist helst félagslegri púðurtunnu þessa stund-
ina og stuðningur við sjónarmið öfgamanna, sem ráðast með of-
beldi að innflyljendum, fer vaxandi, samkvæmt skoðanakönnun,
sem hin virta stofnun Allensbach birti í gær. Bendir hún til að
stór hluti þýsku þjóðarinnar sé nú fullur svartsýni og örvænting-
ar vegna hins slæma efnahagsástands og getuleysis stjórnvalda
við að stöðva straum innflytjenda til landsins.
Renate Köcher, hjá Allensbach,
sagði í greinargerð með könnun-
inni, sem birt var í dagblaðinu
Frankfurter Allgemeine Zeitung,
að ástandið væri mjög varhuga-
vert; Þýskaland væri líkast púðurt-
unnu. „Ofan á ótta við efnahags-
kreppu bætist að fólki finnst sem
ríkisstjórnin og stjómarandstaðan
hafi látið innflytjendavandamálið
fara úr böndunum af flokkspóli-
tískum ástæðum. Bráðlátir stjórn-
málamenn hafa opinberlega eða
óbeint niðurlægt fólk með því að
kalla ótta Þjóðveija út af þessari
þróun útlendingahatur, en það
stuðlar að því að óróleiki breytist
í bræði,“ segir Köcher.
Hún sagði ennfremur að hlut-
fall þeirra sem segjast skilja þær
tilfinningar sem búa að baki of-
beldi gagnvart innflytjendum hafí
aukist úr 12% á sama tíma í fyrra
í 16% nú. Þá telja 25% aðspurðra
í vesturhluta Þýskalands og 30%
í austurhlutanum að einungis of-
beldi geti bundið enda á þá póli-
tísku sjálfheldu sem málið er nú
komið í.
Búist er við að 500.000 innflytj-
endur muni sækja um pólitískt
hæli í Þýskalandi á þessu ári sem
er helmingi meiri fjöldi en í fyrra.
Köcher sagði að sumar niður-
stöður könnunarinnar virtust vera
í mótsögn við þær niðurstöður sem
getið var um að framan. Þannig
sögðust 89% styðja harðar aðgerð-
ir gegn öfgamönnum sem réðust
á útlendinga og mjög lágt hlut-
fall, sex af hundraði, var fylgjandi
ofbeldi til að ná fram pólitískum
markmiðum. Aftur á móti hefði
verið grafið undan þessum skoð-
unum á síðustu árum í kjölfar
þess að „aðstöðu-siðfræði“ væri
orðin meira áberandi, þ.e. sú trú
að tilgangurinn réttlæti meðalið í
sumum tilvikum. Hún sagði að hið
mikla hrun félagslegra gilda, sem
greinilega kæmi fram í auknu of-
beldi hægri öfgamanna, hefði ver-
ið óhugsandi fyrir nokkrum árum
síðan. I raun væri hins vegar um
að ræða eftirköst stúdentaupp-
reisnanna árið 1968 en hreyfing
vinstrimanna þá hefði sett óheft
frelsi einstaklingsins ofar öllu
öðru.
Reuter
Morðanna á A-Timor minnst
Nærri þijú hundruð manns, fólk frá Austur-Timor og stuðningsmenn
þess, lögðust í gær á götu í miðborg Darwin í Ástralíu til að minn-
ast þess, að þá var ár liðið frá fjöldamorðum indónesíska hersins á
eynni. Hafði fólkið kross á brjósti, einn fyrir hvern mann, sem féll
í valinn en þeir voru 180 að tölu. Indónesísku hermennirnir hófu
fyrirvaralaust skothríð á fólk, sem var að fylgja til grafar ungum
manni, sem barist hafði gegn yfirráðum Indónesa en þeir lögðu
Austur-Timor undir sig árið 1975, aðeins fáum mánuðum eftir að
Portúgalar veittu landsmönnum frelsi.
G O L F E F N I
R
I K I
ATTURUNNAR
SÝNING
á MARMOLEUM gólfefnum
í verslun okkar að Síðumúla 14
frá mánudegi til laugardags í
tilefni nýrrar litalínu.
KJARAN
Gólfbúnaður
SÍÐUMÚLA 14 • SÍMI (91) 813022
• MARMOLEUM er unnið úr náttúrulegum
efnum og er því fullkomlega vistvænt.
• MARMOLEUM fæst í Ó8 litum.
• MARMOLEUM býður heildarlausn í
gólfefnum með óteljandi samsetningar-
möguleikum.
Ólöf Flygenring arkitekt og
Júlía P. Andersen innanhússarkitekt
verba í versluninni frá klukkan 16-18
alla sýningardagana og veita
vibskiptavinum ókeypis ráðleggingar
um val á MARMOLEUM.