Morgunblaðið - 13.11.1992, Síða 39

Morgunblaðið - 13.11.1992, Síða 39
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1992 39 Ingibjörg Jóhanns- dóttír - Minning Okkur systkinin langar í nokkr- um orðum að minnast ömmu okkar Ingibjargar Jóhannsdóttur sem lést þriðjudaginn 3. nóvember síðastlið- inn á Dalbæ, dvalarheimili aldraðra á Dalvík, en þar dvaldi amma síð- ustu 12 ár ævi sinnar. Hún fæddist á bænum Búrfelli í Svarfaðardal hinn 8. desember 1905. Foreldrar hennar voru Þuríð- ur Jóhannesdóttir og Jóhann Þor- kell Jónsson. Amma var elst af 6 systkinum en þau eru Jónína, Jón Pálmi, Ari, Jóhannes og Hörður, d. 1989. Amma ólst upp á Búrfelli ásamt systkinum sínum. Hún fór ung að heiman. Fyrst lá leiðin til Akur- eyrar þar sem hún vann á hóteli. Síðan fór hún til Reykjavíkur og lærði að sauma og sníða á sauma- stofu Guðrúnar Heiðberg og stund- aði hún þá iðn meðan kraftar ent- ust. Á þessum árum var hún einn- ig í vist á Siglufirði og fór þangað í síldarsöltun nokkur sumur. Amma giftist Hafliða Ólafssyni bátsmanni á e/s Heklu. Hann fæddist á bænum Lækjarbakka, Hvammshreppi V-Skaftafellssýslu 5. maí 1894. Þau eignuðust 2 dætur, Hafdísi Jóhönnu og Ingi- björgu. Hafdís er gift Rúnari Frið- sveini Þorleifssyni og eiga þau 2 börn, Borghildi Freyju og Hafliða Þorkel. Ingibjörg er gift Sævari Brynjólfssyni. Þau eiga 3 börn, Bryndísi, Hafliða og Brynjólf Ægi. Bryndís er gift Einari Þ. Magnússyni og þau eiga einn son, Sævar Magnús. Hafliði býr með Kolbrúnu Hjartardóttur og eiga þau 1 dóttur, Ingibjörgu Ýr. Hafl- iði afi fórst með Heklu 29. júní 1941. Eftir að amma varð ekkja flutti hún norður aftur með dætur sínar, fyrst heim á Búrfelli og síðan til Dalvíkur. Þar vann hún fyrir heimilinu með saumaskap og einn- ig hélt hún saumanámskeið í sveit- inni. Við nutum þeirra forréttinda að alast upp með ömmu inni á heimil- inu, því hún bjó hjá foreldrum okk- ar eftir að þau hófu búskap í Kefla- vík, þar til fýrir 12 árum er hún flutti aftur til Dalvíkur. Við nutum svo sannarlega góðs af nálægðinni við ömmu því hún var alltaf til staðar og tilbúin ef eitthvað bját- aði á og hún hafði alltaf nógan tíma og þolinmæði. Margar minningar þjóta um hugann, við minnumst þess hve gott var að skríða undir heita sæng hjá ömmu á morgnana og fá hana til að lesa sögu, syngja „gömlu lögin“ eða segja sögur frá því í gamla daga. Ef við höfðum ekki leikfélaga hafði amma alltaf tíma, og hún tók þátt í leikjum með fé- lögum okkar ef svo bar undir. Amma kenndi okkur líka mikið, hún kenndi okkur öllum að lesa .áður en við byrjuðum í skóla, hún kenndi okkur bænir og vers, þulur og vísur og mikinn fróðleik um hagi fólks fýrr á öldinni. Hún var einnig mikil hannyrðakona og kenndi okkur m.a. að pijóna, hekla og sauma út. Eftir að amma flutti norður á Dalvík aftur fór fljótt að halla undan fæti og heilsunni hrakaði fremur hratt. En hún fékk góða umönnun á Dalbæ, þar voru allir góðir við hana bæði starfsfólk og vistmenn. Við viljum þakka ömmu fyrir allt sem hún gaf okkur. Hún kenndi okkur og að vera alltaf tilbúin hvort sem okkur vantaði ömmu eða góðan félaga. Blessuð sé minning hennar. Nú er ég klæddur og kominn á ról, Kristur Jesús veri mitt skjól, í guðsóttanum gefðu mér að