Morgunblaðið - 13.11.1992, Síða 36

Morgunblaðið - 13.11.1992, Síða 36
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1992 -ttt—rcrrtr-tvtv* :•.? jfi;■1 /;r■ ^...... Leyndir dýrgrip- ir í bókakössum eftir Sigríði Ingvarsdóttur Það eru fleiri bækur en dýrmæt- ar biblíur og ferðabækur svo eitt- hvað sé nefnt sem geta haft veru- legt verðgildi í bókasafninu. Á boð- stólum hjá Sotheby’s eru boðnar upp ólíklegustu bækur. Má nefna bækur um læknisfræði, lista- verkabækur, bókmenntaverk, bamabækur og fleira. í þessari grein verður eingöngu flallað um verðgildi nútíma bóka. Ef þú lítur svo á, lesandi góður, að það sé of mikil vinna að fara í gegnum bækurnar í háaloftinu eða bókakössunum í kjallaranum þá getur það verið ómaksins vert. Vera má að þú rekist á fyrstu útgáfu af Poe’s Tammerlane eftir Edgar AU- ans en sú bók getur verið metin á $198.000 eða 1.049.400 ÍSK. Bókin Moby Dick eftir Herman Meville getur fanð upp í $60.000 eða 318.000 ÍSK, þ.e.a.s. ef hún er gefin út í Lundúnum af bókaforlag- inu The Whale. Þótt þú finnir ekki slíka dýrgripi þá má vera að þú finn- ir fyrstu útgáfu af Gone With The Wind sem getur farið á $5.940 um 314.000 ÍSK, þ.e.a.s. ef hún er gefin út árið 1936 af bókaforlaginu May. Bókin Call of the Wild frá árinu 1903 seldist á síðasta ári fýr- ir $2.420 eða 128.000 ÍSK. Fyrsta útgáfan af The Catcher in the Rye eftir J.S. Salinger’s kom út árið 1951 er metin á meira en $1.000 eða tæpar 53-000 ÍSK. Það er því full ástæða til þess að menn átti sig á því að bækur, sem eru fágætar og dýrmætar, þurfa ekki að vera gamlar. Fyrstu útgáfur af hundruð bóka sem eru gefnar út bæði í Bandaríkjunum og Bretlandi eru oft keyptar af söfn- urum fyrir mun meira fé en þeir mundu greiða fyrir einstaka bækur eftir John Milton og Byron. Fyrsta útgáfa af The Great Gatsby eftir F. Scott Fitzgerald var nýlega seld fyrir $14.300 eða um 757.900 ÍSK. Fyrsta útgáfan af Three Stories & Ten Poems hefur verið seld á upp- boði fyrir $20.900 eða um 1.107.700 ÍSK. Jafnvel þótt ein- staka fyrstu útgáfubækur hafi vill- ur og hafi aðeins verið gefnar út í þúsund eintökum er markaðurinn fyrir slíkar bækur sterkur og hefur farið vaxandi. Ástæðan er ef til vill sú að á þessari myndbandaöld, þar sem bókin fær alltaf minna og minna rými, þykir hópi fólks vænna um bókina og skynjar hana sem verðmætt handverk. Bækumar, sem eru eftirsóttar, verða að vera í góðu ásigkomulagi; fyrsta prentun af fyrstu útgáfu í upprunalegu bókabandi og vel með farin. Þekktir bókasafnarar eins og Bradley Martin, Carter Burden og Raymond Epstein líta ekki við öðru. Gott útlit bókarinnar hefur aldrei skipt jafnt miklu máli og í dag. Þetta er fyrst og fremst vegna þess að flestar bækur, sem voru gefnar út frá miðri síðustu öld og til ársins 1950, voru oft prentaðar á fremur lélegan pappír sem entist illa nema því betur væri hugsað um bækum- ar. Verðið endurspeglar eftirspum- ina því betra sem útlitið er því betra verð fæst fyrir hlutinn. Þetta á reyndar við um alla kjörgripi. í fyrstu útgáfum leynast oft vill- ur sem em síðan leiðréttar í seinni útgáfum. Um getur verið að ræða stafsetningarvillur, orð sem hafa dottið út eða rangar tilvitnanir. Þetta getur skipt vemlegu máli fyr- ir bókasafnara því þetta staðfestir oft að um