Morgunblaðið - 13.11.1992, Blaðsíða 40

Morgunblaðið - 13.11.1992, Blaðsíða 40
40 MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 13. NÓVEMBER 1992 fclk í fréttum MYNDLIST Málað í minningn manns Þegar sorgin knýr dyra, hefur mörgum reynst best að sökkva sér í vinnu. Það gerði ung myndlist- arkona sem missti sinn besta vin og félaga í sumar, Einar B. Ár- mannsson. Hún sýnir um þessar mundir myndir á Café 17 við Lauga- veg. Asta Guðrún Eyvindardóttir er lærður myndlistarmaður, hefur lært hér heima og í Bretlandi og m.a. numið myndlist á Louvre-safninu í París. Þá hefur hún unnið við leik- tjaldamálun í Þjóðleikhúsinu. Ásta Guðrún á að baki fjölda sýninga. Hún segir sýninguna nú hins vegar vera tileinkaða Einari, sem lést af slysförum í sumar. „Allt okkar samband var listrænt og fal- legt, eins og lífíð vildi endalaust rugga okkur. Við tengdumst á ótal máta. Eftir að að ég kynntist Ein- ari, 16. febrúar 1990, fór ég að draga upp huglægari myndir en áður og reyna að fínna öllum tilfínn- ingum mínum sannan lit og listrænt séð í orðsins fyllstu merkingu. Eg hef sennilega ekki verið heiðarlegri gagnvart nokkrum manni en hon- um. Hann auðgaði list mína eða jafnvel sýndi mér hana í sjálfri mér,“ segir Ásta Guðrún. „Það er mér ljúf skylda að heiðra minningu hans.“ Hún segist eiga erfítt með að tala um innviði sýningarinnar vegna þess hversu persónuleg hún er. „Enda eiga allir rétt á listinn í sjálf- um sér, á sinn hátt. Nú þegar skammt er eftir af sýningunni fínnst mér rétt að láta vita af henni, því að listrænt séð er hún örugglega mikilvæg á mínum ferli og listin er það sem eftir stendur. Þar vil ég standa mig vel, allra hluta vegna. Þessar myndir eru öðruvísi en það sem ég hef áður gert, sjálf skil ég ekki alltaf hvað þær eiga að tákna, Ásta Guðrún sýnir í Café 17 í minningu vinar síns. yppti bara öxlum og held áfram að troða þessa grýttu braut og vona það besta, ég þekkti hvort eð er ekki aðra leið.“ í sumar fannst mér ég ekki geta klárað nokkurn skapaðan hlut og var ákveðin í því að hætta að mála og hætta öllu þessu listabulli, sem væri hvort sem er aðeins ímyndun og bull og aðeins fyrir smábörn. Ég var búin að fá Gallerí 1.1 og vini mína til að hjálpa mér að klára úr túpunum, ég hafði bara ekki lyst á því að gera það sjálf. Myndimar máttu vera ljótar, sagði ég þeim og ég ætlaði að ljúka mínum ferli á ljótri og blautri sýningu. Mér fannst ég vonlaus málari, þetta var hræði- legt sumar. Þegar Einar dó gat ég allt í einu lokið öllum myndunum auðveldlega og vel og ég sökkti mér í vinnu. Allar forsendur breyttust og nú sýni ég aftur í Café 17, Sýn- ingin er ekki lengur sú lokasýning sem ég ætlaði. Mér finnst mikil gæfa yfír henni og ef eitthvað er einkasýning þá fínnst mér ég núna fyrst skilja hvað í því orði felst.“ Villibráðarhlaðbwð i Láninu á Loftleiðum Helgarnar 30. október til 1. nóvember, 6.-8., 13.-13. og 20.-22. nóvember mun hlaðboróið í Lóninu svigna undan villtum réttum frá kl. 19:00. Forréttir: Villibráðarseyði Hreindýrapaté Sjávarréttapaté Grafinn silungur Aðalréttir: Heilsteiktur hreindýravöðvi Ofnsteikt villigœs Pönnusteikt lundabringa Smjörsteikt rjúpubringa Ofnsteikt önd Hreindýrapottréttur Eftirréttir: Heit eplakaka Ferskir ávextir. Ostar 6 u Fylgist með útcirætti vinnin^a f Sterum o# stærilæti á Aðalstciðinni kl. 13-13 á sunnudögum. Heppnir gestir geta tekið flugið til London, Kaupmannahafnar eða Luxemborgar með Flugleiðum, því eftir hverja helgi verður dregið um glæsilega ferðavinninga á Aðalstöðinni. Villibráðarhlaðborðið nýtur geysilegra vinsælda og þvx er öruggara að panta borð strax í síma 22321. Lifandi tónlist. Verið velkomin. HOTEL LOFTLEIDIR „Birgir Jónsson veitingamaður á Gullna hanánum hjá íslenska hlað- borðinu. SÆLKERAR Islenska línan Aveitingastaðnum Gullna hanan- um á Laugavegi 178 er nú framreiddur íslenskur matur á mjög nýstárlegan hátt. Hversdagsmatur eins og slátur, lifur og hrútspungar eru nú orðnir að gómsætum hátíðar- mat og á lítið skylt við hinn venju- lega súrsaða innmat þótt hráefnið sé hið sama. Veitingahúsið býður þessa dagana upp á hausthlaðborð þar sem finna má rétti eins og til að mynda slátur með sveskjum í stað mörs, fyllt lambahjörtu, hafrasteikta hrútsp- unga, lifur með beikoni, jurtakryddað lambalæri, íslenska kjötsúpu, saltaða svínaskanka og uxabijóst, saltfisk- gratin, allar tegundir síldarrétta og heita pottrétti. Auk þess er hægt að fá slátur matreitt á hefðbundinn hátt, hangikjöt og svið. í tvær vikur hafa þessir réttir ver- ið á boðstólum og segir Birgir Jóns- son veitingamaður að þeir hafi mælst vel fyrir hjá viðskiptavinum sem einkum hafa verið hrifnir af hrútsp- ungunum, matreiddum á þennan hátt. „Annars er tilgangurinn með þessari hugmynd sá að breyta út af vananum og fá fólk til að samþykkja það. Mér sýnist það ætla að ganga vel, því flestir eru mjög jákvæðir núna gagnvart íslenskum mat.“ Hugmyndina að þessu íslenska hlaðborði á veitingamaðurinn sjálfur og matreiðslumeistari hússins, Guð- rún Jónsdóttir. Hafa þau lengi prófað sig áfram í matreiðslu þessa íslenska hráefnis og var til dæmis íslenskum kryddjurtum safnað í í Heiðmörk í haust, og hún gerð að „eyðimörk", eins og Birgir kemst að orði. Franska línan í matreiðslu hefur verið vinsæl hér á landi, en nú má ef, til vill fara að tala um íslerisku línuna í því sambandi. íslenska hlað- borðið verður áfram á boðstólum hjá Gullna hananum. Fyrir jólin er svo fyrirhugað að vera með jólahlaðborð með íslenskum mat, sem enn meira verður lagt í að sögn Birgis. COSPER

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.