ganga í dag svo líki þér. (Hðf. ók.) Legg ég nú bæði líf og önd, ljúfi Jesús, í þína hðnd, síðast þegar ég sofna fer sitji pðs englar yfir mér. (H. Pétursson) Bryndís, Hafliði og Brynjólfur Ægir. Eitt atriði úr myndinni í sérflokki. Stjörnubíó sýnir myndina I sérflokki STJÖRNUBÍÓ hefur tekið til sýninga nýjustu mynd leikstjór- ans Penny Marshall, I sérflokki, Alþjóða sykur- sýkisdagur- inn á morgun Á alþjóðasykursýkisdaginn 14. nóvember efnir heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytið til ráð- stefnu í Borgartúni 6 kl. 10 til 13. Ráðstefnan er til kynningar á skýrslunni Sykursýki á Islandi. Fjallað verður um sykursýki hjá fullorðnum, börnum, ófrískum kon- um svo og augu og sjón sykur- sjúkra. Ennfremur um þjálfun, fræðslu og hjúkrun ásamt almanna- tryggingum og félagslegri þjónustu við sykursjúka. Frummælendur eru: Ástráður B. Hreiðarsson, læknir, Árni V. Þórs- son, læknir, Eggert Sigfússon, lyQ'afræðingur, Einar Stefánsson, læknir, Reynir T. Geirsson, læknir, Vilborg Ingólfsdóttir, hjúkrunar- fræðingur, og Jónína G. Jónsdóttir, viðskiptafræðingur. með Geenu Davis, Madonnu og Tom Hanks í aðalhlutverkum. Myndin segir frá fyrsta kvenna- liðinu í hafnabolta. Því var ekki spáð miklum frama í byijun en þó fór svo að leikmenn þess urðu þjóð- hetjur í Bandaríkjunum, Geena Davis, Madonna og stöllur þeirra gefa karlmönnunum ekkert eftir í hraða og hörku enda voru þær látn- ar gangast undir langa og strangja þjálfun sem skilar sér svo sannar- lega á hvíta tjaldinu. Fjölbreytt úrval muna, handa- vinna og kökur eru í boði. Kaffisala verður einnig á staðnum. Ágóðinn rennur aftur til Sambands íslenskra kristniboðsfélaga, en á vegum fé- lagsins starfa nú fimm kristniboðs- Nýtt tímarit um tölvur ÚT ER komið Tímaritið Tölvu- blaðið, 1. tbl. 1. árg. Á það að koma út á mánaðar fresti. Meðal efnis í blaðinu eru greinar og leiðbeiningar um Windows 3.1, Exel 4 og Dos 5 ásamt greinum um nýjungar, forritun og margt fleira. I blaðinu verða svo líka grein- ar um Machintosh/Apple. Fylgst verður síðan með öllum nýjungum í á tölvusviðinu og þeim gerð skil. Meiningin er að síðan verði í blað- inu Bréfakassi þar sem menn geta skrifað inn um vandamál og fengið leiðbeiningar. Tölvublaðið starf- rækir einnig gagnabanka (BBS) sem er opinn allan sólarhringinn, hlaðinn tugþúsundum forrita. Þar verður sérstök deild fyrir kaupendur blaðsins til að leysa úr tæknilegum vandamálum eftir því sem við verð- ur komið. Blaðinu verður dreift í lausasölu um land allt og einnig selt í áskrift. Blaðið er prentað í Prentsmiðjunni Odda. Útgáfan er staðsett á Hvammstanga. -----♦ ♦ ♦----- ■ KEPPNI í drengja- og telpna- flokki (fædd 1977 og síðar) á Skák- þingi Islands 1992 fer fram dag- ana 13.-15. nóvember. Teflt verður í Faxafeni 12, Reykjavík, og hefst 1. umferð föstudaginn 13. nóvem- ber kl. 19. Skráning fer fram á skákstað kl. 18.30 til 18.55, þ.e. fyrir fyrstu umferð. fjölskyldur auk heimastarfsmanna. Únnið er að kristniboði bæði í Kenýju og Eþíópm þar sem rekið er öflugt skólastarf og heilbrigðisþjónusta, samhliða safnaðarstarfinu. (Fréttatilkýnning) Basar Kristni- boðsfélags kvenna ÁRLEGUR basar félagsins verður á morgun, laugardaginn 14. nóv- ember, frá kl. 14-18, í Kristniboðssalnum á Háaleitisbraut 58. Þing Bandalags háskólamanna Framtíð félags- ins til umræðu TÍUNDA þing Bandalags háskólamanna, BHM, var haldið í Reykja- vík 6.