sé að ræða fyrstu útgáfu bókarinnar. Fyrsta prentun af bók Hemingways, The Sun Also Rises frá árinu 1926 hefur til að mynda villu á bls. 181, „stoppped", sem var að sjálfsögðu leiðrétt í síðari útgáfum. Eintak af slíkri bók var selt á $17.600, um 932.800 ÍSK á síðasta ári. Þá ber að geta þess að um er að ræða villu í fyrstu prentun bókarinnar Farwell to Arms, sem metin er á $750 eða um 39.000 ÍSK. Bókin The Age of Innocenc, eins og hún kom út í fyrstu útgáfu, er metin á $2.500-3.500, eða um 132.500-185.500 ÍSK. Bókasafnarar leggja mikið upp úr bókbandinu. Oft hefur liturinn á bókbandinu breyst í síðari útgáfum. Það er elsti liturinn sem hefur mesta verðgildi. Þá er lagt mikið upp úr því að bókin sé sem minnst rykfall- in. Allt til ársins 1950 leiddu bóka- safnarar slíkt að mestu hjá sér. Þeir lögðu megináherslu á fyrstu útgáfu, fyrstu prentun og fyrsta bókband. Þetta viðhorf ásamt litlu rykfalli á bókinni hefur í för með sér að slíkar bækur eru mjög sjald- gæfar, jafnvel þótt bækurnar hafi verið gefnar út í stóru upplagi. Það sem skiptir mestu máli í dag fyrir slíka bókasafnara er að finna næst- um óaðfinnanlegt eintak af fyrstu útgáfu. Það sem meira er, að vel efnaðir bókasafnarar erlendis eru tilbúnir að greiða hátt verð fyrir slíkt ein- tak. Fyrsta bók Williams Faulkn- ers, The Marble Faun, var gefin út árið 1924 í 500 eintökum, en 300 eintök voru eyðilögð af slysni. Þessi bók er afar fágæt og getur farið á uppboði án kápu á $1.100 um 583.000 ÍSK en sé hún í upp- runalegu bókbandi, þá getur hún farið á uqpboði á $20.900, um 1.107.700 ISK. Þegar hlutir ná' svo háu verði eins og um getur er við því að bú- ast að mikið verði um falsanir. Á Tævan hefur ýmsum handverks- mönnum tekist að framleiða góðar eftirlíkingar af slíkum bókum. Svo eitthvað sé nefnt má nefna Farwell to Arms og In Cold Blood, sem hafa verið prentaðar með sömu vill- um og upprunalegar útgáfur. Jafn- vel þótt bækumar hafi ekki verið prentaðar á sama pappír hafa margir látið blekkjast og greitt of- fjár fyrir verðlausar falsanir. Til að komast hjá slíkum óþægindum er vænlegast fyrir safnara að kaupa slíkar bækur hjá virtum bókabúðum eins og stórum uppboðshúsum eins og Sotheby’s, sem endurgreiðir hlutina að fullu með verðbótum þó að líði allt að fimm árum þar til kaupandinn gerir athugasemd ef upp kemst að hluturinn hefur verið falsaður. Slík kaup hafa í för með sér gífurlega tryggingu fyrir kaup- andann. Þess má einnig geta að Sigríður Ingvarsdóttir „Þegar hlutir ná svo háu verði eins og um getur er við því að bú- ast að mikið verði um falsanir. A Tævan hef- ur ýmsum handverks- mönnum tekist að framleiða góðar eftir- líkingar af slíkum bók- um.“ yfirleitt komast menn að betri kjör- um með því að kaupa á uppboðum. Einn stærsti viðskiptahópur Sothe- by’s eru menn sem versla með kjör- gripi en leggja síðan á háa álagn- ingu eins og við er að búast því oft eru þessir aðilar með verslanir í mjög dýrum hverfum þar sem leiga er svimandi há. Þótt safnarar leggi megináherslu á fyrstu prentun og fyrstu útgáfu þá kemur það oft á óvart hvað fyrsta bók rithöfundar er í háu verði. Fyrsta bók Sinclair Lewis Hike and the Aeroplane, sem kom út undir nafninu Tom Graham, ein- tak sem var illa rykfallið, var selt á uppboði fyrir $19.250, um 1.020.250 ÍSK. Fyrsta bók John Steinbeck’s, Cup of Golder, er met- in á $1.320, um 69.500 ÍSK. Fyrsta bók Ezra Pound, A lume spento, sem var lítið safn af ljóðum, kom út á ensku. Hundrað eintök voru gefin út í Feneyjum árið 1908. Vitað er um 26 eintök í heiminum í dag. Árið 1990 seldist eitt eintak af þessari bók á uppboði hjá Sothe- by’s fyrir $55.000, um 2.915.000 ÍSK. Nú er eðlilegt að menn spyrji hvort ekki sé hægt að fá háar upp- hæðir fyrir fyrstu útgáfur af bókum nóbelsverðlaunahafans Halldórs Kiljans Laxness. Þá ber að hafa í huga að flestar bækur hans eftir því sem mér kunnugt hafa verið gefnar út í fyrstu útgáfu á ís- lensku. Auk þess hefur hann aldrei orðið jafn þekktur erlendis meðal almennings eins og rithöfundar á borð við Hemingway og Steinbeck. Allt er þetta bundið við framboð og eftirspurn, frægð og frama. Algengustu leiðir að safna nú- tíma bókum í fyrstu útgáfu er að safna öllum eða flestum eintökum eftir uppáhaldsrithöfundinn. Þá er að kaupa bækur eftir rithöfundinn sem koma út í takmörkuðu upp- lagi, áritaðar af sjálfum rithöfund- inum, úrvalsrit sem koma út eftir hann og bækur sem hafa verið kvik- myndaðar. Þetta er stundum nefnt söfnun heildarverka. Önnur leiðin er að safna bókum eftir fræga rit- höfunda. Það nýjsta í þessum efnum er að safna bókum sem hafa ekki hlot- ið sérstaka bókmenntalega viður- kenningu heldur sem eru þekktar meðal almennings eins og teikni- myndasögur. Gott eintak af fyrstu útgáfu eftir Dashiell Hammett The Maltese Falcon seldist nýlega á uppboði fyrir $29.700, um 1.574.100 ISK. Fyrsta bók sem Frank Baums skrifaði The Wond- erful Wizard fór á $20.900, um 1.107.700 ÍSK og Tarzan and the Apes, eftir Edgar Rice eins og hún kom út árið 1912 í All Story-tíma- ritinu, seldist á $11.000, um 583.000 ÍSK. Teiknimyndasögur eða Detective Comics frá 1939 frá maí í hefti nr. 27 verða boðnar upp hjá Sotheby’s í New York á þessu misseri og eru metnar á $36.000- 50.000 eða milli 1.908.000 og 2.550.000 ÍSK. Eins og sést á umræddum tölum, lesandi góður, getur það verið vel þess virði að líta í bókasafnið eða í gamla bókakassa eins og áður sagði. Hafðu það í huga þegar þú kaupir nýjar bækur að kaupa fyrstu útgáfu ef þú hefur efni á því og áhuga. Og mundu eftir að dusta rykið af þeim að minnsta kosti öðru hvoru þótt það geti verið hundleið- inlegt. Höfundur erfulltrúi Sotheby’s & íslandi. KAUPMIÐLUN LÖGGILD FASTEIGNA-, SKIPA- OG FIRMASALA AUSTURSTRÆTI17 - SÍMI 62 17 00 Opið laugardag kl. 10-13 Ný fyrirtæki á söluskrá: Heildverslun og smásöluverslun Af sérstökum ástæðum er eitt stærsta fyrirtæki á sviði leikfanga og tómstundavöru til sölu. Tvímæla- laust eitt þekktasta fyrirtæki landsins á sínu sviði. Næstu 6 vikur eru aðalsölutími ársins! Matvöruverslun f austurbænum Mikið endurskipulagður rekstur með góða rekstr- arafkomu. Ein af þessum „góðu“! Lágmarks launakostnaður - hagstæð húsaleiga. ★ Söluturn - ísbúð - myndbandaleiga í nágrenni Reykjavíkur. Góð, vaxandi velta. Nýjar innréttingar og tæki. ★ Innrömmunarverkstæði m/galleríi Gott atvinnutækifæri fyrir laghentan mann. ★ Mjög sérstök sérverslun v/Laugaveg Skartgripir, gjafavara, sérstakur fatnaður. Eigin innflutningur - heildsala. Fjöldi annarra fyrirtækja á skrá Hagsýni og mannúð