-7. nóvember. Fyrir þinginu lá tillaga frá framkvæmdastjórn um að stéfnt yrði að félagsslitum á framhaldsþingi eftir sex mán- uði. Ástæðan er sú að á undanförnum mánuðum hafa ýmis stærstu aðildarfélög bandalagsins sagt sig úr því. í skýrslu f.h. framkvæmda- stjórnar lagði formaður-hennar, Heimir Pálsson, áherslu á að sljórn- in teldi þetta að sönnu alvarlega og óskynsamlega þróun en tilraun- ir hennar til að snúa á aðrar brautir hefðu ekki borið árangur. Á þinginu voru mættir til ráða- gerða fulltrúar frá nítján af tuttugu og einu aðildarfélagi og urðu miklar umræður um stöðuna. Var það mál flestra að enn væri mikil nauðsyn á að halda uppi faglegum háskóla- mannasamtökum og bæri að reyna til þrautar áður en upp væri gefist. Fram kom tillaga um að kjörin væri fimm manna nefnd til þess að kanna til hlítar vilja aðildarfélag- anna til áframhaldandi samstarfs. Sameinuðust framkvæmdastjórn og tillöguflytjendur um breytingu. Verða niðurstöður nefndarinnar lagðar fyrir aðalstjórn bandalagsins að íjórum mánuðum liðnum og þá ákveðið hvaða tillaga verður lögð fyrir framhaldsþingið. í nefndina voru kjörin Hope Knútsson (Iðjuþj álfafélagi íslands), Hulda Ólafsdóttir (Félagi ísl. sjúkraþjálfara), Logi Jónsson (Fé- lagi háskólakennara), Tryggvi Jak- obsson (Útgarði) og Þuríður Maggý Magnúsdóttir (Stéttarfélagi ísl. fé- lagsráðgjafa). Frestað var kjöri nýrrar framkvæmdastjórnar og sitja því fram að framhaldsþingi þeir sem kjörnir voru á níunda þingi BHM fyrir tveim árum. (Fréttatilkynning) 1 * 1 P i ^ É ^ w..f 4m * 1 Æ 'Xt ..JL.JIx, J Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttir Starfsfólk Kartöfluverksmiðjunnar, f.v.: Þórunn Andrésdóttir, Magnea Gestsdóttir, Herdís Hallgrímsdóttir og Auðun Gunnarsson. Fremst Erlingur Jónsson og Aðalheiður Hauksdóttir. Þykkvibær Kartönuverk- smiðjan 10 ára Hellu. Kartöfluverkmiðja Þykkva- bæjar hélt nýlega hátíðlegt 10 ára starfsafmæli verksmiðjunnar er hreppsbúum var boðið til sér- staks hátíðarfundar í samkomu- húsi staðarins, en börnum var boðið til grillveislu sama dag. Á fundinum lá fyrir sex mánaða uppgjör, en afkoman þykir góð miðað við þennan fyrri helming ársins. Að sögn verksmiðjustjórans, Auðuns Gunnarssonar, hefur á síð- ustu mánuðum orðið framleiðslu- aukning sem að hluta til má rekja til gagngerrar endurnýjunar verk- smiðjunnar á sl. tveim árum sem þótti nauðsynleg til að mæta harðn- andi samkeppni við innflutta vöru. „Við erum með algerlega sambæri- lega vöru á boðstólum, enda sýnir það sig í innkaupum hins almenna borgara, hann velur frekar íslenskt ef gæðin eru þau sömu,“ sagði Auðun. Kartöfluverkmiðjan rekur eigin dreifingarstöð í Garðabæ en alls starfa tíu manns hjá fyrirtækinu, þar af eru sex störf í Þykkvabæ. Framkvæmdastjóri Kartöfluverk- smiðjunnar er Friðrik Magnússon. - A.H. Sigurbjartur Pálsson, stjórnar- formaður Kartöfluverksmiðj- unnar, flytur ávarp á hátíðar- fundinum en stjórnin ákvað að færa nýjum Grunnskóla Þykkva- bæjar tölvubúnað að verðmæti 160.000 kr. að gjöf.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.