Athugasemd við niðurskurð framlaga til SÁÁ eftirPétur Tyrfingsson Hlutskipti stjómmálamanna er ekki öfundsvert þessa dagana, hvort sem þeir standa að ríkisstjórn- inni eða ekki. Nú standa spjótin úr öllum áttum á ráðherra heilbrigðis- mála. Má vera að það æri óstöðug- an ef fótgönguliði í heilbrigðiskerf- inu steytir sig framan í herráðið. Soldátum mun þó jafnan heimilt að kvarta yfir skóleysi. Mér og öðr- um í fylkjum SÁÁ Iíst illa_ á þann fótabúnað sem okkur er sniðinn í frumvarpi til fjárlaga. í Qárlagafrumvarpinu er gert ráð fyrir að skera niður Ijáryeitingar til reksturs stofnana SÁÁ um 35 milljónir króna. Með síðustu fjárlög- um voru framlög til SÁÁ lækkuð um annað eins, svo niðurskurðurinn er kominn upp í rúmar 70 milljónir á tveimur árum! Útilokað er að komast af án allra þessara milljóna með því einu að hagræða og spara án þess að draga úr þjónustu. For- ráðamenn SÁA hafa kannað alla möguleika og komist að þeirri nap- urlegu niðurstöðu að þessum niður- skurði verður ekki mætt nema loka öðru meðferðarheimili SÁÁ, annað- hvort í Vík eða á Staðarfelli. Verði það að veruleika, munu í það minnsta 400 áfengis- og vímuefna- sjúklingar glata tækifæri á fullri meðferð ár hvert. í stað 800 sjúk- linga á ári sem njóta fullrar með- ferðar hjá SÁÁ munu aðeins 400 komast í slíka meðferð eftir niður- skurð. Dýrkeyptur sparnaður Við sem störfum við meðferð áfengis- og vímuefnasjúklinga höf- um þungar áhyggjur af því að þeir verði mun fleiri en 400, sem missa af meðferð hjá SÁÁ. Fækkun með- ferðarrúma um helming mun ábyggilega hafa í för með sér lé- legri nýtingu og skilvirkni á sjúkra- húsinu Vogi. Þar munu sjúklingar á leið til framhaldsmeðferðar þurfa að bíða í biðröð og teppa þá pláss á meðan. Sjúklingar sem annars mundu fara í meðferð en fá ekki þyrftu í mörgum tilvikum að dvelja eilítið lengur á Vogi en áður. Þegar haft er í huga að fækka á rúmum Ríkisspítalanna fyrir áfengissjúka í 15, eykst álagið mjög á stofnanir SÁÁ. Ekki þarf duiræna spádóms- gáfu til að sjá fyrir að þeir verða örugglega 500 (og jafnvel fleiri) sem fara á mis við nauðsynlega meðferð. Þeir sjúklingar sem ekki komast í meðferð gufa ekki upp. Hvað verð- ur um þetta fólk? Hluti þeirra sjúk- linga sem ekki eiga kost á meðferð mun vafalaust leggjast tafarlaust inn á aðrar sjúkrastofnanir eða gista fangageymslur. Vistin á þeim stofnunum er allmiklu dýrari í krón- um en rétt meðferð á viðeigandi stofnunum sem ætlaðar eru áfeng- is- og vímuefnasjúklingum. Annar hluti sjúklinga, sem eru illa staddir, mun að.líkindum leita eftir þjónustu geðdeilda. Ekki eru allir taldir. Sumir þeirra sem ekki njóta með- ferðar eftir niðurskurð munu ganga áfram með sjúkdóm sinn og þurfa með tímanum þjónustu annars stað- ar í heilbrigðiskerfinu vegna fylgi- kvilla áfengis- og vímuefnasýkinn- ar. Við getum líka reiknað með að ástvinir allra þessara sjúklinga fari ekki varhluta af vandamálinu og það komi niður á heilsu þeirra. Ótal- inn er alls konar óbeinn kostnaður fyrir atvinnulífíð, félagsmálayfir- völd, lögreglu, dómskerfið og jafn- vel tryggingarnar ýmist vegna lé- legra afkasta, aukinna félagslegra erfíðleika, lögbrota eða slysa. Mannúð og hagsýni Þegar við stöndum frammi fyrir

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.